Morgunblaðið - 21.11.1993, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
Listamenn
ÞAU sýna I Deutsche Bank í Frankfurt frá 30. nóvember til 17.
desember nk. Frá vinstri: Guðrún Krisljánsdóttir, Sigurður Örlygs-
son, Jón Axel Björnsson, Helgi Gíslason og Leifur Breiðfjörð.
Boðssýning í Deutsche Bank í Frankfurt
Islendingum boðið
fyrstum útlendinga
FEMM íslenskum myndlistarmönnum hefur verið boðið að sýna
verk sín í aðalbyggingu Deutsche Bank í Frankfurt, fyrstum
útlendinga. Sýningin verður opnuð 30. nóvember.
Deutsche Bank, sem er einn
stærstu banka heims, hefur
undanfarna áratugi markvisst
safnað myndlist eftir þýska lista-
menn og varið til þess árlega vissri
prósentu af hagnaði hvers árs.
Bankinn á því nú mjög verðmætt
safn þýskrar myndlistar.
í fréttatilkynningu segir að er-
lendum iistamönnum sé nú í fyrsta
sinn boðið að sýna í bankanum
og sé það mikill heiður að þessi
virta stofnun skuli velja íslendinga
til að vera fyrsta. Jón Axel Bjöms-
son, Guðrún Kristjánsdóttir og
Sigurður Örlygsson sýna málverk,
Helgi Gísiason sýnir höggmyndir
og Leifur Breiðfjörð glerverk. Dr.
Rolf Lauder, safnstjóri Museum
fur modeme Kunst í Frankfurt,
heldur ræðu við opnun sýningar-
innar ásamt sendiherra Islands í
Bonn, Hjálmari Hannessyni.
Sýningin er til komin fyrir til-
stuðlan Helmuts K. Holz, ræðis-
manns íslands í Frankfurt, sem
hefur sýnt íslenskri menningu
mikinn áhuga og lagt sig fram við
að greiða götu íslenskra iista-
manna.
Sýningin stendur til 17. desem-
ber nk.
Tímamót í hafnarmálunum í Bolungarvík
Nýr brimvarnargarður
Bolungarvík.
NÝR brimvarnargarður var tek-
inn í notkun í Bolungarvík á
föstudag og er þess vænst að
hann muni bæta hafnaraðstöð-
una á staðnum til muna. Um
mikið mannvirki er að ræða og
sagði bæjarstjóri Bolungarvík-
ur, Ólafur Kristjánsson, í hófi
sem haldið var í ráðhúsinu eftir
vígsluna að „hér eftir yrði sjó-
mönnum boðið upp á lífhöfn í
Bolungarvík“.
Brimvarnargarðurinn er 560
metra langur. Hann er 10,5 metrar
þar sem hann er hæstur og 85 metr-
ar þar sem hann er breiðastur niður
við botn. Mannvirki þetta er hið
mesta og fóru um 202 þúsund rúm-
metrar af efni í gerð þess. Verktaka-
fyrirtækið Gunnar og Guðmundur
átti lægsta tiiboð í verkið, rúmlega
196 milljónir, og reyndist það 61%
af kostnaðaráætlun. Verksamningur
var undirritaður 1. ágúst 1991 og
verklok áætluð um miðjan október
1993 svo ljóst er að verkinu lauk
nánast á tilsettum tíma. Það verður
að teljast gott með tilliti til þeirra
aðstæðna sem geta skapast á þess-
um slóðum, einkum að haustlagi.
Samgönguráðherra, Halldór Blön-
dal, klippti á vígsluborðann, en fjöldi
manns sótti vígsluathöfnina, þar á
meðal þingmenn Vestfjarða, fyrrum
þingmenn og bæjarstjómarmenn,
auk bæjarbúa. Bæjarstjóri Bol-
ungarvíkur, Ólafur Kristjánsson,
lauk lofsorði á verktakann fyrir að
standa vel að þessu vandasama verk-
efni í vígsluhófi sem haldið var að
vígslu lokinni í ráðhúsinu. Einnig
hefur Hafnarmálastofnun í sam-
vinnu við hafnarnefnd Bolungarvík-
ur fengið Þjóðskjalasafn til þess að
setja upp sögu hafnargerðar í Bol-
ungarvík í máli og myndum í ráðhús-
salnum.
Gunnar.
Morgunblaðið/Gunnar
Merkur áfangi
FRÁ vinstri: Samgönguráðherra, Halldór Blöndal, Sigurður Bjarna-
son fyrrum alþingismaður frá Vigur og Jónatan Einarsson fyrrver-
andi oddviti, sem sat einnig lengi í hafnarnefnd. Nýi brimgarðurinn
í baksýn.
Mesti stuðningnr við landbúnað á íslandi
Ríkisstuðningur
minnkar um 10%
RÍKISSTUÐNINGUR við landbúnað hér á landi, mældur með PSE-
aðferð, hefur minnkað úr 86% af framleiðsluverðmæti árið 1991 í 76%
samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir yfirstandandi ár. Á árunum 1988-
1990 var stuðningurinn 81-85%. Stuðningur við landbúnað er meiri
hér en í öðrum löndum OECD. Kemur þetta fram í grein sem Eiríkur
Einarsson rekstrarhagfræðingur ritar í tímaritið Vísbendingu.
Eiríkur hefur unnið að útreikning-
um á stuðningi við landbúnað á Is-
landi samkvæmt PSE-aðferðinni sem
OECD notar. PSE hefur verið þýtt
sem tekjuígildi stuðnings við fram-
leiðendur landbúnaðarafurða. Hún
felst í því að meta hversu háar upp-
hæðir þyrfti að greiða framleiðend-
Píanóleikari frá Litháen leikur með Kammersveit Reykjavíkur í dag
Vill koma hingað með Kammer-
sveit Litháens á lýðveldisafmælinu
GINTAUTAS Kevishas, píanóleikari frá Litháen, kom gagngert
hingað til lands til að taka þátt í flutningi Kammersveitar Reykja-
víkur á Kvartett um endalok tímans í dag kl. 17 í Bústaðakirkju.
Gintautas Kevishas er menntaður píanóleikari frá heimalandi sínu
Litháen og Moskvu, en starfar nú sem yfirsljórnandi Þjóðarfíl-
harmóníusveitar Litháens, sem er stærsta opinbera tónlistarstofn-
unin í landinu. Stofnunin er málsvari nær allra tónlistarmanna í
Litháen og annast um Sinfóníuhljómsveitina í Litháen, Kammer-
hljómsveit Litháens o.s.frv, og má segja að Kevishas fjarstýri
henni því seinasta hálft annað ár hefur hann dvalið í Monte Carlo
og starfar þar til áramóta.
„Ég starfa sem framkvæmda-
stjóri skrifstofu er sett var á fót
til að skipuleggja risavaxna tón-
listarhátíð er nefnist Fomir og
nýir hættir indíána og tengist 500
ára afmæli fundar Kólumbusar á
Ameríku," segir Kevishas. „Þar
hef ég starfað með tónlistarmönn-
um á borð við Rostropovitsj, Ye-
Kvartett
um enda-
lok tímans
KVARTETT um endalok
tímans nefnist verk eftir
franska tónskáldið Oliver Mess-
iaen sem Kammersveit Reykja-
víkur flytur á tónleikum í Bú-
staðakirkju í dag kl. 17.
Á tónleikunum leika Rut Ing-
ólfsdóttir, fiðluleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir, sellóleikari,
Einar Jóhannesson, klarínettu-
leikari, og Gintautas Kevishas,
píanóleikari.
hudi Menuhin og Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúnaborgar. Ég held að
þetta sé heppilegt blanda fyrir
Litháen, þ.e. að starfrækja stofn-
unina i Litháen með aðstoð nútí-
matækni og vinna samtímis með
mörgum frægustu aðilum tónlist-
arheimsins í dag. Þessi blanda
hefur þegar skilað árangri eins
og útgáfa Menuhins á Messíasi
eftir Handel sem sett var upp í
Vilníus ber vitni.“
Meistari Messiaen
Kevishas kveðst ferðast mikið
og hafí sótt heim nær öll lönd
Evrópu svo dæmi séu tekin. Hann
kom hingað til lands sl. sumar og
staldraði við í nokkra daga til að
leita hvíldar eftir að hafa ferðast
milli ellefu Evrópulanda. Hér hitti
hann meðal annars Rut Ingólfs-
dóttur, fiðluleikara og helstu drif-
fjöður Kammersveitar Reykjavík-
ur, og segir hann að engar form-
legar viðræður hafí farið fram,
en vöngum velt yfir ýmsum hug-
dettum. Kevishas gaf henni yfírlit
yfír efnisskrá sína og í kjölfarið
bar á góma sú hugmynd að flytja
verk eftir Oliver Messiaen sem
Morgunblaðið/Þorkell
Píanóleikari og
stjórnandi
LITHÁISKI píanóleikarinn og
yfirsljórnandi Þjóðarfíl-
harmóníusveitar Litháen, Gin-
tautas Kevishas, leikur með
Kammersveit Reykjavíkur í
dag og vill flytja Kammersveit
Litháens hingað að ári.
hann telur vera einn mesta meist-
ara tónskálda á 20 öld. Kevishas
kallaði saman fyrir nokkrum árum
sveit tónlistarmanna til að leika
tónverk franskra tónskálda og
segir hann að flutningur á Messia-
en sé sem nafnspjald sveitarinnar
sem hafí m.a. ferðast um Eystra-
saltslöndin, Svíþjóð, Ítalíu og
Monte Carlo. „Það er stórkostlegt
að vinna með manneskjum sem
ég þekki vel og eru auk þess mjög
góðir tónlistarmenn sem öndvert
við þorra manna hugsa meira um
listina en peninga," segir Kevis-
has.
Kammersveit Litháens til
íslands?
Fleiri hugmyndir kviknuðu
einnig í íslandsferðinni og þannig
vill Kevishas flytja til landsins
Kammersveit Litháens sem hefur
unnið sér frægðarorð víða um
heim til að spila á eða í kringum
50 ára afmæli íslenska lýðveldis-
ins á næsta ári. Kevishas hefur
þegar rætt við listrænan stjórn-
anda sveitarinnar og kveðst telja
afar viðeigandi að fulltrúar þeirr-
ar þjóðar sem ísland viðurkenndi
fyrst ríkja heimsins, fengi að leika
fyrir Islendinga þegar þeir fagna
afmæli lýðveldisstofnunar sinnar.
„ísland er einstakt land og ekkert
myndi gleðja mig meira en að fá
að kynna hér Kammersveit Lithá-
ens. Það eru ýmisleg fjárhagsleg
Ijón í veginum, en ég get fullyrt
að meðlimir sveitarinnar sam-
þykki niðurfellingu þóknunar til
sín ef íslenska ríkið geti lagt fram
fé fyrir gistingu, mat og ferðum,“
segir Kevishas. „Og það væri
ánægjulegt ef hægt væri að koma
á viðræðum við yfirvöld íslenskra
menningarmála til að kanna
hvernig þessu verkefni væri best
borgið og hvernig hrinda mætti
því í framkvæmd. Sjálfur gæti ég
fengið til liðs við sveitina fræga
einleikara ef þess er óskað, og
ýmsa aðra möguleika er hægt að
skoða.“
um ef fallið yrði frá framkvæmd
ákveðins þáttar landbúnaðarstefn-
unnar þannig að þeir yrðu jafnsettir
fyrir og eftir breytingu.
10 milljarðar kr.
Eiríkur kemst að þeirri niðurstöðu
að ríkisstuðningur við landbúnað hér
verði rúmir tíu milljarðar í ár sem
er 76% af framleiðsluverðmæti. Á
árinu 1991 var þessi stuðningur rúm-
ir 13 milljarðar á núverandi verð-
lagi, eða 86% af framleiðsluverð-
mæti. Mesti styrkurinn felst í mark-
aðsstuðningi, rúmir 5 milljarðar kr.,
beinar greiðslur nema 4,7 milljörðum
en annað vegur minna. Hlutfallslega
mestur stuðningur er við mjólkur-
framleiðslu, 84%, en minnsti við nau-
takjötsframleiðslu, 53%.
Við samanburð á stuðningi milli
landa á árinu 1992 sem Eiríkur birt-
ir í súluriti með grein sinni sést að
stuðningurinn er meiri á íslandi en
í öðrum löndum OECD. Stuðningur-
inn er yfir 75% í Sviss og Noregi og
yfir 70% í Finnlandi. Meðaltali í
OECD er um 45%.
Finnsk mat-
vælasýning
ÍSLENDINGAR fluttu matvæli út
til Finnlands fyrir 61,6 milljónir
finnskra marka (á núvirði 753
mil(j. ÍSK) á árinu 1992, en keyptu
hins vegar matvæli fyrir 5,7 millj-
ónir finnskra marka (á núvirði
tæpar 70 mil(j. ÍSK) samkvæmt
upplýsingum frá finnska sendiráð-
inu. Vi(ja Finnar leita nýrra við-
skiptasambanda og verður haldin
matvæla- og drykkjasýning, þar
sem nokkur finnsk matvælafyrir-
tæki kynna afurðir sínar.
Það eru Samtökin um fínnska ut-
anríkisverslun og sendiráð Finnlands
sem skipulagt hafa sýninguna. Full-
trúar fyrirtækjanna Chymos OY,
Cherry OY EIM, Delicant OY,
Hartwall Beverages og Papulan
Vestitehdas verða á staðnum auk
fulltrúa frá Fresh Finland Center,
sem eru samtök til að efla útflutning
matvæla og drykkjaiðnaðarins í
heild. Framangreind fyrirtæki leita
nýrra viðskiptasambanda.
Sýningin fer fram í húsnæði Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna í Húsi
verslunarinnar mánudaginn 22. nóv-
ember kl. 10-16.