Morgunblaðið - 01.10.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993
17
Afskriftir útlána Islandsbanka
Lán til sjávarútvegs
ekki áhættusömust
LÁN íslandsbanka til fiskeldis, verktaka, þjónustufyrirtækja, versl-
unar og iðnaðar hafa á síðustu árum verið áhættusamari en lán til
sjávarútvegsfyrirtækja.
í ræðu Ásmundar Stefánssonar
framkvæmdastjóra íslandsbanka á
aðalfundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðvanna í síðustu viku kom fram
að afskriftir í íslandsbanka væru
mestar í fiskeldi þar sem meiri-
hluti lánanna væri afskrifaður.
Ef skoðuð væri samtala afskrifta
og þess sem nettó hefði verið lagt
á varúðarreikning samanlagt fyrir
tímabilið 1990-1992, kæmi í ljós,
að um væri að ræða 10,6% af heild-
arútlánum bankans. Samsvarandi
hlutfall vegna lána til fiskeldis
væri 60,6%, 25,9% af lánum til
verktaka, 17,9% af lánum til þjón-
ustu, 17,1% til verslunar, 13;1% til
iðnaðar 9,1% til sjávarútvegs, 5,5%
til samgöngufyrirtækja, 3,7% til
einstaklinga og 0,2% vegna íbúðar-
húsa.
Framkvæmdastjóri
Amnesty í heimsókn
PIERRE Sané, framkvæmdsljóri
Amnesty International, sækir ís-
landsdeild Amnesty Internation-
al heim dagana 1.-3. október.
Hann heldur fund með félögum
Islandsdeildar í Norræna húsinu í
kvöld, föstudaginn 1. október, kl.
20.30. Fjallar hann þar um nýaf-
staðið heimsþing samtakanna og
þau verkefni sem framundan eru.
Laugardaginn 2. október heldur
Pierre Sané almennan fyrirlestur
kl. 14.30 í stofu 101 í Odda. Fyrir-
lesturinn nefnist: „Facing the Fut-
ure - Amnesty International and the
Human Rights Movement." Pierre
Sané mun ennfremur hitta að máli
ýmsa forystumenn í mannúðar- og
mannréttindamálum ásamt opin-
berum embættismönnum.
Pierre Sané tók við fram-
kvæmdastjórastöðu Amensty Inter-
national í Lundúnum fyrir tæpu
ári. Hann er stjórnmálafræðingur
að mennt og félagi í Amnesty í
.heimalandi sínu, Senegal. í starfi
sínu sem framkvaémdastjóri stýrir
hann rannsóknum samtakanna á
mannréttindabrotum og aðgerðum
gegn þeim. Pierre Sané hefur lagt
ríka áherslu á að kynnast félögum
og deildum samtakanna og hefur
Pierre Sané.
nú þegar heimsótt um 25 deildir
um heim allan.
Mannréttindasamtökin Amensty
International starfa nú í 150 lönd-
um og sérstakar landsdeildir eru í
70 löndum. Félagar eru nú samtals
1,1 milljón, þar af tæplega fjögur
þúsund á Islandi. Á aðalskrifstofu
samtakanna í Lundúnum eru 280
fastir starfsmenn og rúmlega 70
sjálfboðaliðar frá yfír 50 þjóðlönd-
um.
Langnr laugar-
dagur á morgun
LANGUR laugardagur verður á vegum Laugavegssamtakanna á
morgun, 2. október. Þennan langa laugardag verður haldið upp á
eins árs afmæli langa laugardagsins sem hóf göngu sína í október
í fyrra og hefur mikill fjöldi fólks heimsótt bæinn og verslað þessa
laugardaga.
í tilefni dagsins geta árrisulir við-
skitavinir átt von á hádegisverð-
argjafakorti frá mörgum verslunum
við Laugaveg og Bankastræti og frá
Reykjanesbraut
Vinnu lokið
við gatnamót
VINNU eru lokið við stefnu-
greiningu gatnamóta Reykjanes-
brautar og Vogavegar og
Reykjanesbrautar og Grindavik-
urvegar.
Á þessum gatnamótum hefur
verið talsvert um slys og er tilgang-
ur þessara framkvæmda að fækka
þeim. Vinnustaðarmerking verður
tekin niður í dag, föstudag 1. októ-
ber.
Á gatnamótunum er hámarks-
hraði 70 km/klst og eru ökumenn
beðnir um að virða þau hraðamörk,
segir í frétt frá Vegagerðinni.
eftirfarandi matsölustöðum: Lækjar-
brekku, Asíu, Tveimur vinum, Pasta
Basta, Steikhúsinu, Shanghæ, Prag
o.fl.
Seinni parts dagsins bjóða síðan
eftirtaldir veitingastaðir: Cancún,
Veitingastaðurinn 22, LA Café,
Pasta Basta, Tveir vinir, Sólon ís-
landus o.fl. upp á svokallað „Happy
hour“ fyrir viðskiptavini og verslun-
arfólk. Boðið verður upp á stutta
skoðunarferð á hestvagni e. hádegi
fyrir börnin. Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar verður með goskynn-
ingu. Cöte d’or-fíllinn verður á svæð-
inu. Laugi trúður verður með uppá-
komur og gefur börnum blöðrur.
Kodak-bangsinn skemmtir fjölskyld-
unni í Bankastræti. Bangsaleikurinn
verður í gangi og munu stóri og litli
bangsi verða á Laugaveginum að
leita að bangsanum með krökkun-
um. I verðlaun verða fimm vinningar
frá versluninni Benetton, Laugavegi
97, og einnig fá heppnir þátttakend-
ur í bangsaleiknum afmælistertur
frá G. Ólafssyni & Sandholt bakarí,
Laugavegi 36.
(Fréttatilkynning)
V e r i ð velkomin á
DAGANA
UM HELGINA
LJUFMETI AF LETTARA TAGINU
verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar.
KYNNTU ÞÉR ÍSLENSKA GÆÐAMATIÐ
Birtar verða niðurstöður íslenska
gæðamatsins á ostunum sem teknir voru til matS nú í vikunnt
•
Ostameistari íslands útnefndur.
•
Ostameistararnir verða á staðnum og sitjaJyrir svörum um allt það sem
lýtur að ostum og ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sinum.
OSTARNIRVERÐAÁ KYNNINGARVERÐI
- notaðu tækifærið!
OSTALYST 2
- kynning á nýrri bók.
VERÐLAUNASAMKEPPNI
- stöðugt verið að draga úr pottinum.
OPIÐ HÚS
að Bitruhálsi kl. 1 -6
laugardag 2. okt. & sunnudag 3. okt.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SH