Morgunblaðið - 11.07.1993, Page 25

Morgunblaðið - 11.07.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 25 til að miðla af til þeirra sem hega baráttuna við eyðimerkurnar. Is- lendingar búa yfir víðtækri þekk- ingu allt frá aðferðum við að rann- saka og meta eyðingu og ástand lands til þess að finna og rækta hentugar tegundir til landgræðslu. Hér er stundað markvisst fræðslu- starf til þess að gera landeigend- um og almenningi sem ljósasta ábyrgð sína á landinu. Þá standa íslendingar framarlega í rann- sóknum á aðferðum til að nota sjálfgræðslu við endurheimt land- gæða. Segja má að í landinu sé að finna einstaka aðstöðu til rann- sókna á öllum þessum sviðum og leitunar úrræða sem geta haft al- þjóðlegt gildi vegna fjölbreytileika landsins sjálfs og langrar baráttu við eyðingaröflin. Það er fyllilega tímabært að huga í alvöru að því að koma á fót á íslandi alþjóðlegri rann- Þaó er fyllilega tímabært aó huga í alvöru aó því aó koma á ffót á islandi alþjóólegri rannsókna- og þróunarstofn- un á sviói jaróvegs- verndar og landgræóslu. sókna- og þróunarstofnun á sviði jarðvegsvemdar og landgræðslu. Slík stofnun gæti spymt kröftug- lega gegn dvínandi fjárframlögum til rannsóknastarfs á þessu sviði sem er hvorki í samræmi við þörf- ina né framlög til framkvæmda. Það er einföld staðreynd að föst framlög til rannsókna vegna jarð- vegsverndar og landgræðslu hafa verið skorin hér niður jafnframt fjárveitingum til annarra rann- sókna á sviði landbúnaðar. Stofn- un alþjóðlegrar rannsóknastöðvar gæti snúið við þeirri öfugþróun. íslenska þjóðin hefur gefið fyr- irheit um að auka þróunaraðstoð og stefnt er að því að landið standi hlutfallslega jafnfætis öðrum nor- rænum þjóðum í þeim efnum áður en langt um líður. Flestum er ljóst að íslendingar geta kennt fátæk- um ríkjum margt um fiskveiðar og nýtingu sjávarfangs. En þetta á ekki síður við um baráttuna við eyðingaröflin. Það er trú undirrit- aðs og margra annarra sem til þekkja að á þessu sviði hafi ísland mikilvægt hlutverk. En til þess þarf að skapa öflugan málsvara sem hægt er að tefla fram í sam- starfinu við aðrar þjóðir í barátt- unni við að stöðva framrás eyði- marka. Alþjóðleg rannsóknastofn- un á sviði jarðvegsverndar og land- græðslu kann einmitt að vera heppilegasti vettvangurinn fyrir slíkt starf. Kannski getur dýrkeypt reynsla íslendinga megnað að hjálpa öðrum þjóðum að kljást við eyðingaröflin og um leið bætt árangur okkar heima fyrir og orð- spor okkar á alþjóðlegum vett- vangi svo um munar. Slík ímynd er ekki lítils verð fyrir þjóð sem byggir afkomu sína á náttúruaf- urðum. Höfundur er jarðyegsfræðingur hjá Rannsóknarstofnun Inndbúnaðarins. I Systkinin sjö frá Bolungarvik. Vagnsbörn með nýja hljómplötu SYSTKININ sjö frá Bolungarvík, Vagnsbörn sem slógu öll sölumet með hljómplötu sinni Hönd í hönd — uppáhaldslögin hans pabba, fyrir um það bil tveimur árum, eru um þessar mundir að fylgja annarri hljómplötu sinni úr hlaði. Hún ber heitið Vagg og velta — með Vagnsbörnum að vestan. Platan kemur á markaðinn á tímabilinu 16.-20. júlí. Systkinin, þau Ingibjörg, Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína, Haukur og Þórður, eyddu páskavikunni saman úti í Þýskalandi við upptök- ur en Hrólfur sem þar er búsettur á og rekur þar eigið hljóðver. Nú, eins og síðast, velja þau systkinin lög frá gömlum tíma, enda eru þau hluti af æskuminn- ingum þeirra eins og þau segja sjálf á plötuumslaginu og sér til sérstakrar aðstoðar fengu þau merkismann úr ísafjarðardjúpi, Siguijón Samúelsson hljómplötu- safnara, en hann á nánast allar íslenskar hljómplötur sem gefnar hafa verið út frá upphafi auk fjölda annarra fáheyrðra upptaka. Á plötunni eru sextán lög sem öll voru þekkt hér á árum áður. Eins og flestir muna gáfu þau systkinin allan ágóða af fyrri hljómplötunni til Slysavarnafélags íslands sem sá um sölu hennar, en það var leið þeirra til að minn- ast föður síns og mágs sem báðir fórust í sjóslysi í ísafjarðardjúpi í desember 1990. Að þessu sinni munu systkinin gefa geislaplötuna út sjálf þar sem Slysavamafélag íslands sá sér ekki fært að þiggja boð þeirra um sölu plötunnar sem fjáröflun fyrir félagið, en Skífan mun sjá um dreifingu. Vagg og velta — með Vagnsbörnum að vestan, mun fást bæði á geislaplötu og snældu. L O K A Ð Á MORGUN MÁNUDAG ÚTSALAN HEFST Á ÞRIÐJUDAG RR-SKÓR |U KRINGLUNNI, SÍMI 686062 LAUGAVEGI 60, SÍMI 629092 TILBOÐ ÓSKAST i Jeep Wrangler Renegade 4x4, árgerð '91 (ekinn 25 þús. mílur), Pontiac Sunbird GTTurbo, árgerð '90, Ford Bronco U-15 4x4, árgerð ’87 og aðrar bifreiðar, erverða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 13. júlíkl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í Allis Chalmers gafallyftara 6000 Ibs., árgerð '75 og Davey loftpressu á vagni 250 CFM diesel, árgerð '82. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARN ARLIÐSEIGNA GOTT GHENGIS-FALL Austmlensk afmælishátíð á hálfvirði GOTT GHENGISFALL/MOGOLIAN BARB Þrátt fyrir að veldi Ghengis Khan hafi fallið, lifir matargerðarlist hans tíma enn í dag. í fjögur ár hefur Mongolian Barbecue boðið íslendingum upp á þessa ljúffengu arfleifð keisarans. í tilefni afmælisins bjóðum við þér og íjölskyldunni til austurlenskrar veislu í dag á ævintýralegu verði; allt sem þú getur í þig látið fyrir 790 kr. Þetta er sannarlega keisaralegt ghengis-fall og til að kóróna það greiða böm undir 12 ára aldri aðeins 490 kr. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7 • Sími 688311 \K a u p m a n n a h ö f n • M a 1 m ö • Stuttgart • Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.