Morgunblaðið - 11.07.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
19
nær allir hlutar kynþroska stofns-
ins eru nýtanlegir. Það verður að
gá að því, að við erum rétt að
byija að þreifa okkur áfram, og
þannig vitum við ekki heldur um
öll veiðanleg mið. Við ætluðum
okkur 50 daga á þessu ári til rann-
sókna á ígulkeramiðunum. Við
erum rétt að byija á því. Það
mætti ef til vill ætla að við slíkar
kringumstæður myndum við missa
frá okkur alla markaði, en okkur
til happs er viss sveigjanleiki á
markaðnum, sem er einkum í Jap-
an. Þetta lofar því góðu og gæti
skapað gjaldeyristekjur upp á
nokkur hundruð milljónir og það
munar um minna,“ segir Hrafn-
kell.
Drjúg kvikindi
Veiði og vinnsla á beitukóngi
gæti ef til vill einnig orðið peninga-
uppspretta í framtíðinni. Það er
áhugi erlendis fyrir beitukóngi og
markaðimir eru þekktir. „Mark-
aðsmálin með beitukónginn eru
ekki vandamálið, þó að verðið sé
að vísu í lægri kantinum,“ segir
Hrafnkell, „heldur er það veiðin.
Veiðihliðin á málinu er einfaldlega
ekki leyst. Við vitum ekki nógu
mikið um þennan skelfisk og hvar
hann er eða hvert hann fer. Fyrir
nokkrum árum fór í gang verkefni
með beitukónginn. Hann fannst
þá í góðu magni í Faxaflóa. Þá
var farið að vasast í markaðsmál-
um og er tími þótti til þess kom-
inn, var aftur haldið á miðin. Þá
brá svo við, að lítið fannst af beitu-
kóngi og menn vissu ekki hver
afdrif hans höfðu orðið. Þetta eru
dijúg kvikindi þegar þau taka sig
til. Þau fara hægt yfir, en örugg-
lega,“ segir Hrafnkell.
Áratugs athuganir
Hrafnkell segir, að í haust verði
liðin tíu ár síðan að menn fóru að
huga að tijónukrabba sem útflutn-
ingsvöru. Fyrsti athugunarleið-
angurinn var aðeins 3 til 4 vikur,
en dugði til að finna veiðanlegt
magn og skjótt var búið að kanna
miðin landið um kring. Veiðarnar
„gengu strax upp“, eins og við-
mælandi okkar orðar það. Gallinn
er bara sá, að tegundin er ekki
þekkt á mörkuðum ytra, hvorki
austan hafs eða vestan. Náskyldar
tegundir eru það hins vegar, Bret-
ar og Frakkar veiða og vinna
5-6.000 tonn af skyldri tegund og
Bandaríkjamenn og Kanadamenn
eru með tugþúsundir tonna til við-
bótar fyrir eigin markaði. Tijónu-
krabbinn hefur það strax á móti
sér við samanburð, að hann er
minni og þó góð nýting komi úr
dýrinu hæfir það ef til vill ekki
nefna í „kæfur og súpur“ eins og
Hrafnkell otðar það. Það sníður
mönnum strax þrengri stakk.
Og ekki nóg með það, heldur
fór verksmiðja ein af stað um árið
á Akranesi. Var tijónukrabbi þá
veiddur og vélhreinsaður um skeið,
en gæðin þóttu ekki nægileg og
tilraunin fór út um þúfur. „Á sín-
um tíma var tijónukrabbinn
kynntur kanadískum markaðssér-
fræðingum. Lofuðu þeir mjög
áferð og gæði kjötsins, og mögu-
leikarnir eru því fyrir hendi,“ segir
Hrafnkell.
Lítt þekktari stærðir
Við getum tekið hafkóng fyrir
næst, „stóra bróður“ beitukóngs-
ins. Mönnum er það kannski enn
í fersku minni, er tvær stúlkur
veiktust af hafkóngsáti í hófi. í
Reykjavík síðastliðinn vetur.
Hrafnkell segir að eitrunin hafi
stafað af efnum í meltingarkirtlum
hafkóngsins og hann sé varasam-
ari í allri vinnslu þó svo að hann
sé mjög góður til átu. „Eitrunin
er þó ekki banvæn nema að borð-
að sé meira magn heldur en reikna
má með að nokkur maður geti
innbyrt," segir Hrafnkell og bend-
ir á að hægt sé að komast fyrir
eitrun með því einu að skera vel
frá meltingarfærum snigilsins.
Hafkóngurinn er „inni í myndinni“
eins og viðmælandi okkar segir.
„Inni í myndinni" eru einnig
tvær tegundir krabba, sem báðar
ganga undir nafninu tröllkrabbi,
svo og gaddakrabbi, en tegundir
þessar veiðast í humartrollin og
dýpra, allt niður á meira en 1.000
metra dýpi. Það er óvíst með
magnið, en í fljótu bragði virðist
það vera töluvert. Það er einnig
óvíst með hagkvæmustu veiðiað-
ferðina þegar niður á slíkt dýpi
er komið. Hvað markaðsmálunum
viðvíkur þá eru all margar skyldar
tegundir veiddar og þykja góð
söluvara. Með réttri kynningu
ættu markaðir því að vera fyrir
hendi.
Nokkurn veginn það sama er
að segja um tvær skyldar skelja-
tegundir, báruskel og krókskel,
sem báðar eru „girnilegar" að
mati Hrafnkels. Þær séu mjög
svipaðar öðrum tegundum sem
veiddar eru í stórum stíl. Hollend-
ingar veiða t.d. tugþúsundir tonna
af hjartarskel sem er nauðalík.
Lítið er vitað um magn þessara
tegunda né markaði. Þetta myndu
vera nýjar tegundir þó svo að
skyldar tegundir séu fyrir. Þá
þyrfti að vinna frá grunni veiði-
tækni, en engar veiðitilraunir hafa
átt sér stað á þessum tegundum
hér við land.
Sér á báti
Þá er eiginlega ekki annað eftir
en að nefna kræklinginn, en hann
hefur mikla sérstöðu í þessum
málum. Hann er nefnilega alinn
en ekki veiddur eins og aðrar teg-
undir sem hér eru til umræðu. Hér
við land er verulegt magn af
kræklingi og eldistilraunir sem
fram fóru við Hvítanes í Hvalfirði
fyrir nokkrum árum þóttu heppn-
ast vel. Tókst þar að ala krækling
í markaðsstærð á þremur árum,
nokkuð sem tekur náttúruna sjálfa
5 til 6 ár að koma í kring. Hér
var um svokallað „reipeldi“ að
ræða, en þá eru kræídingarnir
látnir hanga á reipum í sjónum.
Tilraunin fór þó út um þúfur um
síðir og kennir Hrafnkell m.a.
æðarfuglinum um, en hann
„komst á bragðið“ og lét ekki þar
við sitja, heldur át stöðugt af reip-
unum uns lítið var eftir. í ljósi
þess hversu vel þetta þótti þó
heppnast þrátt fyrir bíræfna æðar-
fugla þá sagðist Hrafnkell vita til
þess að einkaaðili hefði í bígerð
að framleiða á þessum slóðum
4.500 tonn á ári.
„Ástandið á kræklingamark-
aðinum er þó nokkuð snúið og
þeir sem ætla að koma þar inn
og gera það gott verða að hafa
gott í höndunum. Ég tel að eina
leiðin til að ná árangri með krækl-
ing sé að koma því á framfæri að
hér sé um vöru úr köldum og tand-
urhreinum sjó að ræða, gera fersk-
leika sjávar að miðdeplinum. Þetta
segi ég vegna þess að stærstu
framleiðendurnir geta mjög auð-
veldlega aukið framleiðslu sína.
Nefni ég sem dæmi Spánveija sem
Mikió hef ur verió
lagt i aó koma
igulkeraveióum
af staó i seinni
tió. Markaóir eru
fyrir hendi og til-
raunaveióar
hafa lofaó góóu
svo langt sem
þaó nær. Hrafn-
kell segir miklar
vonir bundnar
vió igulkeraveió-
arnar og megi
menn alveg vera
bjartsýnir i þeim
efnum.
„Inni i myndinni"
eru einnig tvær
tegundir krabba,
sem báóar ganga
undir nafninu
tröllkrabbi, svo
og gaddakrabbi,
en tegundir þess-
ar veióast i hum-
artrollin og
dýpra, allt nióur
á meira en 1 .OOO
metra dýpi.
eru með reipeldi upp á 200.000
tonn á ári og í hlýja sjónum þeirra
er kræklingurinn aðeins 9 mánuði
að ná markaðsstærð," segir
Hrafnkell.
Og berst þá talið loks að öð-
unni, eða öðuskelinni, sem er ná-
skyld kræklingi, en eins og menn
vita, nokkuð stærri. Gerð hefur
verið misheppnuð tilraun til að
bjóða öðu á erlendum mörkuðum
einhveiju sinni er atvik höguðu
því þannig að nokkur skortur var
á kræklingi. Öðunni var hafnað,
ekki vegna þess að hún væri slæm
á bragðið eða léleg, heldur einfald-
lega vegna þess að hún var allt
annað dýr. Hún var ekki krækling-
ur. Aðan hefur hins vegar hlotið
lof fyrir gæði og Hrafnkell segir
hana „andsk... girnilega" ogveiðar
á henni hefðu þann kost að hægt
væri að byija strax, víða er vitað
hvar hún heldur sig og vitað er
að magnið er talsvert. Aðan er
etin í heimabyggðum víða í Norð-
ur-Evrópu, en um markaði erlend-
is er ekki að ræða. Þá þyrfti að
skapa og þar liggur vinnan grafin.
Lokaorð
Af ofanskráðu fer ekki á milli
mála, að þegar sjórinn umhverfís
ísland er annars vegar, þá er fleira
skelfiskur en humar, rækja og
hörpuskel. Margs konar möguleik-
ar eru á veiðum og vinnslu og
útflutningi á vannýttum tegundum
skelfiska. En eins og lesa má
bæði beint og á milli línanna, þá
er víðast hvar mikið verk óunnið.
Afla þarf markaða, auka þarf
rannsóknir. Finna þarf bestu mið-
in, lifnaðarhætti tegundanna sem
um ræðir. Afla upplýsinga um
hvað megi veiða mikið án þess að
skaða stofna. Finna bestu og hag-
kvæmustu veiðiaðferðir. Allt kost-
ar þetta peninga og tíma sem eru
í eðli sínu fjárfestingar. íslending-
ar hafa stundum flanað að hlutun-
um, samanber fiskeldið. Væri það
gæfuspor stórt ef fallvalt gengi
fyrirtækja í fískeldi gæti orðið
þeim víti til varnaðar sem hyggja
á íjárfestingar í þeirri nýsköpun í
atvinnulífmu sem virðist standa til
boða í þessum geira. Ef fetað er
varlega, en af dug og krafti, þá
virðast mörg gullin tækifæri innan
seilingar.
af fallegum rúmum í ýmsum stærðum og gerðum frá heimsþekktum og virtum
framleiðendum svo sem BROYHILL FIJRNITURE og SERTA dýnufyrirtækið
sem er eitt stærsta dýnufyrirtæki í U.S.A og rómað fyrir vandaðar dýnur þar sem.
þægindi, stuðningur og ending fara saman.
Tegund "Southem Charm 385"
Höfðagafl Queenl52x203 cm kr. 23.910,-
Dýnurammi 152x203 cm kr. 5.960,-
Tapestry Elite Firm dýna 152x203 kr. 80.820,-
Náttborð kr. 23.230,- stk.
Kommóða 5 sk. nr. 385-004 kr. 38.240,-
Tvöföld kommóða nr. 385-021 kr. 39.620,-
Spegill nr. 385-028 kr. 12.980,-
Greiðslukjör til margra mánaða.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199