Morgunblaðið - 02.11.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1993
7
Úlfar
Fjölmenni í kirkjubyggingu
MIKILL mannfjöldi var við fyrstu athöfnina í nýrri Isafjarðarkirkju
á sunnudag.
ísafjörður
Kirkjuklukkur hljóma eftir sex ára þögn
Ísafirði.
HLJÓMUR kirkjuklukkna barst um ísafjörð á sunnudag í fyrsta sinn
í rúm sex ár eða síðan ísafjarðarkirkja brann í júlí 1987. Mikill fjöldi
sóknarbarna var í kirkjunni þegar sóknarpresturinn, séra Magnús
Erlingsson, stjórnaði þar stuttri athöfn.
Kirkjan er nú uppsteypt og að
verða fokheld og forráðamenn
sóknarinnar ráðgera að hægt verði
að halda jólin hátíðleg í kirkjunni
á næsta ári, en til þess þarf rausnar-
leg framlög sóknarbarna og ann-
arra velunnara kirkju og safnaðar.
Oddfellowfélagar á Isafirði afhentu
álitlega upphæð svo og Kvenfélagið
Hlíf í tilefni þessara tímamóta og
mikið kom í söfnunarbauk sem sett-
ur hafði verið upp í kirkjunni.
Augljóst var að mikill áhugi var
meðal fólks um byggingu kirkjunn-
ar, en áætlað var að á fjórða hund-
rað manna væri við þessa stuttu
athöfn, þar sem kirkjukórinn söng,
sóknarpresturinn flutti ræðu og
bænaorð, formaður sóknarnefndar,
Björn Teitsson, og formaður fjáröfl-
unarnefndar kirkjubyggingarinnar,
Hlynur Snorrason, fluttu ávörp.-
Söfnuðurinn bað saman Faðirvorið
og söng Yfir voru ættarlandi. Síðan
gaf fólk sér tíma til að fá sér kaffi-
sopa og skoða teikningar af kirkj-
unni og ganga um sali. Kirkjuklukk-
urnar sem hljómuðu í dag eru þær
sömu og hljómuðu í gömlu kirkj-
unni og yljuðu kirkjugestum greini-
lega um hjartaræturnar.
Heilbrig-ðisráðherra hættir við lokun Gunnarsholts
Verði sjálfstæð
stofnun á vegum
þríggja ráðuneyta
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra hefur fallið
frá áformum um lokun Gunnarsholts og sett fram þá hugmynd
að Gunnarsholt verði gerð að sjálfstæðri stofnun með eigin stjórn
og framkvæmdastjóra og stofnunin skilgreind sem heimili og
vinnustaður. Gengur hugmynd ráðherra út á að auk heilbrigðis-
ráðuneytis, muni dómsmálaráðuneyti (vegna hugsanlegra úrræða
í fangelsismálum), félagsmálaráðuneyti og sveitarfélög (vegna
framfærsluskyldu þeirra) auk heimamanna standa að stofnuninni
í framtíðinni, leggja henni til rekstrarfé auk þeirra sértekna sem
stofnunin sjálf aflar.
Á næstunni verður skipaður
vinnuhópur með aðild fulltrúa frá
viðkomandi ráðuneytum, forstöðu-
manns Gunnarsholts og oddvita
Rangárvallahrepps til að fullvinna
þetta mál.
Kostnaði skipt
í Ijárlagafrumvarpi næsta árs er
gert ráð fyrir að ná 30-40 milljóna
króna sparnaði í áfengismeðferðar-
málum með lokun Gunnarsholts.
Jón H. Karlsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði að ráð-
herra hefði ekki fallið frá áformum
um að ná fram þessum sparnaði
en umræða um starfsemina í Gunn-
arsholti hefði leitt í ljós að hún
væri talsvert víðtækari en eiginleg
áfengismeðferð, og heyrði því að
hluta til undir önnur ráðuneyti en
ekki eingöngu áfengismeðferð á
vegum Ríkisspítala. „Það hlýtur að
kosta það sama að reka staðinn
eftir sem áður en við teljum að sá
hluti sem snýr að heilbrigðisráðu-
neytinu sé ekki eins stór og verið
hefur. Ef þessi hugmynd verður
samþykkt má reikna með að kostn-
aðurinn skiptist á milli ráðuneyta,"
sagði Jón.
Alþjóðamót Hellis
Markus Stangl sigraði
ÞÝSKI stórmeistarinn Markus Stangl sigraði á alþjóðamóti
Taflfélagsins Hellis sem lauk um helgina. íslensku þátttakendurn-
ir áttu möguleika á áföngum að alþjóðlegum titlum fram á síð-
ustu umferð.
Stangl hlaut 6V2 vinning í níu
skákum og tapaði aðeins einni
skák, fyrir Helga Áss í annarri
umferð. í öðru sæti varð hollenski
alþjóðlegi meistarinn Johan van
Mil með 6 vinninga. Jafnir í 3.-6.
sæti með 5‘/2 vinning voru Þröstur
Þórhallsson sem varð efstur ís-
lendinganna, Einar Gausel frá
Noregi, Colin McNab frá Skotlandi
og Bjarke Kristensen frá Dan-
mörku.
Ágúst Sindri Karlsson kom á
óvart með því að ná í 7.-9. sætinu
með fimm vinninga. Var hann
aðeins hársbreidd frá því að ná
alþjóðlegum titli.
Opið mánudaga til föstudaga 9-18.
Laugardaga 10-16.
SIMI 91-677332
öll verö eru stgr.verð m/VSK.
FAXAFEN9
Baðkör 1 Sturtubotnar
Formað með
armhvílum, króm-
handföngum og
hljóðeinangrun.
170x75
Kr. 10.900
160x75
Kr. 9.950
170x70
Kr. 6.940
160x70
Kr. 6.520
140x70
Kr. 5.790
Heill sturtu-
klefi m/horn-
opnun eða
framopnun.
Með 80x80
cm. sturtu-
botni, blönd-
unartæki,
sturtustangar-
setti, vatnslás
o.fl.
Kr. o
29.893
Sturtuklefi
m/öryggisgleri
og hvítum
prófílum.
Vandaðar
rennihurðir
m/segullokun.
70x70 cm.
80x80 cm.
90x90 cm.
70x70
Kr. 2.650
80x80
Kr. 2.950
Handlaugar
m/veggfestingum.
55 cm Kr. 2.490
45 cm Kr. 2.290
í borð:
55x47 cm
Kr. 6.420
60x49 cm
Kr. 10.990
64x52 cm
Kr. 6.990
WC
sett
með
stút í
vegg
eða
yfirbyggt
í gólf
m/harðri
setu.
9.300
Baðkers-
hlið með
PVCog
Akryl-gleri.
Hvítir
prófílar.
HVERFAFUNDIR BORG ARSTIORA 1993
Komdu hugmyndum þínum á framfæri vib
Markús Örn Antonsson borgarstjóra milliliðalaust
3.FUNDUR
Háaleitishverfi, Smáíbúða ,
Bústaba- og Fossvogshverfi
Þribjudagur 2. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimili
Hreyfils á mótum Fellsmúla og Grensásvegar.
Fundarstjóri: Jóna Gróa Siguröardóttir.
Fundarritari: Eyþór Þórðarson.
REYKJAVIK
ÖFLUG BORG í ÖRUGGUM HÖNDUM
Þín
skoöun
skiptir
mT
máli!