Morgunblaðið - 21.11.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
31
ATVINNUA A -/ YSINGAR
Samstarfsvettvangur sjávarútvegs
og iðnaðar auglýsir eftir
verkefnisstjóra
Markmið samstarfsvettvangsins er að stuðla
að auknu vinnsluvirði í sjávarútvegi og þróun
tæknibúnaðar fyrir útgerð og fiskvinnslu.
Vettvangurinn verður starfræktur í tvö ár til
að byrja með.
Vettvangurinn myndar nýjan samstarfsgrund
völl fyrir fyrirtæki og stofnanir í sjávarútvegi
og iðnaði.
Með þessu er stefnt að markvissari þróunar-
vinnu, betri nýtingu fjármagns og alþjóðlegra
samstarfsmöguleika, sem m.a. felst í EES-
samningnum og norrænu samstarfi.
Verkefnisstjóri aðstoðar fyrirtæki í samskipt-
um innanlands og erlendis. Hann fylgist með
framgangi verkefna, sem hljóta styrk í gegn-
um vettvanginn, leitar eftir hugmyndum um
ný verkefni og styrkjum til þeirra úr innlend-
um og erlendum sjóðum.
Við leitum að tæknimenntuðum starfsmanni
með góða samstarfshæfileika, þekkingu í
verkefnisstjórnun og tungumálakunnáttu í
ensku og einu Norðurlandamáli. Einnig er
nauðsynlegt að viðkomandi hafi haldgóða
innsýn í sjávarútveg og iðnað. Verkefnisstjór-
inn þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum um ofangreinda stöðu skal skila
til auglýsingadeildar Mbl. merktum: „Sam-
starfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar"
fyrir mánudaginn 29. nóvember.
Aðstandendur „Samstarfsvettvangs sjávarútvegs og iðnaðar" eru Samtök
iðnaðarins, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslu-
stöðva, sjávarútvegsráðuneyti og menntamálaráðuneyti.
Hjúkrunarfræðingar
í Skjólgarði á Höfn er staða hjúkrunar-
fræðings laus nú þegar.
Á heimilinu eru 32 hjúkrunarpláss,
12 á ellideild auk fæðingardeildar.
íbúðarhúsnæði er til staðar.
Skjólgarður greiðir fyrir flutning á staðinn
og fyrir þá, sem hafa áhuga á að kynna sér
aðstæður, er boðið upp á flug og til
og frá Höfn.
Allar nánari upplýsingar veita Amalía
Þorgrímsdóttir, hjúkrunarforstjóri, og
Ásmundur Gíslason, forstöðumaður,
símar 97-81221/81118.
Framkvæmdastjóri
Óskum eftir að ráða framkvæmdastjóra til
starfa hjá ALPAN HF., Eyrarbakka.
Æskilegt er að framkvæmdastjóri sé eða
verði búsettur á Eyrarbakka eða nágrenni.
ALPAN HF. er verksmiðja sem framleiðir
potta og pönnur úr áli, einkum til útflutn-
ings. Hjá Alpan hf. starfa 45 manns.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Dagleg
framkvæmdastjórn fyrirtækisins. í starfinu
felst yfirstórn framleiðslu-, markaðs- og fjár-
mála fyrirtækisins.
Við leitum að manni með reynslu af stjórnun-
arstörfum. Viðkomandi þarf að hafa frum-
kvæði, geta unnið sjálfstætt og skipulagt
störf annarra.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningaþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Alpan 289“ fyrir 26. nóvember nk.
Hagva " O ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík 1 Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
íslenskar sjávarafurðir hf.
Krefjandi störf
Við leitum að dugmiklum og drífandi starfs-
mönnum er hafa til að bera frumkvæði og
metnað auk reynslu af sjálfstæðum
vinnubrögðum.
Vöruþróun
Aðstoðarmaður við verkefni á sviði markaðs-
tengdrar vöru- og vinnsluþróunar á sérvörum
og smásölupakkningum.
Starfið veitir góða innsýn í það nýjasta sem
er að gerast í sjávarútvegi í dag og tengist
meðal annars vinnslutækni, verðútreikning-
um, umbúðaþróun og tilraunavinnslu.
Æskileg menntun t.d. á sviði matvæla-
fræði, sjávarútvegsfræði, iðnaðartækni-
fræði á matvælasviði eða fisktækni.
Við leitum að starfsmanni með góða ensku-
kunnáttu, tölvuþekkingu og reynslu úr
sjávarútvegi.
Skoðunarmaður
sjófrystingar
Við leitum að starfsmanni með þekkingu og
reynslu á vinnslu sjávarafurða um borð í
frystitogurum til að gegna starfi skoðunar-
manns fyrir sjófrystar afurðir.
Starfsvettvangur er bæði um borð og í
landi, viðkomandi þarf að vera tilbúinn til
að starfa töluvert úti á sjó.
Nánari upplýsingar um þessi störf veitir
Benjamín Axel Árnason, ráðningarstjóri
Ábendis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um sem fyrst, en í síð-
asta lagi fyrir hádegi 29. nóv. 1993 á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar.
abendi .
RÁÐGJÖF 0G RÁÐNINGAR I
LAUGAVEGI 178 • 105 REYKJAVIK • SÍMI 689099 • FAX 689096
VERKSTÆÐISFORMAÐUR
Óskum eftir að ráða verkstæðisformann til
starfa hjá traustu og vel reknu fyrirtæki í
Reykjavík.
Fyrirtækið rekur eigið bifreiðaverkstæði með
alhliða þjónustu, s.s. almennar viðgerðir,
bílasprautun o.fl.
Við leitum að bifvélavirkja með meistararétt-
indi, reynslu og þekkingu á viðgerðum og
viðhaldi bifreiða, sérstaklega stærri bifreiða.
Reynsla af stjórnun, sjálfstæðum og skipu-
lögðum vinnubrögðum nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.,
merktar: „Verkstæðisformaður 308", fyrir
27. nóvember nk.
Hagva ngurhf
W " Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 w - Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
Húsvörður
Stór verslunarmiðstöð í borginni vill ráða
laghentan og heilsuhraustan einstakling til
starfa strax við húsvörslu, eftirlitsstörf og
að annast ræstingar og þrif að hluta. Vakta-
vinna á tímabilinu frá kl. 8-21.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „H - 1087“ fyrir kl. 17 á þriðjudags-
kvöld.
Fjármálastjóri
Þekkt þjónustufyrirtæki óskar að ráða fjár-
málastjóra.
Starfið:
★ Fjárhagsleg áætlanagerð og eftirlit.
★ Umsjón bókhalds og uppgjörsmála.
★ Skrifstofustjórnun.
Hæfniskröfur:
Leitað er að aðila með reynslu af fjármála-
stjórnun, bókhaldi og uppgjörsmálum sem
getur tekist á við áhugavert og krefjandi
starf.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
frá kl. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir
til Ráðgarðs merktar: „Fjármálastjóri" fyrir
1. desember nk.
RÁEXAraJURM
SFIJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688
Sölu/markaðsstarf
Þjónustufyrirtæki í borginni óskar að ráða
starfskraft við símasölu, beina markaðssetn-
ingu og hliðstæð verkefni.
Ákjósanlegir eiginleikar væntanlegs starfs-
manns: Frambærilegur, metnaðargjarn,
röskur og drífandi, sem er í starfinu af lífi
og sál.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða tölvu-
og málakunnáttu (ensku og eitt Norðurlanda-
mál), en þó ekki skilyrði. Algjört skilyrði er
góð kunnátta í íslensku í mæltu og rituðu
máli. Þetta þarf að vera hress og skemmtileg
persóna, sem vinnur hratt og fólk hefur gam-
an og gagn af að hafa samskipti við. Umfram
allt ákveðinn sölumaður, sem hefur sterkan
„karakter" er höfðar til fólks.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar
til 27. nóvember nk.
QjdntTónsson
RÁÐCJQF & RÁÐN1NCARÞJÓN 11STA
TIARNARGOTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 1322
Þjónustustörf
á hugbúnaðarsviði
Þjónustufyrirtæki óskar að ráða starfsmenn
í eftirtalin störf:
1. Hugbúnaðarsérfræðing á svið VMS og
OSF/1 stýrikerfanna.
2. Vélbúnaðarmann í eftirlit og viðhald á
VAX og PDP tölvum og jaðartækjum
tengdum þeim.
Leitað er eftir aðilum með reynslu og góða
þjónustulund. Nauðsynlegt er að við-
komandi geti unnið sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússon frá
kl. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar viðkomandi starfi, fyrir
24. nóvember nk.
RÁÐGARÐURM.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688