Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 21 lækkuðu um 1,7% INNLÁN S VEXTIR hafa lækkað nálægt 1,7% að meðaltali. Vextir á bundnum, óverð- tryggðum skiptikjarareikningum innlánsstofnana lækkuðu að með- altali úr 6 í 4,3% við vaxtalækkun- ina í vikunni, samkvæmt vaxta- töflu Seðlabankans þar sem reikn- að er vegið meðaltal innlána. Vext- ir óbundinna óverðtryggðra sérkj- arareikninga lækkuðu úr 4,5 í 2,8%. Þá lækkuðu vextir vísitölu- bundinna reikninga þar sem inn- stæða er bundin til 15 til 30 mán- aða úr 6,4 í 4,8% að jafnaði. Vext- irnir lækkuðu því um nálægt 1,7% að meðaltali. Breytingar á vöxtum innláns- reikninga eru nokkuð misjafnar eftir innlánsformum og bönkum, eins og sést á meðfylgjandi töflu yfir nokkur sparnaðarform. BIOBORG Sýnd kl. 2.40. Miðav. kr. 400. Innlánsvextir Umdæmanefnd höfuðborgarsvæðisins Samkomulag gert um fram- kvæmd sameiningar ef af verður BORGARSTJÓRI Reykjavíkur, bæjarstjórar Seltjarnarneskaup- staðar og Mosfellsbæjar, sveitarsljóri Kjalarneshrepps og oddviti Kjósarhrepps hafa undirritað samkomulag um framkvæmd sam- einingar þessara sveitarféíaga komi til þess að íbúar Seltjarnár- ness, Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Kjalarneshrepps og Kjósar- hrepps samþykki sameiningu í atkvæðagreiðslu sem fram fer 20. nóvember. í fréttatilkynningu frá um- dæmanefnd höfuðborgarsvæðisins kemur fram að ofangreindar sveit- arstjórnir séu sammála um að kos- ið verði eftir óbreyttu fyrirkomu- lagi í sveitarstjórnarkosningunum 1994 og unnið verði að undirbún- ingi sameiningar á næsta kjörtíma- bili. Sveitarfélögin verði sameinuð eigi síðar en við sveitarstjórnar- kosningar 1998, og verði eigi síðar en þá kosið í fyrsta sinn til hinnar nýju sveitarstjórnar. Á undirbún- ingstímanum taki sveitarfélögin upp nána samvinnu á sem flestum sviðum, auk þess sem unnið verði að samræmingu skipulags, verk- legra framkvæmda, þjónustu og gjalda. Yfirumsjón með samræm- ingu verði í höndum samstarfs- nefndar sveitarfélaganna sem skipuð skal framkvæmdastjórum sveitarfélaganna. Motuð verði aætíun uni sam- ræmingu verklegra framkvæmda, þannig að framkvæmdir einstakra sveitarfélaga á aðlögunartímanum séu í eðlilegu samræmi við heildar- Um 40% af útlánum banka óverðtryggð Vextir nokkurra sparnaðar- «- Nú forma % % Landsbanki Kjörbók, óbundin 5,5 3,0 bundiní16mán. 6,9 4,0 bundin í 24 mán. 7,5 5,0 Landsbók, 15 mán. 6,25 bundin í 1 ár 4,5 bundin í 2 ár 4,6 bundin í 5 ár 5,0 íslandsbanki Sparileið 2, ób. 3,25-3,75 3,25-3,50 verðtr. (óhr. 6 mán.) 1,35-1,85 1,00-1,25 Sparileið 3, b. 12mán. 5,5 5,0 verðtryggð 3,85 1,75 Sparileið 4, b. 24 m. verðtr. 6,1 4,5 Búnaðarbanki Gullbók, óbundin 4,5 3,0 Metbók, 18mán 6,0 4,5 verðtryggð 4,0 3,0 Stjörnubók, 30 mán. verðtr. 6,7 5,0 Sparisjóðir Trompb., óbundin 3,5 1,5 Öryggisb., 12 mán. 6,0 4,0 Bakhjarl, 24 mán. 6,6 5,0 Húsbréf Sölukrafa 7,12-7,24 5,50-5,77 Spariskírteini ríkissjóðs Verðtr. til 5 ára, ávöxtun 7,22 5,00 Ríkisvíxlar 12 mán, ávöxtun 10,80 8,19 Raunávöxtun skuldabréfa Landsbanki 6,5-7,0 5,5 íslandsbanki 7,25 6,15 UM 40% af heildarútlánum bankakerfisins bera óverð- tryggða vexti en 34% lánanna eru verðtryggð. Raunvextir óverðtryggðra lána eru um 2,6% hærri en verðtryggðra lána í bankakerfinu eftir síðustu vaxta- lækkun. Samkvæmt upplýsingum úr Seðlabankanum voru heildarútlán bankakerfisins 199,6 milljarðar í árslok 1992. Af þeim voru gengis- tryggð lán 26%, verðtryggð lán voru 34% og óverðtryggð lán voru 40%. Eftir vaxtalækkun banka og sparisjóða sl. fimmtudag eru meðal- vextir verðtryggðra útlána bank- anna 7,5%. Meðalvextir óverð- tryggðra lána 13,2% og raunvextir þeirra lána, miðað við 2,8% verð- bólgu eru 10,1%. I nýrri greinargerð Seðlabankans um peningamál kemur fram að nafnvextir á óverðtryggðum lánum hafi lækkað nokkuð framan af ári, en hækkað verulega í kjölfar geng- isfellingar í júnílok. í september hófu vextir að lækka aftur en bankavextir voru þó enn afar háir í nóvemberbyijun og hærri en þeir voru í júnílok. í millitíðinni gerði Seðlabankinn vaxtaskiptasamninga við banka og sparisjóði til að eyða rekstraráhættu sem fylgt hefur svo- nefndum verðtryggingarhalla á reikningum innlánsstofnana og hef- ur kallað á vaxtahækkanir til jafns við tímabundna hækkun verðbólgu. í greinargerðinni segir, að vand- inn í vaxtamyndun hér á landi sé sá, að bankavextir taki lítt mið af þróun skammtímavaxta á markaði þar sem hefur orðið samfelld lækk- un nafnvaxta allt árið. Segir í grein- argerðinni að þarna valdi einkum fernt: Útlánatöp og erfið afkoma bankanna um þessar mundir, fá- keppni á fjármagnsmarkaði, ann- markar á skipulagi á fjármagns- markaði og mikil lánsfjárþörf hins opinbera. hagsmuni hins nýja sveitarfélags. Unnið verði að samræmingu hinna ýmsu þjónustuþátta, en þó tryggt að þjónusta skerðist ekki á einstök- um svæðum við sameiningu. Þá er gert ráð fyrir því í sam- komulaginu að tekjustofnar og gjaldskrár verði samræmdar á að- lögunartímanum. Sveitarfélögin vinni í sameiningu að aðalskipulagi hins nýja sveitarfélags er gildi frá 1998 til 2020, og skipulagsráð skipað jafnmörgum 'fulltrúum frá hveiju sveitarfélagi móti skipulag- ið. Skipulagið skal hljóta samþykki í öllum sveitarfélögunum áður en til sameiningar kemur, en gert er ráð fyrir að skipulagsráð starfi fram að sameiningu. Fyrirvarar Sveitarstjóri Kjalarneshrepps hefur undirritað ofangreint sam- komulag með fyrirvara um sam- þykki sveitarstjórnar. Bæjarstjóri Seltj arnarneskaupstaðar undirrit- aði samkomulagið með svohlóðandi fyrirvara um það er lýtur að sam- ræmingu þjónustuþátta: „Á fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness 27. október voru lögð fram drög umdæmanefndar höfuðborgarsvæðisins að „samkomulagi um framkvæmd sameiningar". Bæjarstjórn dregur mjög í efa gildi slíkra yfirlýsinga þar sem allt bendir til að hún geri ráð fyrir mismuni borgaranna í sameinuðu sveitarfélagi." ryksugan • Lítil, létt og lipur > Kraftmikil (1200 W) •Stórrykpokiog þreföld sýklasía ' Sjálfinndregin snúra og hleðsluskynjari Hrífancli / s j. og prífandi ryksuga Verð aðeins kr. 13.900,- (afb.verð) kr. 13.205, - (staðgr.verð) UMBOÐSMENN OKKAR ERU: Akranes: Rafþjónusta Sigurdór Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur. Blómsturvellir Grundarfjörður Guöni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búðardalur Húsavík: Vestmannaeyjar Ásubúð Öryggi Tréverk ísafjörður: Pólfínn þórshöfn: Hvolsvöllur Noröurraf Kaupfélag Rangæinga Blönduós: Neskaupstaöur: Selfoss: Hjörleifur Júliusson Rafalda Árvirkinn Sauðárkrókur: Revðarfjörður Ratnet Garður Rafsjá Raftækjav. Sig. Ingvarss. Siglufiörður Torgið Egilsstaðir: Keflavík: Sveinn Guðmundsson Ljósboginn Akureyri: Ijósgjafinn Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Viljir þú endingu og gæði - velur þú SIEMENS. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.