Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 Tvö útköll hjá björgunarsveitinni á Skagaströnd sömu nóttina Eikarbátur strandaði en komst aftur á flot Skagaströnd. ANNASAMT var hjá björgunarsveit Slysavarnadeildarinn- ar aðfaranótt 30. september. Sveitin var tvisvar kölluð út til björgunarstarfa um nóttina og í bæði skiptin fór betur en á horfðist hjá þeim sem þurftu á aðstoð að halda. Fyrra útkallið kom um klukkan 23 þegar beðið var um að leitað yrði að hraðbát frá Blönduósi með tveimur mönnum um borð. Höfðu mennirnir farið á skytterí og voru ekki komnir í Iand þótt orðið væri aldimmt fyrir þremur klukkutím- um. Björgunarsveitarmenn fóru til leitar á björgunarbátum Þórdísi ásamt handfærabátnum Núpi, sem var nýkominn í land af- miðunum. Eftir nokkra leit fann Núpur bát- inn sem leitað var að með bilaða véi en að öðru ieyti var allt í lagi um borð. Dró Núpur bilaða bátinn til hafnar en mennirnir höfðu ekki getað gert vart við sig í gegnum talstöðina þar sem þeir höfðu eytt öllu rafmagninu í að reyna að koma vélinni í gang. Einnig voru þeir með farsíma um borð en ein- hverra hluta vegna virkaði hann ekki heldur.. .Þegar björgunarsveitarmenn- irnir vor að taka Þórdísina á land eftir leitina um klukkan 2.40 var hringt frá höfuðstöðvum SVFÍ og sveitin beðin að veita aðstoð báti sem taldi sig strandaðan á Skalla- rifi. Hafði komið beiðni um aðstoð frá mb. Sævalda, sem er 22 tonna eikarbátur frá Dalvík, um að draga hann af strandstað. Hafði báturinn verið á heimleið af miðunum þegar hann strandaði. Allt var í lagi um borð og veður gott en virtist þó vera að kæla. Þórdísin lagði þegar af stað til aðstoðar en þegar kom- ið var út fyrir Kálfshamarsvík kom tilkynning um að báturinn hefði náðst af skerinu fýrir eigin vélar- afli og væri óskemmdur að öðru leyti en því að botnstykki væri laskað. Reyndist Sævaldi hafa strandað nokkru utar en fyrst var talið eða rétt vestan við svonefnd- ar Hafnareyjar. Allt var í lagi um borð og hélt báturinn áfram för sinni tii Dalvíkur. Björgunarsveitarmenn voru síð- an komnir til síns heima klukkan 4.30. ÓB VEÐUR ...VV/ Heimild; Veðurstofa íslands 'Y (Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær) / DAG kl. 12.00 VEÐURHORFUR I DAG. 1. OKTÓBER YFIRLIT: Yfir Irlandi er aðgerðalítil lægð en um 350 km suðsuðvestur af landinu er allvíðáttumikil lægð sem þokast austsuðaustur, og fer heldur minnkandi. Heldur vaxandi hæð yfir Grænlandi. Heldur mun kólna í veðri. SPÁ: Austanátt, stinningskaldi eða allhvasst suðaustan- og austanlands en hægari annars staðar. Suðaustan- og austanlands má búast við rign- ingu en annars staðar þurrt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Austankaldi og sæmilega hlýtt og víðast þurrt, síst þó á Suðausturlandi og á-Austfjörðum. HORFUR A SUNNUDAG: Austan- og suðaustanstrekkingur og dálítil rigning við suðurströndina en annars hægari austlæg átt og víðast þurrt. Hiti 6-10 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Fremur hæg norðaustlæg átt. Skýjað og smá- skurir norðaustanlands en annars víða léttskýjað. Nýir veðurfregna- tímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 18.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað Hálfskýjað * f * * * * * f * * f * r * * jf: Slydda Snjókoma Skýjað Alskýjað V Ý V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig Súld Þoka V FÆRÐÁ VEGUM: <KI. 17.30 ígær) ' Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomuiagi og greiðfærir. Víða er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna- leið fær til austur frá Sprengisandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima hiti veður Akureyri 6 skýjaö Reykjavlk 10 skúrásíð.klst. Björgvin 13 léttskýjað Helsinki 7 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Narssarssuaq 2 skýjað Nuuk 0 snjókoma Ósló 10 skýjaö Stokkhólmur 11 skýjað Þórshöfn 10 alskýjað Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 12 þokumóða Barcelona 17 skruggur Berlín 10 skýjað Chlcago 0 léttskýjað Feneyjar 17 léttskýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow 14 hálfskýjað Hamborg 11 skýjað London 15 skýjað Los Angeles 18 heiðskirt Lúxemborg 12 skýjað Madríd 18 hálfskýjað Malaga 24 léttskýjað Mallorca 23 skýjað Montreal 1 léttskýjað New York 11 skýjað Orlando 19 skýjað Parfs 15 skýjað Madelra 21 skýjað Róm 23 léttskýjað Vín 11 skýjað Waehington 10 hálfskýjað Winnlpeg vantar Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Á leið í Smuguna MAGNÚS Helgason, útgerðarstjóri Stakfellsins, t.v. og Sigurður Njálsson eftirlitsmaður. Stakfell í Smuguna með eftirlitsmann Þórshöfn. TOGARINN Stakfell ÞH 360 lagði af stað frá Þórshöfn sí. þriðju- dagskvöld á leið í Smuguna. Með honuin fór eftirlitsmaðurinn Sigurður Njálsson frá Fiskistofu og mun hann verða við mæling- ar á fiskinum sem þarna veiðist. Aðspurður sagði Sigurður að honum litist vel á þessa ferð og sama sinnis voru skipveijar á Stakfellinu. Einn skipveijanna sem fréttaritari ræddi við kvaðst vera afar ósáttur við mælingar Norðmanna, sem kæmu um borð í Smugunni. Þær hefðu ekki verið sanngjarnar og staðreyndin væri sú að hærra smáfiskahlutfail væri í aflanum sem fengist hér úti á Vestfjarðamiðum en í Smugunni. Eftir síðustu veiðiferð Stak- fellsins í Smuguna voru 4% af aflanum undirmálsfiskur. Á næstu dögum reynir á það hvort Stakfell- ið fær að taka prufutog á lokaða svæðinu syðst í Smugunni en alls óvíst er hvemig framhaldið verð- ur. - L.S. Sjálfstæðisfélagið Ingólfur í Hveragerði Stillt upp til framboðs SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Ingólf- ur í Hveragerði hefur ákveðið að efna ekki til prófkjörs fyrir næstu bæjarsljórnarkosningar, heldur stilla upp framboðslista. Helgi Þorsteinsson, formaður uppstill- ingarnefndar, segir þetta einróma ákvörðun félagsfundar en Sjálf- stæðisfélagið tapaði meirihluta í síðustu bæjarsljórnarkosningum og segir Helgi að framboðslistinn sé tilraun af þess hálfu til að stilla upp sterkum lista. „Sjálfur er ég mjög hlynntur próf- kjörum," segir Helgi, „en sú staða getur komið upp að þessi aðferð sé ákjósanlegust. Kostir fyrirkomulags- ins eru að við fáum hæfara fólk því oft er það svo að hæfustu mennirnir gefa ekki kost á sér í prófkjör vegna þess siags sem tíðkast í kringum þau.“ Helgi segir breytinguna ekki vera til frambúðar en um árabil hafi þessi háttur verið hafður á framboðs- málum og í ljósi síðustu úrslita hafi þótt raunhæfur kostur að færa þau til fyrra horfs um tíma. Val uppstillingamefndar er háð samþykki félagsfundar og segir Helgi að til greina komi að hanr. hafni uppstillingu nefndarinnar og breyti henni að vild. Prófkjör feli hins vegar oft í sér að röð efstu sætanna sé bindandi og því ekki hægt að hnika henni þó félagsmenji telji það ákjósanlegt. Efsti maður á lista Sjálfstæðisfé- lagsins Ingólfs í Hveragerði er Hans Gústafsson. ------------------ Verksmiðjur án hráefnis LÍTIÐ hefur veiðst af loðnu und- anfarið og eru nær allar loðnu- verksmiðjur hráefnislausar. Margar áhafnir loðnubáta hafa tekið sér frí og eru fáir bátar á miðunum. Um 370 þúsund tonn hafa borist á land á vertíðinni. Þórður Jónsson, rekstrarstjóiii SR-mjöls, sagði að loðnan væri dreifð og fengju bátarnir lítið í hveiju kasti. Stór Ioðnuganga Allar verksmiðjur SR-mjöls vorú hráefnislausar í gær og sagði Þórður að það hefði ekki gerst áður á vertíðj- inni. Sjómenn teldu að loðnugangan væri mjög stór og vonast væri til að hún þéttist þegar hún nálgaðist land- ið. Þórður sagði að ómögulegt væri að spá um framhaldið með nokkurri vissu, t.d. hefðu veiðar gengið illa á þessum tíma og fram yfir áramót í fyrra. Kosið til borgarstjórnar Fjórir borgarfulltrúar hafa ákveðið framboð FJÓRIR borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafa þegat gert upp hug sinn og hyggjast gefa kost á sér við borgarstjórnarkosn- ingarnar I vor. Auk þeirra er Ijóst að Markús Örn Antonsson borgar- stjóri mun verða í framboði og sagði hann að sú ákvörðun hafi verið tekin um leið og hann tók við embætti af Davíð Oddssyni. son, Júlíus Hafstein og Árni Sigfús- son gert upp hug sinn og ákveðið að gefa kost á sér. Páll Gíslasori segist reikna með að gefa kost á séf í prófkjöri. Guðrún Zoéga segist enn ekki hafa gert upp hug sinn og það sama á við um Katrínu Fjeldsted eða Magnús L. Sveinsson. Anna K. Jóns- dóttir segist ekki taka ákvörðun um framboð fyrr en.ljóst sé með hvaða hætti og hvernig prófkjöri verður háttað. 12. október næstkomandi mun Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík taka ákvörðun um hvort og hvenær efnt verður til prófkjörs í Reykjavík, vegna borgarstjómar- kosninganna. Að sögn Baldurs Guð- laugssonar, formanns fulltrúaráðs- ins, mun stjómin gera tillögu til fund- arins. Af tíu borgarfulltrúum Sjálfstæð- isfiokksins hafa þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjáimsson, Sveinn Andri Sveins-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.