Morgunblaðið - 01.10.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993
pH 4,5 húðsápan er framleidd úr völdum
ofnæmisprófuðum eínum og hentar jafnt
viðkvæmri húð ungabama sem þinni húð. Hið
lága sýrustig (pH gildi) sápunnar styrkir
náttúrulega vöm húðarinnar gegn sveppum og
sýklum og vamar því að hún þomi. Hugsaðu vel
um húðina og notaðu pH 4,5 sápuna alltaf þegar
þú þværð þér.
pH 4,5 húðsápan vinnur gegn
of háu sýrustigi húðarinnar.
KNATTSPYRNA
Uwe Bein hættur með þýska landsliðinu
„Leik-
menn
hugsa
aðeins
um sjálf-
an sig“
— segir Uwe Bein.
„Andrúmsloftið í
landsliðshópnum er
óþolandi og þareru
menn með mikil-
mennskubrjálæði"
UWE BEIN, einn besti miðvallarspilari Þýskalands, tilkynnti í gær
að hann gæfi ekki kost á sér framar í landslið Þýskalands og
notar tækifærðið til að lýsa hættuástandinu sem nú er komið
upp innan þýska landsliðshópsins. „Það eru ellefu einstaklingar
inni á vellinum, sem aðeins hugsa um sjálfan sig, en ekki liðs-
heildina. Það eru of margir sjálfselskir leikmenn á ferðinni, sem
eiga við mikilmennskubrjálæði að stríða,“ sagði Bein, sem leikur
lykilhlutverkið hjá Frankfurt, sem er í efsta sætinu í 1. deildar-
keppninni í Þýskalandi.
Bein, sem var í landsliðshópi
V-Þýskalands, sem fagnaði
heimsmeistaratitlinum á Italíu
1990, sagðist ekki lengur hafa
áhuga að vera í landsliðshópnum,
þar sem andrúmsloftið þar væri
óþolandi. „Ég er á þeirri skoðun
að best væri að koma fjórum til
fimm leikmönnum út úr hópnum —
leikmönnum sem hafa neikvæð
áhrif á hann, og best fyrir alla að
væru heima“.
Bein opnað hug sinn aðeins viku
eftir að landslið Þýskalands gerði
jafntefli við Túnis, 1:1, í vináttu-
leik. „Allt miðvallarspii liðsins er í
molum og langt frá því eins og það
ALEX Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, er
nú orðinn launahæsti fram-
kvæmdastjórinn í Englandi —
með mun hærri laun en starfs-
félagar hans Graeme Souness,
Liverpool, Kenny Dalglish,
Blackburn og George Graham,
Arsenal.
Ferguson, sem er 51 árs, og sá
framkvæmdastjóri sem hefur
verið lengst á Old Trafford síðan
Sir Matt Busby var þar við völd,
skrifaði undir nýjan fjögurra ára
samning í vikunni. Samingurinn
færir honum 1,2 millj. punda í vas-
ann, eða 300 þús. pund í árstekjur,
en það eru um 31,2 millj. fsl. kr. á
ári.
Það voru margir óþolinmóðir
var í heimsmeistarakeppninni á
Ítalíu. Margir af leikmönnum liðsins
líta stórt á sig. Það hafa orðið mikl-
ar breytirrgar síðan við urðum
heimsmeistarar. Landsliðshópurinn
var þá skipaður tuttugu og tveimur
leikmönnum, sem lögðust allir á
eitt. Allir fögnuðu, þó að þeir hafi
ekki leikið — það var enginn að
pukra í sínu homi. Andinn í lands-
liðinu er nú mjög slæmur," sagði
Bein, sem hefur leikið sautján
landsleiki. Menn vonuðust eftir að
hann myndi stjórna miðjinni í þýska
landsliðinu i heimsmeistarakeppn-
inni í Bandaríkjunum 1994 — en
nú er sú von úti.
stuðningsmenn United sem vildu
láta Ferguson fara fyrir nokkrum
árum, en stjórn félagsins stóð við
bakið á Ferguson þegar á móti blés.
Ferguson þakkaði fyrir sig og und-
ir hans stjórn vann Man. Utd. ensku
bikarkeppnina 1990, Evröpukeppni
bikarhafa 1991, ensku deildarbikar-
keppnina 1992 og Englandsmeist-
aratitilinn 1993. Ferguson kom til
United frá Aberdeen þar sem hann
vann titla á hveiju ári. Hann er nú
orðinn kóngurinn á Old Trafford —
sigursæll foringi.
Á sama tíma og Ferguson var
að skrifa undir nýjan samning, var
Souness að játa sig sigraðan — það
var kominn uppgjafatónn í hann,
eftir svartasta septembermánuð hjá,
Liverpool í 90 ár; fimm töp í sex
leikjum.
Uwe Bein, einn besti miðvallarspil-
ari Þýskalands og lykilmaður í ven-
gengni Frankfurt.
■ DAVID Hirst, framheiji
Sheffield Wednesday, verður frá
keppni næstu þijá mánuði. Hann
þarf að gangast undir uppskurð
vegna meiðsla í hásin. Hann hefur
reyndar aðeins leikið fímm af tíu
leikjum Iiðsins það sem af er leik-
tímabilsins vegna meiðsla. Hirst
verður því ekki með Wednesday
gegn Manchester United á morg-
un.
■ CELTIC frá Skotlandi komst
í 2. umferð UEFA-keppninnar
með því að vinna Young Boys frá
Sviss 1:0 eftir framlengdan leik.
Eftir leikinn óskaði þulurinn á vell-
inum eftir því að áhorfendur risu
úr sætum og hefðu einnar mínútu
þögn til að minnast þátttöku Ran-
gers í Evrópukeppninni, en liðið
féll óvænt úr keppninni á miðviku-
dagskvöld gegn Levski frá Búlgar-
íu. Þess má geta að forráðamenn
Celtic ráku þulinn fyrir uppátækið
— þótti þetta ekki fyndið.
■ STUARTSlnter var í gær seld-
ur frá Celtic til Ipswich fyrir eina
milljón punda. Hann fór til Celtic
frá West Ham fyrir 14 mánuðum
og var kaupverðið þá 1,7 milljónir
punda. Slater er 23 ára miðvallar-
leikmaður og lék með U-21 árs liði
Englands fyrir nokkrum árum.
■ PETER Reid, sem var rekinn
fyrir fjórum vikum frá Manchester
City, en þar var hann spilandi þjálf-
ari, er kominn til Southampton
sem leikmaður. Hann er 37 ára.
■ ANTHONY Yeboah, leikmað-
urinn knái hjá Eintracht Frank-
furt í Þýskalandi, þarf að fara í
aðgerð vegna hnémeiðsla sem þýðir
að hann leikur ekki með liðinu
næstu sex vikurnar. Yeboali var á
meðal markahæstu leikmanna
deildarinnar í fyrra — gerði þá 20
mörk og er markahæstur það sem
af er með 9 mörk eftir jafn marga
leiki.
■ DINO Zoff, þjálfari Lazió, er
nú undir mikilli pressu — félagið
hefur aðeins fengið fimm stig úr
sex leikjum á Ítalíu. Lazió leikur
gegn AC Milan um helgina.