Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 11 um. Fljótt á litið virðast launin þó ekki vera í beinu samhengi við veltu og íbúafjölda bæjarfélaganna. Þann- ig eru bæjarstjórar nágrannabæja Reykjavíkur talsvert tekjuhærri en borgarstjórinn. Tekið skal til greina að bæjarstjóramir þiggja margir laun fyrir setu í stjórnum byggða- samlaga og fyrirtækja í krafti emb- ættis síns en Reykjavík skipar aðra fulltrúa en borgarstjóra í slíkar stjórnir. Um leið og lokahrina kynningar á sameiningarmálum stendur yfir fara fram prófkjör vegna vænt- anlegra sveitarstjórnarkosninga. Sveitarstjórnarmenn eru því að beij- ast fyrir tryggu sæti á framboðslista á sama tíma og lagt er til að fækka stólunum. Ætla má að það hafí áhrif á hvemig umræðan snýst. Fyrrver- andi bæjarstjóri í meðalstóru sveitar- félagi vildi ekki útiloka að andstaða framkvæmdastjórá sveitarfélaga gegn sameiningu byggðist á per- sónulegum hagsmunum, en benti á að andstaðan gæti alveg eins byggst á ómeðvituðum ástæðum. Hann sagði að þessir menn væra vanir að Ef tillögur umdæma- nefnda verða samþykktar fækkar bæjarstjórum um 9 og sveitarstjórum um 22. Gróft ðætlað er launa- kostnaður vegna þeirra stöðugilda sem lagt er til að afleggja um 100 millj- ónir á ári. Um leið og lokahrina kynningar á sameiningar- málum stendur yfir fara fram prófkjör vegna væntanlegra sveit- arstjórnarkosninga. Sveitarstjórnarmenn eru því að berjast fyrir tryggu sæti á framboðslista á sama tíma og lagt er til að fækka stólunum. hugsa um sveitarfélagið sem sjálf- stæða einingu, þar þekktu þeir hvern krók og kima og menn hefðu til- hneigingu til að veija sína torfu þótt þröngir persónulegir hagsmunir væru ekki í húfi. Umræðan er víða þrangin tilfinn- ingahita og hljómar annarlega í aug- um utanaðkomandi, sem leggja ekki tilfinningaleg rök að jöfnu við hörð efnahagsleg gildi. Einn aðili sem rætt var við fékk það verkefni að gera útttekt á stöðu nokkurra fá- mennra sveitahreppa með tilliti til sameiningar. Hann sagðist vel skilja andstöðu forsvarsmannaþeirra gegn sameiningu og lýsti því þannig: „Undanfarin ár hafa þessir menn puðað við að byggja upp grunnskóla samkvæmt ýtrustu kröfum hins op- inbera. Þeir hafa einsetna skóla, samfelldan skóladag og mötuneyti, sem stóru sveitarfélögunum hefur ekki tekist að koma upp. Skólinn er menningarmiðstöð sveitarinnar og helsta stolt. Nú segir sá sem fól þeim þetta verkefni, það er ríkið: Þetta er of dýrt, þið verðið að sam- einast öðrum!“ Nei þýðir nei GÖFUG hugtök eins og lýðræði hefur nokkuð borið á góma í umræðunni um sameiningu sveitar- félaga. Það er athyglisvert að velta því fyrir sér að hve miklu leyti kosningarnar um næstu helgi verða fijálsar og lýðræðislegar. Nú er þetta ekki í fyrsta sinn sem kosið er um sameiningu sveitarfélaga á íslandi. Samt gilda að nokkra leyti aðrar reglur um kosningamar nú. Eðlilegur skilningur á lögunum um kosningamar er sá að meirihluta greiddra atkvæða þurfi til að tillaga um sameiningu teljist samþykkt. Þar er um að ræða aðra reglu en þá sem fram kemur í sveitarstjórnarlög- unum þar sem segir að ef meirihluti atkvæðisbærra íbúa sveitarfélags synjar sameiningu við atkvæða- greiðslu verði það sveitarfélag „eigi sameinað öðrum að svo stöddu". Fram til þessa hefur meirihluti þeirra sem eru á kjörskrá þurft að greiða atkvæði gegn sam- einingu til að aftra henni en nú verða einungis talin atkvæði þeirra sem mæta á kjörstað. Reglan um kosn- ingarnar nú er því ekki eins ströng og aimenna regian sem gilt hefur. Margir hafa þó áhyggjur af því að neiið verði ekki tekið gilt eins og fram kom á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga á Hótel Sögu á fimmtudag. Ennfremur vita menn að í sumum nágrannalöndunum tókst ekki að sameina sveitarfélög að ráði nema með lagasetn- ingu. Hérlendis er hins vegar farin sú leið, til að byija með a.m.k., að færa íbúum hvers sveitarfélags sjálfs- ákvörðunarrétt. Andi sveitarstjórnarlaganna er samt sem áður ákaflega hliðhollur sameiningu. Þar kemur fram að neitunarvald íbúanna er ekki endanlegt. Ekki er þó hægt að fullyrða neitt um að það ákvæði eigi við um kosningamar nú. Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra var spurð á fundinum á Hótel Sögu hvort nei í kosningunum nú yrði tekið gilt. Hún svar- aði því til að hún myndi ekki eiga frumkvæði að því að beita lögþvingun til sameiningar. Jóhanna velti jafnframt þeim möguleika fýrir sér að sameining yrði yfirleitt felld í litlu sveitarfélögunum en samþykkt í þeim stóra. Hún spurði hvort það væri lýðræðislegt að minnihluti þjóðarinnar, en í sveitarfé- lögum með færri en 300 íbúa búa 15.000 manns, kæmi þannig í veg fyrir þá sameiningu sem meirihlut- inn vildi. Þetta er mjög athyglisverð spurning. Er það sem sagt ekki einkamál hvers sveitarfélags hvort það vill sameinast? Getur verið að íbúar lítils sveitarfélags sem kjósa að vera út af fyrir sig séu með einhveijum hætti að ganga á rétt annarra þegna landsins? Það sem býr þama að baki er sú fyrirætlan að flytja verk- efni i stóram stíl frá ríki til sveitarfélaga sem rok- studd er m.a. með hugmyndum um valddreifingu. Það kom fram hjá ráðherranum að tilflutningur verkefna á næstu áram jafngildir fimmtán milljörðum króna. Forsendan er sú að sveitarstjórnarstigið sé öflugt og geti axlað ábyrgðina, öll sveitarfélögin þurfi að taka við sömu verkefnum. Um þessa forsendu má auðvitað deila. Ef sameiningin mistekst nú verður ekki af þess- um áformum og í þeim skilningi gæti minnihlutinn kúgað meirihlutann. Þarna togast á annars vegar sjálfsákvörðunarréttur íbúa sveitarfélaganna og hins vegar krafan um hagræðingu, minni ríkisumsvif og valddreifingu. Beint lýðræði Það er ekki oft sem reynir á hið beina lýðræði á íslandi, við erum vanari fulltrúalýðræðinu svokallaða. Engin fullkomin aðferð er til að leiða vilja fólks í ljós með kosningum. Til dæmis kann Reykvíkingur að vilja fyrst og fremst sameiningu við Kópavog en setja sam- band við Seltjamarnes og norðurbyggðimar í annað sæti. Ekki er kostur á að láta hveijum kjósanda eftir - eða hvað? að smíða eigin valkosti í kjörklefanum án þess að út- koman verði óleysanleg flækja þegar öll atkvæðin eru lögð saman. Því er varla annað hægt en að spyija skýrra spurninga. Víðast um landið er nokkuð augljóst hvaða samein- ing kemur til greina. Á höfuðborgarsvæðinu gegnir öðru máli. Ýmislegt kemur þar til álita þegar svæðið er skoðað í heild. Það er umdeilanlegt hvort þær tillög- ur sem urðu ofan á í umdæmanefnd endurspegli skyn- samlegustu skipan svæðisins, þ.e. sameining Garða- bæjar og Bessastaðahrepps annars vegar og Seltjam- arness, Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps hins vegar, án þess að hróflað væri við Kópavogi og Hafnarfirði. Það er hugsanlegt að útund- an hafí orðið kostur sem hlotið hefði meirihlutafylgi. En hvaða sjónarmið réðu ferðinni? Af viðræðum við nefndarmenn má dæma að Reykvíkingar höfðu áhuga á að stækka við sig. Einnig var tekið tillit til þess að sveitarstjórnarmenn í Hafnarfirði höfðu engan áhuga á sameiningu. Sveitarstjórnarmenn á Seltjarnarnesi era reyndar ekki heldur hrifnir af samemingu fyrir sitt leyti, en fulltrúi þeirra féllst samt á að taka þátt í tillögugerðinni. Kópavogur var lítið ræddur. Það þótti heldur ekki ganga að sameina tvö stærstu sveitarfélög- in, þ.e. Reykjavík og Kópavog. Hugmyndum um að sameina Kópavog og hluta Reykjavíkur var strax vís- að á bug. Lengi vel athugaði umdæmanefndin samein- ingu Seltjamarness og Reykjavíkur annars vegar og Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps hins vegar. Seinni tillagan náði ekki í gegn vegna þess að hún þótti ekki nógu hagkvæm og fékk dræmar undirtektir nefndarmanna. Á síðustu stundu voru þessar tvær til- lögur því sameinaðar í þá sem kosið verður um. Eru kosningarnar frjálsar? Almennt er gengið út frá því í fijálsum og lýðræðis- legum kosningum að ríkið sé hlutlaust. Svo er ekki í kosningunum nú. Samráðsnefnd um sameiningu rekur mikinn áróður fyrir sameiningu, hún hefur t.d. geng- ist fyrir skoðanakönnun, að því er virðist í þeim til- gangi að auðvelda baráttuna fyrir sameiningu. Eins og Bragi Guðbrandsson, aðstoðannaður félagsmála- ráðherra, bendir á, mæla lögin fyrir um þessa virku þátttöku ríkisins. í sveitarstjórnarlögum segir beinlínis að félagsmálaráðuneytið skuli „vinna að stækkun sveit- arfélaga með samruna fámennra sveitarfélaga í stærri og öflugri heildir". í lögunum um kosningarnar nú segir að félagsmálaráðherra skuli á árunum 1993 og 1994 beita sér fyrir sérstöku átaki i sameiningu sveitar- félaga. En það eru fleiri opinberir aðilar en félagsmálaráðu- neytið sem hafa beitt áróðri fyrir kosningarnar. Bæjar- stjóm Seltjarnarness hefur til dæmis dreift bæklingi um efnið. Bæjarstjórnin segist þar leitast við að gæta fyllsta hlutleysis. Þar er til dæmis þessi kafli: „Stærð- armismunur Reykjavíkur gagnvart öðrum sveitarfélög- um skapar ójafnvægi í uppbyggingu stjórnsýslunnar. Að auka það ójafnvægi enn frekar með stækkun Reykjavíkur umfram eðlilega þróun er andsnúið mark- miðum valddreifíngar og því lýðræði sem felst í sveitar- stjómarstiginu. Stjórnsýslan fjarlægist íbúana og vald þjappast saman. Eðlilegra er að sveitarfélög eins og Seltjarnarnes og Reykjavík geti veitt hvort öðru að- hald til að bæta hag íbúa sinna.“ í bæklingnum er ekki aukatekið orð frá bæjarstjórninni sem mælir með sameiningu. Sú spurning vaknar hvers vegna bæjar- stjóm Seltjarnarness féllst á að vera með í kosningun- um og var henni það þó engan veginn skylt en leggur svo allt í sölurnar til að telja mönnum hughvarf. Sama athugasemd á við um ríkið að vissu leyti. Sveitarfélög- in fá neitunarvald en allt er svo gert til að koma í veg fyrir að þau nýti það. Austurrískar og amerískar skfðabrekkur fyrir fjallhressa Islendinga! Sífellt fleirum verður ljós nauðsyn þess að blása nýju lífi í kropp- inn og endurreisa sálina með tilbreytingu og hollri útiveru. Þetta á ekki síst við þegar skammdegið þjarmar að og þorrinn bítur. Eftirspurnin í skíðaferðir Samvinnuferða - Landsýnar eykst ár frá ári og er vissara að hafa tímann fyrir sér og-gera nauðsynlegar ráðstafanir áður en skammdegið skellur á af fullum þunga! : FLACHAU er einn af Austurrísku dölunum þremur. Þar er mjög gott skíðasvæði, margar lyftur af mörguin gerðum og fjölbreyttar göngubrautir. HINTERGLEMM er eitt besta oa vinsælasta skíðasvæðið í Austurríki. Þar voru Vetrarólympíuleikarnir 1990haldnir. SAALFELDEN og MARIA ALM eru falleg. samliggiandi skíðaþorp í Salzburgerlandi. Linda Steinþórsdóttir skíðakennari er okkar kona í Austurríki. 54.800 kr. á mann. Dæmi um staðgreiðslu- verð til Austurríkis: Innifalið: Flug, gisting í tvíbýli í viku, ntorgunverður, akstur til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattur. Verð miðast við gengi 11. nóv.'93. Einstaklingsferðir, íslensk fararstjórn. Báðir þessir amerísku staðir fá bestu einkunn sem skfðasvæði á heimsmælikvarða. QATLAS^ EUROCARD FLUGLEIÐIR Samvininilerðir-Landsj/n Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsterðir S. 91 - 6910 70 • Slmbrét 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sóqu við Hagatorg • S 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Hatnart|öf«ur Reykjavikurveflur 72 • S. 91 - 5 11 55 Ketlavik: Hatnarflötu 35 • S. 92 -13 400 • Simbrét 92 -13 490 Akranet: Breiðarflötu 1 • S 93 -1 33 86 • Simbrél 93 -111 95 Akwayrt: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Simbréf 96 -1 10 35 Vestmannaeyiar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Simbrét 98 -1 27 92 HVITA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.