Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 7
MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUÍJAGUR 11. JÚLÍ 1993 Dr. Guðmundur Ólafsson Doktor í guðfræði GUÐMUNDUR Ólafsson út- skrifaðist sl. desember með doktorspróf (Th.D.) í guðfræði frá Andrews-háskóla í Michig- an. Doktorsritgerð hans nefnist: „„The Use of NASA in the Pentateuch and Its Contribution to the Concept of Forgiveness." Hún fjallar um almenna notkun hebresku orðrótarinnar NS’ í Mósebókum og hvernig sú notk- un tengist hugtakinu „að fyrir- gefa“. Grunnmerking rótarinn- ar er „að bera e-ð“, og er ein af þeim orðrótum sem í Gamla testamentinu er þýdd „að fyrir- gefa“. Rannsókn Guðmundar leiddi í ljós m.a. að þegar orðrótin NS’ er notuð um fyrirgefningu er ekki aðeins um hlutlæga augnabliks sakaruppgjöf að ræða, eins og oft er talið, heldur persónulega þátt- töku í þörfum hins seka í formi umhyggju og aðstoðar. Þessi merking fyrirgefningar felur ekki endilega í sér fjarlægingu afleið- inganna, en er öllu heldur varanleg jákvæð afstaða og fúsleiki til að mæta þörfum hins seka og veita honum nauðsynlegan stuðning í lífinu. Þessi merking fyrirgefning- ar fellur vel inn í ummæli Gamla testamentisins um að fyrirgefning sé hluti af eðli Guðs (2. Mós. 34. 6,7) og hvatningu Páls postula um að við berum hvert annars byrðar og uppfyllum þannig lögmál Krists. Guðmundur lauk áður M.Div.- prófi í guðfræði árið 1978, einnig frá Andrews-háskóla. Hann var einn þeirra sem voru þýðendum nýju útgáfu íslensku biblíunnar til ráðleggingar. Guðmundur er sonur hjónanna Ólafs Ingimundarsonar og Rósu Teitsdóttur sem hafa búið í Keflavík um langt skeið. Hann kenndi við Hlíðardalsskóla 1962-82 en er nú prófessor í gamlatestamentisfræðum og bibl- íutungumálum við Newbold Col- lege nálægt London í Englandi. -----»"»-■♦-- Haldlagt á gambra LÖGREGLAN í Hafnarfirði lagði á föstudagskvöld hald á 330 lítra af gambra og 15 lítra af spíra í húsleit í bænum. Málið komst upp þegar lögreglan stöðvaði bíl og leitaði í honum vegna gruns um viðskipti með landa. 9 lítrar af eimuðum spíra fundust í bílnum og í kjölfarið fór fram hús- leit þar sem fannst meiri spíri, gambri og suðutæki. Að sögn lögreglu er talið að framleiðslan í húsinu hafi staðið yfír síðasta mánuð. Þeir sem áttu bruggið hafa ekki komið við sögu lögreglunnar áður. Bíllinn þveginn og bónaður á tíu mínútum, Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með drullugum þvottakústi. Bílsápa og sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylg- ir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurnar, stéttina, veröndina og sandblásið málningu, sprungur og m.fl. með þessu undratæki. Orval fylgihluta! 4 TEGUNDIR Verð m. vsk. frá kr. 19.988 stgr. REKSTRARVORUR Réttarhálsi 2,110 Rvík. - simar 31956-685554-Fax 687116 IC.E.VI/ Hobby Háþrýstidælan • Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráögjöf • O.fl. o.fl. [l liuj og enn betri bíll]t ÚtkomaD,er alltaf perihag Þú færð sjálfkrafa bíl í næsta stærðarflokki fyrir ofan þann sem þú borgar fyrir þegar þú kaupir Flug og bíl ferðapakka til Evrópu eða Bandaríkjanna. Sjáðu heiminn með þínum eigin augum í enn betri bíl. Tilboðið gildir til eftirfarandi fjögurra borga Verðdæmi: Kaupmannahöfn 2 í bíl í A-flokki í eina viku 41.420 kr.* -en þú færð bíl í B-flokki fyrir sama verð. Amsterdam 4 í bíl í B-flokki í eina viku 35.355 kr.* -en þú færð bíl í C-flokki fyrir sama verð. *Verð miðast við staðgreiðslu og er per mann. Bókunarfyrirvari er 7 dagar. Tilboðið gildir í brottfarir í júlí og ágúst, heimflug má vera í september. Lágmarksdvöl er ein vika. Hámarksdvöl er einn mánuður. Flugvallarskattar, forfallagjald og ótakmarkaður akstur er innifalinn. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum um tryggingar á bílnum. Lúxemborg 2 í bíl í B-flokki í eina viku 34.910 kr* -en þú færð bíl í C-flokki fyrir sama verð. Baltimore 2 í bíl í C-flokki í eina viku 57.080 kr* -en þú færð bíl í D-flokki fyrir sama verð. Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn félagsins um allt land, ferðaskrifstofurnar eða i síma 690300 (svarað alla daga frá 8-18). V/SA [W) QATTAS^ vwy EUROCARD FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.