Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993
7
Þróunarfélag íslands hf. hyggst sækja á nýja markaði
Hreimi Jakobsson ráð-
inn framkvæmdastj órí
HREINN Jakobsson - viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Þróunarfélags íslands hf. frá og með mán-
aðamótunum. Hreinn hefur starfað sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri Þróunarfélagsins síðustu miss'eri.
Hreinn
son.
Jakobs-
. Þróunarfélag
íslands var stofn-
að árið 1986 með
það að markmiði
að stuðla að vöru-
þróun og leggja
nýsköpun í ís-
lensku atvinnulífi
lið með áhættu-
fjármagni. Eink-
um var þar horft
til hátæknifyrir-
tækja og nýrra
greina. Ríkissjóður var stærsti
hluthafi í félaginu en um síðustu
áramót keyptu 12 lífeyrissjóðir
hlut ríkisins í félaginu. Að sögn
Hreins Jakobssonar hefur stefna
félagsins verið mótuð upp á nýtt
í kjölfarið og hlutverk þess verið
víkkað út. Nú sé það stefna sem
er í atvinnulífinu þar sem um arð-
vænlega von sé að ræða.
Sótt á nýja markaði
Þróunarfélagið hefur á þessu
ári meðal annars lagt hlutafé í
félag sem stofnað var um tilrauna-
veiðar í Barentshafi en Jóhann
Gíslason ÁR er nú þar að veiðum
í tilraunaskyni í rússneskri lög-
sögu í samvinnu við rússnesk út-
gerðarfélög. Hreinn sagði að þar
færi fram ákveðin nýsköpun í sjáv-
arútvegi því þótt veiðarnar væru
í raun hefðbundnar væri verið að
sækja á nýja markaði.
Lífeyrissjóðirnir 12, sem keyptu
hlut ríkisins, eiga samtals 100
milljónir króna af 345 milljóna
króna hlutafé Þróunarfélagsins.
Aðrir stórir hluthafar eru Iðnþró-
unarsjóður, sem á 40 milljónir
króna, og Iðnlánasjóður og Lífeyr-
issjóður verslunarmanna, sem eiga
30 milljónir króna.
Hreinn Jakobsson er fæddur
1960. Hann er stúdent frá Versl-
unarskóla íslands og lauk prófi frá
viðskiptadeild Háskóla íslands árið
1985. Eftir nám starfaði hann hjá
Iðnlánasjóði, þar sem hann gegndi
starfi forstöðumanns vöruþróun-
ar- og markaðsdeildar til ársins
1989 þegar hann réðst til starfa
hjá Þróunarfélaginu. Jafnhliða
starfi sínu situr Hreinn í stjórnum
ýmissa fyrirtækja sem fulltrúi Þró-
unarfélagsins. Eiginkona Hreins
er Aðalheiður Ásgrímsdóttir við-
skiptafræðingur.
Morgunblaðið/Þorkell
Lögreglustöð
í Garðabæ
LÖGREGLU STÖÐ hefur
verið opnuð í Garðabæ í
fyrsta skipti. Stöðin er við
Kirkjulund 13, rétt við mið-
bæjarkjarnann í Garðabæ.
Þar munu starfa þrír menn
úr lögregluliði sýslumanns-
ins í Hafnarfirði, Guð-
mundar Sophussonar, sem
er lengst til vinstri á mynd-
inni, ásamt lögreglumönn-
unum Þorvaldi Bragasyni,
Valgarði Valgarðssyni
varðstjóra og Kristjáni
Guðnasyni.
Bílslys á
Oxarfjarð-
arheiði
Þórshöfn.
MJÖG harður árekstur varð á
Öxarfjarðarheiði vestanverðri
sl. miðvikudagskvöld. Þar
rákust saman Mazda og Volvo
bifreiðir og brotnaði ökumað-
ur Mazda-bifreiðarinnar á
fæti og kona í farþegasæti
skarst nokkuð í andliti. Báðir
bílarnir eru gjörónýtir.
Áreksturinn varð rétt fyrir sól-
arlag og er talið að annar ökumað-
urinn hafi blindast af sólinni, sem
nú er mjög lágt á lofti.
Þau sem meiddust fengu að
fara heim eftir að gert hafði verið
að sárum þeirra. Tvö börn voru í
aftursæti og bæði vel varin í
barnabílstólum og segir Jón Stef-
ánsson, lögregluvarðstjóri, að án
efa hafi það forðað þeim frá
meiðslum. Þau sluppu ómeidd.
Miðað við ástand bílanna eftir
áreksturinn er það mesta mildi að
ekki skyldi fara verr. En bæði
ökumaður og farþegi Volvo-bif-
reiðarinnar sluppu ómeiddir.
Allir voru með bílbelti.
- L.S.
Gejmdu Merrild kaffið á goðum siað!
Falfegu Merrild kaffidósirnar eru sérhannaðar fyrir Merrild kaffipakkana. Þú tryggir að
styrkleiki og ilmur kaffisins haldast enn lengur með því að khppa ofan af kaffipakkanum og
✓
geyma hann í kaffidósinni. Avallt skal forðast að hella kaffinu úr umbúðunum í annað ílát.
Fáðu þér fallega kaffidós og njóttu þess að drekka gott Merrild kaffi.
Nu faést Merrild kaffídós á tilboði í ölluin verslunum.
Mmiftt
setur brag á sérhvern dag!