Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 5T eftir Elínu Pálmadóttur Tvíeggjuð skilaboð! Tvær nágrannaþjóðir okkar hafa að undanförnu verið í sjokki. Ungir drengir sakaðir um morð! eru fyrirsagnirnar í blöðum í Bretlandi og Frakklandi. í báð- um tilfellum er um að ræða börn, 9-10 ára drengi. Bresku dreng- imir tveir leiddu smábamið Ja- mes Bulger með sér úr stórmark- aðinum frá móður sinni, börðu hann til bana og hentu líkinu á jámbrautarteina. í Frakklandi gengu þrír drengir á sama aldri í skrokk á útigangsmanni, börðu hann til bana, földu og hentu í brunn daginn eftir. Við þetta hrökk fólk upp. Hvað er að ger- ast? Frönsku drengimir eru frá ósköp venjulegum heimilum, hin- ir frá erfíðari heimilisaðstæðum. Faðir annars bresku drengjanna í sífellu með myndbönd með of- beldi á skjánum. Vikum saman hefur verið fjallað um þetta í löndunum og spurt í blöðum og meðal almennings spurninga, sem sérfræðingar eiga erfítt með að svara. Hvemig getur barn orðið svona? Vissu þessir drengir hvað þeir vom að gera? Em svona ungir drengir ábyrgir gerða sinna? í Bretlandi eru 10 ára börn ábyrg og hafa drengirn- ir verið dæmdir í ævilanga inni- lokun. í Frakklandi em svo ung- ir drengir ekki ábyrgir fyrir dóm- stólum, hvað sem þeir gera. Hver þá? Þessi mál hafa komið eins og reiðarslag, svo óhugnanleg sem þau em. Þess fremur í Bret- landi að nýlega kveiktu unglings- stúlkur í og myrtu þriðju stúlk- una. Af öllum viðbrögðum má skynja hvílíkt áfall þessi atvik hafa orðið í þessum löndum. Fólk trúir ekki sínum eigin augum og eymm þegar í rétti og utan er lýst hvað gerðist og hvemig. Nei, þetta getur ekki gerst hér! Getur það gerst — jafnvel hér? Ofbeldi barna og unglinga hefur breyst, er orðið grófara, áverkar alvarlegri og grimmdin meiri, eins og kom fram í grein í blað- inu nýlega, þar sem reynt var að nálgast þetta mál. Það er ein- mitt það sama sem hefur verið að gerast í þessum löndum, þetta hefur læðst að sígandi og mark- visst, þegar litið er til baka. Merkin fara heldur ekki fram hjá neinum hér á landi. Ljóst að þetta er sama ferlið í samskonar um- hverfi. Vonin til að stöðva það ferli er kannski að veigra sér ekki við að ræða það og ijúfa það áður en barnið er dottið í brunninn. í samtali í greininni við Helgu Hannesdóttur geðlækni, sem undanfarin ár hefur unnið að rannsóknum á andlegu ástandi íslenskra barna og unglinga, bendir hún á að að ofbeldi, hvort sem það er innan heimilis eða utan, eigi sér aðdraganda og að nauðsynlegt sé að skilja hvers konar flækjur eða vandamál valdi því að ofbeldi brýst út. Ekki er hér svigrúm til að fara út í þær flækjur. Af gefnu tilefni hefur þó einn þráðurinn sótt á mig. Þar er talað um að tengja þurfí orsök og afleiðingu í meðferð mála. Og þá sérstaklega að unglingar sem hafa misþyrmt fólki fái ekki þau skilaboð að verknaðurinn hafí verið í lagi. Hlutirnir hafí tilhneigingu til að magnast frá atviki til atvika og endurtaka sig, slík hegðun gengur ekki til baka og læknast ekki af sjálfu sér. Af hvetju situr þetta atriði svona í mér umfram önnur um- mæli geðlæknisins? Og af hveiju er lítið atvik þá alltaf að koma upp í hugann. Það tengist atriði frá í sumar. Smádrengir hafa lagt það í vana sinn að kasta gtjóti í hitapott við sambýlishús. Þurfa til þess að klifra upp á mannhæðarháa trégirðingu sem er í þriggja metra íjarlægð eða meira frá pottinum. Hann er í notkun nokkra tíma virka daga. Þennan dag kom ég að honum með miklu gijóti á botni og síð- ustu hnullungssteinamir voru að lenda í vatninu, en kona var að sækja drengi sína í kvöldmatinn fyrir utan. Ég kallaði hvort það hafi verið þeir sem köstuðu grjót- inu og konan kvaðst hrædd um að svo hafí verið. Þá sagði ég við strákana að þetta væri ekki gott, því plastið brotnaði og hefði þegar þurft dýra viðgerð. Þá var það að þessi kurteisa elskulega unga kona sagði: Ég á nú bágt með að trúa því að svona litlir pollar geti kastað svo langt að þeir eyðileggi eitthvað! Kom, án þess að gera sér grein fyrir, skila- boðunum á framfæri við drengja- hópinn að þetta væri nú allt í lagi þótt þeir köstuðu gijóti í pottinn. Er það þá ekki allt í lagi? Það vekur svipaðar spumingar og nú heyrast eftir „slysin" erlendu. Er verknaðurinn viljandi og er hægt að leggja á ung börn að bera ábyrgð á afleiðingunum? í haust sat ég nefnilega eitt kvöld- ið þarna með höfuðið upp úr þegar stór hnullungur kom svíf- andi yfir háu girðinguna og lenti í vatninu rétt við mig. Þarna varð ekki „slys“ eða hvað sem má kalla það. Um slíka orðanotk- un er nú deilt í Bretlandi og Frakklandi. Að horfa á foreldra drengjanna þar á skjánum, spyij- andi sig hvort þau hefðu eitthvað getað gert til að forða drengjun- um sínum frá því sem henti þá, hvort þau hefðu ekki getað kom- ið þeim skilaboðum inn í vitund þeirra í tæka tíð að slíkur verkn aður sé ekki í lagi, varð til þess að ég ákvað að forðast ekki óþægindin ef vera kynni að eitt- hvert foreldri, þarna eða annars staðar, vildi fírra barnið sitt hugsanlegum vandræðum og koma á framfæri við það annars konar skilaboðum. Það er ekki í lagi að beija með spýtum eða kasta gijóti í manneskjur. Eða eins og geðlæknirinn sagði: Of- beldið á sér aðdraganda. Það er tími! Jólastjörnutilboð utn þessa helgi 1. flokks kr. 790,- Valdar kr. 490,- Einblóma kr. 250,- so% afsláttur af jólatréskúlum Opib frá kl. 9-21 alla daga Næg bílastæbi (bílastæbahúsib Bergstabir) Ekkert stöbumælagjald um helgar Sjón er sögu ríkari P.s. í tilefhi dugsins: Jólaöl og piparkökur blómaverkstæði ’INNAsfc SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SÍMI19090 Lvkill að Hótel Örk í boði eru 0 mismunandi lyklar HVUNlí|>AGS HELGAB 1 nótt (2 dagar) alla daga vikunnar kr. ll.OOO,- fyrir tvo. SPARI 1 2 nætur (3 dagar) ímiðriviku kr. 17.800,- fyrir tvo. 2 nætur (3 tlagar) fostud. til sunnud. kr. 21.800,- fyrir tvo. 4 nætur (5 dagar) ímiðri viku kr. 29-800,- fyrir tvo. Innifalið í lyklum: Gisting, morgunverður af lilaðborði og þríréttaður veislukvöldverður auk aðgangs að öllum þægindum hótelsins svo sem jarðguíúbaði, útisundlaug, heitum pottum, þrekæfingasal, tennisvelli, níu holu golfvelli o.fl. Einnig stendur til boða ýmis sérþjónusta svo scm snyrti- og hárgreiðslustofá, nuddstofa, hestaleiga, bflaleiga, stangveiði og margt fleira. Gjafalyklamir eru til sölu í Jólagjafahúsi okkar í Kringlunni, Borgarkringlunni eða í síma 98-34700 og þú færð lykilinn sendan heim. Sendum í póstkröfu. Visa - Euro raðgreiðslur Gjafalyklamir gilda allt árið 1994 > HÓTEL ÖDK HVERAGERÐl - SfMI 98-34700 - FAX 98-34775

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.