Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ATVÍNIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 39 ATVINNU SÍM • SAMBAND ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA Framkvæmdastjóri Samband íslenskra myndlistarmanna auglýs- ir eftir framkvæmdastjóra í 80% starf. Umsækjandi þarf að vera vanur almennum skrifstofustörfum, tölvuvinnslu og bókhaldi. Nauðsynlegt er að hann hafi gott vald á ensku og einu norðurlandamáli. Óskað er eftir upplýsingum um aldur, mennt- un, fyrri störf og umsögnum. Umsókn berist skrifstofu SÍM, Þórsgötu 24, 101 Reykjavík, í síðasta lagi miðvikudaginn 8. desember nk. Upplýsingar veittar í síma 11346 kl. 10-14. Aðeins áhugasamur og sjálfstæður umsækj- andi kemur til greina. Stjórn SÍM. BORCARSPÍTAIIMN Uppeldisfulltrúi óskast að meðferðarheimili fyrir börn, Kleif- arvegi 15, í 100% starf frá og með 1. janúar 1994. Uppeldismenntun og reynsla áskilin. Spennandi og krefjandi starf. Upplýsingar veitir deildarstjóri í síma 812615. Sjúkraliðar Deild E - 63 sem er hjúkrunar- og endurhæf- ingardeild, staðsett í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg, vantar sjúkraliða frá 1. janúar 1994. Deildin er ætluð einstaklingum sem búa við margvíslega fötlun af völdum sjúkdóma og slysa og þarfnast langtímahjúkrunar. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Hvítaband, öldrunardeild sem er staðsett að Skólavörðustíg 37, vantar sjúkraliða frá 1. janúar 1994. Deildin er ætluð einstaklingum með alzheim- er sem þarfnast langtíma hjúkrunar. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kværridastjóri starfsmannaþjónustu í síma 696356. Hjúkrunarfræðingar Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á lyf- lækningadeild A - 6. A deildinni fer fram hjúkr- un sjúklinga með meltingar- og innkirtlasjúk- dóma, nýrnasjúkdóma og lungnasjúkdóma. Nánari upplýsingar veitir Margrét Björns- dóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 696354. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIP A AKUREYRI Aðstoðarlæknar Lausar eru til umsóknar tvær stöður aðstoð- arlækna við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri frá 1. janúar nk. Annars vegarer um að ræða stöðu aðstoðar- læknis á fæðingar- og kvensjúkdómadeild og hins vegar á bæklunar- og slysadeild. Vaktir eru fimm-skiptar. í framhaldi af ráðningartíma kæmu til greina störf á öðrum deildum sjúkrahússins. Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ákureyri er rekin fjölþætt starfsemi á handlækninga- og lyf- lækningasviði, auk mjög fullkominna stoð- deilda. Á FSA starfa um 450 manns og þar af eru stöður lækna 39. Markvisst hefur ver- ið unnið að því undanfarin misseri að bæta vinnuaðstöðu aðstoðarlækna. Nánari upplýsingar veita Geir Friðgeirsson, fræðslustjóri lækna, Júlíus Gestsson, yfir- læknir bæklunar- og slysadeildar og Kristján Baldvinsson, yfirlæknir fæðingar- og kven- sjúkdómadeildar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. MIPSTÖÐ FÓLKS í ATVINNULEIT Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870 880 Opið hús í Breiðholtskirkju, Mjódd, mónudaga kl. 12-15 og safnaðarheimili Dómkirkjunnar fimmtudaga kl. 12-15. Á DAGSKRÁ mánudaginn 6. desember kl. 13.30: Jónas Þórisson, framkv.stj. Hjálparstofnun- ar kirkjunnar, fjallar um innanlandsaðstoð og „matarbúr". - Hverjir eiga möguleika á úthlutun á matarpakka. Kaffiveitingar. Fundarstaður: Breiðholtskirkja, Mjódd, jarðhæð. Birgðahald Opinber aðili í verklegum framkvæmdum óskar að ráða fulltrúa í birgðadeild. Starfið: Umsjón birgðabókhalds, skrifstofu- störf, verkstjórn o.fl. Leitað er að sjálfstæðum, reglusömum og snyrtilegum aðila. Iðnmenntun æskileg og tölvukunnátta nauðsynleg. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Birgðahald" fyrir 11. desember nk. RÁÐGARÐURhf. STjÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688 Laust embætti er forseti ísiands veitir Embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar á íslandi er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. janúar 1994. Forstöðumaðurinn er jafnframt prófessor í heimspekideild Háskóla íslands með tak- markaðri kennsluskyldu, sbr. 4. gr. laga nr. 70/1972 um Stofnun Árna Magnússonar á íslandi. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík- isins. Umsækjendur um embættið skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísinda- störf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Menntamáiaráðuneytið, 2. desember 1993. Féiagsráðgjafi - félagsmálafulltrúi Auglýst er staða félagsráðgjafa og félags- málafulltrúa hjá Heilsugæslustöðinni á Húsa- vík og Húsavíkurkaupstað. Um er að ræða eina stöðu og skiptist verk- svið jafnt milli framangreindra starfa. Umsækjandi þarf að hafa menntun sem félagsráðgjafi og haldgóða þekkingu á skipu- lagningu fjármála. Starfið er laust frá næstkomandi áramótum. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 20. desember nk. Upplýsingar veita Sigurður Guðjónsson í síma 41333 og Einar Njálsson í síma 41222. Heilsugæslustöðin á Húsavík. Húsavíkurkaupstaður. Sálfræðingur Sálfræðingur óskast, sem ráðgjafi, að nýju meðferðarheimili fyrir börn á Geldingalæk á Rangárvöllum (án búsetu). Um er að ræða allt að 50% starf. Nánari upplýsingar fást í félagsmálaráðu- neyti í síma 609100 og hjá Ingva Hagalíns- syni í síma 98-75164. Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skilað til félagsmálaráðu- neytisins eigi síðar en 20. desember 1993. Efþú vilt kynnast menningu Evrópu- þjóða, víkka sjóndeildarhringinn og lœra eitthvað nýtt, þá bjóðum við ungu fólki á aldrinum 18-27 ára Au Pairdvöl íAusturriki, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Noregi og Þýskalandi. Au pair gefur ungu fójki tækifæri til þess að dvelja um lengri eða skemmri tíma í öðru landi, fyrst og fremst til að læra tungumálið og kynnast menningu annarra þjóða. Au pair býr hjá gistifjölskyldu á meðan á dvölinni stendur og aðstoðar við bamagæslu og létt heimilisstörf. Au pair þýðir til jafns við, þ.e. þú tekur þátt í daglegu lífi gistifjölskyldunnar semjafningi. Fjölskyldan aðstoðar þig við að aðlagast breyttum aðstæðum, vinnunni, náminu og hvemig hægt er að verja frítímanum. Fjölskyldan sér þér einnig fyrir fríu fæði og húsnæði ásamt vasapeningum og á móti hjálpar þú til við heimilis- störfm og gætir barnanna. Vinnutíminn er 30 tímar á viku 5-6 daga vikunnar. Miðað er við að þú getir sótt málaskóla í frítíma þínum og hafir næði til heimanáms. Evrópuráðið hefur sett reglur um réttindi og skyldur við au pair ráðningar. Allir samstarfsaðilar okkar í Evrópu fylgja þessum reglum. Á meðan þú dvelur ytra sem au pair er starfsfólkið alltaf tilbúið að hjálpa þér við að gera dvöl þína sem skemmtilegasta. Yfirleitt er hægt að útvega vist með skömmum fyrirvara þótt best sé að þú sækir um tímanlega, a.m.k. 2-3 mánuðum fyrir fyrirhugaða brottför. Flestar fjölskyldur óska eftir au pair á haustin, strax eftir áramót eða á sumrin. Umsækjendur mega ekki reykja. Þeir verða að hafa bílpróf og góða reynslu af bamagæslu. AuPAIR/VISTASKIPTI & NÁM hefur starfað frá árinu 1990 og hafa yfir 800 hundruð ungmenni dvalið löglega á okkar vegum við nám og bamagæslu í Evrópu og Banda- ríkjunum. Við leggjum metnað okkar í að veita góða þjónustu og búa þig sem best undir dvölina. Hringdu eða líttu við og við veitum þér allar nánari upplýsingar. Skrifstofan er opin virka daga frá 10:00 - 18:00. AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM ÞÓRSGATA 26 101 REYKJAVlK SlMI 91-62 23 62 FAX 91-62 96 62 SAMSTARFSFYRIRTÆKIAUPAIR HOMESTAY USA SEM TILHEYRIR SAMTÖKUNUM WORLD LEARNING INC. STOFNUÐ ÁRIÐ 1932 UNDIR NAFNINU THE U.S. EXPERIMENTININTERNATIONAL UVING. ÞAU ERU EIN AF ELSTU SAMTÖKUM A SVIÐIALÞJÖÐA MENNINGARSAMSKIPTA IHEIMINUM SEM EKKIERU REKINIHAGNAÐARSKYNI OG STARFA MEÐ LEYFI BANDARlSKRA STJÓRNVALDA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.