Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 KVIKM YNDIR/LAU GARÁSBÍ Ó OG HÁSKÓLABÍÓ hafa tekið til sýninga bandarísku spennumyndina Hættulegt skotmark, Hard Target, eftir kínverska leikstjórann John Woo með belgíska vöðvaQallinu Jean Claude Van Damme í aðalhlutverki. Myndin er ekki ætluð börnum. Hollywood með kínversku lagi og belgískum hreim HObL¥WOOÐ=»ppnmimyi«Up gepwt nkki öllu nl|ijðð= leflrri en Hiettulegt nkotmnrk, hánponnumynd nem frnm= leldd er i Hollywood og gerlst nð stðrum hlutn i fenjnhér- uðum Louisiana; i aðalhlutverki er belgiska bardagahetj- nn Jean-Clnude Van Dnmme en leikstjórinn John Woo kemur frá Hong Kong en þar hefur hann undanfarin ár lelkstýrt hverri kvikmyndinni á fœtur annarri við mikinn orðstír sem borist hefur tli Evrópu og Bandaríkj- anna, þangað sem Woo er nú fluttur. Jean-Claude Van Damme á a,m.k. þrennt sameiginlegt með Arnold Schwartzeneg- ger. Báðir tala ensku með erlendum hreim (eins og við er að búast af Evrópumönn- um), eru vöðvastórir ( meira lagi og lifa sældarKfí af þvl að leika í bandarískum bíó- myndum. í Hættulegu skot- marki miðar sviðssetning og umgjörð myndarinnar að því að gera Van Damme að trú- verðugri hetju í bandarískri mynd þrátt fyrir hreiminn. Þetta er hægt með því að láta myndina gerast að hluta til í New Orleans-borg — hið fræga franska hverfí þeirrar borgar var jú ekki nefnt út í loftið — en þegar dregur til verulegra tíðinda færist leikurinn út í Louisiana-fen- in, the Bayou, á slóðir hinnar frönskuskotnu menningar þeirra íbúa Louisiana sem kallaðir eru cajun. Þar verð- ur hreimur Van Dammes ekki framandi heldur undir- strikar þvert á móti að í fenj- unum í miðri Ameríku er hetjan með hreiminn á heimavelli en amerísku ill- mennin á útivelli. Van Damme leikur Chance, áhyggjulausan og ístöðulítinn farmann af Caj- un-kyni sem heldur til í New Orleans en fær ekki pláss á skipi nema hann útvegi sér peninga til að greiða skuld við verkalýðsfélagið sitt. Meðan þau vandræði eru að vefjast fyrir Chance kemur hann að þar sem ung kona er ( háska. Hann skerst í leikinn og beitir kunnáttu sinni í austurlenskum sjálf- varnarlistum til þess að bjarga stúlkunni úr bófa- höndum. Yancy Butler leikur Natasha Binder. Hún er lög- fræðingur frá Detroit sem er að leita að týndum föður sínum í New Orleans. Hún veit ekki að miskunnarlausir morðingjar hafa drepið hann. Eftir þeirra fyrstu kynni ræður Natasha Chance fyrir 217 dollara til að gæta sín og hjálpa sér að leita. Chance vantar pen- ingana og tekur því að sér verkið en þegar þau komast skömmu síðar að því hver- slags fólk við er að eiga gleymir Chance peningunum og gerir baráttu Natöshu að sinni. Andstæðingamir eru sa- dískir mannaveiðarar, sem hafa það að sporti að drepa heimilislausa uppgjafarher- menn. Að baki skepnuskapn- um standa tveir fyrrum málaliðar sem hafa haslað sér völl í þessum jaðargeira bandarlskrar ferðaþjónustu (leit að skjótfengnum gróða. Ástæðan fyrir því að þeir eru komnir til New Orleans er sú að gjörvallt lögreglulið borgarinnar er í verkfalli og þess vegna er borgin nú kjör- íendi þessa veiðiskapar. Þegar Chance og Natasha komast að því hvað er á seiði sver Chance þess dýran eið að leggja að velli þessa menn og hinn siðblinda foringja þeirra, Fouchon (Lance Hendriksen). Hatrömm bar- átta andstæðinganna berst frá strætum skuggahverfa New Orleans út á heimavöll Chance í fenjunum. Þegar þangað er komið er ekki jafnljóst og áður hver er bráðin og hver veiðimaðurv inn. Handrit Hættulegs skot- marks skrifaði maður að nafni Chuck Pfarrer og út- færði það nánar í samvinnu við framleiðandann, James Jacks, sem ásamt félaga sín- um Sean Daniel bauð svo kínverska leikstjóranum John Woo að flytjast frá Hong Kong til að taka að sér verkið. í aðaihlutverkið var valinn Jean Claude Van Damme, belgíski leikarinn og slags- málameistarinn, sem hafði þegar getið sér orð I mörgum spennumyndum. Hér bauðst honum þó tækifæri til að vinna sér inn meiri peninga en nokkru sinni fyrr og stíga um leið stórt skref í átt að fyrstu deild hasarmyndanna þar sem hasarhetjumar Schwartzenegger, Stallone og Willis hafa ráðið ríkjum. Van Damme (sem er stund- um kallaður „vöðvafjallið frá Brussel", The Muscles from Brussels) hefur í um 10 ár búið vestanhafs; hann flutt- ist þangað í leit að frægð og frama eftir að hafa iagt stund á ballett, vöðvarækt, bardagaíþróttir og leiklist í fæðingarborg sinni hérna megin Atlantshafsins. Eftir að hafa um hríð unnið sem þjónn og útkastari í Los Angeles komst hann í kynni við Menachem Golan sem útvegaði honum rullur og nú þegar Van Damme er orðinn 31 árs hefur hann leikið í níu spennumyndum, sem flestar hafa halað inn mun meiri peninga en lagðir voru í þær. Þessar myndir heita Cyborg, Bloodsport, Kickboxer, Death Warrant, Lionheart, Double Impact, Universal Soldier og Now- here to Run, auk þeirrar sem hér er til umfjöllunar. Belginn er í sjöunda himni með nýju mymlina »fna og segir að hið fjölþjóðlega samstarf bandartskra fram- leiðenda, kínversks leik- stjóra og belgísks ielkara hafí (alla staði lekist prýðls- vel, „Þetta er eitt af þvf sem mér líkar best við Ameríku. Hér getur allt gerst," segir Jean Claude Van Damme, „Það kom á daginn — sem ég hafði talið víst frá upp- hafi — að það er gott að vinna með John Woo, Hann er frábært leikstjóri, snilling- ur í hasaratriðum eins og allir vita en ég hafði líka tekið eftir því í myndum hans að þar fengu leikararn- ir góða meðferð. Hann fer vel með leikara," segir Van Damme. Handritshöfundurinn Chuck Pfarrer lét sér ekki nægja að leggja til söguna við gerð þessarar myndar' Hann er sjálfur gamall félagi í víkingasveitum bandaríska flotans, Navy Seals, og ásamt félaga sínum úr þeim hópi, Mark Stephanick, stjórnanda áhættuatriða í myndinni, fékk hann það verkefni að þjálfa þá sem léku illmennin í þeirri sér- grein þeirra féiaganna að að sitja um, króa af og fella mennska bráð. Þeir þjálfuðu einnig leikarana í vopna- burði og skotfimi. Framleið- endurnir eru ánægðir með útfærslu þessara atriða í myndinni og telja áhættuatr- iðin og skotvopnanotkunina með meiri raunveruleikablæ en algengt er í spennumynd- um. Hættulegt skotmark er ekki í flokki dýrustu kvik- mynda vestanhafs á þessu ári en hún hefur borgað sig og gott betur. Seinni part sumars hafði hún tekið inn röskar 30 milljónir Banda- ríkjadala vestanhafs, tæpa 2 milljarða króna, og þrátt fyr- ir að hún sé ekki ein af mest sóttu myndum ársins eru þær fáar sem hafa í ár skilað framleiðendum sínum jafnmiklum hlutfallslegum arði. Þetta þakka margir leikstjóranum. John Woo fæddist í Kan- ton héraði í Kína árið 1946 en flutti ásamt fjölskyldu sinni til Hong Kong árið 1960, þegar Maó og félagar höfðu tekið völdin. 22 ára gamall fór hann að vinna hjá Cathay kvikmyndafélaginu og ári síðan komst hann að sem aðstoðarleikstjóri og varð flótlega sérlegur að- stoðarmaður mesta hasar- myndaleikstjóra Hong kong. 1973 gafst Woo fyrst tæki- færi til að leikstýra sjálfur. Ástæðan var einföld: „Vini mínum græddist mikið fé og hann ákvað að fjárfesta í kvikmyndum," segir Woo. Það reyndist viturleg fjár- festing og sagt er að strax i þessari mynd, sem á ensku heitir Young Dragons, hafi Heitt í kolunum ÞAÐ hitnar undir Jean Claude Van Damme í viðureigninni við mannaveiðarana í Louisiana. Illþýði Andstæðingar vöðvafjallsins frá Brussel eru ekki árennileg- ur hópur. i . i * 13 sést greinileg merki hins persónulega stíls sem ein- kenni myndir John Woo; ein- stakt auga fyrir hraðri at- burðarás og dramatískri spennu. Myndir á borð við þær sem á ensku nefnast The Killer (1988), Bullet in the Head (1990), Once a Thief (1991), og Hard Boiled (1992) hafa verið sýndar á kvikmýndahátíðum og í list- rænum kvikmyndahúsum um víða veröld og leikstjórar á borð við Oliver Stone, Martin Scorsese og Walter Hill hafa rómað verk Woos.. Á síðasta ári gafst Woo tækifæri til að flytja sjálfur vestur um haf og láta gami- an draum sinn um að vinna í Hollywood rætast. „Eftir 1997 hefði ég átt á hættu að lenda í miklum vandræð- um í Hong Kong vegna myndanna minna,“ segir Woo og vísar þá til þess að árið 1997 sameinast Hong Kong Kínverska alþýðulýð- veldinu þar sem tjáningar- frelsið er ekki í hávegum haft. I raun er hann því í annað skipti á ævinni iagður á flótta undan kínverskum kommúnistum. Woo hefur gengið vel að koma sér fyrir vestanhafs og er kominn í félagsskap við Quentin Tarantino, höf- und Reservoir Dogs og myndarinnar True Romance sem um þessar mundir er verið að frumsýna vestan- hafs. Tarantino skrifar handritið að mynd sem Woo er nú að vinna að og þarf vart að fara í grafgötur um að sú verður ekki við hæfí ungra bama og viðkvæms fólks frekar en fyrri verk þeirra félaga. Gamla brýnið og nýliðinn GAMLA brýnið Wilford Brimley er meðal leikenda í myndinni og hér sést hann ásamt Yancy Butler, sem leikur Natöshu, konuna sem Van Damme kemur til hjálp- ar. Þetta er fyrsta kvikmyndahlutverk Yancy Butler en Brimley hefur leikið í þeim ófáum. Balletdansari VAN Damme er víst balletdansari að mennt og tróð upp sem slíkur í Belgíu áður en hann flutti til Hollywood. Hér er hann í kröppum dansi við illmenni f Hættulegu' skotmarki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.