Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 13 þeirra gaf til kynna enda hafa yfir- menn fyrirtækisins fylgst náið með umræðunni í Svíþjóð. Ef Svíar hafi viljað fórna Gyllenhammar þá sé það þeirra mál. Vonbrigðin eru aftur á móti mikil. „Ef Svíar hafna samrun- anum munu menn líta svo á að ekki sé hægt að treysta Svíum. Það hefði verið algjörlega óhugsandi í mínum augum fyrir nokkrum árum. Og óhugsandi í augum flestra Frakka, ef út í það er farið,“ segir Airy Routi- er, blaðamaður á tímaritinu Le Nou- vel Observateur við Svenska Dag- bladet en hann hefur fylgst náið með samstarfí fyrirtækjanna undanfarin ár. Routier telur að ekki hafí verið um neitt samsæri að ræða milli Gyll og Louis Schweitzer, forstjóra Re- nault, til að losna við Gyllenhamm- ar. Frakkar viðurkenna að af þeirra hálfu hafi ef til vill ekki verið haldið nógu gætilega á hinni sálfræðilegu hlið málsins en taka einnig fram að það hafi verið algjör fásinna af Gyl- lenhammar að ætla að halda því leyndu að með samningnum gæti Renault takmarkað eignaraðild Volvo við 20%. „Jafnvel hér í Frakk- landi hefði slíkt vakið upp and- stöðu,“ segir Routier. Annar franskur blaðamaður, sem vel þekkir til málsins, Arnaud Rotier á Le Figaro segir að höfnun á samr- unanum þýði ekki að samstarfið sé úr sögunni. Þetta sé hins vegar áfall fyrir Schweitzer og frönsku ríkis- stjórnina og það verði eflaust ekki til að efla samvinnuna. Osigur Gyllenhammars Endalok samrunaáætlunarinnar er fyrst og fremst persónulegur ósigur Pehr Gyllenhammars. Hann hafði lagt allt undir í málinu og var því ekki stætt á að sitja áfram sem stjórnarformaður. Gyllenhammar, sem tók við af tengdaföður sínum sem forstjóri Volvo árið 1971 og hafði verið stjómarformaður undan- farin tíu ár, þurfti á undanförnum vikum að sæta ásökunum um að hann hefði sett eigin hagsmuni ofar hagsmunum Volvo í samningunum við Renault. Gyllenhammar átti að •verða stjómarformaður nýja bifreið- arisans, sem hefði orðið nítjánda stærsta fyrirtæki í heimi, næstu sjö árin. Hann hefur nú selt öll hluta- bréf sín og eiginkonu sinnar í fyrir- tækinu. Eftirmæli Gyllenhammars í sænskum blöðum voru mjög misjöfn. Sumir töldu lítinn söknuð af stjórnar- formanninum í ljósi þess hvemig hann hélt á samrunanum. Aðrir töldu þetta vera mikinn missi fyrir Volvo og sænskt efnahagslíf. Líkti stærsta dagblað Svíþjóðar, Dagens Nyheter honum við forsætisráðherrann fyrr- miður, þær eru ekki til“, var svarið. Berlingske Tidende bendir á að 1987 hafi Sovétmenn sæst á að öll- um meðaldrægum flaugum í Evrópu yrði eytt, litlu hafi munað að það tækist þegar á leiðtogafundinum á Islandi árið á undan. Mistök viðurkennd Fjölmargir þýskir jafnaðarmenn hafa aldrei fyrirgefið Schmidt þessa stefnu gagnvart Sovétmönnum. Hann missti völdin í hendur kristi- legum demókrötum og Helmut Kohl 1982 og flokkur jafnaðarmanna sneri við blaðinu, reyndi að vingast við friðarhreyfingar og græningja. Schmidt sendi strax frammá- mönnum flokksins frásögnina af samtali sínu við Gorbatsjov en aðeins einn þeirra, Björn Engholm, svar- aði. Engholm sagðj einfaldlega að honum hefðu orðið á mistök þegar hann barðist gegn uppsetningu bandarísku flauganna. Aðrir hafa ekki séð ástæðu til að þakka kanslar- anum fyrrverandi þátt hans í að grafa undan einræði kommúnista, segir danska blaðið. verandi, Olof Palme, i grein á forsíðu viðskiptablaðs síns á föstudag. Segir blaðið að það sem olli falli hans hafi ekki síst verið hræðslan við hið fram- andi og óþekkta sem samrunaáform- in vöktu upp. „Hræðslan við að Volvo myndi hverfa frá Svíþjóð, já að Re- nault myndi gleypa Volvo. Það mætti kannski segja að Renaultsamruninn hafi verið þjóðaratkvæðagreiðsla Gyllenhammars um EB.“ Gyllenhammar sjálfur var með svipaðar yfirlýsingar er hann ræddi við fjölmiðla á heimili sínu og fór ekki á milli mála að hann taldi þær þjóðernislegu tilfinningar sem áber- andi voru í umræðunni fyrirlitlegar. „Svíar eru að snúa baki við Evrópu. I þjóðaratkvæðagreiðslunni um EB- aðild sem yfirvofandi er mun sama tilfinningasemin koma upp á yfir- borðið á ný. Getum við treyst Evr- ópu? Eru Evrópubúar trausts verðir?“ Bætti hann við að sum þeirra um- mæla, sem viðhöfð hefðu verið um hinn franska samstarfsaðila Volvo, hefðu verið verulega móðgandi. Eitt er víst: Mikil óvissa ríkir nú um hvað framtíðin muni bera í skauti sér og ekki eru ailir bjartsýn- ir. „Þegar upp er staðið mun stjórn fyrirtækisins líta yfir farinn veg og sjá eftir að hafa verið heltekin af þeirri löngun sinni að bola Gyllen- hammar frá. Gyllenhammar hefur gert fjölmörg mistök en [samruninn] er líklega það besta sem hann gerði fyrir Volvo á undanförnum tuttugu árum,“ sagði einn fjármálasérfræð- ingur í London. ■ Einn besti tækjasalur landsins ■ Reyndír þjálfarar í tækjasal ■ Líkamsrækt-eróbikk- sólbaðsstofa ■ Reyndu okkur með því að reyna þig í Ræktinni ■ Hafðu samband það borgar sig ilboð fra Ræktinni © 1 mánuður í tæki, eróbikk og 10 tímar í Ijós aðeins 4990 kr. o 3 mánuður í tæki, eróbikk og 10 tímar í Ijós aðeins 9990 kr. FROSTASKJÓLI 6 • SlMI: 12815 OG 12355 39.900 49.900 pr. mann m.v. 4 í húsi. pr. mann m.v. 2 í húsi. Innifaliö í verði er flug, gisting í 20 daga, ferðir til og frá flugvelli á Kanarí og íslensk fararstjórn. Með einstökum samningum geta Heimsferðir nú boðið 20 daga ferð með dvöl í þessum glæsilegu, nýju smáhýsum, á hreint ótrúlegu verði. Aðeins eru í boði 8 hús á þessum einstöku kjörum. Gríptu tækifærið og bókaðu strax. - Síöustu sætin til Kanarí 6. janúar - Duna Golf smáhýsi í Maspalomas Kynninga til Kanarí 6 D MP ■ I ■ 26. janúar - abeins 8 sœtí laus IV ■ d 9111 d 16. febrúar - uppselt Þessi giæsilega ferð er nú uppseld þann 16. febrúar og síðustu sætin aö seljast 26. janúar. Verb kr. 96.600 Flugvallarskattar og forfallagjöld, kr. 3.630 f.fulloröna, kr. 2.375 f.börn afr europa HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17,2. hæö • Sími 624600 TURAUIA , 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.