Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUUDAGUR 1. OKTÓBER 1993
43 '
HANDKNATTLEIKUR
Haukar gróður-
setja eina
trjáplöntu fyrir
hvert mark
i
>
>
>
>
>
Stjórn handknattleiksdeildar Hauka í Hafn-
arfirði hefur ákveðið að gróðursetja eina
trjáplöntu fyrir hvert mark sem þeir skora í
1. deild karla í vetur. Haukamenn ætla að gróð-
ursetja plönturnar á Ásvöllum, nýja svæði fé-
lagsins næsta vor.
Svavar Geirsson, varaformaður handknatt-
leiksdeildar Hauka, sagði að með þessu uppá-
tæki vildu þeir hvetja aðrar deildir félagsins
til að gera það sama. „Það er pláss fyrir fleiri
þúsund plöntur á svæðinu svo það er nóg verk-
efni fyrir alla. Við ætlum að gróðursetja plönt-
urnar næsta vor og vondi verða þær yfir sex
hundruð, en það fer allt eftir því hvernig liðinu
gengur i vetur,“ sagði Svavar.
URSLIT
Haukar-FH 31:23
Iþróttahúsið við Strandgötu, 1. deildar-
keppnin í handknattleik, fimmtudagur 29.
september 1993.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 4:4, 8:5, _
15:11, 16:14. 18:15, 21:17, 26:20, 29:2lP*
31:23.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 7/3, Páll
Ólafsson 6/2, Aron Kristjánsson 6, Jón
Freyr Egilsson 5, Petr Baumruk 3, Jón Öm
Stefánsson 2, Þorkell Magnússon 1, Erling-
ur Richardsson 1.
Varin skot: Magnús Árnason 12/1 (Þar
af fimm til mótheija), Bjami Froistason 6/2.
Utan vallar: 10 mín.
Mörk FH: Knútur Sigurðsson 9/8, Arnar
geirsson 4, Hálfdán Þórðarson 3, Óskar
Helgason 3, Sigurður Sveinsson 2, Gunnar
Beinteinsson 1, Kristján Arason 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 14
(Þar af fimm til mótheija).
lltan vallar: 10 mín.
Dómarar: Stefán Árnarsson og Erling
Rögnvaldson, sem dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: 970 (Húsfylli).
Knattspyrna
Evrópukeppni meistaraliða
Moskva, liússlandi:
Spartak - Skonto Riga (Lettl.).4:0
Tsimbalar 2 (4., 40.), Psarev (15.), Onopko
(87.).
■Spartak komst áfram 9:0.
UEFA-keppnin
Maríbor, Slóvenía:
Branik - Bistrita (Rúmení.)....2:0
■Maribor komst áfram 2:0.
Vaiencia, Spáni:
Valencia - Nantes..............3:1
Luboslav Penev (72. - vítasp.), Jose Galvez
(104.), Femando Gomez (112.) — Reynald
Pedros (50.). 46.700.
lÞR$m
FOLX
■ HEIKE Drechsler, ólympíu-
meistari í langstökki frá Þýska-
landi, sagði við fréttamenn að
gamla austur-þýska öryggislög-
reglan, Stasi, hafi reynt að fá sig
til að njósna, en hún hefði aldrei
tekið í mál að vinna fyrir Stasi.
„Það er ljóst að ég var aldrei viðrið-
in Stasi,“ sagði Drechsler. Síðair
sameining Þýskalands varð árið
1990 hafa margar fyrrum íþrótta-
stjörnur fyrrum Austur-Þýska-
lands viðurkennt að hafa njósnað
um félaga sína fyrir Stasi. í síð-
ustu viku komu fram ásakanir á
hendur Drechsler í þýska sjón-
varpinu, að hún hefði verið á mála
hjá Stasi.
Morgunblaðið/Þorkell
Petr Baumruk og félagar hans hjá Haukum gerðu FH-ingum lífíð leitt að Strandgötunni í gærkvöldi. Hér sækir Baumruk að vöm FH-inga, en Gunnar Bein-
teinsson reynir að stöðva hann.
FH-ingar hvað. 9
— sungu sigurglaðir Haukar eftir stórsigur í Hafnarfjarðarbaráttunni
ÞAÐ var kátt á hjalla í bún-
ingsklefa Hauka í Hafnarfirði
í gærkvöldi, en þar sungu
leikmenn Hauka hástöfum;
„FH-ingar hvað...?“ og áttu
þeir þá við hverjir væru
orðnir risarnir í handknatt-
leiknum í Haf narfirði, en
Haukar hafa hingað til verið
í hlutverki litla bróður í Firð-
ingu. Þeir voru svo sannar-
lega stærri í gærkvöldi, er
þeir unnu-stórsigur á FH-
ingum, 31:23.
«#ið höfum undirbúið okkur vel
™ fyrir slaginn í fyrstu deildar-
keppninni og ætlum okkar stóra
hluti. Við vorum
bjartsýnir fyrir leik-
inn og vorum aldrei
í vafa um að við
Ómar
Jóhannsson
skrífar
myndum leggja FH-inga að velli,“
sagði Páll Olafsson, leikmaður
Hauka og hann bætti við: „Við
fögnum þessum áfanga nú, en
munum taka einn leik fyrir í einu.
Fyrir Islandsmótið vorum við
nokkuð hræddir við byrjunina —
að leika fyrst gegn Stjörninni í
Garðabæ, síðan gegn FH og þá
gegn Val að Hlíðarenda. Nú erum
við búnir að fara yfir tvær erfiðar
gryfjur og ætlum okkur yfir þá
þriðji — að Hlíðarenda. Við erum
ákveðnir að halda áfram á sömu
braut,“ sagði Páll og Haukar gátu
leyft sér það að vera ánægðir með
sjálfan sig í gærkvöldi, en þeir
léku fyrir framan fullt hús áhorf-
enda að Strandgötu. Það var liðs-
heildin sem lagði grunnin að stór-
sigrinum gegn FH — vörnin var
sterk og Magnús Árnason varði
mjög vel í seinni hálfleik, en mörk
hraðaupphlau FH-inga stöðvuðust
á honum. Þá var sóknarleikurinn
markviss og öruggur. Ef Haukar
halda áfram á þessari braut, þegar
þeir oft leyft sér það að syngja
FH-ingar hvað?
„Sigur okkar var aldrei í hættu,
en það var jafnt til að byrja með,“
sagði Páll Ólafsson. FH-ingar
skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins,
en eftir það fóru Haukar að bíta
frá sér; að hætti hússins. Þeir jöfn-
uðu og komust náðu þriggja
marka forskoti, en staðan í leik-
hléi var 16:14. Seinni hálfleikurinn
var í eign Hauka, sem höfðu örugg
tök á leiknum. FH-ingar gerðu
mörg mistök í sókn og það nýttu
Haukar sér — brunuðu fram í
hraðaupphlaup og skoruðu. Það
munaði um minna að fyrirliðinn
Guðjón Árnason lék ekki með FH,
en hann hefur verið sá leikmaður
sem hefur stjórnað leik FH-liðsins
undanfarin ár.
KNATTSPYRNA
Marseille fékk
heimaleikjabann
Evrópumeistarar Marseille
urðu fyrir enn einu áfallinu í
gær, en þá var Marseille dæmt
í eins leiks heimaleikjabann
vegna óláta stuðningsmanna fé-
lagsins í leik Marseille og Metz,
en leikurinn var stöðvaður þegar
Metz var yfir, 0:3. Þá geystust
áhangendur Marseille inn á Stade
Valodrime-völlinn. Evrópumeist-
ararnir verða að leika næsta
heimaleik sinn í 300 km fjarlægð
frá borginni.
Markvörðurinn Fabien Barthez
og varnarmaðurinn Basile Boli,
sem voru reknir af leikvelii í
ieiknum, voru dæmdir í eins leiks
keppnisbann.
Skólar - Fyrirtæki - ÍþróHofélög 1
Gerfigrasvöllur
Til leigu eru lausir tímar
á gerfigrasvellinum á Asvöllum.
Hagstæð verð.
Upplýsingar á staðnum og í síma 652466.
íkvöld
Blak
fslandsmótið f blaki hefst í kvöld með
þremur leikjum. KA og Þróttur
Reykjavík í KA-húsinu á Akureyri í
1. deild karla og strax á eftir kl. 21.15
leika KA og Sindri í 1. deild kvenna.
HK og Þróttur Nes. leika í Digranesi
í 1. deild karla kl. 20.
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Strandgata: Haukar-KR..kl. 20
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur-HK....kl. 20.30
Um helgina
Öskjuhlíðarhlaup ÍR
Öskjuhlíðarhlaup lR, sem fram átti
að fara laugardaginn 2. október hefur
vérið frestað til næsta laugardags,
9. október. Hlaupið hefst kl. 14 við
Perluna.
FRJALSIÞROTTIR
Martha til Briissel
1111 artha Ernsdóttir úr ÍR mun keppa á heimsmeistaramótinu í hálf-
"■■ maraþon, sem fer fram í Brussel í Belgíu á sunnudaginn. Mart-
ha setti íslandsmet, 1.12:25 klst. þegar hún kepppti á heimsmeistaramót-
inu í fyrra og varð þá í 23. sæti. Hún bætti brautarmetið í Reykjavík-
urmaraþon á dögunum og var þá aðeins mínútu frá meti sínu. Martha
hefur æft vel að undanförnu og virðist vera að ná sér eftir veikindi,
sem háðu hanni í sumar.