Morgunblaðið - 01.10.1993, Page 35

Morgunblaðið - 01.10.1993, Page 35
eei naaöTxo .1 HUOAGUTgoa aiaAjanuoHOM .. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 35 TONLIST Barnabókahöfundurinn kunni, Viveca Sundvall, ásamt Önnu Einars- dóttur. MENNING Fjölmenni á bókastefnu Níunda norræna bókastefnan, Bok & Bibliotek, var haldin í Gautaborg nýlega. íslenskir þátt- takendur voru Thor Vilhjálmsson sem ræddi um gildi bókmenntaverð- launa fyrir rithöfunda, Guðbergur Bergsson sem svaraði spurningum um skáldsögu sína, Svaninn, sem nýkomin er út í Svíþjóð hjá Tidens Förlag og Vésteinn Ólason sem kynnti íslensku bókmenntasöguna sem Mál og menning gaf út í fyrra. Anna Einarsdóttir, sem situr í stjórn Bok & Bibliotek, sagði _að mikill áhugi hefði verið á hlut ís- lands í dagskrá stefnunnar og að- sókn mikil á öll atriðin. Hún benti á að enginn viðburður í Svíþjóð njóti jafn mikillar eftirtektar og bóka- stefnan í Gautaborg, að þessu sinni hafi komið þangað 90.000 gestir. Hioi Villijalmsson <jÆ‘Ni!s-Giinnar Nilssoo Thor Vilhjálmsson rithöfundur á dagskrá um gildi bókmenntaverð- launa. Með honum er Nils-Gunnar Nilsson, menningarritstjóri Syd- svenska Dagbladet sem stjórnaði umræðunum. COSPER .»!’•!“ COSPER Má ég ekki taka mynd af þér? Þú ert sá fyrsti sem ég keyri yfir Björk á einnig danska aðdáendur Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Danskir gagnrýnendur og tón- leikagestir voru ekki í vafa um að þeir væru að taka á móti stórstjörnu þegar söngkonan Björk Guðmundsdóttir hélt tónleika á listahátíð Árósa. Ekki það að hún þætti vera með neina stjörnustæla — þvert á móti luku allir upp einum munni um hve látlaus framkoma hennar væri — heldur er hún bæði orðin vel kunn hér og er í uppá- haldi bæði hjá gagnrýnendum og öðrum. Hún er laus við merkilegheit „Hún er eins og lítil stelpa," skrifaði gagnrýnandi Politiken, sem var samferða Björk í flugvél- inni til Árósa, „látlaus í framkomu og laus við öll merkilegheit.“ Þegar komið var til Árósa kom í ljós, að á ferðinni var þekkt söngkona, því á flugvellinum beið hennar límús- ína, sem hún steig upp í eins og ekkert væri. Tónleikar Bjarkar voru í röð tónleika á listahátíð bæjarins, sem býður upp á blandað listaefni, bæði leiklist, dans og tónlist, allt frá klassík yfir í rokk og popp. Gagnrýnendur voru' samrhála um að tónleikar hennar hefðu verið þeir bestu í þeirri grein. „Fimmtu- dagurinn var dagur Bjarkar og fólk víða af landinu slóst í hóp Austur-Jótanna og kom í píla- grímsferð á listahátíðina til að upplifa stórstjörnuna," sagði í dag- blaðinu Politiken um tónleikana, sem voru mjög vel sóttir. Gagnrýn- andi blaðsins talaði um rödd henn- ar „sem væri öldungis einstök. og sem nýttist henni afar vel“. Elsa Sigfúss söng á sama stað I dagblaðinu Information var rifjað upp að Björk væri ekki fyrsta íslenska söngkonan, sem stigi á fjalir Árósahallarinnar. Sú fyrsta hefði verið Elsa Sigfúss sem hélt tónleika þar árið 1942. Margar stórstjörnur hafa sungið þar, svo sem The Who og Jimi Hendrix á sínum tíma. Ennfremur er talað um hve tónleikar Bjarkar hefðu hæft vel þessu húsi. „Björk, sem hefur heillað allt og alla með fyrstu sólóplötu sinni eftir að hún spilaði með Sykurmolunum, sem voru fremstir um frumlegt íslenskt rokk fram að þessu.“ Björk flutti lög af plötu sinni, sem samkvæmt gagnrýnanda blaðsins voru flutt af hópi, sem lét sér ekki nægja að spila lögin, held- ur flytja þau og túlka. Lögin voru flutt af minni hópi heldur en er á plötunni. „Björk var sjálf áhrifa- mikil með söng sínum, einstökum áherslum og tilbrigðum við þessi þekktu, undarlegu lög, meðan lát- laus og næstum barnsleg fram- koma hennar var aldrei minna en heillandi. Rúsínan í pylsuendanum var svo tvö lög af væntanlegri plötu, sem hún er að vinna að, annars vegar rokkaðra lag en á fyrstu plötunni og svo frábær, næstum hefðbundin ballaða að lok- um.“ Björk Guðmundsdóttir heillaði Dani upp úr skónum þegar hún söng I Árósum fyrir nokkru. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/ReykjanesbrauU Kópavogi, sími 571800 OPIÐ SUNNUDAGA KL. 13 - 18 MMC Galant GLSi 4x4 '90, hvítur, 5 g., ek. 67 þ., rafm. í öllu, hiti í sætum, saml. stuðarar, álfelgur o.fl. Toppeintak. V. 1270 þús, Toyota Corolla XL ’88, svartur, 4 g., ek. 56 þ. Toppeintak. V. 550 þús. stgr. MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 47 þ., spoiler o.fl. V. 780 þús Toyota Corolla Twin Cam 16v '85, hvít- ur. Gott eintak. V. 395 þús. Ford Bronco II XL ’85, sjálfsk., ek. 50 þ. á vél. V. 650 þús. stgr. Mazda 323 1.5 GLX Sedan '86, sjálfsk. V. 330 þús. Lada Samara 1500 '91, 5 dyra, ek. 19 þ. km. V. 380 þús. stgr. Cherokee Chief, 4 L, '87 3ra d., sjálfsk., ek. 130 þ.V. 1150 þ. Sk. ód. Toyota Corolla Liftback GTi 16v ’88, 5 g., ek. 98 þ. V. 750 þús. Chevrolet Blazer Thao '86, grár (tvílitur), sjálfsk., ek. 86 þ. km. Gott eintak. V. 1050 þús. Chrysler Voyager V-6 '90, brúnsans, sjálfsk., ek. 101 þ., 7 manna, einn eig- andi. V. 1390 þús. MMC L-300 4x4 ’88, 8 manna, grár, 5 g., ek. 87 þ. V. 1090 þús., sk. á ód. MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 44 þ. V. 760 þús. Nissan Pathfinder V-6 '88, sjálfsk., ek. 67 þ., rauður. V. 1550 þús. Cherokee Pioneer 2,5L ’84, sjálfsk., ek. 79 þ. mílur. V. 690 þús., sk. á ód. (eða 2 bílum). MMC Colt GLXi ’91, 5 g., ek. 47 þ. V 890 þús. Daihatsu Feroza DX ’89, svartur/grár, 5 g., ek. 60 þ. km., topplúga o.fl. V. 850 þús., sk. á ód. Toyota Extra cab EFi V-6 '88, rauður, 5 manna, 5 g., ek. 79 þ., læstur aftan og framan, lækkuð drifhlutföll, 38" dekk, ál felgur o.fl. o.fl. V. 1380 þús., skipti. Toyota Corolla XL ’91, 5 dyra, rauður; 5 g., ek. 44 þ. V. 830 þús., sk. á ód. MMC Pajero bensfn '86, brúnsans, 5 g. ek. 89 þ., Óvenju gott eintak. V. 790 þús. MMC Galant GLSi Super Salon ’89, blár, sjálfsk., ek. 68 þ. V. 1050 þús. Toyota Corolla XL Sedan ’88, steingrár, 4 g., ek. 80 þ. V. 540 þús. Lada 1500 station '91, ek. 27 þ. V. 420 þús. Topp eintak. MMC Lancer 4x4 station '88, 5 g., ek. 107 þ. V. 750 þús., sk. á ód. 3Ó0Í>e'9naS'- f-Cásíi *****se" i4tn tl ]6 óraWfe- Vraw, sér ^ra- 'i S • K • I • F -A* N KRINGLUNNISIMI: 600930 - STORVERSLUN UUGAVEGI26 SIMI: 600926 LAUGAVEGI96 SÍMI: 600934 - EIÐISTORGISÍMI: 612160 - PÓSTKRÖFUSÍMI: 680685

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.