Morgunblaðið - 21.11.1993, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
Útsláttarmótið í Tilburg
Islendingar í aðra umferð
Skák
Margeir Pétursson
FLESTALLIR af stigahæstu
skákmönnum heims taka þátt í
útsláttarmóti Interpolis-trygg-
ingafélagsins í Tilburg í Hol-
landi. Þeirra á meðal er nýbak-
aður „FIDE-heimsmeistari“,
Anatólí Karpov, og áskorandi
hans, Jan Timman. Helst er
saknað þeirra Kasparovs, Shorts
og Anands, sem þáðu ekki boð
um að vera með. 96 skákmenn
tefldu í fyrstu umferð og féllu
þá þegar 48 út. í hóp þeirra sem
«feftir stóðu bættust 16 útvaldir
' keppendur þannig að í annarri
umferð tefldu 64 og mun sú tala
síðan helmingast i hverri umferð
þar til einn sigurvegari stendur
eftir í byijun desember.
íslensku keppendunum tveim
tókst báðum að komast í aðra
umferð eftir harðar viðureignir.
Jóhann Hjartarson átti í höggi við
G. Georgadze frá Georgíu, einn af
hjálparkokkum Kasparovs, og
unnu þeir fyrst sína skákina hvor
á svart, en í framlengingu varð
Jóhann hlutskarpari. Undirritaður
gerði fyrst jafntefli við ungverska
stórmeistarann Joszef Pinter og
lenti í vöm með svörtu í seinni
skákinni. En eftir að Ungveijanum
yfirsást mótspilsmöguleiki virtust
taugar hans gefa eftir og það hall-
aði jafnt og þétt á hann eftir það.
í annarri umferð mættum við
báðir stigahærri andstæðingum.
Ég átti í höggi við Jan Timman,
nýkominn frá heimsmeistaraeinvígi
FIDE í Djakarta. Það virtist vera
mikill léttir fyrir Timman að mæta
öðrum skákmanni en Anatólí
Karpov sem hann klúðraði hverri
vinningsstöðunni á fætur annarri
gegn. I fyrri skákinni var ég ávallt
með betra tafl, en Timman náði
að notfæra sér tímahrakið til að
þvinga fram jafntefli. í seinni skák-
inni urðu mér svo á mistök í mið-
tafli sem Timman nýtti sér örugg-.
lega til sigurs.
Jóhann mætti annars borðs
manni Úkraínu, Vladímir Mal-
anjúk, sem rauk upp í 14. sætið á
stigalista FIDE í sumar. Jóhann
var heillum horfinn í fyrstu skák-
inni og tapaði illa á hvítt. Sú seinni
leit heldur ekki vel út framan af,
en þegar Malanjúk hugðist stytta
sér leið til jafnteflis náði Jóhann
frumkvæðinu og vann skemmtilegt
endatafl. Athyglisvert var að allar
kappskákir Jóhanns í Tilburg unn-
ust með svörtu.
Þá þurfti að framlengja og vann
Malanjuk fyrstu skákina, en Jó-
hann jafnaði. Enn var þá tíminn
styttur niður í tíu mínútur auk
þess sem tíu sekúndur bættust við
eftir hvem leik. Er það gert til að
klukkan geti ekki skipt meira máli
en staðan á borðinu. í fyrri skák-
inni vann Jóhann peð en mótspil
Malanjúks dugði til jafnteflis. I
seinni skákinni tefldi Úkraínumað-
urinn illa framan af og upp kom
þessi staða: (Sá stöðumynd).
Svartur hefur látið af hendi
skiptamun fyrir ríflegar bætur,
þijú peð auk þess sem hvítur er
afar veikur fyrir á löngu skálínunni
a8-hl. Svarta staðan er sigurvæn-
leg eftir 29. — Dd5! og sem hvítur
verður að svara með 30. Df7+ —
Kh7! Hvítur fær þá engin gagn-
færi í endataflinu eftir 31. Dxd5 —
Bxd5 32. Hdl — Be6. Jóhann van-
Svart: Jóhann
Hvítt: Malanjuk
mat færi hvíts á kóngsvæng og lék:
29. - Rc4? 30. Hf7! - Kh7??
Nauðsynlegt var 30. — Rd6 31.
Hxa7 — Bb5 og staðan er tvísýn.
Nú getur hvítur unnið strax með
31. Hlf6! en Malanjuk fer lengri
leið að markinu:
31. Hxg7+ - Kxg7 32. Bxh6+ -
Dxh6 33. Hf7+ - Kg8 34. Dxh6
— Kxf7 35. Dxc6 og hvíta staðan
er gerunnin með tvö samstæð frí-
peð á kóngsvængnum. Malanjuk
fór þó ekki nákvæmustu leiðina í
úrvinnslunni og það tók hann 30
leiki til viðbótar að innbyrða vinn-
inginn.
Af þessu má sjá að það er æði
miklum tilviljunum háð hver kemst
áfram eftir að umhugsunartíminn
hefur verið styttur.
Á meðal þeirra sem féllu út í
annarri umferð voru þeir Gelfand
og Salov sem báðir eru á meðal tíu
stigahæstu skákmanna heims.
Fjórir aðrir úr hópi þeirra sem kom-
ust beint í aðra umferð urðu líka
að fara heim við svo búið, þeir
Lautier, Azmajparashvili, Ivan So-
kolov, Bosníu, og Lev Polugajevskí.
Ræðulið Eikar og Stjömu í Gerðubergi 1992.
■ MÆLSKU- og rökræðukeppni
á vegum III. ráðs ITC verður haldin
í dag, sunnudaginn 21. nóvember
kl. 10.15 í Þinghól, Hamraborg 11,
Kópavogi. Keppnislið eru frá öllum
sex deildum ráðsins. ITC Melkorka,
Reykjavík, og ITC Eik, Reykjavík,
byija keppnina. Melkorka leggur til
að undirheimar Snæfellsjökuls verði
kannaðir með tilliti til hinna duldu
afla, sem þar eiga að vera. Eik and-
mælir tillögunni. Kl. 13 keppa ITC
Rós, Hveragerði, og ITC Fífa,
Kópavogi. Rós leggur til að allir
Islendingar verði skyldaðir til líkams-
ræktar '/2 klst. á dag. Fífa andmæl-
ir tillögunni. Að lokum keppa ITC
Jóra, Selfossi, og ITC Sljarna,
Rangárþingi. Jóra leggur til að inn-
flutningur á snyrtivörum fyrir konur
verði bannaður þegar í stað. Stjörnur
andmæla tillögunni.
■ HINN ÁRLEGI
jólabasar Sólheima í
Grímsnesi verður í
Templarahöllinni við
Eiríksgötu 5 í Reykjavík
í dag, sunnudaginn 21.
nóvember kl. 14. Sjál-
feignastofnunin Sólheim-
ar í Grímsnesi var stofn-
uð árið 1930 af Sesselju
Hreindísi Sigmundsdótt-
ur. Hlutverk hennar er
og hefur ávallt verið að annast með-
ferð og umönnun þroskaheftra. I dag
dvelja á Sólheimum 40 einstaklingar.
Á Sólheimum eru vinnustofur þar
sem heimilisfólk vinnur við hin ýmsu
störf; vefstofa, kertagerð, lista-
smiðja, garðyrkja, skógrækt, og bú.
Á vinnustofunum er leitast við að
nota einungis náttúrulegt og ómeng-
að hráefni og allt grænmeti með
aðferðum lífrænnar ræktunar. Ses-
selja var brautryðjandi í þsss konar
ræktun hér á landi. Á jólabasar Sól-
heima gefst fólki kostur á að sjá og
kaupa framleiðsluvörur heimilisins.
Má þá helst nefna handsteypt bývax-
kerti, mottur, dúka, silkikort, púða,
tréleikföng, og grænmeti. Einnig
verður á boðstólnum mjólkursýrt
grænmeti, en mjólkursýring er sér-
stök geymslu- og verkunaraðferð á
grænmeti sem viðheldur upphafleg-
um næringar- og fjörefnum þess
jafnframt því að veita grænmetinu
ferskt, sætsúrt bragð. Samhliða Sól-
heimabasamum stendur forelda- og
vinafélag Sólheima fyrir kökubasar
og kaffisölu. Öllum ágóða af sölunni
er varið til uppbyggingar á starfsemi
Sólheima.
KENNSLA
Kennsla í svæðameðferð
Eins og hálfs árs nám kennt um
helgar.
Byrjum helgina 4.-5. desember.
Uppl. á skrifstofu FSM og FÍN á
mán. og mið. frá kl. 9.30-11.30
f síma 683960.
I.O.O.F. 3 = 17511228 = E.T.
1 Sp.
□ MÍMIR 5993112219II 6 Frl.
□ HELGAFELL 5993112219
IV A/
I.O.O.F. 10 = 17511228Va =
ET.1 9.0
□ GIMLI 5993112219 III 1
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
%.r Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Sunnudag kl. 11.00: Fjölskyldu-
samkoma. Kl. 20.00: Hjálpraeð-
issamkoma. Kapt. Ann Merete
Jacobsen og Erlingur Níelsson
stjórna og tala á samkomunum.
íris Guðmundsdóttir syngur.
Mánudagur kl. 16.00:
Heimilasamband.
Verið velkomin á Her.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund þriðju-
daginn 23. nóvember kl. 20.30 í
Akoges-salnum, Sigtúni 3.
Húsið opnað kl. 19.30.
Miöasala við innganginn.
Auðbrekka 2 • Kópavoqur
Almenn samkoma í dag
kl. 16.30.
Biblíulestur á þriðjudaginn
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Fjölbreytt dagskrá með miklum
söng. Samhjálparkórinn tekur
lagið. Barnagæsla. Samhjálpar-
vinir vitna um reynslu sína af
trú. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
_TL
□c
Ungt fólk
JBÍð með hlutverk
IfmS YWAM - ísland
Kvölmessa í Breiðholts-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Léttir söngvar cg-iotgjörð.
Séra Gísli Jónasson predikar.
Altarisganga. Allir velkomnir.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60
„Trúir samverkamenn."
Fil.2,19-30. Samkoma í kvöld
kl. 20.30 í Kristniboössalnum.
Upphafsorð hefur Anna Magn-
úsdóttir. Ræðumaöur verður
Skúli Svavarsson, kristniboði.
Slllá auglýsingar
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Kristniboðssamkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Frímann Ásmunds-
son. Fíladelfíukórinn syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar.
Fórn tekin til kristniboös. Barna-
samkoma og barnagæsla á
sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nýja
postulakirkjan
íslandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta sunnudag kl.
11.00 Wilfried Hager prestur
þjónar. Hákon Jóhannesson að-
stoðar. Hópur frá N.P.K. í Brem-
en í heimsókn.
Verið velkomin í hús Drottins!
VEGURINN
[y Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00.
Eitthvað fyrir alla aldurshópa.
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.00. Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar:
Muniö bænastundirnar alla virka
daga kl. 8.00 og á mánudögum
og föstudögum einnig kl. 17.30.
Mánudagur kl. 20.00:
Grunnfræðsla, framhalds-
fræðsla og kynningarfundur fyrir
nýja.
Þriðjudagur kl. 20.00:
Föndur kvöld ABC og hjálpar-
starfs Vegarins.
Miðvikudagur kl. 18.00:
Biblíulestur með sr. Halldóri S.
Gröndal.
Kl. 20.30: Samkoma í Óskakaffi,
Selfossi.
Kl. 20.00: Samkoma í Haukahús-
inu við Flatahraun.
Fimmtudagur kl. 20.00:
Lækningasamkoma.
Föstudagur kl. 20.30:
Unglingasamkoma (13-15 ára).
Laugardagur kl. 21.00:
Samkoma fyrir ungt fólk (16 ára
og eldri).
“Náðarár Drottins er f dag“.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Skyggnilýsingafundur
iverður haldinn á
Sogavegi 69.
Miðillinn Keith
Surtees heldur
skyggnilýsingu
þriðjudagskvöldið
23. nóvember kl.
20.30.
Bókanir í símum
618130
og 18130.
Stjórnin.
Læknamiðill!
Upplýsingar í síma 675344.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Vestfirðir - kvöldvaka
Ferðafélagsins
Ferðafélag (slands efnir til fyrstu
kvöldvöku vetrarins miðvikudag-
inn 24. nóv., kl. 20.30 í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a. Þá ætlar
Hjálmar R. Bárðarson að fara
f skoðunarferð um Vestfirði í
máli og myndum. Hjálmar hefur
ferðast um Vestfirði með
myndavél sína í nærfellt 60 ár
og miölar fróðleik frá fortíð og
nútíð um mannlíf þeirra staða
þar sem hann ber niður.
Vestfirðir eru að margra mati
ekki nægilega þekktir sem for-
vitnilegt svæði fyrir ferðalanga,
en hér gefst kjörið tækifæri til
þess að fræðast undir leiðsögn
heimamanns og sjá myndir
þessa snjalla myndatökumanns,
Hjálmars R. Bárðarsonar, fyrrv.
siglingamálastjóra.
Kaffi og meðlæti félagskvenna
verður í hléi. Myndagetraun -
verðlaun! Aðgangur kr. 500,-.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Missið ekki af fróðleik um Vest-
firði.
Ferðafélag Islands.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Einnig sam-
koma kl. 20.30. Robert Ekh
predikar á báðum samkomun-
um. Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 14.30.
Hvítasunnukirkjan
Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
Samkoma kl. 11.00 -árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
Frá Sálarrannsókna
félagi íslands
Þjálfunarnámskeið
■f r^lj 28. nóvember frá
69. Leiðbeinend-
ur verða Fiona
Surtees, Keith
Surtees og Ragnheiður Ólafs-
dóttir. Efni verður m.a.:
1. Skilningur á orku, orkusvið-
um og jarðarorku.
2. Hærri og lægri tíönisviðum
andlegrar orku.
3. Skynjun, snerting, litir, hlut-
skyggni, heilun, heilsa.
Bókanir eru hafnar í simum
618130 og 18130.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir F.í.
sunnudaginn 21. nóv.:
1) Kl. 11.00 Helgadalur - Grím-
mansfell. Ekið upp Mosfellsdal
og gengið inn Helgadal og á felliö.
2. Kl. 11.00 Hrafnhólar -
Tröllafoss. Ekið að Hrafnhólum
(býli) og gengið þaðan upp með
Leirvogsá að Tröllafossi.
Við vekjum athygli á brottfarar-
tíma kl. 11.00 frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, og Mörk-
inni 6. Munið skjólgóðan búnað
og nesti. Komið til baka um kl.
16.00. Verð kr. 1.100, frítt fyrir
börn.
Aðventuferð til
Þórsmerkur 26.-28. nóv.
Tilvalin fjölskylduferð. Kvöldvaka
- óbyggðastemmning. Kjörin til-
breyting að vera með glöðu fólki
í Þórsmörk. Farmiðasala og upp-
lýsingar á skrifst., Mörkinni 6.
Óskilamunir! Hjá ferðafélaginu
er mikið af fötum, skótaui o.fl.,
sem bíður eigenda sinna.
Þessir óskilamunir eru frá sl.
sumri og hafa komið úr sælu-
húsum F.f. Hver gleymdi hverju
á ferðalagi sl. sumar?
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnudaginn
21. nóvember kl. 10.30
Vogavik - Kálfatjörn. Brottförfrá
BSÍ, bensínsölu. Verð kr.
1.200/1.300. Frítt fyrir börn 15
ára og yngri.
Dagsferð sunnudaginn
28. nóvember kl. 10.30
Valaból - Helgafell.
Útivist.