Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
Afdrif NAFTA sögð lykillinn
að framtí ðarskipan heimsmála
„TRUVERÐUGLEIKI“ Bandaríkjanna er í húfí þegar fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings gengur til atkvæða um Fríverslunarsátt-
mála Norður-Ameríku (NAFTA) á miðvikudag, ef eitthvað er að
marka Bill Clinton, forseta landsins. Ross Perot hamrar þráfald-
lega á „soghljóðinu mikla“, sem muni heyrast verði sáttmálinn
samþykktur þvi að Mexíkómenn muni þá soga til sín atvinnu frá
Bandaríkjamönnum. Leiðarahöfundar tímaritsins The New
Republic gengu svo langt að segja að atkvæðagreiðslan gæti skipt
sköpum um „að móta bandarísku þjóðina í kjölfar kalda stríðsins".
ar.
Deilt um NAFTA
Auðjöfurinn Ross Perot (t.h.) og A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, deildu ákaft um ágæti NAFTA-sáttmálans í sjónvarpsþætti
Larry King í síðustu viku. Varaforsetinn þótti standa uppi sem
sigurvegari en andstaða við samninginn er mikil og óvíst að hann
verði staðfestur á þingi.
Öll þessi stóryrði eru vegna
þess að Mexikó myndi bætast við
fríverslunarsvæði það sem Banda-
ríkjamenn og Kanadamenn mynd-
uðu með sér árið 1988. Mikilvægi
atkvæðagreiðslunnar hefur hins
vegar verið blásið upp þannig að
nú snýst nið-
urstaða henn-
ar ekki lengur
um áhrif á
efnahagslíf og
tölur heldur
táknrænt gildi. Samkvæmt frétta-
skýringu í dagblaðinu The New
York Times á fimmtudag mun
Bandaríkjaþing skera úr um það
17. nóvember hvort „Bandaríkja-
menn ætli í kjölfar kalda stríðsins
að reyna að auka efnahagsleg og
pólitísk áhrif sín í heiminum eða
draga sig inn fyrir eigin landa-
mæri og fara einfari."
Afnámtollaog ^
viðskiptahindrana
NAFTA kveður á um afnám
allra tolla og viðskiptahindrana
milli Bandaríkjanna, Kanada og
Mexíkó. 360 milljónir manna búa
í þessum þremur ríkjum og yrði
fríverslunarsvæðið hið stærsta í
heimi með samanlagða þjóðar-
framleiðslu að andvirði sex bil-
ljóna Bandaríkjadollara (sex millj-
ónir milljóna).
Verði sáttmálinn samþykktur
tekur hann gildi 1. janúar á næsta
ári. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
gengur til atkvæða 17. nóvember
og öldungadeildin, þar sem and-
staða er minni, mun fylgja í kjöl-
farið. Öldungadeild Mexíkóþings
hefur enn ekki gengið til at-
kvæða, en þar hefur Salinas de
Gortari forseti tögl og hagldir.
Kanadamenn gætu einnig veitt
fyrirstöðu. Jean Chrétien, hinn nýi
forsætisráðherra landsins, hefur
lýst yfír því að hann gæti dregið
staðfestingu NAFTA þar til gerð-
ar hafí verið einhverjar breyting-
Ráðgert er að tollar verði af-
lagðir á fímm árum. Nú er málum
þannig háttað að Bandaríkjamenn
leggja um 4% toll á mexíkóskar
vörur að meðaltali, en tollar Mexí-
kómanna á bandarískar vörur eru
10% að með-
altali.
Samkvæmt
hliðarsamn-
ingum verða
settar upp
milliríkjanefndir til að fýlgjast
með því að vinnu- og umhverfis-
löggjöf verði framfylgt. Munu þær
geta gripið til refsiaðgerða fram-
fylgi viðkomandi ríki ekki eigin
lögum.
Með og á móti
Andstæðingar NAFTA hafa
verið stimplaðir verndarhyggju-
menn og stuðningsmenn eru kall-
aðir fylgisveinar viðskiptafrelsis.
Hvorn hópinn um sig skipa aðilar
sem ekki virðist sjálfgefíð við
fyrstu sýn að séu bandamenn.
Stéttarfélög fara ásamt fjölda
þingmanna úr röðum demókrata
og Ross Perot og samtökum hans,
Sameinuð stöndum sér (United
We Stand) fremst í flokki and-
stæðinga sáttmálans, en þar er
að fínna kynlega skoðanabræður
á borð við blökkumannaleiðtog-
ann Jesse Jackson, hægri mann-
inn Pat Buchanan og Ralph Nad-
er, formann bandarísku neytenda-
samtakanna.
Andstæðingum NAFTA hefur
vaxið fískur um hrygg vegna þess
að almenningur í Bandaríkjunum
óttast það að sáttmálinn muni enn
saxa á Iífskjör sem hafa farið
versnandi undanfarna áratugi.
Rödd kjósenda getur öðlast afl
þegar hægt er að samstilla hana.
Dick Gephardt, leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeildinni, var á
báðum áttum um NAFTA, en
snerist gegn sáttmálanum þegar
honum var afhentur listi með
áskorunum tíu þúsund kjósenda
úr kjördæmi hans.
Stjórnendur fyrirtækja, banda-
rískir auðmenn að frátöldum Pe-
rot, eigendur fjölþjóðafyrirtækja,
bankamenn á Wall Street, ný-
frjálsir demókratar og skoðana-
bræður Bush meðal repúblikana
styðja NAFTA að ógleymdum
Bandaríkjaforseta. Þannig gerðist
það að þegar A1 Gore varaforseti
og Perot deildu í sjónvarpi á
þriðjudag stóð Bob Dole leiðtogi
öldungadeildarþingmanna repú-
blikana að því að halda með þeim
fyrmefnda og í síðustu viku hældi
ónefndur stjómarliði Clintons
Newt Gingrich, siðameistara
repúblikana í fulltrúadeildinni,
fyrir frábæra frammistöðu í að
afla NAFTA fylgis.
í raun má segja að þessar fylk-
ingar séu að kljást um illa skil-
greindan málstað. Erfitt er að
halda því fram að NAFTA stuðli
að viðskiptafrelsi og mætti fremur
færa rök að því að sáttmálinn ýti
undir stofnun afmarkaðra við-
skiptasvæða og þar sem iðnríki
Ameríku, Asíu og Evrópu reisi
aðflutningsmúra sín á milli.
Andstæðingar sáttmálans
halda því fram að valdamestu
stéttimar í Bandaríkjunum séu
með NAFTA að svíkja almenning.
Bandaríkjamenn njóta ekki lengur
þeirra yfírburða í heimsviðskipt-
um sem þeir höfðu upp úr síðari
heimsstyijöld. Perot heldur því
fram að NAFTA sé aðeins liður
í því að draga úr mætti Banda-
ríkjamanna til að eigendur og
stjómendur fyrirtækja geti leitað
lágra launa þar sem þau er að
finna og framleitt vöru sína þar
sem reglur um aðbúnað á vinnu-
stöðum og umhverfisvernd em
hvað slakastar.
Hér em í raun komnar upp þær
áhyggjur sem Danir höfðu af
framtíð velferðarþjóðfélags síns
þegar greitt var þjóðaratkvæði
um Maastricht-samkomulagið.
Ralph Nader skrifaði Clinton bréf
þar sem hann bendir á að aðilar
NAFTA (og þeim gæti fjölgað því
að fleiri ríki Ameríku, þar á með-
al Kólumbía, hafa lýst yfír áhuga)
geti stefnt á forsendu óréttmætra
skilyrða til samkeppni. Þannig
gæti bandarískt öryggisákvæði
reynst viðskiptahindmn og dæmst
til að verða afnumið.
Röksemdafærslu á borð við
þessa kalla stuðningsmenn
NAFTA stjómspeki óttans. Þeir
viðurkenna að meðallaun í Mexíkó
séu ekki nema fímmtungur launa
í Bandaríkjunum, en benda á að
bandarískur verkamaður sé fimm-
falt framleiðnari en sá mexíkóski
og jafnist dæmið því út og fyrir-
tæki í Bandaríkjunum hafí því
enga ástæðu til að flytja.
„Okkar verkamenn em þeir
framleiðnustu í heimi,“ sagði
Clinton. „Við getum sigrað ef við
höfum aðgang að mörkuðum. Það
gefur NAFTA okkur."
Áróðursmeistarar og
fjáraustur
Ekki geta andstæðingar
NAFTA þó haft alrangt fyrir sér.
Aldrei nokkru sinni hefur ríkis-
stjórn varið jafnmiklu fé til að
hafa áhrif á ákvörðun og stjórn
Mexíkó til að tryggja að NAFTA
nái fram að ganga. Nú þegar
hefur stjórn de Gortaris varið 30
milljónum Bandaríkjadollara og
til samanburðar má nefna að út-
lagastjórn Kúveit pungaði aðeins
út tíu milljónum til að greiða fyr-
ir ákvörðun Bush um að hrinda
írökum brott úr landi
sínu. Mexíkómenn hafa keypt
sér aðstoð áróðursmeistara Was-
hington-borgar til að beita þing-
menn og stjórnarliða þrýstingi.
Leiguliðar Mexíkómanna voru í'
kosningaherbúðum Clintons og
meðal þeirra sem undirbjuggu
valdatöku hans. Mexíkómenn
hafa boðið aðstoðarmönnum
fjölda þingmanna í upplýsinga-
ferðir til Mexíkó.
Fyrirtæki hafa ekki látið sitt
eftir liggja. Helsti fulltrúi þeirra
nefnist USA*NAFTA, stofnað af
forkólfum Kodak og American
Express. Ekki er vitað hvað miklu
fé fyrirtæki hafa eytt til að beita
þingmenn og stjórnvöld þrýstingi.
Þrátt fyrir allt þetta er talið
að Clinton vanti enn um 20 at-
kvæði upp á til að NAFTA nái
fram að ganga á þingi og líkt og
undanfama daga hugðist hann
nota helgina til atkvæðaveiða.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar gætu
skipt sköpum fyrir flokk Salinas,
sem Mexíkómenn hafa á orði að
sé fyrsti forseti sinn sem kosið
hafí verið um tvisvar á sama kjör-
tímabili, fyrst í Mexíkó og nú á
Bandaríkjaþingi. Úrslitin ættu
hins vegar ekki að skipta sköpum
fyrir Clinton nema hann hafí gert
þau mistök að leggja svo mikið
undir að pólitísk framtíð hans sé
í húfí. Hins vegar er undarlegt
að ætla að viðskiptasamningur við
ríki, þar sem þjóðarframleiðsla er
ekki nema fjögur prósent af heild-
arframleiðslu NAFTA-ríkjanna,
varði framtíð Bandaríkjanna, eða
ráði úrslitum um skipan heims-
mála í kjölfar kalda stríðsins.
BAKSVIÐ
Karl Blöndal skrifar frá Boston
Finnsk
matvœlakynning
Finnska útflutningsráðið og sendiráð
Finnlands bjóða velkomna alla kaupmenn,
innflytjendur og stórmarkaðseigendur, ásamt
öðrum á sviði matvæla, til kynningar á
finnskum mat- og drykkjarvörum.
Kynningin verður haldin þann 22. nóvember
í salarkynnum Félags ísl. stórkaupmanna á
6. hæð í Húsi verslunarinnar og hefst
kl. 10.00-16.00.
Um er að ræða bæklingasýningu og munu
fulltrúar sex fyrirtækja vera á staðnum og
GÆÐAFLISAR A GOÐU VERÐI
4
rtix11 *
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
XJöföar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
sem J>ú getur ekki hafnað!
Við bjóðum upp á 5 vikna námskeið með jóladansleik,
þar sem þið lærið þá dansa, sem dansaðir eru á almenn-
um dansleikjum, árshátíðum, þorrablótum o.s.frv.
Allt að 20% afsláttur.
Kennsla hefst föstudaginn 19. nóv. kl. 20.
Einnig 5 vikna námskeið með jóladansleik fyrir 3-6 ára
börn á laugardögum. Kennsla hefst laugard. 20. nóv.
Innritun í síma 39600 eftir kl. 17.00 daglega.___
ÚAIIISS
Grensásvegi 12.
POTTURINNj
OG ~
PflNB
HELGARTILBOO
ÞRIGGJARETTA
MALTTÐ
FRÁKR690
SÁLFRÆÐISTOFA
Höfum opnaö sálfræðisloíu
á Klapparslíg 25-27, 4. hæö
Veitum almenna, sálfræðilega ráðgjöf og meðferð.
Tímapantanir í síma 19550 kl. 17-18 alla virka daga,
í heimasíma eftir kl. 20.
Ása Guðmundsdóttir, hs. 28712 (áður Skipholti 50).
Hörður Þorgilsson, hs. 682751 (áður Skipholti 50).
Jakob Smári, hs. 688218.
Júlíus Björnsson, hs. 650426.
Margrét Bárðardóttir, hs. 35240 (áðurSuðurgötu 12).