Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 43 ) i ) ) i I I ) I ) ) J ) ) b KÖRFUKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Risinn hiá 76ers æfir af gífurlegum krafti Borðar og borðar en þyngist ekki... HVERNIG tilfinning ætli það sé að geta borðað það sem mann langar í, og meira en það, án þess að þyngjast um eitt ein- asta gramm? Engir megrunar- kúrar, engin lyf. Shawn Bradley, nýjasti risinn hjá Philadelphia 76ers í NBA-deiidinni íkörfu- bolta, hefur borðað um 7.000 hitaeiningar á dag síðustu mán- uði en þyngist samt ekki. Þegar 76ers valdi hann fyrr á þessu ári var það vegna þess að strákur kann að leika körfubolta og hann er stór, 229 sentimetrar, en vandamálið er að hann vantar styrk og til að bæta úr því verður hann að þyngja sig verulega. En þar stendur hnífurinn í kúnni; þrátt fýrir að hafa borðað mjög vel í hvert mál og mikið þess á milli þyngist kappinn ekkert. Hann var 122,5 kíló þegar veislan byijaði í júlí og hann er enn jafn þungur. • Bradley er mormóni og býr hjá hjónum úr söfnuðinum í Philadelp- hiu. Þau eiga fimm litlar stelpur sem kalla Bradley Shawn frænda og biðja hann sí og æ um að lyfta sér upp í loft; „fljúga“ eins og þær kalla það, skiljanlega. Stúlkurnar gera sér grein fyrir að Bradley er óvenju há- vaxinn og dag einn spurði kennari einnar þeirra hvort hún hefði aldrei séð alvöru gíraffa. „Nei, en við höfum Shawn frænda!" svaraði sú stutta. Pat Croce, þrekþjálfari hjá 76ers, segir að Bradley hafí verið hroðalega illa á sig kominn líkamlega, þegar hann kom til félagsins. Hjartsláttur- inn var 80 slög á mínútu þegar hann hvíldist, miðað við 40 hjá Croce sjálf- um og hann var lítils megnugur í lyftingum og öðrum kraftaæfíngum. Menn hafa efast um hvort forráða- menn félagsins hafí gert rétt að gera átta ára samning við Bradley. Aðrir halda því fram að hann eigi eftir að ná langt. „Ég á ekki von á að gera neina merkilega hluti í vetur. Mark- miðið hjá mér er að bæta mig í vet- ur og koma svo sterkur til leiks næsta ár,“ segir Bradley. Áður en Bradley kom til 76ers dvaldist hann í tvö ár við mormóna- trúboð í Ástralíu. Flestir kunna vel við strákinn og hafa blaðamenn í Philadelphiu sagt að rétt sé að gefa honum tíma; hann sé að reyna að breyta sér úr hjólandi trúboða í körfuknattleiksmann, og til þess þurfi tíma. Æfíngamar hjá honum eru að skila sér og nú er hann farinn að lyfta mun meiru en þegar hann byij- aði, en það gengur erfiðlega að þyngja kappann. Þjálfarinn hefur fundið út að með því að láta hann borða sex sinnum á dag sé hægt að koma meiru í drenginn, en hann seg- ir að „borðhaldið" sé farið að fara svolítið í taugarnar á sér. Þjálfarinn vill ólmur að Bradley verði tæp 140 kíló, og segir að nái hann að þyngjast svo mikið þá verði ógerningur að stöðva hann undir körfunni; það verði svipað og að reyna að dekka vindmyllu. „Hann er ekki stór strákur sem leikur körfu- bolta fyrir tilviljun. Hann er körfu- knattleiksmaður sem svo heppilega vill til að er stór,“ segir Bill Walton, sá kunni leikmaður á árunl' áður, sem var gífurlega sterkur í fráköstum, og veit því hvað hann er að segja. Bradley er hreykinn af stærðinni og það sést á göngulagi hans. Stórum Matartími BRADLEY hefur fengið mikið að borða undanfarið, en þyngist ekki þrátt fyrir 7.000 hitaeiningar á dag. mönnum hættir til að vera hoknir en hann gengur tignarlega og þegar hann gefur eiginhandaráritun skrifar hann 7’6” undir, en það er hæð hans í fetum. Bradley er staðráðinn í að nýta hæð sína, og æfír nú sveifluskotin vel og stúderar myndbönd af Kareem Abdul-Jabbar, sveifluskotakóngnum gamalkunna sem lék lengst með Los Angeles Lakers, en hann var, vel að merkja, ekki nema rétt um 100 kíló þegar hann tók fyrstu skrefín í NBA- deildinni með liði Millwaukee Bucks á sínum tíma. Ekkert mál ÞAÐ er ekki erfíðleikum bundið fyrir Shawn Bradley að teygja sig upp í körfuhringinn. Bekknum hjá Haukum líkt við stoppistöð Morgunblaðið/Kristinn Páll Olafsson á hlaupabrettinu, en hjónin Hildigunnur Hilmarsdóttir íþrótta- kennari og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari fylgjast með. Meira sjálfstraust - segir Páll Ólafsson, leikstjómandi Hauka Páll Ólafsson, leikstjórnandi Hauka, hefur sjaldan leikið betur en að undanförnu. Hann þakkar breyttum áherslum á æfingum að mörgu leyti. „Álagið er minna og allt miklu léttara, sem gerir það að verkum að ánægjan á æfingum er meiri en áður. Ég geri það sem mér er sagt að gera og þegar maður sér árangurinn svart á hvítu verður allt auðveldara. Ókkur gekk strax vel í æfingamótum í haust og fyrir bragðið var sjálfstraustið meira, þegar Islandsmótið bytjaði, en það hefur hjálpað okkur mikið í fyrstu umferðunum." Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Ánægjaner ífyrirrúmi HAUKAR í Hafnarfirði hafa verið á fleygiferð í handboltanum síð- an síðsumars og vakið athygli í 1. deild karla fyrir hraðan, markvissan og árangursríkan leik. Leikgleðin skín úr hverju andliti og einstaklingarnir hafa fengið að njóta sín, en í því sambandi hefur varamanna- bekknum verið líkt við stoppi- stöð, þar sem menn koma og fara með stuttu millibili. ó nokkur umræða um þjálfun byggða á vísindalegum grunni varð á miðju sumri í kjölfar heim- sóknar þýska pró- fessorsins Heinz Steinþór Liesens, sem flutti Guðbjartsson fyrirlestur um kenn- ingar sínar varðandi mikilvægi þess að haga þjálfun í samræmi við niðurstöður mjólkur- sýrumælinga, að byggja á lífeðlis- fræðilegri þekkingu. Heimsmeistar- ar Þjóðverja í knattspyrnu náðu áfanganum eftir að hafa fylgt leið- beiningum Liesens, Guðjón Þórðar- son hafði kenningar Þjóðveijans að leiðarljósi þau þijú ár, sem hann þjálfaði Skagamenn, með kunnum árangri og Haukar tóku upp breytt vinnubrögð í sumar að frumkvæði Jóhanns Inga Gunnarssonar, þjálf- ara, og Gauta Grétarssonar, sjúkra- þjálfara og aðstoðarmanns Jóhanns Inga. Fræðslan kemst illa til skila Gauti starfar sem sjúkraþjálfari og aðstoðaði KSÍ ásamt eiginkon- unni Hildigunni Hilmarsdóttur við mælingar á leikmönnum framtíðar- innar ekki alls fyrir löngu, en auk þess hefur hann prófað keppendur í öllum greinum íþrótta, skokkara og sjúklinga. „Margir koma í með- ferð vegna álagsmeiðsla og yfírleitt er rangri þjálfun um að kenna, of- þjálfun," sagði Gauti, sem hefur kannað ástand Haukamanna reglu- lega síðan í sumar og hefur þjálfun þeirra verið sniðin eftir niðurstöð- unum. „Mjólkursýrukönnunin segir til um æskilegt álag og hentar því öllum. Við byijuðum með þolpróf hjá Haukunum í fyrra, en fylgdumst ekki eins vel með ástandi hvers og eins samanborið við það sem við höfum verið að gera núna.“ Margir samverkandi þættir hafa áhrif á getu manna í íþróttum og er álag byggt á mjólkursýrumælingu einn þeirra. Þeir sem til þekkja vita að of mikið álag skemmir fyrir upp- byggingunni, en Gauti sagði að ís- lensku íþróttafólki hætti til að of- bjóða Iíkama sínum og væri ekki síst við þjálfara að sakast. „Vísindin virka oft fráhrindandi og því miður standa margir í þeirri trú að því meira álag, þeim mun betra. Fólki hættir til að ætla sér um of, hvort sem það er í almenningsíþróttum eða landsliði, sem sýnir að nægileg fræðsla kemst ekki til skila.“ Betri tími á að nást í 4x100 m hlaupi en 400 m hlaupi í handboltanum hefur lengi verið áberandi að þjálfarar hafa fyrst og fremst byggt á byijunarliðinu, en örar skiptingar hafa átt sér stað hjá Haukum í vetur. Gauti sagði að málið væri einfalt. „Það leikur eng- inn handbolta á fullu í 60 mínútur. Hins vegar getur leikmaður, sem er í góðri þjálfun, keyrt sig út, hvílt sig í smá tíma og komið aftur með sama krafti og áður. Með þessu fyrirkomu- lagi næst meira útúr hveijum manni sem ætti að skila sér í betri árangri fyrir liðið. í þessu sambandi má líkja handboltanum við hlaup. Áður var sem um langhlaup að ræða, en nú hefur spretthlaupið náð yfirhönd- inni. Því fleiri sem hlaupa sprettinn því betri árangur samanber það að samanlagður tími í 4x100 metra hlaupi á að vera betri en einstakl- ingstími í 400 metra hlaupi." Jóhann Ingi Gunnarsson er reyndasti handknattleiks- þjáifari landsins. Hann hefur ávallt gert sér far um að fylgj- ast vel með því sem er að gerast erlendis og skilið kjarnann frá hisminu. „Miklar framfarir hafa orðið í mælitækjum og nú er auðveld- ara að fylgjast með ásigkomulagi einstaklinganna. Þó ekki sé um nein galdratæki að ræða stað- festa mælingarnar það sem gert er, en þetta er einn af þáttunum, sem þarf að huga að. Þegar vel gengur uppskera menn laun erf- iðisins og framhaldið verður létt- ara, ánægjan situr í fyrirrúmi." Jóhann Ingl Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.