Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 Hjónaminning Guðný Pétursdóttir og Guðni Jónsson, Reykholti, Eskifirði Guðný: Fædd 4. nóvember 1891 Dáin 22. júní 1993 Guðni: Fæddur 26. júlí 1891 Dáinn 29. desember 1974 Laugardaginn 3. júlí 1993 fylgdum við ömmu okkar til grafar frá Eskifjarðarkirkju. í grein þess- ari minnumst við hennar og afa okkar í nokkrum orðum. Amma var fædd á Þuríðarstöð- um í Eyvindarárdal á Fljótsdals- héraði. Foreldrar hennar voru Pét- ur Sigurðsson landpóstur og kona hans, Anna Einarsdóttir. Amma var elst systkina sinna sem hétu Árni og Jarþrúður, bæði látin. Amma fluttist nokkurra mán- aða með foreldrum sínum til Högnastaða í Helgustaðahreppi þar sem hún ólst upp til átta ára aldurs. Þá lést móðir hennar. Hún fluttist þá að Borgum í Eskifírði til fósturforeldra sinna, Sigur- bjargar Guðmundsdóttur og Tryggva Hallgrímssonar, og var hjá þeim þar til hún fór til Reykja- víkur til náms í karlmannafata- saumi. Amma átti tvö fóstursystk- ini. Fóstursystir hennar og jafn- aldra, Aðalbjörg Tryggvadóttir, lifír enn og býr á dvalarheimilinu Lönguhlíð í Reykjavík en fóstur- bróðir hennar, Ragnar Tryggva- son, er látinn fyrir mörgum árum. Afí okkar var fæddur á Eiríks- stöðum í Fossárdal við Berufjörð. Foreldrar hans voru Jón Gíslason landpóstur og Guðný Björg Guðiiadóttir. Auk afa áttu þau Gísla sem bjó á Eskifírði og er látinn fyrir mörgum árum. Þegar afí var tveggja ára gamall fluttust foreldrar hans að Sjólist á Eski- fírði þar sem hann ólst upp þang- að til hann fór til Reykjavíkur í iðnnám og lærði húsgagnasmíði. Að námi loknu sneri hann aftur til Eskifjarðar þar sem hann stofn- setti árið 1912 trésmíðaverkstæði, sem hann starfrækti til æviloka. Afí og amma giftust á sumar- daginn fyrsta 1912 og hófu bú- skap sinn í Sjólist. Árið 1936 flutt- ust þau í nýbyggt eigið húnæði, Reykholt. En í millitíðinni bjuggu þau víðar á Eskifírði, lengst af á Grund sem þau áttu um tíma. Reykholt er tvílyft hús sem stend- ur við Strandgötuna hjá Ljósánni. Á neðri hæð hússins rak afí verk- stæðið en íbúðin var á efri hæðinni. Afi og amma eignuðust fjögur börn; Hjalta, f. 9. júlí 1912, d. 21. desember 1987. Hann vartrésmið- ur og orelleikari Eskifjarðarkirkju til margra ára, kvæntur Jónínu Guðmundsdóttur sem er látin. Sonur þeirra er Ásbjörn Vignir málari á Eskifírði. Vilberg ljós- myndara á Eskifírði, f. 4. desem- ber 1924, kvæntur Fanneyju Guðnadóttur. Guðna Sigþór, hljóð- færaleikara í Reykjavík, f. 8. nóv- ember 1926, d. 25. febrúar 1993 og móður okkar, Steinunni hús- móður á Egilsstöðum, f. 30. ágúst 1930, gift Þórði Stefáni Bene- diktssyni sem er látinn. Við, börn þeirra, erum sjö talsins. Við systkinin eigum afar kærar minningar um afa okkar og ömmu. Við bjuggum á Egilsstöðum og flest okkar dvöldu um lengri eða skemmri tíma hjá þeim í bam- æsku. Auk þess voru ófáir sunnu- dagamir sem nýttir vora í heim- sóknir til þeirra í Reykholt. Þar var vel tekið á móti okkur. Við bömin lékum okkur við ána, í frjör- unni og við timburgeymsluna neð- an vegar og komum svo inn og fengum kakó og aðrar velgjörn- ingar hjá ömmu. Allt húsið og umhverfí þess skipar stóran sess í minningu okk- ar; lyktin — sambland af trjáilmi og límsuðu — snarbrattur stiginn upp á efri hæðina með grindverki á palli og hliði fyrir, kolaeldavélin sem við fengum iðulega að bæta kolum og timburafgöngum í og olíuofnamir. Sjórinn, bryggjurnar, drekkhlaðnir síldarbátamir, bræðslureykur og sjávarilmur. Allt var þetta spennandi og lærdóms- ríkt fyrir okkur bömin ofan af Héraði. Þetta ásamt ótal mörgum smáatriðum öðram myndar hug- ljúfan vef minninga sem yljar um hjartarætumar. Um nálægt 60 ára skeið starf- aði amma að iðngrein sinni, saum- aði karlmannafatnað og íslenska kvenbúninga. Til gamans má geta þess að síðasta upphlutinn saum- aði hún á litla telpu og var þá komin á áttræðisaldur. Allan tím- ann notaði hún eingöngu handsn- úna saumavél sem faðir hennar gaf henni, þegar hún kom heim frá námi sínu í Reykjavík. Vélin var mjög fullkomin á þess tíma mælikvarða. Ömmu þótti afar vænt um vélina og er hún til enn í góðu lagi. Amma skóp fjölskyldu sinni myndarlegt heimili og hún var okkur systkinunum og síðar börnum okkar alltaf mjög góð. Á verkstæðinu smíðaði afí allt milli himins og jarðar. Hann lifði tímana tvenna í þeim efnum. Sér- hæfíng var lítil á fyrri hluta aldar- innar svo verkefni hans voru allt frá húsum og húsgögnum til myndaramma og leikfanga. Auk þess smíðaði hann líkkistur um langt skeið. Verkfæri hans frá fyrstu áranum hafa mörg fengið samastað á Sjóminjasafninu á Eskifírði. Á efri áram hans kom Hjalti meira og meira til liðs við afa á verkstæðinu. Þá voru komn- ar til nýrri vélar og tækni en verk- efnin vora eftir sem áður hin fjöl- breyttustu. Tónlistin skipaði stóran sess á heimili afa og ömmu. Á yngri áram tók afi virkan þátt í tónlistarlífínu á Eskifirði með sonum sínum, en við minnumst aðallega áhuga hans á djasstónlist og mikillar aðdáunar á Luis Armstrong. Eftir að afí lést bjó amma í Reykholti fram yfír níræðisaldur með Hjalta syni sínum, þá á Egils- stöðum hjá mömmu, síðan á elli- heimilinu á Eskifirði, fyrst í Há- túni og svo í Hulduhlíð eftir að það kom til. Starfsfólki elliheimilisins færam við okkar bestu þakkir fyrir ágæta umönnun ömmu okkar síðustu æviár hennar. Börn Steinunnar. Loftur Baldvins- son - Minning Fæddur 27. desember 1936 Dáinn 5. júlí 1993 Ingibjörg Edith Möller — Kveðja Dáinn, horfínn! - Harmafregn! Hvílíkt orð mig dynur yfir! (Jónas Hallgrímsson) Það var mikil harmafregn að náinn vinur og samstarfsmaður um árabil hefði skyndilega og langt fyrir aldur fram horfið úr hópi okk- ar. Loftur með sína miklu starfs- gleði og fullan áhuga á viðfangs- efnum sínum, en á svipstundu tók atburðarásin stefnu, sem enginn mannlegur máttúr fékk við ráðið. Því er erfítt að trúa að þessi góði vinur skuli vera horfínn yfír móð- una miklu. Undanfarnar vikur átt- um við oft gott spjall um lífið og tilverana. Það mátti fínna að hann lifði í sátt við sig og sína og björt- um augum leit hann til framtíðar, en lífíð var honum ekki alltaf dans á rósum. Loftur fæddist á Vegamótum á Dalvík 27. desember 1936. Foreldr- ar hans voru Baldvin Gunnlaugur Loftsson, útgerðarmaður og verk- stjóri á Dalvík, f. 28. desember 1910, d. 11. janúar 1978, og kona hans, Bergþóra Jónsdóttir, f. 7. desember 1917, d. 16. apríí 1976. Það vora bæði af eyfírskum ætt- um. Baldvin var sonur Lofts Bald- vinssonar, útvegsbónda á Böggvis- stöðum, og konu hans, Guðrúnar Friðfinnsdóttur. Bergþóra var dótt- ir Jóns Arngrímssonar, fískimats- manns á Dalvík, og konu hans, Sigurbjargar, Ágústsdóttur. Systkini Lofts voru þrjú: Amdís Sigríður, f. 8. maí 1942, skrifstofu- maður og húsfreyja á Kristnesi, gift Þorsteini Eiríkssyni, húsa- smíðameistara og umsjónarmanni Kristnesspítala; Jón Þórir, f. 1. apríl 1954, útgerðartæknir og skrifstofumaður á Dalvík, kvæntur Kristjönu Svandísi Kristinsdóttur; Guðlaug, f. 8. október 1960, hag- fræðingur, gift Hákoni Óla Guð- mundssyni, rafeindaverkfræðingi. Loftur ólst upp á Dalvík. Arið 1957 varð hann stúdent frá MA og næstu tvö árin stundaði hann nám í verkfræði við Háskóla ís- lands. Á árunum 1960-71 var hann framkvæmdastjóri Skipasmíða- stöðvar. Njarðvíkur. Síðan starfaði hann við skrifstofustörf í Reykja- vík, hjá Skrifvélinni 1972-75, Bú- stofni 1976-78, en hjá Málara- meistaranum 1979-89, að hann sneri sér alfarið að rekstri eigin bókhaldsþjónustu, sem hann hafði rekið samhliða fyrri störfum. Hann hafði sína föstu viðskiptavini sem þekktu og treystu glöggskyggni hans og nákvæmni. Málin voru í öraggum höndum hjá Lofti. Loftur kvæntist 27. desember 1959 Sigrún Dúfu Helgadóttur, f. 25. október 1942. Þau skildu 1975. Böm þeirra eru: Baldvin, f. 4. ágúst 1960 í Reykjavík, vélfræðingur, yfírvélstjóri á Akureyri. Kona hans er Guðrún Ásta Herlufsen Franks og eiga þau þijú börn: Loft, Þórð og Bryndísi; Helgi, f. 13. nóvember 1961 í Ytri-Njarðvik, starfsmaður LIN í Reykjavík. Kona hans er Guðný Þorvaldsdóttir, aðstoðar- stúlka tannlæknis, og eiga þau einn son, Daníei. Fóstursonur Helga er Þorvaldur Konráðsson; Finnur, f. 28. mars 1963 í Reykjavík, vél- fræðingur á Akureyri. Kona hans er Harpa Svavarsdóttir, fóstra. Böm þeirra eru Helga og B'rynja; Ólöf, f. 22. nóvember 1965 í Kefla- vík, nemi í dýralækningum í Kaup- mannahöfn. Maður hennar er Vil- hjálmur Kristinn Garðarsson, prentsmiður. Þau eiga einn son, Daða. Um skeið bjó Loftur með Ingi- björgu Gunnþórsdóttur, f. 24. júní 1946, verslunarmanni. Þau slitu samvistir. Undanfarin misseri bjó Loftur með Kristjönu J. Riehter, píanó- kennara. Vora þau nýbúin að koma sér vel fyrir í einbýlishúsi þegar hið óvænta kall kom. Áhugamál Lofts voru hin síðari ár aðallega ættfræðigrúsk og bóka- söfnun. Hann fékkst nokkuð við ættfræðiskráningu og gaf út niðja- tal, framættir og frændgarð afa síns og ömmu, Lofts Baldvinssonar og konu hans, Guðrúnar Friðfinns- dóttur (1988) og Grundarættin var í smíðum hjá honum. Aðaláherslu lagði hann á bókasöfnun og öflun gagna, sem hann ætlaði að sökkva sér í þegar mesta annríkinu við brauðstritið linnti. Sá tími gafst honum því miður aldrei. í rúman áratug höfðum við mik- ið saman að sælda. Reyndist hann mér og fjölskyldu minni góður vin- ur, sem við eram þakklát fyrir og söknum við hans öll með sárum trega. Með Lofti ver genginn góður drengur. Fjölskyldu hans sendum við Hrefna okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning hans. Þorsteinn Jónsson. Fædd 18. febrúar 1930 Dáin 24. júní 1993 Föstudaginn 2. júlí fór fram frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ útför Ingibjargar Edithar Möller, ræstingastjóra á Reykjalundi. Edith, eins og hún var ávallt kölluð, var af þýsku bergi brotin, 'frá litlu þorpi í Austur-Þýska- landi. Faðir hennar var bóndi og malaði kornið fyrir hina bænd- urna. Þær voru fimm systurnar og leiðir þriggja þeirra áttu eftir að liggja til Islands. Edith hefur verið níu ára göm- ul þegar síðari heimsstyijöldin braust út og 15 ára þegar þeim hildarleik lauk, þannig að hún upplifir þessa martröð á ein- hveiju viðkvæmasta skeiði lífs síns. Hún missir móður sína og flyst til Lúbeck. Þar giftir hún sig og eignast synina Ove og Gunnar. Leiðir hennar og eigin- mannsins skilja og árið 1964 heldur hún til íslands með syni sína með sér. Tvær systra henn- ar, þær Nanna Renata og Katrín, voru þegar komnar til Islands. Hinn 1. september 1968 hefst starf Edithar á Reykjalundi og vann hún þar óslitið í næstum 25 ár. Það er á engan hallað þó að fullyrt sé að Edith hafi verið einhver sá besti og samviskusam- asti starfskraftur sem starfað hefur á Reykjalundi. Hún var vakin og sofin yfir starfi sínu, létt á sér og hljóp oft er hún var að störfum. Og hvernig hún hugsaði um blómin á Reykjalundi lýsir henni best. Edith var aðlaðandi og greind kona sem gaman var að ræða við. Ég gleymi ekki viðbrögðum hennar þegar fréttist um hrun múrsins. Hún þorði varla að trúa þessu, en gleði hennar var mikil. Við ræddum stöðu mála og hún sagði: „í sumar get ég farið heim og hitt fólkið mitt heima.“ Hún hafði að vísu farið til Vestur- Þýskalands og hitt fólkið sitt á einhveijum stað þar. Nýlega átti ég þess kost að skoða leifar múrsins og vera í Astur-Berlín. Hugur minn fylltist reiði. Hvílík hneisa fyrir allt mannlíf að tak- ast skyldi að reisa þennan múr og splundra heilli þjóð. Mér varð hugsað til Edithar og hvað hún hefur þurft að ganga í gegnum í sínu lífi. Ég hafði hugsað mér að ræða við hana er ég kæmi heim, en til gafst ekki tækifæri né tími. Edith varð fyrir þeirri miklu sorg að missa eldri soninn, Ove, af slysförum árið 1972, en hann var þá 25 ára. Yngri sonurinn, Gunnar, sem er iðnaðarmaður, hélt heimili með móður sinni á Njálsgötu 8 í Reykjavík. Edith réðst í að kaupa það hús og byggði við það. Hafði hún um nokkur ár haft þá aukabúgrein yfir sumarmánuðina að leigja ferðamönnum herbergi með morgunmat og einnig Ieigði hún skólafólki. Svo að Edith kom víða við enda lék allt í höndunum á henni. Fyrir um það bil ári síðan veiktist Edith af hjartaskúkdómi. Fór hún í hjartaþræðingu og síð- an í uppskurð, en komst eigi í gegnum þá þraut. Hún lést sólar- hringi síðar, 24. júní. Ævisól Edithar var hnigin til viðar. Syni hennar og öðrum að- standendum sendi ég og fjöl- skylda mín innilegar samúðar- kveðjur. Minningin um góða og vammlausa konu lifir. Hvíl í friði. Ingibjörg Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.