Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 7 RAUNSÖNN FRÁSÖGN JÓHÖNNU KRISTJONSDOTTUR Margbrotíð líf Jökuls Jakobssonar í Perlum og steinum - árunum með Jökli leitast Jóhanna Kristjóns- dóttir við að gefa sem sannasta mynd af árum sínum með Jökli Jakobssyni og þeim persónum sem þar koma við sögu. Kornung giftist Jóhanna þessum sjarmerandi og umtalaða rithöfundi og framundan reyndist vera 11 ára stormasamt hjónaband þar sem skiptust á sorg og gleði, mögnuð skáldverk og raunveruleiki, stund- um fagur, oft nöturlegur. A þessum árum skrifaði Jökull flest af sínum bestu verkum - en háskalegt líferni hans og margflókinn persónuleiki kastaði oft á tíðum skugga yfir Hf fjölskyldunnar. í bókinni er fjöldi ljósmynda af þeim persónum og atburðum sem fjallað er um. í Perhim og steinum birtist margþætt mynd af Jökli - listamanninum, eiginmanninum, syninum og föðurnum. Dreifing liefst 18. nóvember ALMENNA BOKAFELAGIÐ H F - góð bók um jólin STÓRBROTIN OG ÁHRIFAMIKIL SKÁLDSAGA ILLUGA JÖKULSSONAR Andstæður í mislomnar- lausumheimi Illugi Jökulsson fer ótroðnar slóðir í afar áhrifaríkri skáldsögu sinni, Barnið mitt, barnið. Venjulegur maður úr Reykjavík verður vitni að voðalegum atburði - glæp sem ekki á sinn líka á þeim slóðum. í leit sinni að sökudólginum berst hann um hluta af íslandi — en þeirri ásjónu landsins sem hann verður vitni að eiga Islendingar vonandi aldrei eftir að mæta. Þegar maðurinn kemst loks á leiðarenda hefur hann staðið andspænis fáránleika tilverunnar, grimmd og miskunnarleysi — þó einnig á stöku stað sannri göfgi og einkennilegri fegurð. En einmitt þá eru hans eigin raunir að hefjast. Efni verksins er risavaxið og með ólíkindum að höfundi skuli takast að koma því fyrir í þessari knöppu en áhrifamiklu skáldsögu. Barnið mitt, barnið sýnir kaldan raunveruleika nútímans sem ekki verður umflúinn. ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F - góð bók um jólin 2.680 ki.-5Sr Dreifing hefst 18. nóvember HVlTA HÚSIÐ / SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.