Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 MEÐ HAGSÝNUM ÞJÓÐVERJUM Texti og myndir Kristín Morja Baldursdóttir SPARNAÐUR er dygð í Þýska- landi og því eiga þýskir borgar- ar milljarða á sparibókum. Blaðamaður Morgunblaðsins kynnti sér heimilishald og hugsunarhátt hins almenna borgara með hagsýni og sparn- að í huga og í samtölum við þá kemur í ljós að þeir spara því þeir vilja ekki skulda, spara og leggja fyrir til að tryggja eigin framtíð og afkomenda sinna og spara fyrir þægindum. I síðasta sunnudagsblaði var fylgst með hjónum sem hafa það gott eins og það er kallað, en kunna þó vel með fé að fara, og hér er rætt við ung hjón sem ætla að byggja, konu á fimmtugsaldri sem fjárfestir í fögrum munum, og ellilífeyrisþega á áttræðis- aldri. Adeline Schlichting elli- lífeyrisþegi, hefur upplifað tvær heimsstyrjaldir auk kreppunnar miklu, þekkir eymd og auraleysi og veit að ekkert dugir nema sjálfsaginn og harkan til að komast af. Það er líklega kynslóð hennar að þakka að Þjóðveijar eru nú meðal auðugustu þjóða heims. Adeline Schlichting sem býr í Bremen og er 77 ára gömul segist oft hafa lifað betri tíma en hún gerir núna þrátt fyrir stríðsviðbjóðinn, eins og hún segir. Á uppgangstímum á sjöunda og átt- unda áratugnum átti hún nóga aura og ferðaðist víða. En nú reynir hún með ýmsum ráðum, sem mörgum konum á hennar aldri væri líklega ofviða, að láta endana ná saman. Hún hefur búið ein síðustu tíu árin en á dóttur og barnabarn. Húsmóðir alla tíð Einn dag fer ég með Adeline í bæinn. Hún ætlar að fara í bank- ann sinn og á markaðinn þar sem hún kaupir grænmeti, ávexti og blóm. Við förum á Golfinum henn- ar sem hún hefur átt í 15 ár og þótt frúin .sé að nálgast áttrætt brunar hún út á hraðbrautina á 120 km hraða. Við spjöllum saman á leiðinni og hún segir mér að hún fái mán- aðarlega kr. 58.250. „Það er ellilífeyrir og greiðslur sem ég fæ frá fyrrverandi eigin- manni mínum,“ segir Adeline. „Ég fæ ekki mikið því ég hef verið húsmóðir alla mína tíð og svo átti ég engan einkalífeyri. Eg hætti 14 ára gömul í skóla og fór að vinna. Var vinnukona og þrælaði allan daginn fyrir tvö hundruð kall á mánuði þar til ég gifti mig og stofnaði heimili sjálf.“ Adeline býr i tveggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi í ágætu hverfi í Bremen. I húsinu er ýmis þjón- usta fyrir aldraða og er húsaleigan kr. 35.570 á mánuði með hita. Hún fær engar húsaleigubætur því hún er með um þijú þúsund krón- um of mikið í tekjur á mánuði. Þegar Adeline hefur greitt hú- saleiguna, rafmagn, síma, sjón- varp, dagblaðið og bensín á bílinn, Adeline hundskammaði einn sölumanninn fyrir okrið, en var rífandi skemmtileg við þann sem seldi ódýrt. Þjóðverjar spara því þeir vilja ekki skulda, spara til að tryggja framtíðina og til að eiga fyrir þæg- indum Bílinn hefur hún átt í 15 ár og á áttræðisaldri ekur hún á 120 km hraða á hraðbrautum Þýskalands. á hún eftir kr. 13.190 til að lifa af. En endarnir ná ekki saman því Adeline fer með kr. 14.700 í mat á mánuði með ýtrasta spamaði, auk þess sem fólk þarf að gera fleira en að borða. Og hvað gera bændur þá? Baunasúpa Adeline sem stal rófum að næt- urlagi af ökrum bænda á stríðsár- unum til halda í sér og sínum lífi, deyr ekki ráðalaus. „í fjögur ár hef ég gætt barna,“ segir Adeline. „Hér í borg er rekin svonefnd Ömmuþjónusta, þar sem yfír hundrað ömmur og þrír afar starfa, og á vegum hennar gæti ég barna oftast þrisvar í viku, allt að þremur tímum í senn. Ég er með kr. 294,00 á tímann fyrir eitt bam, og kr. 336,00 fyrir tvö. Á mánuði gera það um 11.700 krón- ur. En ég er að verða alltof gömul, það gerir þetta enginn orðið á mínum aldri.“ Til ráðstöfunar hefur Adeline því um kr. 26.000 á mánuði til að lifa. Hún segist þurfa að skipu- leggja nákvæmlega öll innkaup. „Eg kaupi aðeins það sem mig vantar í hvert sinn, en þegar ég var gift keypti ég mikið magn í einu og geymdi. Eg kaupi aldrei kjöt, það er alltof dýrt. Fjögur hundruð krónur kílóið, uss! Ég er heldur ekkert hrifin af pylsum og áleggi. Fisk mundi ég gjaman vilja borða ef hann væri ekki svona dýr, hann kostar meira en kjöt.“ Þegar ég spyr hana hvað hún borði þá eiginlega, segist hún til dæmis kaupa tvær kílódósir af baunasúpu á kr. 126,00, þær dugi oft í tvo daga, einnig sjóði hún sér belgbaunir og borði __ með þeim kartöflur og smjör. „Ég elda oft- ast fjórum sinnum í viku. Ég kaupi líka ávexti og grænmeti, fékk blómkál á tilboðsverði um daginn á kr. 54,18. Ávextirnir em orðnir voða dýrir. Kílóið af eplum kostaði kr. 159,00 á markaðinum um dag- inn. Marmelaðið bý ég til sjálf, og við emm nú farnar að hafa það þannig ég og kunningjakonur mín- ar, að við gefum hver annarri marmelaði þegar einhver á lítið afmæli." Selur línið „Móðir mín kenndi mér að spara,“ segir Adeline og leggur bílnum bak við íþróttahöllina langt frá miðbænum, svo hún þurfi ekki að greiða 42 krónur í stöðumæli. „ Hún kenndi mér að veggfóðra, pijóna og sauma. Ég kenndi dótt- ur minni það sama. Ég lærði líka að nýta afganga. Það er alveg óþarfí að henda brauði þótt það sé orðið þurrt., nóg að setja það inn í rakan klút og þá er það orð- ið gott aftur. Við þræluðum hér áður fyrir hverri krónu, en nú nennir fólk ekki að beygja sig þegar það sér smáaura á götunni. Samt er það alltaf að væla um auraleysi. Mér finnst þó fólk vera farið að spara aftur nú upp á síðkastið. Húsaleig- an er orðin svo dýr og svo er fimmti hver maður atvinnulaus.“ Adeline lætur ekki mikið eftir sér, en tvennt hefur þó algjöran forgang, permanent í hárið og dagkrem. „Fatnað kaupi ég næst- um aldrei. Ég fæ föt af dóttur minni sem hún vill ekki nota leng- ur, það sést ekki á þeim. Svo á ég sjálf svo mikið af þessu, því maður hefur svosem haft það ágætt um dagana." Og þegar Adeline opnar skottið á bílnum sínum efast ég ekki um orð hennar. Skottið er fullt af líni, stífuðum, hvítum damaskdúkum, og fatnaði. Ég spyr hana hvað í ósköpunum hún sé að gera með allt þetta tau í skottinu? „Á laugardögum fer ég með þetta á flóamarkað og sel þetta. Leigi mér stæði fyrir mig og bílinn á kr. 380. Stundum næ ég mér í ágætis pening. Blessuð, ég er búin að selja heilan helling úr búinu mínu, bæði borðbúnað, dúka og rúmfatnað, því hvað hef ég svo sem að gera með þetta dót, get- urðu sagt mér það?“ Sparibókin Frúin stormar inn í bankann sem hún hefur verslað við í þijátíu ár og er heilsað með nafni og virkt- um við afgreiðsluborðið. Hún rífur upp sparibókina sína og er ófeimin við að sýna mér innistæðuna. Hún er kr. 41.000. - Ertu að ^afna fyrir ferða- lagi? spyr ég. „Ferðalagi?“ segir hún. „Nei, ég þarf að komast í gröfina. Það kostar um tvö hundruð þúsund krónur að láta jarða sig. Ég fer ekki að láta dóttur mína borga það. Annars hef ég alltaf safnað fyr- ir ferðalögum. Ég fór tii Ibisa núna í september, það kostaði kr. 37.000 í hálfan mánuð með hálfu fæði. Ég varð að fara í frí, ég var útkeyrð eftir bamapössunina. Ég ferðaðist um allan heim meðan ég var gift, en aðeins minna eftir að ég varð ein.“ - Og með hveijum ferðu núna? „Með hveijum? Ég fer alltaf ein. Mér leiðist aldrei. Ég fæ mér morgunmat, borða vel og lengi, og fer síðan í gönguferðir. Svo borða ég heitan mat um kvöldið og fer svo í rúmið.“ — Ertu heilsuhraust? „Nei, löppin er að drepa mig. Svo er ég með of háan blóðþrýst- ing.“ Þegar við komum út á markað- inn er hins vegar ekki að sjá nein veikindamerki á Adeline, því hún hellir sér yfir einn blómasalann og húðskammar hann fyrir verð á krönsum. Þegar maðurinn er í þann veginn að skreppa saman undir lestrinum, yfirgefur hún hann fussandi og snýr sér að næsta bás. Þar sér hún haust- lauka, líst vel á verðið og það er ekki sökum að spyija, verður ríf- andi skemmtileg við sölumanninn og opnar veskið upp á gátt. í 1 ! I 1 I l c [ í I i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.