Morgunblaðið - 21.11.1993, Blaðsíða 44
varða i
i
M Landsbanki
Bk íslands
KB m Banki allra landsi
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
\
Annir björgnnarliðs
en ekki stórfellt tjón
Morgunblaðið/Sverrir
Gaf sig í veðrinu
STRÆTISVAGNASKÝLI við Suðurlandsbraut var meðal þess sem
lét undan veðrahamnum aðfaranótt laugardagsins. Borgarstarfs-
menn fjarlægðu leifar þess þegar slotaði.
ÞESSUM krökkum úr Keflavík var alveg sama þótt þeir þyrftu
að bíða af sér óveðrið. Þegar þau voru spurð hvað þau myndu
gera ef þau kæmust ekki heim fyrr en daginn eftir sögðu þau
bara: „Party all night!“ Fyrir þá sem skilja ekki unglingamál
þýðir það „skemmtum okkur í alla nótt“!
1.400 unglingar
biðu af sér óveðrið
FJÖRUGUR dansleikur var haldinn í Hinu húsinu á föstudags-
kvöld á vegum SAMFÉS, Samtaka félagsmiðstöðva á Islandi. Þar
voru samankomnir tæplega 1.400 unglingar úr félagsmiðstöðvum
landsins, þar af tæplega helmingur úr félagsmiðstöðvum utan
höfuðborgarsvæðisins. Þegar ballinu var um það bil að ljúka, um
klukkan hálfeitt, var óveðrið í hámarki og ráðlagði lögreglan
aðstandendum skemmtunarinnar að halda unglingunum innan
dyra þar til því slotaði. Ballið var framlengt um klukkutíma og
voru hóparnir síðan að tínast af stað til klukkan fjögur um morg-
uninn. Tveir hópar utan af landi þurftu að gista í bænum.
Rútumar stóðu í röðum fyrir
utan Hitt húsið og biðu bílstjór-
arnir eftir því að unglingamir
fengju ferðaleyfi. Hluti ungling-
anna af höfuðborgarsvæðinu var
sóttur af foreldrum sínum og nöfn
allra sem fóm úr húsinu voru
skráð niður til að hafa sem best
eftirlit með því að enginn færi út
í óveðrið á eigin vegum.
Heim með aðstoð lögreglu og
bj örgunars veita
Hjálmar Theodórsson, stjórnar-
maður í SAMFÉS og forstöðu-
maður Fellahellis, hafði umsjón
með dansleiknum. Hann var í
stöðugu sambandi við lögreglu og
foreldra sem hringdu í Hitt húsið
til að spyijast fyrir um stöðu
mála. Að sögn Hjálmars gistu um
80 krakkar úr Borgarnesi í Hinu
‘húsinu og 60 manna hópur af
Hvolsvelli gisti í Hafnarfírði þegar
ljóst var að hann myndi ekki kom-
ast heim um nóttina. Aðrir kom-
ust til síns heima með aðstöð lög-
reglu og björgunarsveita. Fyrstu
hóparnir fóru af stað um tvöleytið
og þeir síðustu fóru upp úr fjögur.
BJÖRGUNARSVEITIR og lög-
regla á Suðvesturlandi og Vest-
fjörðum áttu annríkt fram und-
ir laugardagsmorgun við að
sinna hjálparbeiðnum um að
koma í veg fyrir Ijón af völdum
suðaustan hvassviðris og að-
stoða fólk sem gekk illa að
komast leiðar sinnar vegna
veðrahamsins en vindhraði fór
allt upp í 11 vindstig í verstu
hryðjum. A höfuðborgarsvæð-
inu bárust á annað hundrað
hjálparbeiðnir. Ekki hlaust
stórvægilegt tjón af veðrinu svo
vitað sé en víða skemmdust bíl-
ar og mannvirki af völdum veð-
urs og foks.
Lögregla og björgunarsveitir
voru fram undir klukkan sex að
flytja um 1.300 unglinga úr
Reykjavík og af Suðumesjum
heim til sín af unglingadansleik á
vegum SAMFÉS í Hinu húsinu.
I Reykjavík voru um 100 björg-
unarsveitarmenn að störfum auk
lögreglu og bámst sameiginlegri
miðstöð þeirra 68 hjálparbeiðnir.
Ekki var talið að stórvægilegt tjón
hefði hlotist af en litlu mátti muna
í Borgarbókasafni í Bústaðakirkju
þar sem hurð fauk upp.
Rafmagnslaust
Rafmagnslaust var í Mos-
fellsbæ og Grafarvogi vegna tjóns
á loftlínu í fyrrinótt en straumur
komst á snemma í gærmorgun.
í Kópavogi bárust 30 aðstoðar-
beiðnir lögreglu og Hjálparsveit
skáta vegna þakplötufoks, fall-
inna vinnupalla og skemmda á
bílum en hvergi hlaust af stórfellt
tjón. í Hafnarfirði sinntu lögregla
og hjálparsveitir 67 beiðnum um
aðstoð, flestum við að hefta fok.
í fyrrinótt féllu tvær skriður á
Vesturlandsveg í Hvalfirði; önnur
við Hvammsvík, hin úr Múlafjalli.
Vegagerðarmenn höfðu opnað
veginn um klukkan sex í gær-
morgun.
Ruslagámur fauk á bifreið á
Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt og
er hún mikið skemmd. Einnig
fauk bíll þar á annan á flugvallar-
svæðinu, en skemmdir urðu ekki
stórvægilegar.
Lögreglan í Borgamesi og á
Akranesi segir að „kolvitlaust
veður“ hafi verið í bæjunum og
sinnti hjálparsveitin á Akranesi
útköllum til klukkan 4 í fyrrinótt.
Nokkurt fok varð á Akranesi og
er skeljasandur víða á götum.
Fjórir rafmagnsstaurar brotnuðu
milli Akraness og Borgamess og
varð almenn línubilun af þeim
sökum um tíma.
Söng í suðaustanáttinni
Á Bíldudal var slysavarnasveit-
in kvödd út þegar þakplötur fuku
af húsi við Lönguhlíð. Plöturnar
ollu ekki tjóni, að sögn Tómasar
Árdals, formanns slysavarna-
sveitarinnar á Bíldudal. Hins veg-
ar stórskemmdist jeppi á Bíldudal
við það að lauslegt brak fauk á
hann þegar hvað mest gekk á og
söng í suðaustanáttinni eins og
jafnan þegar hún nær sér upp á
Bíldudal, að sögn Tómasar. Alls
ekki var stætt í verstu hryðjunum.
Víða fuku upp gluggar og bíb
skúrshurðir sem eigendur glímdu
sjálfir við án aðstoðar.
Breytt viðhorf Landsbanka Islands til skuldara í sjávarútvegi
Lánardrottnamir senn
stærstu eigendur kvóta
BREYTT afstaða Landsbankans að því er varðar vi(ja bankans til
þess að breyta ákveðnu hlutfalli skulda Borgeyjar hf. á Hornafirði
í hlutafjáreign bankans í fyrirtækinu, í þeim nauðasamningum sem
líklega eru framundan, mun hafa keðjuverkandi áhrif, að því er
varðar önnur sjávarútvegsfyrirtæki, sem illa eru sett. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins munu fyrirtæki í sjávarútvegi, sem í
örðugleikum eiga nú um stundir, íhuga að reyna þá leið sem Borg-
ey hefur valið. Gangi þetta eftir verða Landsbankinn og aðrir helstu
lánardrottnar sjávarútvegsfyrirtækja orðnir stærstu kvótaeigendur
landsins áður en langt um líður.
Sýknaður
af ákæruum
nauðgun
25 ÁRA gamall Hollendingur af
arabískum uppruna hefur verið
sýknaður í Héraðsdómi af ákæru
um að hafa nauðgað 16 ára stúlku
í Reykjavík í september.
Atburðurinn átti sér stað eftir að
stúlkan og vinkona hennar höfðu
hitt manninn og félaga hans á
’skemmtistað og fylgt þeim að Hafn-
arstræti 20 þar sem þeir höfðu lykla-
völd að kaffihúsi.
Hveiti en ekki kókaín?
Þar bar stúlkan að maðurinn hafi
læst sig inni og nauðgað sér eftir
að hafa gefið sér kókaín. Maðurinn
og félagi hans kváðust hafa gefið
stúlkunum hveiti í nefíð á staðnum
og engin merki fundust um kókaín
eða önnur fíkniefni í blóð- og
þvagprufum sem teknar voru úr
stúlkunni. Eftir atburðinn fór stúlkan.
á lögreglustöð til að kæra nauðgun
en var látin gista í fangaklefa áður
en hún var færð á bráðamóttöku
Borgarspítalans fyrir fómarlömb
kynferðisbrota. Hún bar þá ekki aðra
áverka en marblett á upphandlegg.
Maðurinn játaði að hafa haft mök
við stúlkuna en sagði þau með fullu
samþykki hennar og þótti annað
„^ekki sannað í málinu.
Fmmvarp það sem samið hefur
verið að nauðasamningi fyrir Borgey
hf. felur m.a. það í sér, að lánar-
drottnar hafa val, að því er varðar
skuldauppgjör. Kostirnir eru þessir:
Lánardrottnar geta valið að breyta
öllum útistandandi skuldum í hluta-
fé; þeir geta samþykkt 60% niðurfell-
ingu skulda, og lánað eftirstöðvamar
til langs tíma, með vöxtum og verð-
tryggingu (til 12 ára, eftir því sem
næst verður komist); eða þeir geta
samþykkt sama hlutfall niðurfelling-
ar skulda, og fengið eftirstöðvamar
greiddar á skemmri tíma, með verð-
tryggingu en án vaxta.
Samkvæmt frumvarpi að nauða-
samningum Borgeyjar er stefnt að
frekari eignasölu upp á um 100 millj-
ónir króna, þannig að skuldir verði
innan við 900 milljónir að lokinni
eignasölunni. Eignir sem standa á
móti skuldunum eru áætlaðar um
450 milljónir króna eða tæp 50%
skuldanna. Því munu það vera um
440 milljónir sem um þarf að semja,
komi til nauðasamninga. Þarf af er
gert ráð fyrir að samið verði um nið-
urfellingu skulda upp á 280 milljón-
ir, eða um 60% óveðtryggðra skulda.
Þótt nauðasamningar takist í þessum
anda þykir þó einsýnt að eigendur
fyrirtækisins í framtíðinni, helstu
lánadrottnar og núverandi eigendur
þurfí að leggja fyrirtækinu til nýtt
sem stendur rett hjá því gamla.
Mikið suðaustanhvassviðri gerði
hér í Bolungarvík á tímabili í nótt
en veðrið fór að ganga upp um og
uppúr miðnætti. Að sögn björgunar-
sveitarmanna var vindstyrkurinn
10-12 vindstig og mjög byljóttar
flármagn upp á um 130 milljónir til
að renna tryggum stoðum undir
teksturinn, sem verður þá fyrir utan
þá skuldbreytingu í hlutafé sem að
er stefnt.
Sjá fréttaskýringu: „Skulda-
súpa — naglasúpa" á bls. 10.
vindhviður, sérstaklega inni í dölun-
um. Af öðrum skaða af völdum veð-
urs má nefna að skúr við golfvöllinn
fauk nokkurn spöl og skemmdist.
Gunnar
Foktjón í Bolungarvík
BJÖRGUNARSVEITIN Ernir var kölluð út klukkan 4.30 þar sem
þakplötur voru farnar að fjúka af gömlu íbúðarhúsi á bænum Hanhól
í Syðridal. Um fjórðungur þakplatna af húsinu hafði gefið eftir og
rifnað af og tókst björgunarsveitarmönnum að koma í veg fyrir frek-
ara fok. Þá brotnaði gluggapóstur og tvær rúður í nýju íbúðarhúsi