Morgunblaðið - 21.11.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 21.11.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993 1*.» ' Um borð í varðskipinu Tý: Eins og á finu veitingahúsi. íslandsbanki í Hamraborg, tölvuskjáir innfelldir I innréttinguna og allt rými gernýtt. UGARFLUG ÍHÖNNUN Eftir Guðmund Guðjónsson. Ljósmyndir Árni Sæberg, Sverrir Vilhelmsson og Þorkell Þorkelsson SÉRSTAKIR kynningardagar fyrir íslenska framleiðslu hafa staðið yfir með tilheyrandi auglýsingum og kynning- um. Eitt af mörgu sem áhersla hefur verið lögð á, er ís- lensk húsgagnasmíði og innréttingar. Yfirskriftin „íslenskt hugarflug - alþjóðlegar gæðakröfur.“ Nokkrir húsgagna- og innréttingaframleiðendur hafa verið með opin hús vegna þessara kynningardaga að undanförnu, Axis-húsgögn, Á. Guðmundsson, Brúnás, Desform, Eldhús og bað, GKS-Bíró, Ingvar og Gylfi og trésmiðja Kaupfélags Árnesinga, en það eru þau fyrirtæki sem mest kveður að á þessu sviði. Ingi Bogi Bogason, fjölmiðlafull- trúi Landssambands iðnaðar- manna sagði um átak þetta að vissulega hefðu verið erfiðir tímar í greininni, en segja megi að eftir fljóti ijóminn. Ekki væri spuming að það besta í íslenskri húsgagna- og innréttingagerð væri fullkom- lega samkeppnishæft við innflutt húsgögn og innréttingar bæði að gæðum og verðlagi, enda stæði það vel af sér í samkeppninni. „Sem dæmi má nefna Landhelgis- gæsluna sem keypti nýverið inn- réttingu í varðskipið Tý. Verkefnið var unnið af GKS Bíró þannig að Gæslan fékk sérshannaða lausn á sambærilegu verði og innflutta vöru. Með þessum hætti stuðlaði opinbert fyrirtæki að verðmæta- sköpun og nýhönnun með ákvörð- un sinni. Fleiri slíkar stofnanir og fyrirtæki hafa gengið þessa leið í seinni tíð, Póstur og sími, Skatt- stofan, íslandsbanki, Morgunblað- ið og fleiri og fleiri,“ sagði Ingi Bogi. Islendingar hafa löngum þótt vera hugmyndaríkir og snjallir hönnuðir og eru um það mörg dæmi. Sérsmíðun löguð að íslensk- um þörfum og umhverfi hefur Hjá Pósti og síma í Garðabæ. Einfalt og létt yfirbragð. Ljósir litir og bogadregnar línur í bland við gömlu góðu hvössu hornin. Skattstofa Reykjavíkur, innheimta í traustu og stílhreinu umhverfi. Ógnvekjandi skrifræðisstofnunin fær léttara yfirbragð. Æ ffleiri fyrirtæki og stoffnanir halla sér ad innlendum húgagna- og inn- réttinga- hönnuóum blómstrað og dafnað og innlend fyrirtæki og stofnanir hafa í vax- andi mæli hallað sér að þess hátt- ar framleiðslu. Ingi Bogi kallar þetta „klæðskerasaumuð hús- gögn“ og ekki megi rýna um of á súlu- og Iínuritin. Þau sýni fall- anda í greininni, fallanda sem vissulega hefur verið fyrir hendi. „Súlumar segja ekki lengur alla söguna, því innlenda framleiðslan er farin að hafa vinningin," segir Ingi Bogi. Árni Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Félags húsgagna- og innrétt- ingaframleiðenda, sagði í samtali við Morgunblaðið að ef fyrirtæki og stofnanir áttuðu sig á því að verð á innlendri vöru væri sam- bærilegt á við erlenda, myndi það ekki einungis hafa í för með sér verðmætasköpun í landinu heldur skildi það einnig eftir sig verk- þekkingu og vömþróun. „Ef ein- ungis væri keypt erlent yrði engu slíku fyrir að fara. Verkþekkingin er komin á gott stig hér innan lands, en sókn fyrirtækja og stofn- anna í innlenda framleiðslu hefur því miður ekki verið sem skyldi fyrr en nú að þetta er hægt og sígandi að breytast," segir Arni. Árni taldi enn fremur að þessi gangur mála stafaði öðru fremur af athugunarleysi kaupenda þessarar vöra. Menn væra ekki nógu miklir „patríotar“ til að at- huga hvað í boði væri heima, held- ur ryku fremur til og keyptu er- lent. „Ef menn kynntu sér stöð- una, athuguðu heimavarninginn á réttum forsendum hefði það heilla- vænlega þróun í för með sér, því viðskipti gefa af sér önnur við- skipti. Bæði vegna orðsporsins og einnig óbeint. Við getum tekið sem dæmi fyrirtækið „Axis“ sem fékk stórt verkefni, að smíða 100 eld- húsinnréttingar í félagslega kerf- inu. Þessi samningur gerir fyrir- tækinu síðan kleift að stofna til samkeppni innlends aðila við selj- endur ódýrra innfluttra húsgagna. f stuttu máli, þá er tryggð at- vinna, verkþekking, vöruþróun og batnandi tíð með því að velja ís- lenskt," sagði Ámi Jóhannsson. Við ljúkum svo þessum línum með því að vísa á myndsjá ljós- myndara Morgunblaðsins sem fóra á stjá í slagveðrinu í vikunni og mynduðu innlenda húsgagna- og innréttingahönnum út um borg og bí. Myndirnar tala sínu máli. Þær sýna stílhrein og falleg vinnu- brögð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.