Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/IIMNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 Frumvarp til lögreglulaga kynnt ráðherra á mánudag Þrengdar heimildir lögreglu til að halda handteknu o g ölvuðu fólki í DRÖGUM að frumvarpi til lögreglulaga, sem nefnd á vegum dóms- málaráðuneytis hefur unnið, eru samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, þrengdar núgildandi heimildir lögreglu til að halda fólki sem handtekið er vegna annarra ástæðna en refsiverðs verknaðar, svo sem ölvunar eða vegna þess að það hefur neitað að hlýða fyrir- skipunum lögreglu eða segja á sér deili. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir þvi að starfræktar verði í hverju lögrelguumdæmi sérstakar samstarfsnefndir sveitarstjórnarmanna og lögreglustjóra um mál- efni Iögreglunnar. Nefndin sem hefur lokið störfum, mun afhenda Þorsteini Pálssyni dómsmálaráðherra niðurstöður sínar í formi laga- frumvarps á mánudag, að því er Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis- stjóri og formaður nefndarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. Þorsteinn vildi ekki ræða efni tillagna nefndarinnar fyrr en þær hefðu verið afhentar ráðherra. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Sigurbjörn fékk Alsvinn SIGURBJÖRN Bárðarson var útnefndur hestaíþróttamaður ársins 1993 á uppskeruhátíð hestamanna, sem haldin var á Hótel íslandi í fyrrakvöld, þar sem saman komu hestamenn alls staðar að af landinu. Var þar í fyrsta sinn afhentur nýr verðlaunagripur sem Félag hrossabænda gaf og kallast Alsvinnur. Auk þess var Sveinn Guðmundsson á Sauð- árkróki útnefndur' ræktunar- maður ársins og hlaut að laun- um silfurskjöld frá Búnaðarfé- lagi íslands og bókargjöf. Trillusjómað- ur hætt kom- inn á Húnaflóa t Trékyllisvík SIGFUS Kristinsson, sem rær frá Djúpuvík á Höfrungi EA 139, var hætt kominn á föstudag eftir að band fór í skrúfuna úti á Húnaflóa. Höfrungur, sem er þriggja tonna trilla, rak stjórn- laus og átti stutt eftir upp í grjótfjöruna við Kamb. Friðrik Jóhannsson á Sigurósk BA 57 heyrði kallið frá Sigfúsi um kl. 14 og fór strax honum til hjálpar. Friðrik sagði að aðstæður hefðu verið erfiðar, degi tekið að halla, hvass vindur af suð-vestan og gengið hefði á með dimmum éljum. Höfrungur var dreginn inn til Djúpayíkur. V. Hansen ------♦ ♦ ♦ Plata Kristjáns á mánudaginn HLJÓMPLATA með söng Krist- jáns Jóhánnssonar óperusöngv- ara kemur í verslanir hér á landi á mánudag. Á plötunni syngur Kristján 14 lög, þar á meðal sígild dægurlög eins og Spanish eyes, Jalousie og More. The New World Philharmonic leikur undir og sljórnandi er Giovanni Andreoli. Jón Karísson forstjóri Bókaút- gáfunnar Iðunnar gefur plötuna út. Hann ságði að margir hefðu spurst fyric,' um plötuna undan- farna daga, sérstaklega eftir að byijað var að spila lög af henni á útvarpsstöðvum. Hljómplatan var tekin upp í London í haust og stjórnaði Björg- vin Halldórsson upptökum. Hann sá einnig um hljóðblöndun ásamt Ed Welsh sem útsetti jafnframt lögin. í frumvarpinu, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, eru takmarkað- ar við 4 klukkustundir heimildir lög- reglu til að halda fólki á lögreglu- stöð sem fært hefur verið þangað vegna röskunar á almannafrið óhlýðni við fyrirmæli lögreglu eða hefur hefur neitað að segja lögreglu á sér deili. Heimildir til að krefja fólk um skilríki eru einnig þrengdar og takmarkaðar við að „gildar ástæður“ séu fyrir hendi. Manni sem haldið er í vörslum lögreglu vegna ölvunar eða vímuáhrifa má sam- kvæmt lagafrumvarpinu ekki halda lengur en nauðsynlegt er og aldrei lengur en þar til víman er runnin af honum. Samkvæmt núgildandi löggjöf hafa formlegar heimildir lög- reglu í fyrrgreindum málum, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, fyrst og fremst takmarkast af kröfu um að handtekinn maður fær- ist án undandráttar eða innan sólar- hrings frá handtöku fyrir dómara. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því að í samráðsnefnd hvers umdæmis sitji lögreglustjóri í viðkomandi um- dæmi og tveir sveitarstjórnarmenn tilnefndir af hálfu sveitarstjóma í umdæminu. Nefndin skuli halda fundi ekki sjaldnar en tvisvar á ári og vera vettvangur samskipta og samvinnu lögreglu og sveitarfélaga. Nefndin skuli meðal annars gera tillögur um úrbætur í málefnum sem varða lög- gæslu í umdæminu og beita sér fyr- ir því að kynna almenningi starfsemi lögreglunnar. Próf frá Lögregluskóla ekki skilyrði ráðningar Meðal annarra nýmæla í frum- varpinu, sem ætlað er að leysa af hólmi núgildandi lög um lögreglu- menn og lög um Rannsóknarlög- reglu ríkisins, er að afnumið verður bann sem sett var með lögum árið 1990 við því að setja eða skipa ann- an til lögreglutarfa en þann sem lokið hefur prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Lögin gera ráð fyrir því að hæfniskröfur sem gerðar verði til lögreglumanna umfram almennár hæfniskröfur laga um réttindi og skyldur ríksistarfsmanna verði ákveðnar með reglugerð dómsmála- ráðherra. í gær greindi Morgunblaðið frá hugmyndum nefndarinnar um stofn- un embættis ríkislögreglustjóra, breytt verkefni RLR, aukin rann- sóknarstörf staðarlögreglu á höfuð- borgarsæðinu, umsjón saksóknara með rannsóknum kærumála á hend- ur lögreglumönnum og breytt fyrir- komulag ráðningarmála í stöður lög- reglumanna og lægri stjórneda í lög- reglu þannig að ekki þurfí ráðherra- skipan eins og nú. Ágreiningur um verkaskipti RLR og Rikislögreglusljóra Nefnd þessa skipuðu, auk Þor- steins Geirssonar ráðuneytisstjóra og formanns, þeir Bogi Nilsson, rannsóknarlögreglustjóri, Hallvarð- ur Einarðsson, ríkissaksóknari, Böð- var Bragason, lögreglustjóri og Ólaf- ur K. Olafsson syslumaður. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins hefur Bogi Nilsson rannsóknar- lögreglustjóri gert ágreining við nið- urstöðu meirihlutans um skiptingu verkefna milli RLR og nýs embættis Ríksilögreglustjóra. öðru leyti mun í aðalatriðum vera einhugur um nið- urstöður innan nefndarinnar sem skilar áliti sínu í formi lagafrum- varps, sem samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur verið stefnt að að ráðherra leggi fram á þessu þingi. Blóðbankinn á 40 ára afmæli í dag Saknar húsnæðisþenslunnar annars staðar í bankakerfinu HALDIÐ verður upp á fjörutíu ára afmæli Blóðbankans með sérstakri fagnaðarviku í húsa- kynnum bankans í næstu viku. Ólafur Jensson, yfirlæknir í Blóðbankanum, segir að blóðg- jöfum verði boðið upp á veiting- ar í tilefni afmælisins á mánu- dag. Síðan gefist gestum og gangandi kostur á að skoða spjalda- og vísindasýningu út afmælisvikuna. Hann getur þess sérstaklega, í samtali við Morg- unblaðið, að góður skilningur hafi alla tíð ríkt meðal almenn- ings á starfsemi bankans. Hins vegar sakni hann þess að ekki hafi sama útþensla ríkt varðandi húsnæði bankans og annars staðar í bankakerfinu. Starfs- menn Blóðbankans eru tæplega 50 og er á hverju ári safnað um 12.000 blóðeiningum (450 ml hver). Reglulegir blóðgjafar gefa um 90% af öllu blóði í bank- ann. 40 ára þróun Mikilsverðar breytingar hafa orðið á starfsemi bankans frá stofnun hans, 14. nóvember árið 1953. „Margs er að minnast en ég hygg að mesta breytingin hafi falist í því að táka í notkun plast- poka og losna við glerflöskur og gúmmíslöngur ánð 1968,“ segir Olafur og bendir á að með þessari breytingu hafí loks verið hægt að hluta blóð í sundur. „Af öðru má geta þess að upp úr 1970 var far- ið að sinna smitvörnum vegna veirusýkinga blóðgjafa. Þannig var farið að kanna blóð vegna lifr- arbólgu B og um 10 árum seinna, eða seint á árinu 1985, var farið að skima allt blóð vegna eyðnimót- efna. Núna er líka farið að skima blóð vegna lifrarbólgu C og fram hafa komið alls konar nýjar aðferð- ir til að skima fyrir mótefni blóð- þega og blóðgjafa. Stór þáttur í starfinu eru líka rhesus-varnir í samvinnu við Kvennadeild Land- spítalans." Skilningsríkur almenningur Ólafur tekur fram, að þægilegt Skimun í BLÓÐBANKANUM er allt blóð skimað til að koma í veg fyrir að smit berist milli blóð- gjafa og blóðþega. Að ofan er Herdís Finnbogadóttir rann- sóknarkona við störf sín. hafí verið að reka bankann þar sem góður skilningur hafi ríkt á starf- seminni og þörf sjúkrahúsanna fyrir blóð. „Menn hafa verið af- skaplega viljugir að gefa og sam- starfið hefur verið gott við marga aðila, fyrst og fremst við Rauða króssinn og Blóðgjafafélag ís- lands, en líka Slysavarnafélagið, fiöljíiörg starfsmannaféiög og kvenfélög. Hvað yngra fólkið varð- ar hef ég heldur ekki orðið var við annað en afskaplega góðan vilja til að gefa blóð. Þeir sem komnir eru á blóðgjafaraldur, 18 ára, sýna afar góð viðbrögð, t.d. þegar kom- ið er í 8öfnunarferðir í framhalds- skóla,“ segir hann. Önnur deild með sérrannsóknir á sviði erfðafræði er í Blóðbank- anum. Sú deild hefur færst mjög í aukana frá 1972 og einkum síð- . asta áratug. Ólafur var gerður að prófessor árið 1990 vegna vísinda- rannsókna deildarinnar. Hann inn- ir af hendi kennslu í læknadeild í læknisfræðilegri erfðafræði og samkennari hans er dr. Stefán Karlsson yfírlæknir í Washington. Morgunblaðið/Þorkell Blóðgjöf UM 90% af blóði í Blóðbankann kemur frá reglulegum blóðgjöf- um, (f.v.) Ólafur Jensson yfirlæknir og Auður Ágústsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Sveiflur í blóðgjöfum Nokkuð jöfn aukning var á blóð- gjöfum frá árinu 1953 til ársins 1984 þegar þeim fækkar skyndi- lega. „Ástæðan fyrir þessum sam- drætti er fyrst og fremst sú að lækn- ar drógu úr blóðnotkun. Annars vegar héldu þeir í við blóðgjafír, þ.e. gáfu minna blóð en áður, vegna ótta við eyðnismit og hins vegar fór blóðhlutameðferð vaxandi, t.d. að gefa aðeins rauð blóðkom," sagði Olafur. Hann sagði að vaxandi blóð- gjafir árið 1991 mætti síðan rekja til fleiri hjartaaðgerða. Ólafur segir að ekki hafi verið flutt blóð til landsins. Hins vegar hefðu verið keyptir blóðplasma- þættir, storkuþáttur 8 frá Finn- landi og albúmín. Hann segir að aldrei hafi komið upp merkjanlegur ótti vegna smithættu með þessum innflutningi enda hafi hann ekki verið fenginn á almennum markaði eins og blóð sem t.d. hafí smitað dreyrasjúka í Þýskalandi og víðar. „Ökkur var boðin þessi storkuþátt- ur. Hann var í fallegum pakkning- um og á góðu verði en þarna held ég að samstarfið við Finnland hafi bjargað okkur,“ sagði Ólafur. Þröngt Þrátt fyrir jákvætt viðhorf alls almennings í garð Blóðbankans hefur honum ár eftir ár verið synj- að um fjárveitingar vegna stærra húsnæðis. „Hér er löngu orðið allt- of þröngt fyrir bæði blóðgjafa og starfsfólk til þess að hægt sé að búa eðlilega að starfseminni og nýta blóð til fulls. En að þessu leytinu sitjum við að sama borði og aðrar deildir Landspítalans. Við erum eins konar „Blóðlandsbanki", og fer rúmlega 40% blóðs frá okk- ur til annarra sjúkrahús en Land- spítalans, en okkur er ár eftir ár synjað um fjárveitingu til að stækka við okkur. Þannig er ekki hægt að neita því að maður sakn- ar þess að ekki hafi sama útþensla ríkt varðandi húsnæði bankans og annars staðar í bankakerfinu,“ segir Ólafur og segist ekki geta neitað því að afmælisbarnið hafi fundið illilega fyrir þrengslunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.