Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 Minning Falleg og gagnlegjólagjöf Sævar Bjamason Fæst hjá öllum bóksölum Ensk-íslensk orðabók 34.000 ensk uppflettiorð íslensk-ensk orðabók 35.000 íslensk uppflettiorð 2.200 blaðsíður Saman í fallegri gjafaöskju á aðeins kr. 3.990.— Gagnleg og glæsileg jólagjöf, sem nýtist vel í nútíð og framtíð Oröabókaútgáfan TOLATILB afungUald V _mr qf norway J arinngllak. , trpP NORWAY Sængur og koddar Quallofil sæng Hollofil sæng Heilsukoddi Hollofil koddi 8.835,- kr. stgr. 7.054,- kr. stgr. 2.779,- kr. stgr. 2.066,- kr. stgr. Hugsaðu hlýtt til þinna nánustu - Gefðu ajnngilak. Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 91-814670 ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 91-670100 Umboðsmenn um land allt Tœkifœri tíl að gefa einhverjum sem þér þykir vœnt um fallegar handprentaðar myndir þessi jól. Sissa og Svenni hafa unnið fyrir nokkur vinsælustu tímaiit íslands, s.s Heimsmynd, Tímaritið O og íorsíðuviðtal við Lindu og Les fyrir Mannlíf. Þau eru . einnig ljósmyndarar módelskrifstofunnar Wild og vinna með atvinnumódelum eða þeim sem vilja reyna að verða módet Handprentaðar myndir, förðun og stflesering. Öðruvísi bamamyndir. Bókanir í súna 622599- Sissa & Svenni * LJÓSMYNDASTUDIO sími 622599 Fæddur 5. desember 1979 Dáinn 12. nóvember 1993 Sævar Bjamason, einn af þeim ungu mönnum sem sett hafa svip sinn á bæjarlífið hér á Seltjarnar- nesi undanfarin ár er ekki með okkur lengur. Hann fæddist 5. desember 1979 og hefði því orðið fjórtán ára í dag ef honum hefði enst aldur til, en hann lést á bama- deild Landakotsspítala 12. nóvem- ber síðastliðinn. Ekki varð hjá því komist að taka eftir Sævari hvar sem hann fór, e.t.v. mest fyrir það að hann fór sinna ferða í hjólastól og hafði það ekki fyrir sið að læðast með veggj- um. Við sem áttum því láni að fagna að kynnast honum nánar minnumst hans hins vegar fyrir það hve mikill fjörkálfur hann var, hve mikill húmoristi og mikil gæða- sál og fyrir það hvað hann gat gefið okkur mikið þrátt fyrir sína erfiðu aðstöðu. Hann var tilfinn- ingaríkur, opinskár og glaðlyndur og þess vegna var ávallt gott að umgangast hann. Sævar átti sína drauma og þá ekki smáa. Fái þeir draumar að rætast þurfum við ekki að kvíða móttökunum sem við fáum þegar hann tekur á móti okkur einu af öðru þegar þar að kemur. Allt það góða sem Sævar gaf erum við þakklát fyrir og teljum okkur betra fólk eftir kynni okkar við hann og fjölskyldu hans. Það sem hann gaf okkur verður ekki frá okkur tekið og þannig heldur hann áfram að vera með okkur. Það er okkar að varðveita það og miðla því sem við lærðum af hon- um. Fráfall Sævars kennir okkur að lifa fyrir líðandi stund og að láta ekki smáatriði daglegs amsturs eyðileggja fyrir okkur og líka að meta meira návistir okkar við ást- vini því að enginn veit hver verður næst kallaður héðan. Elsku Ragna, Bjarni, Ragnar og Hrönn. Við biðjum góðan guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um og treystum því að minningin um góðan dreng verði ykkur ljós um ókominn tíma. Ykkar vinir, Guðrún, Jón Árni, Þórir Már, Helgi Hrafn og Unnur. Minning Guðrún Amadóttir Fædd 23. september 1915 Dáin 3. júni 1993 Mig langar að minnast Guðrún- ar Arnadóttur með fáeinum orðum. Hún var jarðsungin í kyrrþey að eigin ósk frá Fossvogskapellu á fögrum vordegi. Gunna frænka og Reykjavík bemsku minnar eru tengdar órjúf- andi böndum í minningu minni. Að fara til Gunnu frænku í Reykja- vík var ævintýri bemsku minnar. í Barmahlíðinni heyrðist mikill hávaði af bílaumferðinni á Miklu- braut. Hér var örugglega margt merkilegt að gerast hugsaði lítil telpa úr fámennum kaupstað að vestan. Það var eins og að dveljast í höll að dveljast hjá Gunnu frænku í Barmahlíðinni. Allt var svo fínt og fallegt, málverkin, flygillinn, já, bara allt. Dagurinn hófst við vel „dekkað“ morgunverðarborð og flett var í gegnum dagblöðin, sem komu á hveijum degi í gegnum bréfalúguna. Stundum var farið í bæinn á R-2626 og aldrei brást að komið var við í ísbúð á bakaleið. Seinna fór ég að líta Reykjavík öðmm augum. Ljóminn sem blind- aði telpuna hvarf, Reykjavík hvers- dagsleikans tók við. En það varð aldrei neitt hversdagslegt við Gunnu frænku. Það var alltaf há- tíð að hitta hana, hvort heldur var á heimili hennar, innan íjölskyld- unnár eða annars staðar. Ást á tónlist var henni í blóð borin. Píanó var hennar hljóðfæri og eftir góða píanótónleika var gaman að tala við Gunnu frænku. Þegar ég stund- aði píanónám fékk ég oft að æfa hjá henni. Reisn, fegurð og glæsileiki ein- kenndu Gunnu frænku. Björt hljómfögur röddin og smitandi gleði eru ógleymanleg. Ég mun ætíð minnast hennar með þakklæti og virðingu. Sigrún Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför móður minnar og stjúpmóður okkar, EMMU FINNBJARNARDÓTTUR hjúkrunarkonu. Sigríður Óskarsdóttir, Sæmundur Óskarsson, Guðfinna Óskarsdóttir, Magnus Öskarsson. Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður pkkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS ÞORVARÐSSONAR læknis. Jóhanna Elíasdóttir, Andrea Elísabet Kristjánsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Jón Friðgeir Einarsson, Bragi Kristjánsson, Bjarnfríður Árnadóttir, Sjöfn Kristjánsdóttir og barnaböm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.