Morgunblaðið - 21.11.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
21
Stjórn Borgarspítalans um framtíð leikskóla spítalans
Akvörðun tekin eftir fund
með heilbrigðisráðherra
STJÓRN Borgarspítalans kom saman á föstudag og fjallaði m.a. um
framtið leikskóla spítalans. I ályktun sem samþykkt var á fundinum
segir að heilbrigðisráðherra hafi stefnt framtíðarrekstri leikskól-
anna í mikla óvissu og fer fram á fund með honum nú þegar vegna
málsins.
í ályktuninni segir einnig að
stjórn Borgarspítala hafi fyrir
skömmu kynnt tillögu sína um fram-
tíðarfyrirkomulag á rekstri leikskól-
anna sem gerði ráð fyrir að rekstrar-
styrkur ríkis og sveitarfélaga verði
20.000 kr. á hvert bam á mánuði.
Frekari breytingar yrðu ekki gerðar
á rekstrarfyrirkomulagi leikskól-
anna þannig að þeir gætu áfram
að fullu sinnt sértæku hlutverki fyr-
ir Borgarspítalann. Gert var ráð
fyrir að gjald foreldra yrði 16.400
kr. Ráðherra hafi ekki fallist á þessa
tillögu. Því geti stjórn spítalans ekki
tekið ákvörðun undir þessum kring-
umstæðum um framtíðarrekstur
leikskólanna en fari fram á fund
með heilbrigðisráðherra nú þegar
vegna málsins.
Ekkí pólitísk stjórn
yfir Bílastæðasjóði
TILLAGA Nýs vettvangs, um að Bílastæðasjóði Reykjavíkur yrði
skipuð sérstök þriggja manna sljórn, náði ekki fram að ganga á
fundi borgarstjórnar á fimmtudag.
Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull-
trúi mælti fyrir tillögunni og sagði
að brýnt væri að kjörnir fulltrúar
tækjust á við vanda Bílastæðasjóðs
og bæm á því verki pólitíska
ábyrgð. Skuldastaða sjóðsins væri
slík, að taka yrði mál hans föstum
tökum. Þriggja mana stjórn ætti
að fara ofan í núverandi fjárhags-
ástand sjóðsins og gera tillögur um
hvernig tryggja mætti rekstrar-
gmndvöll hans. Auk þess ætti
stjórnin að hafa umsjón og eftirlit
með daglegum rekstri sjóðsins og
gera tillögur að stefnumótun í bíla-
stæðamálum með hliðsjón af þróun
og þörfum borgaranna.
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri sagði að sérstakur fram-
kvæmdastjóri Bílastæðasjóðs hefði
verið ráðinn og starf hans þegar
skilað umtalsverðum árangri. Borg-
arstjóri lagði fram frávísunartil-
lögu, þar sem fram kemur að sjóð-
urinn heyrir beint undir fjármála-
deild borgarinnar og sérstakur
framkvæmdastjóri fari með mál
hans. Því sé óþarfi að kjósa sér-
staka pólitíska nefnd til að fara
með stjórn sjóðsins. Frávísunartil-
laga borgarstjóra var samþykkt.
Rekstraröryggi til framtíðar
Árni Sigfússon, formaður stjórnar
sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar,
segir leitt að enn skuli þurfa að ríkja
þessi óvissa. „Við teljum mjög mikil-
vægt að fá vinnufrið og að skapað
verði öryggi um rekstur leikskólanna
til framtíðar á þeim forsendum sem
við höfum lagt til. Okkur þykir verst
að ráðherra skuli ekki hafa svarað
nógu skýrt hvernig hann hefur hugs-
að sér að draga úr þátttöku ríkisins
í rekstri leikskólanna. En við í stjóm-
inni vonum að lausn finnist og erum
trúuð á að ráðherra samsinni niður-
stöðunni sem við erum að leggja
þarna til,“ sagði Árni.
Óvissan verst
Hrafnhildur Sigurðardóttir, leik-
skólastjóri á Furuborg, einum leik-
skóla Borgarspítala, sagði að starfs-
menn leikskólanna hefðu ekki getað
komið saman á föstudag til að taka
afstöðu enda hefði ekkert nýtt kom-
ið fram. Starfsfólkið hefði sent stjórn
spítalans bréf og beðið um skýr svör
um hvernig framtíðarrekstri leik-
skólanna yrði háttað, í síðasta lagi
eftir fund stjórnarinnar í fyrradag,
enda væri ekki hægt að taka afstöðu
til endurráðningar fyrr en að þeim
fengnum. „Það fer illa með fólk að
fá ekki nein svör. Þótt niðurstaðan
yrði sú að einhverjum skólum yrði
lokað þá væri vissulega slæmt að
horfast í augu við það en óvissan
en ennþá verri. Við höfum reynt að
halda rónni og láta lætin ekki koma
niður á starfinu með börnunum,"
sagði Hrafnhildur.
Uppskeruhátíð
26. nóvember á Hótel íslandi.
Dagskrá
Þórhallur Laddi Sigurðsson Míý;
Sigurður Sigurjónsson
Stórsöngvarinn og veiðmaðurinn Pálmi Gunnarsson
syngur og verður með léttar veiðisögur.
Sýnt verðurfrá helstu veiðistöðum á risaskjá.
Veislustjóri: Guðlaugur Bergmann.
Heiðursgestur: Orri Vigfússon.
HLJÓMSVEITIN MANNAKORN LEIKUR FYRIR DANSI
Valinn verður aflamesti veiðimaður ársins og veiðimaður ársins
Stangáveiðifélag Patreksfjarðar
Stangaveiðifélag Akureyrar
Stangaveiðfélag Rangæinga
Skotveiðfélag Reykjavíkur
Stanga veiðifélagið Birtingur
Skotveiðifélag Keflavíkur
Miöinn gildir sem happdrættismiði - Fjölmennum
Ðorðapantanir í síma 687111
Þríréttaður
kvöldverður
Verð kr. 3.900,-
Fylgstu með frá byrjun
PÓSTVERSLUIU
Sími 91-616666
Elsa fer í „bissness"
ífyrsta sinn á íslandi stórmarkaður heima í stofu.
Pantið og sparið er í Sjónvarpinu alla virka daga,
=LJ nema föstudaga, klukkan 18.50 og við byrjum
núna á mánudaginn. Þar gefst fólki tækifæri til að versla ódýrt, á
mjög þægilegan hátt. Kynnir verður Elsa Lund og félagar.
Við bregðum á leik
Þú verslar við okkur og gerist sjálfkrafa þátttakandi í risapotti.
18. desember verða dregnir út 33 glæsilegir vinningar. Tveggja
vikna sól og sæla með Samvinnuferðum-Landsýn, Electrolux upp-
þvottavél frá Húsasmiðjunni 14" Tensai sjónvarp frá Sjónvarps-
miðstöðinni og þijátíu geisladiskar.
Frábær tilboðsverð Alltaf eitthvað nýtt í hverri viku.