Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993 43 Cárur eftir Elínu Pálmadóttur RÖDD Á RAUÐU UÓSI Ef allir væru jafn ungir og Solzhenitsyn! Enn er hann ung- ur þrátt fyrir árin. Þannig voru fyrstu viðbrögðin við að heyra og sjá þennan rússneska rithöf- und og andófsmann á skjánum í viðtali við franska bókmennta- manninn Pivot. Hann hafði ekki úttalað sig síðan sovétkerfið hrundi og heimurinn beið i eftir- væntingu. Er það ekki maka- laust ef út í það er hugsað? Þessi maður hefur ekkert á bak við sig, ekki hersveitir, ekki rík- isstjórn, ekki bankaveldi, ekkert nema rödd sína, rödd sem hefur náð að hreyfa við samvisku heimsins á rauðu ljósi. Er það ekki nánast einsdæmi í sög- unni? Tuttugu ára útlegð hefur ekki náð að má hann neitt. Ferskleiki og snerpa. Ákafi. Hann er á leiðinni til Sovétríkj- anna, ekki í boðsferð eða skyndiheimsókn, sem hann hafnar, heldur að flytjast heim, rólega og yfirvegað. Kona hans fór á undan til að útvega þeim húsnæði og koma þeim fyrir. Hann er ekki á vegum neins nú fremur en fyrr. Enn hlustar heimurinn á þennan mann, sem hefur haldið sig til hlés í tvo áratugi. Talað í bókum þegar honum sýnist, yfirvegað og gagnrýnið. Undur og stórmerki í þessum auglýsingaheimi, þar sem menn hafa fyrir satt að þeir verði alltaf og sífellt að vera að gaspra til að ná eyrum og gleymast ekki. Solzhenitsyn sér engin vand- kvæði á því að aðlagast aftur þótt ringulreið ríki í hans heima- landi. „Þú segir að þar ríki ring- ulreið. Var það þá þess virði að ryðja kommúnismanum úr vegi?“ er spurt. „Þetta er spurn- ing sem margir Sovétborgarar spytja sig... Svar mitt er hik- laust já. Án þess hefðum við orðið flokkur apakatta... En nú reyna menn að fínna efna- hagslegu lausnina þegar lausnin sem þetta snýst um er siðferði- leg.“ Þegar talinu er vikið að trúarbrögðum og hlutverki þeirra, segir hann: „Siðferðið þarfnast trúarbragða. En þau verða ekki innleidd með valdi. Trúin er innri gjöf.“ Seinna í viðtalinu tók hann svo fram að Sovétríkin yrðu að verða ríki leikmanna. Án þess að nefna nafn Gorb- atsjovs gagnrýnir Solzhenitsyn hann opinskátt, segir að skyndi- leg umbreyting til lýðræðis hafi verið ógerleg og að augljóslega hefði verið hægt að standa bet- ur að því. Þegar hann var spurð- ur um gagnrýni hans á Evrópu fyrir veikleika í viðnáminu gegn kommúnismanum, svarar hann: „Með vinaraugum sé ég að siðir Vesturlanda hafa ekki skánað hætis hót.“ Óhemjuleg græðgi, gróðafíkn . . . Eign hefur enga merkingu nema hún tengist æðra markmiði. En úr því að hann er ekkert sáttari við það en sósíalisma, er þá til ný leið? „Það er of snemmt að svara því,“ svarar þessi vitri, glöggi hugsuður. Og ég verð að viður- kenna að maður hlustar, eins og raunar umheimurinn, betur eftir hans orðum en flestra spekinganna í veröldinni. Orð- inn dulítið spældur á því að allt- af skuli kallaðir til í umræður þeir sem alla ævi hafa reynst hafa haft rangt fyrir sér þegar þeir voru að ráða í gátur og spá í framtíðina. Maður kysi kannski að fá meira að heyra frá þeim sem hafa reynst glögg- skyggnir og forspáir, ekki satt? Hvað þá ef maður ætti nú kost á fólki sem lítur ferskum augum á málin í breytilegri veröld sem er. Kannski er þetta að hluta skýring á þvi að Solzhenitsyn verður aldrei gamall og máður maður og fær heiminn til að hlusta þótt hann sé ekki alltaf að halda sér í sviðsljósinu. Að sjálfsögðu getur hug- myndaauðgi við að ná athygli verið bráðskemmtileg. Nú í skammdegisdrunganum léttir til dæmis lundina í morgunsárið og setur hugmyndaflugið snar- lega í gang að opna blaðið sitt, hvar við blasa bændamyndirnar í nýjustu auglýsingaherferðinni um íslenskan landbúnað. Mynd- in af Drakúla að bíta saklausa konu á barkann svo rauðir blóð- taumarnir renna, nunnunni góðu með merki Rauðakrossins í stað Kristskrossins, Stalín með grimmilega yfírvaraskeggið og Abraham Lincoln með pípuhatt- inn. í huganum birtast íslenskir bændur í þessum gervum og maður skellihlær. Skammdegis- morgninum er bjargað. Líklega er tilganginum náð, myndirnar grípa augað — þótt maður lesi ekki endilega. Og kannski myndin af Drakúla með blóð- taumana veki áhuga á að kaupa lambakjöt og nunnan góða á að drekka meiri mjólk, en hvaða ímynd Abraham Lincoln Banda- ríkjaforseti sem frelsaði þræl- ana vekur í sambandi við ís- lenskar sveitir eða Stalín karl- inn með böðulsöxina, þori ég ekki að nefna. Myndimar vekja þó alltaf kátínu og kátt fólk er væntanlega líklegra til að langa í og eyða en morgunfúlir. Svo áfram með smérið. Kaupum íslenskt! Tilganginum er náð, sem betur fer. Þetta er rándýrt spaug. Spaug er að vísu ekki sérlega íslensk afurð eða vinsæl í skammdeginu. Hvað þá þegar maður hlær að hugsun sinni og fáránlegum myndum sem eitt- hvað framkallar í hugarfylgsn- um. En: Skopið er spegill fyrir einn og alla þar eiga menn að skoða sína galla. Vér fógnum því með flissi og húrra-kðll- um oss fmnst það geysi-þarflegt - hinum öll- um. SUÐURVERI Nýkomnir stórglcesilegir jóla- og damaskdúkar á gódu verdi Opið laugardaga kl. 10-14 5-10% staðgreiðsluafsláttur Álnabúbin Suðurveri, sími 679440. Við tökum smá forskotájólin og borð að höfðingja sið. Að sjálfsögðu er allt það besta úr íslenska búrinu, til dæmis heitt og kalt hangikjöt, svið, sviðasulta, rófustappa, rauðkál og laufabrauð. Við lumum einnig á klassískum jólaréttum frá útlöndum og berum fram danska rifjasteik, sænska síldarrétti, gljáð grísalæri, fylltan kalkún og margt fleira girnilegt góðgæti sem ómissandi er á höfðingja- borðum. Einnig jólaglögg að hætti hússins. Öll kvöld firá 26. nóvember I hádeginu frá fimmtudegi til sunnudags og öll hádegi síðustu vikuna fyrir jól. Verð: 1.950,-í hádeginu og 2.400.-ákvöldin Salir fyrir 40 - 130 manna hópa m.a. Hóteigur ó efstu hæð með útsýni yfir borgina. Kynnið ykkur gistitilboð í desember. Sigtúni 38 - Albr upplýsingar í sima 689000 - Fax: 680675 0ACKMAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.