Morgunblaðið - 10.11.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1993
DU PONT bílalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bíllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Sími 38 000
HÓTEL
LEIFUR EIRÍKSSON
Skólavörðustíg 45
Reykjavík
sími 620800
Fax 620804
Hagkvæm gisting
íhjarta borgarinnar
Einst.herb.
kr. 2.800
Tveggja m. herb.
kr. 3.950
Þriggja m. herb.
kr. 4.950
Morgunverður innifalinn
I I » »« I I I I I I I I I I TT
Myndin
sýnir ÍOO cm
skáp, tvískipt-
an m/hatta-
billu, fata-
hengi og
3 billum.
Verö
kr. 16.313,-
Einingastœröir:
40, 50, 60, 80 og lOOcm.
BÆJARHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI. SlMI 651499
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
fólk f
fréttum
RAÐSTEFNA
Hittu Söru F erguson
Joanne Whalley-Kilmer Reuter
Tóhannes Gunnarsson, systir
** hans Rósa Gunnarsdóttir og
eiginmaður hennar, Hannes Krist-
insson, hittu Söru Ferguson, fyrr-
verandi eiginkonu Andrésar
Bretaprins, nýlega í Bretlandi. Þau
voru á tveggja daga ráðstefnu
fyrir MND-félaga (Hreyfí- og
taugungahrömun eða Modor-
Nerve-Disease) í Birmingham og
var af því tilefni boðið í móttöku
síðari daginn.
Vivian Leigh
TONLEIKAR
Dúndrandi stemmn-
ing hjá Todmobil
„Okkur var boðið í móttöku
ásamt MND-félögum frá írlandi,
Bandaríkjunum og Ástralíu,
tveimur aðilum frá hveiju landi.
Sara Ferguson kom þangað í fylgd
formanns MND-félagsins og nokk-
urra annarra aðila. Hún settist
niður hjá Jóhannesi og ræddi við
okkur dijúga stund. Jóhannes á
orðið erfítt um mál en skilur vel
ensku og gat svarað henni einsat-
kvæðisorðum. Við annað aðstoðaði
ég hann,“ sagði Rósa.
„Sara kom ákaflega vinalega
fyrir og var alþýðleg. Hún var létt
Rósa Gunnarsdóttir og Jóhannes Gunnarsson ræða við Söru Fergu-
son í móttökunni sem haldin var fyrir erlendu þátttakendurna.
og hress og vildi fá vitneskju um
sjúkdóminn, hversu lengi Jóhann-
es hefði verið veikur og hvemig
hann hefði það. Henni þótti einnig
merkilegt að við hefðum sama
eftimafn og útskýrðum við það
fyrir henni. Hún stoppaði í svona
10-15 mínútur meðal gestanna
og heilsaði upp á alla,“ sagði Rósa.
Jóhannes, sem er 41 árs og
hefur verið með sjúkdóminn í tæp
átta ár, var mjög ánægður með
ferðina. Sagði Rósa að hún hefði
létt honum tilveruna og ekki hafí
spillt fyrir að hitta Söru, sem Jó-
hannesi fannst mikið til koma.
Á ráðstefnunni kom fram að
ýmsar rannsóknir varðandi sjúk-
dóminn eru í gangi sem m.a. em
styrktar af alþjóðasamtökunum.
Einnig kom fram að lyf væm
væntanleg eftir 2-3 ár, en ná-
kvæmlega hvaða lyf væri ekki vit-
að, hugsanlega þó til að hægja á
sjúkdómnum. Þess má að lokum
geta, að um 30-40 félagar era í
samtökunum hér á landi.
Carol Potter
LEIKARAR
Berst gegn
reykingum
Leikkonan Carol Potter sem
leikur móður tvíburanna
Brendu og Brandons í sjónvarps-
þáttunum „Beverly Hills 90210“
berst ákaft gegn reykingum.
Ástæðan er sú að eiginmaður
hennar, leikarinn Spencer East-
man, lést úr lungnakrabba aðeins
47 ára, en hann hafði til fjölda
ára reykt einn pakka af sígarett-
um á dag.
Brúðkaup Carol og Spencers
vakti á sínum tíma gífurlega at-
hygli í Hollywood fyrir hversu
rómantískt það var. Þegar Spenc-
er veiktist vom hjónin nýflutt í
draumahúsið í hæðum Hollywood
og sonur þein-a Christopher var
nýfæddur. „Ég man eftir þegar
ég sat með Christopher í fanginu
og var að gefa honum. Tárin
mnnu niður kinnamar, því það
eina sem ég gat hugsað um var
að drengurinn ætti aldrei eftir
að kynnast pabba sínum,“ sagði
Carol og reyndist sannspá, því
hálfu ári seinna lést Spencer.
Sex ár eru liðin frá því það
gerðist og hefur hún verið gift
leikaranum Jeff Josephson í tvö
ár. Hlutverk hennar í sjónvarps-
þáttunum er fyrsta stóra hlut-
verkið síðan Spencer dó.
SJONVARP
Bresk leikkona hreppti
hlutverk Scarlett
Fimmtíu og fímm áram eftir að
breska leikkonan Vivien
Leigh sló í gegn í hlutverki Scar-
lett O’Hara í kvikmyndinni Á
hverfanda hveli (Gone With the
Wind) hefur önnur bresk leikkona,
Joanne Whalley-Kilmer, fengið
sama hlutverk. Þetta er ekki lítill
heiður, því einni milljón dollara
hefur verið varið í leit að „hinni
fullkomnu Scarlett". Að þessu
sinni er um að ræða sjónvarps-
myndaflokk, sem tekur átta
klukkustundir í sýningu og áætlað
er ,að kosti 40 milljónir dollara.
Verður hann þar með einn sá
kostnaðarsamastí sem framleiddur
hefur verið, að sögn framleiðand-
ans, Roberts Halmis.
Joanne Whalley-Kilmer, sem er
sögð lífleg og dökkhærð, er vel-
þekkt í Bretlandi en lítt þekkt utan
þess. Hún kveðst alltaf hafa verið
aðdáandi Scarlett en það hefði
aldrei hvarflað að sér að hún ætti
eftir að leika hana. Hún sagði á
blaðamannafundi sem haldinn var
á einu virtasta hóteli í Los Angel-
es, Bel Air-hótelinu, að hér væri
ekki um endurgerð á kvikmynd-
inni að ræða „heldur um síðari
tíma í lífi Scarlett að ræða, þann-
ig að sjónvarpsmyndin verður frá-
brugðin."
Tökur munu fara fram á 53
mismunandi stöðum í þremur lönd-
um: Bandaríkjunum, írlandi og
Bretlandi. „Scarlett", eins og sjón-
varpsmyndin á að heita, fjallar um
áratugina eftir þrælastríðið í
Bandaríkjunum. Fylgst er með
Scarlett þegar hún reynir að end-
urreisa höfðingjasetur sitt, Tara,
og hvemig hún berst fyrir að end-
urheimta ást fyrrverandi elskhuga
síns, Rhett Butler.
Aðeins eitt annað nafn var nefnt
á blaðamannafundinum af leikara-
skaranum og það var nafn Johns
Gielgud, en hann leikur afa Scar-
lett.
Hljómsveitin Todmobil vígði
hljómleikaaðstöðuna í nýju
íþróttahöllinni á ísafírði á sunnudag
við húsfylli og mikinn fögnuð áheyr-
enda. Það voru félagar í Fylki, félagi
ungra sjálfstæðismanna á ísafirði,
sem stóðu að tónleikunum, en ungir
sjálfstæðismenn standa að sex af
átján tónleikum Todmobil á ferð
þejrra um landið.
' I íþróttahöllinni er gert ráð fyrir
að hægt sé að stúka af þriðjung sal-
arins með hljóðþéttum tjöldum til
hljómleikahalds. Þriðjungurinn var
of lítill fyrir Todmobil svo tónleikam-
ir fóru fram í stærri hlutanum þar
sem um 400 áhorfendur komu sér
fyrir á upphækkuðum bekkjum sem
ætlaðir eru íþróttaáhangendum. Sú
varð líka raunin að einu vandkvæðin
við tónleikana voru þessir hörðu
bekkir sem tónleikagestir sátu á.
Hljómurinn í húsinu var mjög góður
og ljósaflóðið tilkomumikið.
ísafjörður er fimmti viðkomustað-
ur hljómsveitarinnar á hringferð um
landið sem lýkur með svanasöngnum
í Reykjavík 18. nóvember, þar sem
þessir ágætu hljómlistarmenn hafa
ákveðið að skilja að skiptum eftir
fjögurra ára samstarf.
þjósmynd/Björg Sveinsdóttir
Dúndrandi stemmning hjá Todmobil og ísfirðingar fagna nú loksins
stórum hljómleikasal.