Morgunblaðið - 21.11.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
11
við aðstæður dagsins í dag. Það
mun vera meginskýring þess að
helstu lánardrottnar eru í grund-
vallaratriðum reiðubúnir til þess
að ganga til samningsins á grund-
velli nauðasamningsfrumvarpsins,
Samkvæmt mínum upplýsingum
eru eignir fýrirtækisins metnar
miðað við staðgreiðsluverð og
markaðsástand, sem ekki er svo
björgulegt um þessa mundir.
Það sem mun hafa ráðið ferð-
inni við eignamat, var það mark-
mið að fá skýr skil á milli þeirra
sem eiga að vera með tryggar kröf-
ur og eiga veð fyrir lánum sínum
og hinna sem hafa lánað út á yfir-
veðsettar eignir, og eiga þannig
að falla undir nauðasamninginn,
sem samtals eru um 150 aðilar.
Því er til dæmis talið nokkuð
raunhæft að meta frystihús Borg-
eyjar á 110 milljónir króna, þar
sem tekið var mið af því að frysti-
hús EG fór við uppboð á 108 millj-
ónir króna. Þannig er blákalt mið-
að við staðgreiðsluverð og mark-
aðsaðstæður, en algjörlega horft
framhjá þeirri staðreynd, að frysti-
húsið kostar í byggingu um 700
milljónir í dag, miðað við uppreikn-
að endurstofnverð. Menn virðast
almennt sammála því, að það sé
með öllu óraunhæft að taka mið
af uppreiknuðu endurstofnverði.
Tvær leiðir —
nauðasamningar eða
gjaldþrot
Raunar mun það vera sameigin-
leg niðurstaða lánardrottna Borg-
eyjar hf., að minnsta kosti allra
þeirra stærstu, að einungis sé um
tvær leiðir að ræða, að því er varð-
ar Borgey hf.: Annars vegar verði
samið við Borgey á grundvelli
frumvarpsins til nauðasamninga;
hins vegar blasi gjaldþrot fyrirtæk-
isins við. Helstu lánardrottnar Bor-
geyjar telja að nauðasamningar
séu mun vænlegri kostur en leiðin
til gjaldþrots. Raunar munu þeir
allir hafa gefið vilyrði sitt fyrir að
reyna þá leið til þrautar, vegna
þess að talið er að svo mikil verð-
mæti færu í súginn, við það milli-
bilsástand sem skapast, þegar fyr-
irtæki verður gjaldþrota. Það eru
einkum minni lánardrottnar, þeir
sem eiga frá um hundrað þúsund
upp í eina til tvær milljónir króna
inni hjá Borgey, sem munu þurfa
að sætta sig við að fá lítið af úti-
standandi skuldum, því líklegast
er talið að þeir velji þann kostinn
að fá um 40% skuldanna greidd á
sem skemmstum tíma. Þeir sem
eiga enn lægri kröfur, 80 þúsund
krónur eða minna, eru aftur við
annað og hærra borð settir, því
frumvarpið gerir ráð fyrir því að
þeim 90 aðilum af 150 kröfuhöfum
samtals verði greidd út krafa sín
að fullu.
Frumvarp það sem samið hefur
verið að nauðasamningi fyrir Borg-
ey hf. felur m.a. það í sér, að lánar-
drottnar hafa val, að því er varðar
skuldauppgjör. Kostirnir eru þess-
ir: Lánardrottnar geta valið að
breyta öllum útistandandi skuldum
í hlutafé; Þeir geta samþykkt 60%
niðurfellingu skulda, og lánað eft-
irstöðvarnar til langs tíma, með
vöxtum og verðtryggingu (til 12
ára, eftir því sem næst verður
komist); eða þeir geta samþykkt
sama hlutfall niðurfellingar skulda,
og fengið eftirstöðvarnar greiddar
á skemmri tíma, með verðtrygg-
ingu en án vaxta.
Landsbanki Islands tók þá
ákvörðun á fimmtudaginn fyrir
rúmri viku, eða 11. nóvember síð-
astliðinn, að fara þessa nýju leið,
að breyta ákveðnum hluta skuld-
anna i hlutafé í Borgey, allt að 80
miiljónum króna, sem samkvæmt
upplýsingum mínum jafngildir því
að Landsbankinn eignist liðlegá
20% í fyrirtækinu. Við því er búist
að þessi ákvörðun bankans hafi
það í för með sér, að önnur sjáv-
arútvegsfyrirtæki sem eiga í svip-
uðum örðugleikum og Borgey, sem
munu skipta tugum um land allt,
sjái sér leik á borði, og óski eftir
samskonar samningum við lánar-
drottna sína og þá ekki síst Lands-
bankann, sem er jú með um 70%
sjávarútvegsfyrirtækja á landinu í
viðskiptum.
Landsbankinn stærsti
kvótaeigandinn?
Gangi þetta eftir verður Lands-
bankinn orðinn stærsti kvótaeig-
andi landsins áður en langt um líð-
ur, en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins úr bankanum er
slíkur atvinnurekstur alls ekki
markmið bankans í sjálfu sér, held-
ur það, að bjarga eins miklu af
verðmætum og unnt er, og selja
síðan aftur þann eignarhlut sem
bankinn kann að eignast í fyrir-
tækjum víða um land. Segja má,
að hér sé í uppsiglingu sjávarút-
vegsútfærsla á þeirri leið, sem
Landsbankinn hefur farið í mörg-
um öðrum stórum skuldamálum:
Nefna má dæmi eins og stofnun
eignarhaldsfyrirtækisins Hamla,
um eigur Sambandsins, og þrotabú
Álafoss, Islensks skinnaiðnaðar og
K. Jónssonar. Þá leið hefur bank-
inn farið, þegar fyrirtækin hafa
verið komin í þrot, en þessi nýja
útfærsla felur það í sér, að tekið
er á vandanum, á meðan enn er
lífsmark með fyrirtækinu, og þar
af leiðandi næst hugsanlega það
markmið að bjarga meiri verðmæt-
um, en felst í gjaldþrotaleiðinni. I
þessu samhengi er bent á að Slipp-
stöðin Oddi, Akureyri, stór við-
skiptavinur Landsbankans, er nú
í greiðslustöðvun og það sé meira
en hugsanlegt að farin verði hlut-
afjárleiðin — ekki gjaldþrotaleiðin.
Stóra spurningin
Stóra spurningin, að því er varð-
ar nauðasamninga Borgeyjar við
lánardrottna, er atvinnutrygginga-
deild Byggðastofnunar. Hún hefur
ekki lagalega heimild til þess að
breyta skuldum í hlutafjáreign. I
umræðu þeirri sem fór fram um
hugsanlega nauðasamninga EG á
sínum tíma, áður en ákvörðun var
tekin um að óska eftir gjaldþrota-
skiptum, kom á daginn að atvinnu-
tryggingadeild var reiðubúin til
þess að afskrifa óveðtryggðar
skuldir EG. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins kæmi hið
sama til greina, að því er varðar
óveðtryggðar skuldir Borgeyjar við
atvinnutryggingadeild. Hugsan-
lega fengjust niðurfelldar um 100
milljónir króna með þeim hætti hjá
atvinnutryggingadeild, sem er um
60% skulda Borgeyjar við atvinnu-
tryggingadeild, og síðan yrðu 40%
skuldanna lánuð til 12 ára.
Jafnvel er talið að breytingar
þær sem hér kunna að vera á döf-
inni, séu af þeirri stærðargráðu,
að þær kunni að kalla á lagabreyt-
ingu, að því er varðar atvinnu-
tryggingadeild Byggðastofnunar
og heimildir stofnunarinnar til
skuldbreytinga. Þannig sé ekki
fjarri lagi að segja sem svo, að við
þær aðstæður sem nú ríkja í sjávar-
útvegi, skertar veiðiheimildir, erf-
iða afkomu fjölmargra sjávarút-
vegsfyrirtækja, sem líklega eru vel
á annað hundrað sem beijast í
bökkum og sjá ekki fram á betri
tíð í bráð, kunni að vera rétt að
fitja upp á nýrri leið fyrir atvinnu-
tryggingadeild Byggðastofnunar,
sem heimili henni að breyta
ákveðnu skuldahlutfalli hjá fyrir-
tækjum í hlutafjáreign, þegar og
ef til nauðasamninga kemur.
Bent er á að hér er að megninu
til um áhættufjármagn að ræða,
sem vissulega var lánað á sínum
tíma, á afar hæpnum forsendum í
mörgum tilvikum. Yfirleitt eru
þessi lán á aftasta veðrétti í frysti-
húsum víða um land, sem þýðir
auðvitað, miðað við markaðsað-
stæður í dag, að lánin eru með
öllu veðlaus. Hvers vegna ekki að
skoða þann möguleika af fullri al-
vöru, sem felur í sér lagabreytingu
í þá veru að veðlausum skuldum
atvinnutryggingadeildar verði
breytt í hlutafé, í stað þess að af-
skrifa þær?
Bónus opnaði í gær tvær verslanir í Færeyjum
Troðfullt var út úr
dynun fyrsla dag’iim
TVÆR Bónus-verslanir voru
opnaðar í Færeyjum í gær að
viðstöddu miklu fjölmenni. Versl-
arnirnar voru troðfullar út úr
dyrum strax eftir opnun og
mynduðust langar biðraðir eftir
innkaupavögnum: Fjölmargir
fulltrúar islenskra framleiðenda
voru viðstaddir opnunina.
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Bónusverslanirnar í Fær-
eyjum yrðu reknar í sama anda og
á Islandi. „Ég finn að okkur er vel
tekið hér í Færeyjum. Það var skyn-
samlegt að fara í færeyska sam-
vinnu.“ Bónus á helmingshlut í
nýju verslunum á móti eiganda
Rúmfatalagersins á íslandi, Jákupi
N. Purkhús.
Nokkurs titrings hefur gætt með-
al annarra verslana í Færeyjum og
hafa þær auglýst ýmis tilboð að
undanförnu.
I hinum nýju Bónusverslunum
eru m.a. vörur frá Sól, Góu, Nóa
Síríusi, Osta- og smjörsölunni, Kex-
verksmiðjunni Frón og Sláturfélagi
Suðurlands auk ýmissa vara undir
merki Bónuss. Þá eru ýmsar inn-
fluttar landbúnaðarvörur frá Dan-
mörku, m.a. kjúklingar sem kosta
15,50 færeyskar krónur hvert kíló,
eða um 164 krónur íslenskar og
250 gramma smjörstykki á 4,95
færeyskar krónur, rúmar 50 ís-
lenskar krónur.
íslenskir tæknimenn frá A.
Karlssyni og Verkfræðistofunni
Streng hafa að undanförnu lagt
nótt við dag við að setja upp sams-
konar afgreiðslukerfi í verslununum
tveimur og eru í verslunum Bónuss
á Islandi. Kerfið er beintengt
birgðastöð Bónuss og Hagkaups í
Garðabæ, Baug hf.
Alþjóðleg vörusvik með gallabuxur
Rannsókn hér á landi
leiddi til lausnar málsins
UH THE TRAIL 0F COUNTERFEIT BLUE JEftNS
Ceciaf«fí;i ma Rooert a 'u&texm mm opem&'.
This ia hcw ía'wslí? m
S2 Tbe Ctim.
HThe Foít Uto<S80íác ItM spttm'.J
p> 3> in «»a. .
BTh* vtm* fc mmimrmjz Soyvjaviíu h&wS; «*k X#*#:
iAéHilVf, ftftð eéfií ms fcought if* mPS , Í-C rem t*<yí>$
KOMIÐ hefur venð upp um viðamikd vörusvik með Levi’s 501-galla-
buxur en það var við rannsókn á viðskiptum með sviknar buxur
af þessu tagi í Reykjavík sem upp komst um aðila i Mexíkó sem
stóðu að dreifingu víða um lönd, að sögn blaðsins Minmi Herald.
Rannsókn gallabuxnamálsins
teygði anga sína víða um heim.
Vísbendingar bárust fyrst frá Kína
um að dreifingarfyrirtæki í Guad-
alajara í Mexíkó hefði pantað tug-
þúsundir eftirlíkinga af Levi’s 501-
buxum þar í landi. Sá seldi buxurn-
ar til nokkurra Evrópulanda.
Levi Strauss fyrirtækið sendi
tugi rannsóknarmanna víða um
lönd til þess að fletta ofan af svika-
myllunni. Segir í frétt Miami Her-
ald að ráðgátan hafi verið leyst í
Reykjavík. „Þar komust „spæjar-
arnir“ í sendingu af sviknum Le-
vi’s 501 buxum í veréluninni Hag-
kaupi. Alls var þar lagt hald á
7.200 buxur. Slóð þeirra var rakinn
til vöruhúss í Guadalajara í Mex-
íkó,“ segir í blaðinu. Vöruhússins
reyndust vopnaðir verðir gæta.
„Eftir fjölda samtala við inn-
flutningsaðila í Reykjavík komust
fulltrúar Levi Strauss að því að
Mexíkó var aðeins umskipur.ar- og
geymslustaður. Vöruseðlar og inn-
flutningspappírar leiddu í ljós að
heildsölufyrirtæki - ýmist nefnt
Sunrise Intemational Trading Inc.
eða Duty Free Worldwide Shops -
í Fort Lauderdale stóð að sölunni."
Höfuðpaurar svikamyllunnar
reyndust vera tveir kaupsýslumenn
þar í borg, Angelo Ceciarelli og
Robert Sussman. í skrifstofu þeirra
fannst nákvæm forskrift að fram-
leiðslu Levi’s 501-buxna og svikin
upprunavottorð.
i
(ipplifðci csvintýri í
Brottför:
26. janúar 3 vikur
- aðeins
8 sæti laus
a
Verð aðeins frá
kr. 96.600,-
Rio dq Janeiro
Þessi fraegasta baðströnd heimsins hefur líklega
meira aðdráttarafl en nokkur annar staður í
Suður Ameríku. Hér er búið í hjarta Copacabana
strandarinnar við frábæran aðbúnað og spennandi
ferðir í boði: Sykurtoppurinn með útsýni yfir alla
Ríó, Corcovado, einkenni Ríó með Kristsstyttunni
frægu og stórkostleg danssýning og kvöldverður þar
sem hin fræga samba er dönsuð á ógleymanlegan hátt.
Valmöguleikar
Viðbótargjald fyrir Rio de Janeiro, kr. 9.800,-
5 kynnisferðir í Brasilíu með íslenskri fararstjórn
aðeins kr. I 3.900,-
Innifalið í verði
Flug, ferðir til og frá flugvöllum erlendis, gisting á 4 stjörnu
hótelum i Brasilíu, smáhýsum á Kanarí, morgunmatur í
Brasilíu og íslensk fararstjórn allan timann.
Flugvallarskattar kr. 3.630,-
Solvador d« Bahia
Fyrrum höfuðborg Brasilíu þar sem
brasilísk áhrif eru hvað sterkust og afrískir
siðir tíðkast ennþá.
Hér er maturinn kryddaðri, dansinn
heitari og tónlistin dýpri en annars staðar
i Brasilíu og stórkostlegt veður allan ársins
hring. Eftirsóttasti ferðamannastaður Brasilíu
í dag, enda blanda af heillandi menningu
og einstökum ströndum.
Ferðatilhögun
Beint flug til Kanaríeyja og áfram til Brasilíu. 16
dagar í Brasilíu, í Salvador de Bahia.
Valkostur 2 er að verða viku í Salvador
og 8 daga í Rio de Janeiro.
Aukagjald fyrir Rio er aðeins kr. 9.800,-
Eftir Brasilíudvölina er gist í 6 daga á Kanaríeyjum.
16. febrúar
3 vikur
- aðeins
12 sæti laus
s
air europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 624600
i TURAUIA