Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 Nýgrafík- verk eft- ir Braga í TILEFNI _ sýningar sinnar í Listasafni íslands fór Bragi Asgeirsson til Kaupmannahafn- ar í septemberbyrjun og gerði tvö steinþrykk. Bragi hafði ekki unnið í stein- þrykki síðan hann var síðast á verkstæðinu í Valby 1988, og fannst honum ótækt að ekki væri eitthvað nýtt á þessari yfirlitssýn- ingu á grafíkverkum hans. Báðar eru myndirnar þrykktar í 60 númeruðum og árituðum ein- tökum í þrem litum, og auk þess eru þrykkt 20 númeruð og árituð eintök af annarri myndinni í svart- hvítu. Hvað veggspjald (plakat) sýn- ingarinnar snertir, er þáð þrykkt í 100 ónúmeruðum og óárituðum eintökum á offsetpappír, en 50 eintökum í lit og 30 í svart-hvítu á þykkan litografíupappír og eru þau upplög númeruð og árituð. I tilefni sýningarinnar lét Lista- safn Islands þrykkja sérstaklega 20 eintök af myndinni „Jötuninn" sem er æting á koparplötu og gerð 1976. Allar eru þessar myndir til sölu í Listasafni Islands. Nýtt steinþrykk ÖNNUR grafíkmyndin sem Bragi Ásgeirsson gerði í tilefni sýning- ar smnar. Niðurfallsristar í öllum sundlaugum skoðaðar FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ hefur falið Vinnueftirliti ríkisins að skoða niðurfallsristar á öllum sundstöðum og kennslulaugum landsins. Að sögn Eyjólfs Sæmundssonar, forstjóra Vinnueftirlits ríkisins, verður þetta gert á næstu vikum. SIEMENS Siemens frystikistur á betra veröi en nokkru sinni fyrr! GT27B02 (2501 nettó) = 42.900 kr. stgr. GT34B02 (3181 nettó) = 47.900 kr. stgr. GT41B02 (4001 nettó) = 51.900 kr.stgr. Úttektin verður gerð að beiðni menntamálaráðuneytisins en eftir að slys varð í Sundlaug Kópavogs sl. föstudag hefur komið upp deila milli Vjnnueftirlits ríkisins og forráða- manna sundlaugarinnar um hvort útsogsop við vatnsrennibraut hafi verið tekið út af Vinnueftirlitinu eða ökki Gráu svæðin hverfa Á vegum menntamálaráðuneyt- isins er langt komin vinna við nýjar reglur um öryggi á sundstöðum og taka þasr væntanlega gildi á næstu vikum. I ljós hefur komið að úttekt- arskylda á öryggisatriðum á sund- stöðum hefur í sumum tilvikum ver- ið óljós og í samtali við Jens Andrés- son, tæknifulltrúa hjá Vinnueftirliti ríkisins, í Morgunblaðinu á þriðju- dag kom fram að niðurfallsristar við vatnsrennibrautir séu á einu af þess- um svokölluðu gráu svæðum. Eftir að nýju reglurnar taka gildi á þessi óvissa að heyra sögunni til. Skilgreina þarf öryggiskröfur Eyjólfur Sæmundsson segir að beiðnin um að skoða „sundstaði og kennslulaugar með tilliti til slysa- hættu við niðurfallsristar," eins og segi í bréfi frá félagsmálaráðuneyt- inu, sé lögð fram vegna þess að skv. núgildandi starfsreglum Vinnu- eftirlitsins sé það ekki í verkahring þess _að fylgjast með þessum bún- aði. Áður en það verði hægt þurfi þó að skilgreina hvaða kröfur eigi að gera, það liggi ekki fyrir nú. Leiðbeiningar séu til frá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins um hvernig best væri að haga nýhönnun en þær muni ekki nýtast nema mjög litlum hluta sundlauga á íslandi. Þegar búið verði að skilgreina út frá hvaða forsendum eigi að taka út niðurfallsristar á sundstöðum og í kennslulaugum verði það gert á eins skömmum tíma og hægt er. „Það tekur einhvern tíma að und- irbúa þetta en Vinnueftirlitið er það öflug stofnun að við munum gera þetta á tiltölulega skömmum tíma og nota til þess m.a. umdæmaskrif- stofur okkar úti á landi,“ sagði Eyj- ólfur Sæmundsson. Breytingar gerðar á rekstri Listasafns ASÍ Stór skuld við ASÍ felld niður ALÞÝÐUSAMBAND íslands hefur ákveðið að breyta rekstrar- fyrirkomulagi á Listasafni ASÍ en að sögn Ólafs Jónssonar, forstöðumanns Listasafns ASÍ, skuldaði safnið sambandinu um 10 milljónir króna eða sem nemur ársveltu safnsins. Ólaf- ur segir að sú skuld hafi verið felld niður að settum þeim skilyrðum að safnið starfi eftirleiðis innan fjárhagsáætlunar og rekstrarafgangi verði varið til kaupa og viðhalds á lista- verkum. Ólafur segir að safnið muni ekki standa fyrir sjálfstæðum sýningum í safninu á næstu misserum heldur leigja sal sinn út, þótt það muni standa við skuldbindingar sem nú hvíli á því vegna sýningarhalds og annars. Tekjur safnsins komi frá Alþýðusambandi íslands, íslenska ríkinu, útleigu á sal safnsins við Grensásveg og ágóða af vinnu- staðasýningum. Ólafur segir að einnig verði gerðar breytingar á starfsmanna- haldi og þannig muni almennur starfsmaður safnins láta af störf- um um áramót og verði ekki ráðið í hans stað. Hann segir þetta hefð- bundnar aðhaldsaðgerðir varðandi almenna kostnaðarþætti reksturs- ins sem eigi ekki bitna á þeim list- rænu kröfum sem gerðar eru til safnsins. Breytingar hjá Örtölvutækni-Tölvukaupum k Framkvæmdastj órí * lætur af störfum HEIMIR Sigurðsson lét í gær af störfum sem framkvæmdastjóri Ört- ölvutækni-Tölvukaupa hf. (ÖTT). Heimir, sem var einn af stofnendum fyrirtækisins árið 1978, var þar framkvæmdastjóri fyrstu tíu árin og Svo aftur frá árinu 1991. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nokkur aðdragandi væri að því að hann hætti störfum hjá fyrirtæk- inu. Hann sagðist ekki fara frá því í neinum sárindum þó auðvitað væri það einkennileg tilfinning að kveðja eftir fimmtán ár. Werner Rasmusson, stjórnarfor- maður og aðaleigandi ÖTT, sagði við Morgunblaðið að ákvörðunin um að Heimir léti af störfum hefði ver- ið tekin í mestu friðsemd. Werner, sem verður starfandi framkvæmda- stjóri fyrirtækisins á næstunni, vildi ekki tjá sig um væntanlegan eftir- mann Heimis. Heimir sagði að skiptar skoðanir hefðu verið innan fyrirtækisins um hvaða áherslum ætti að beita í rekstrinum og þegar svo væri þyrfti augljóslega einhver að víkja. Þegar ekki væri trúnaður á milli fram- kvæmdastjóra og stjórnarmanna þyrfti að gera málin upp. í maí á síðasta ári tók Örtölvu- tækni við Digital-umboðinu á ís- landi eftir að tölvudeild Kristjáns Ó. Skagijörðs var lögð niður. „Á þessu ári hafa verið miklar svipting- ar í rekstrinum í kjölfar samkeppn- innar við GSS,“ sagði Heimir, en nokkrir fyrrum starfsmenn tölvu- deildar Skagljörðs stofnuðu fyrir- tækið GSS hf. sem einnig selur og þjónustar Digital tölvur og tölvu- búnað í óþökk Digital í Evrópu. Heimir sagði að þessi mál hefðu sett mikinn svip á starfsemi ÖTT og þá hefði reksturinn í ár ekki verið viðunandi. Þó væri nú mikið í gangi hjá fyrirtækinu og hlutirnir farnir að snúast því í hag. Sameinast ÖTT og GSS? Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa staðið yfir viðræður á milli stjórnar Örtölvutækni og GSS um sameiningu, en Heimir mun hafa hafnað þeirri hugmynd. Að sögn Werners á fyrirtækið ekki í neinum formlegum sameiningavið- ræðum við GSS. -------» ♦ ♦------ Ráðstefna Snæfellsáss um óhefðbundnar lækningar RÁÐSTEFNA um óhefðbundnar Iækningar veður haldin á vegum Snæfellsáss í Háskólabíói sunnudaginn 3. október næstkomandi. Að sögn Guðrúnar Bergmann, framkvæmdastjóra, er tilgangur ráðstefn- unnar að vekja upp umræðu um að óhefðbundnar lækningar séu ekki nýmæli heldur hafi þær átt sér stað lengi. Fjórtán erindi verða flutt og eru hverjum ræðumanni ætlaðar 20 mínútur. Muniö umboðsmenn „Við viljum benda á að í nútíma- samfélagi er ekki hægt að einangra okkar VÍÖa um landiö. sig við lækna með háskólapróf og að þeir einir hafí leyfi til að ráð- leggja eða hjálpa fólki við að bæta heilsu sína,“ sagði Guðrún. „Fólk er áhugasamt um þessi málefni og meðvitað um mikilvægi forvarna. Það vill ræða um orsakir veikinda og vilja vita af hveiju því verður til dæmis illt í maganum," SMfTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 628300 Landlæknir meðal fyrirlesara Ráðstefnan hefst kl. 10 og stendur fram eftir degi. Meðal ræðumanna eru Sigurður Jónsson, sem talar um áhrif trúar á heilsu, Einar Þorsteinn Ásgeirsson verkfræðingur, sem talar um áhrif segulsviðsmengunar á heils- una, Jón Ágúst Guðmundsson tölvu- fræðingur, sem talar um hreyfingu, streitu og sjúkdóma, dr. Laufey Steingrímsdóttir matvælafræðingur, sem talar um áhrif fæðu á heilsu, Einar Logi Einarsson grasalæknir, sem talar um jurtalækningar, upp- runa og hefðir og Ólafur Ólafsson landlæknir sem talar um viðhorf landlæknisembættisins til óhefð- bundinna lækninga. Þá talar Ævar Jóhannsson tækni- maður um lúpínuseyði við krabba- meini, Guðrún Óladóttir reikimeistari talar um heilun, Guðmundur Einars- _ son verkfræðingur, talar um óhefð- ’bundnar lækningar um alla jörð, Hallgrímur Þ. Magnússon læknir, talar um fæði, heilsu og nútíma læknismeðferð og Selma Júlíusdóttir talar um ilmkjarnaolíur. Loks ræðir Guðrún Bergmann um nýja stefnu- mótun í heilbrigðismálum. Landsþing Þroska- hjálpar sett í dag LANDSÞING Landssamtakanna Þroskahjálpar hefst í dag, 1. októ- ber, á Hótel Sögu og er megin- þema þingsins „fjölskyldur ungra barna.“ Gestir þingsins eru Lis- beth Jensen, formaður nýstofn- aðra Landssamtaka þroskaheftra í Danmörku, og hljómsveitin „Strámændene" frá Danmörku sem skipuð er þroskaheftu fólki. Ásta B. Þorsteinsdóttir, formað- ur Þroskahjálpar, setur þingið kl. 20. í kvöld, síðan verður leikin sí- gild tónlist, Vilborg Dagbjartsdóttir flytur hugvekju í ljóðum og Strámændene leika og syngja uns efnt verður til kaffisamsætis í boði samtakanna. Laugardaginn 2. októ- ber kl. 9 hefst dagskráin að nýju og munu foreldrar fatlaðra barna, fagfólk og fræðimenn fjalla um stuðning og ráðgjöf sem fjölskyldur ungra fatlaðra barna þurfa mest á að halda. Meðal ræðumanna eru Gunnar Valdimarsson, Jóhann Thoroddsen, Evald Sæmundsen, Þuríður M. Magnúsdóttir, Hanna G. Siguijónsdóttir, Jórunn Magnús- dóttir, Svanfríður Larsen, Jóhann I. Gunnarsson, Ásta Friðjónsdóttir og Rannveig Traustadóttir. Á sunnudaginn verður aðal- áherslan á undirbúning skólagöngu fatlaðra barna og munu þar m.a. Ingibjörg Auðunsdóttir, Dóra S. Bjarnason og Jörn Greve flytja er- indi. Hópumræður fara fram báða dagana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.