Morgunblaðið - 25.07.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993
25
Á leið til Belgíu
SUM þeirra verka sem kórinn syngnr á hátíðinni hefur hann sungið áður. Má þar nefna Pjóra sálma eftir Grieg sem Hamrahlíðarkórinn flutti
á Listahátiðinni í Bergen í fyrra og á hátíðartónleikum í Hallgrímskirkju í nóvember. Meðal íslenskra verka sem kórinn syngur á hátíðinni
eru verk eftir Jón Leifs, Pál ísólfsson, Atla Heimi, Jón Nordal og Þorkel Sigurbjörnsson.
Hamrahlíðarkórinn kemur fram á Festival van Vlaanderen-tónlistarhátíðinni í Belgíu
Mikill heiður fyrir kórinn að vera kallaður til
HAMRAHLÍÐARKÓRINN undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur tekur
þátt í alþjóðlegu tónlistarhátíðinni Festival van Vlaanderen í Belgiu
í næstu viku. Þorgerður segir að injög mikill heiður felist í því fyrir
kórinn að hafa verið kallaður til hátíðarinnar. Kórinn heldur tónleika
í nokkrum belgiskum borgum hátíðarvikuna og verða verk íslenskra
og erlendra tónskálda á efnisskránni.
Vildu ýmsir heimta niðurskurð til að
vega upp á móti neyðarfénu og hlust-
uðu hvergi á rök Clintons um að lág-
ir vextir gerðu það að verkum að
fjárlagahallinn yrði hvort sem er
sýnu minni en talið var í janúar.
Þessari töf á þingi var tekið mis-
jafnlega. „Hver þingmaðurinn á fætur
öðrum steig í pontu og lofaði hug-
rekki og hetjuskap umbjóðenda sinna
í þessu flóði og reis því næst á fætur
og rak rýting í bak þeirra þegar veita
átti neyðarhjálp", sagði demókratinn
Richard Durbin frá Illinois.
Ekki eru þó allir á einu máli um
að bráðliggi á þessari aukafjárveit-
ingu. John Webb, sem starfar á fjár-
Iagaskrifstofu þingsins, heldur því
fram að megnið af tjóninu verði ekki
bætt fyrr en að þessu fjárlagaári
lýkur 30. september. Hann bendir á
að í fjárlögum þessa árs sé að finna
varasjóði, sem dugi til að létta undir
með fómarlömbum flóðanna þar til
þar að kemur.
Björtu hliðarnar
Vandi Miðvesturríkjanna verður
hins vegar ekki leystur með pening-
um einum saman. Á meðan veðrið
helst óbreytt verður ekki hægt að
sigla eftir stórum hluta Mississippi.
Rusl og úrgangur mun halda áfram
að hlaðast upp í borgum og bæjum.
Víða geta ruslahaugar vart tekið við
lengur. Hugrekkið, sem íbúar á
flóðasvæðunum hafa verið lofaðir
fyrir í ræðu og riti, mun smátt og
smátt víkja fyrir örvæntingu eftir
því sem umsátur fljótsins dregst á
langinn. Á móti kemur að þegar fljót-
ið mikla loks dregur sig í hlé á ný
mun það skilja eftir sig gróðursælli
og gróskumeiri lendur en fyrir voru.
Atvinnumálaráðherra Clintons, Rob-
ert Reich, reyndi að draga fram kosti
eyðileggingarinnar. Hann sagði að á
næstunni myndi draga stórlega úr
atvinnuleysi í Miðvesturríkjunum.
Einhver verður að gera við allar
brýrnar og stíflumar og endurreisa
mannvirkin, sem urðu undir í Flóðinu
mikla sumarið 1993.
Þorgerður sagði að kórinn héldi
nokkra túnleika á hátíðinni og tæki
þátt í sérstökum hátíðarkór með
kórsöngvurum úr í Landssambandi
belgískra kóra. Landssambandið
bauð Hamrahlíðarkórnum að taka
þátt í hátíðarkómum og verður hann
eini erlendi kórinn.
Tónleikar
Fimmtíu og tveir kórfélagar og
kórstjóri Ieggja land undir fót til
Belgíu á laugardag. Sama dag þigg-
ur hópurinn boð Hannesar Hafsteins
sendiherra í Brussel, en kl. 10 næsta
morgun syngur Hamrahlíðarkórinn
við hámessu í dómkirkju borgarinn-
ar. Tveimur dögum síðar, þ.e. 27.
júlí, verður aðallega íslensk tónlist
á efnisskrá tónleika í kirkju heilags
Ágústínusar í Antwerpen og 29. júlí
verða aðrir tónleikar í ráðhúsinu í
Oudenaarde. Daginn eftir heldur
Þorgerður hins vegar fyrirlestur um
íslenska tónlist og kórinn flytur tón-
dæmin. Fyrsta dag ágústmánaðar
syngur kórinn við hámessu í dóm-
kirkjunni í Brugge og síðar sama
dag flytur hann íslenska tónlist á
tónleikum í kirkju heilagrar Önnu í
sömu borg. Þá tekur kórinn þátt í
flutningi áðurnefnds hátíðarkórs á
verkum, eftir Kodaly og Grieg. Verk
Griegs er síðasta verk hans og er
flutt í tilefni þess að á þessu ári er
150 ára afmælis tónskáldsins
minnst. Þorgerður lét þess sérstak-
lega getið að Laszlo Heltay, virtur
kórstjóri af ungverskum ættum,
stjómaði hátíðarkórnum.
Stórskemmtilegt
Þorgerður játti því í að mikið fyrir-
tæki væri að fara með jafn stóran
hóp fólks á hátíð af þessu tagi. „En
þegar vel gengur er líka stórskemmti-
legt,“ sagði hún og bætti við að mik-
ið af kórfélögunum væri þaulvant
söngfólk. „Uppistaða kórsins er fólk
sem hefur starfað með kómum í all- '
mörg ár og kann vel til verka. Þetta
em góðir kórsöngvarar sem hafa
orðið reynslu í að koma fram og vita
hversu mikið álag fylgir því að taka
þátt í svona hátíðum. Ég er svo með
nokkra nýliða sem við höfum svona
verið að ala upp undanfamar vikur
og taka inn í hópinn," sagði Þorgerð-
ur.
Hún sagði að kórinn hefði mætti
miklum velvilja vegna ferðalagsins
til Belgíu og væri hann styrktur af
Reykjavíkurborg, fyrirtækjum og
einstaklingum.
/ /
$ DAGAR AITALIU!
Síðsumarferð til Garda vatnsins
- FENEYJAR, tl/IÍLANÓ, VERONA 0G fADOVA AO AUKI!
Við bjóðum upp á ógleymanlegt Ítalíuævin-
týri í september þar sem saman fer notaleg
síðsumarsól við Gardavatnið og spennandi
kynni af mörgum helstu gersemum Ítalíu í
náttúru, menningu, mat og drykk!
8 dayar - envum líkir!
Flogið til Mílanó síðdegis,
ekið að Gardavatninu og gist þar.
Hálfsdags skoðunarferð til Verona.
Heilsdags hringferð um Gardavatnið.
Frjáls dagur.
Heilsdagsferð til Feneyja.
Frjáls dagur.
Heilsdagsferð til Padova.
Ekið til Mílanó, farið í skoðunarferð
um borgina og Scala skoðuð.
Brottför um kvöldið til íslands.
Fararstjóri er Olafur Gíslason, sem þekkir töfra
Ítalíu og heillandi sögu landsins flestum betur.
10. sept.:
11. sept.:
12. sept.:
13. sept.:
14. sept.:
15. sept.:
16. sept.:
17. sept.:
Innifalið: Flug, allar ofantaldar rútuferðir og
skoðunarferðir, gisting á þriggja stjörnu hóteli
með hálfu fæði, fararstjórn Ólafs Gíslasonar,
allir skattar og gjöld.
SamviimiiíBPðir
Landsýn
ReykjavHc: Austurstræti 12 • S. 91 - 6910 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70
• Símbréf 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241 • Hðtel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 •
Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55 Keflavík: Hafnargötu
35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92-13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 13 86 •
Slmbréf 93 -1 11 95 Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Slmbréf 96 -1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Símbréf 98 -1 27 92
QATLASJ*