Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 28
'28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 Setberg hefur gefið út nýja bók Þorsteins E. Jónssonar, flugmanns, og nefnist hún „Við- burðarík flugmannsævi". Hún er framhald bókarinnar „Dans- að í háloftunum“ sem kom út í fyrra, en þar sagði m.a. frá þjónustu hans í konunglega brezka flughernum. Nýja bókin segir frá því er Þorsteinn hóf störf hjá Flugfé- lagi Islands og fjölbreyttum ferli hans, m.a. í innanlands- og utanlandsflugi, flugi á Grænlandi, störfum í Kongó, Biafrastríðinu og loks störfum hans þjá Cargolux. Hér á eftir «*verður birtur hluti kafla úr bókinni og segir þar frá störf- um á Grænlandi. Kaflinn nefn- ist „Þegar Sólfaxi brann“: Það var í marzbyrjun árið 1961 að ég flaug Sólfaxa í fyrsta sinn til Grænlands til mánaðardval- ar við ískönnunarflugið. Við hófum flug frá Reykjavíkurflugvelli til Narsarsuaq með fulla vél af farþeg- um, og þeir urðu að gera sér það að góðu að á leiðinni var ráðgert að kanna ísinn. Stefna var tekin beint í vestur þar til komið var að hafísröndinni við austurströnd Grænlands og henni síðan fylgt suður og vestur fyrir Hvarf. Ég var "~'renn hálfönugur yfir að vera á leið til Narsarsuaq í stað Syðra-Straum- fjarðar eins og ég hafði sótzt eftir. Mér fannst ég vera hlunnfarinn — ég hefði átt að hafa forgangsrétt að vali vegna starfsaldurs hjá félag- inu. Ég var því vonsvikinn og ofur- lítið fúll. Bragi Norðdahl, aðstoðar- flugmaður minn í þessari ferð, hafði áður verið mánuð í ískönnunarflug- inu og reyndi nú að sannfæra mig um að það gæti verið afar skemmti- legt. Hann taldi að ég myndi fljót- lega fá áhuga á bæði starfínu og staðnum. Ég var vantrúaður. En nú gerðist atvik sem vakti áhuga minn á hlutverkinu, og gaf vísbendingu um að flugið gæti ver- ið skemmtilegra en ég hafði búizt við. Ég hefí ætíð haft gaman af öllu flugi sem er frábrugðið og meira örvandi en venjulegt, tilþrifa- lítið farþegaflug. Ef óvenjulegt flug var á boðstólum var ég fremsti maður í biðröðinni. Þegar við vorum komnir vestur fyrir Hvarf fengum við skeyti með fyrirmælum um að leita að kaupskipi, sem væri umlukt hafís vestur af bænum Nanortalik, og reyna síðan að vísa því stytztu leið út úr ísnum. „Skipherrann“ um borð hjá okkur, Asbjörn Starcke, sem jafnframt var yfirmaður Is- centralsins í Narsarsuaq, kunni vel til verka, og innan skamms fundum við rauðmálað skip í hvítri ísbreið- unni. Skammt fyrir norðan skipið var læna þar sem hafísinn var mun gisnari. Með því að fljúga nokkrum sinnum lágt yfir skipið í átt til læn- unnar gátum við gefið vísbendingu um hvert stefna bæri til að komast út úr ísnum, og eftir dálitla stund sáum við að skipið var að byija að ryðja sér braut á milli jakanna í rétta átt. Að þessu loknu tókum við stefnuna til Narsarsuaq og lent- um þar skömmu síðar. •5. Meira en fjögur ár voru liðin síð- an ég hefði stigið fæti á grýttan jarðveg Grænlands, og nú fór ein- hver annarleg tilfínning um mig; það var eins og ég væri kominn heim á ný eftir langa útivist. En þessi „heimkoma“ byijaði nú samt ekki alveg eins og ég hefði kosið. Strax á fyrsta degi gerði ég hálf- neyðarlegt axarskaft, sem raunar var ekki svo ýkja alvarlegt heldur gerði mig að athlægi. Eftir að hafa gengið frá flugvél- inni inni í upphituðu, og framúr- ■skarandi snyrtilegu, flugskýli danska flughersins, ókum við í Landrover okkar heim að íbúðar- blokkinni og komum okkur fyrir í herbergjunum sem skyldu vera heimili okkar næstu fjórar vikurn- ar. Farið var úr einkennisfötunum og þau hengd upp í klæðaskáp, því að þau yrðu ekki notuð aftur fyrr en flogið værr heim til íslands á Brot úr kafla úr bók Þorsteins E. Jónssonar flugmanns — Viðburðarík flugmannsævi Nýjasta myndin af Þorsteini E. Jónssyni tekin af Sigurgeiri Sig- urjónssyni. Ljósm: Snorri Snorrason. Sólfaxi á Ikateq-flugvelli á aust- urströnd Grænlands. Þegar Sólfaxi brann ný. Þegar ég hafði tekið upp úr tösku minni og gengið frá, tók ég tappann úr viskíflösku og hóaði í félaga mína til að koma og skála fyrir „heimkomunni". Ekki fengum við lengi að sitja einir að þessu. Heimamenn vissu svo sem mætavel hvar vænlegt var að næla sér í „en lille en til næsen“ (einn laufléttan), og létu ekki standa á sér að banka á dyr og bjóða okkur velkomna. Eins og ég hefi áður sagt, var lítið um slíkar guðaveigar á þessum slóðum, og íslendingar höfðu fengið orð á sig fyrir að vera ósínkir á dropann. Áður en varði var þarna samankominn álitlegur hópur karla og kvenna og tók áð færast fjör í leikinn, enda fuku fljótlega tappar úr fleiri flöskum. Týndi varasjóðurinn Klukkan sex var framreiddur kvöldmatur í messanum, og tóku menn sér nú hlé frá gleðskapnum til að fá sér bita. Ég beið þar til allir höfðu yfirgefið herbergi mitt og lokaði svo að mér, því að það sem ég ætlaði að gera varð að ger- ast í einrúmi. Þannig stóð nefnilega á, að flugstjórum var trúað fyrir 3000 dollara varasjóði til að standa undir óvæntum útgjöldum, og þetta var talsverð upphæð í þá daga. Þar eð ég átti von á að teitinu yrði haldið áfram í herberginu mínu eft- ir kvöldmat, og margt ókunnugt fólk yrði þar á ferðinni, fannst mér óráðlegt að láta umslagið með þess- um peningum liggja á glámbekk, og faldi það því vandlega. Eins og ég hafði búizt við varð úr þessu tölverður drykkjuskapur fram eftir kvöldi, og sjálfur varð ég ekki síður drukkinn en aðrir. Þegar ég vaknaði næsta morgun varð mér hugsað til peninganna, en mér létti þegar ég mundi eftir að ég hafði haft vit á að fela fjár- sjóðinn á meðan ég var enn með fullu ráði. Eftir morgunverð tók ég til við að hreinsa herbergið mitt, enda ekki vanþörf á; tómar flöskur, fullir öskubakkar og annað rusl út um allt. Ég hafði alveg steingleymt hvar dalirnir voru faldir, og hóf að leita þeirra. í fyrstu hafði ég litlar áhyggjur — þeir kæmu áreiðanlega fljótlega í ljós. En eftir að ég hafði leitað árangurslaust um stund fóru að koma á mig vöflur og ég herti leitina, en við sama sat — ég fann þá hvergi. Nú fór ég að hafa alvar- legar áhyggjur og fékk félaga mína í lið með mér. Við leituðum í hólf og gólf, hátt og lágt, á öllum mögu- legum og ómögulegum stöðum, en peningarnir fundust ekki. Það var ekki nokkur vafi á því að þeim hafði verið stolið. Ég fór á fund Barsteds, yfir- manns stöðvarinnar, og sagði hon- um frá málavöxtum. Hann sagðist lítið geta gert, því að varla væri hægt að yfirheyra þá sem hefðu haft viðkomu hjá mér um kvöldið, jafnvel þótt ég gæti borið kennsl á þá, sem væri ólíklegt. Hann sagðist myndu láta lögregluyfirvöld lands- ins vita af þessu, en annað gæti hann ekki aðhafzt. Þetta leiðinda- mál bar á góma á stöðinni fyrst um sinn en dagaði síðan uppi. En nú kemur að rúsínunni í pylsuendanum. Daginn sem við flugum heim, að dvöld okkar lok- inni, klæddist ég aftur í einkennis- búninginn. Þegar ég setti húfuna á höfuðið fannst mér hún vera eitt- hvað ankannaleg, og viti menn — undir fóðrinu í kollinum lá umslag- ið langþráða! Ég bar ekki höfuðið hátt þegar ég fór á fund Barsteds og sagði honum frá þessu. í öðrum kafla hefí ég sagt frá ýmsu því sem við höfðumst að til að stytta okkur stundir, og fer ég því ekki nánar út í-þá sálma. Næg- ir að segja að dvöl okkar þama í Narsarsuaq var bæði skemmtileg og viðburðarík, og það sama gilti um sjálft starfið. Þennan fyrsta mánuð sem ég dvaldi þar gerðist að vísu ekkert merkilegt, en samt varð ég nægilega gagntekinn til að snúa um hæl við heimkomuna til íslands og dvaldi áfram í Narsarsu- aq næsta mánuð. Engar tvær flugferðir voru eins, og oftast gerðist eitthvað áhuga- vert eins og til dæmis póstflug, skipaleit og leiðsögn. Innan skamms vorum við orðnir þaulkunn- ugir þessum íjörðum seni skárust djúpt inn í fjallgarða og jökla Suð- vestur-Grænlands. Við gátum fund- ið leiðir sem voru vandrataðar ókunnugum, og þetta gerði okkur kleift að athafna okkur í veðurskil- yrðum sem ella hefðu útilokað flug. Auðvitað kom það þó fyrir að flug- völlurinn lokaðist á okkur, og urð- um við þá að fara til Syðra-Straum- fjarðar til að bíða veðurs. Björgunin Morgun einn fengum við beiðni um að leita lítillar flugvélar sem hafði nauðlent einhvers staðar í nánd. Hér var á ferðinni þýzkur ferjuflugmaður að nafni Max Conrad sem þegar var orðinn vel þekktur í þeirri atvinnugrein. Hann var á flugi vestur um haf í lítilli einshreyfilsvél og, eins og hann sjálfur sagði síðar frá, þegar hann kom að suðurodda Grænlands var veðrið svo bjart ög íjallasýnin svo tilkomumikil, að hann ákvað að taka á sig ofurlítinn krók og fljúga spölkorn upp með vesturströndinni til að njóta útsýnisins. Ekki hafði hann flogið lengi þegar skyndilega kom mikill olíuleki úr hreyflinum. Hann sá sitt óvænna og tók stefnu á Narsarsuaq-ftugvöll í þeirri von að ná þangað áður en hreyfillinn stöðvaðist. Jafnframt sendi hann út neyðarkall á hátíðnibylgjunni, sem loftskeytastöðin í Julianehaab (nú Qaqortoq) heyrði. Sagði hann frá olíulekanum, og að hann myndi reyna að lenda á jökli ef hann næði ekki til flugvallarins, en ekki gaf hann upp nánari staðsetningu. Eft- ir þetta heyrðist ekki meira til hans þótt loftskeytastöðin kallaði á hann í sífellu. Loftskeytastöðin lét þessar upplýsingar ganga til flugumferð- arstjórans í Narsarsuaq, og vorum við, áhöfn Sólfaxa, og danski flug- herinn beðnir að taka flugvélar okkar út úr flugskýlinu og vera til taks til að hefja leit ef þess gerðist þörf. Bæði flugumferðarstjórn og loft- skeytastöðin héldu áfram að kalla á flugmanninn, en ekkert meira heyrðist til hans, og þegar einsýnt var að hann gæti ekki lengur verið á flugi vorum við sendir í loftið. Þetta var um tíuleytið að morgni, og veðrið var hið ákjósanlegasta til leitarflugs — logn og heiðskírt. Conrad hafði ekki gefið upp neina staðsetningu, en sennilegast þótti að hann hefði nauðlent einhvers staðar fyrir vestan eða suðvestan Narsarsuaq. Var um gríðarlega stórt og vandleitað svæði að ræða — fírðir, eyjar, ljallgarðar og jökl- ar. Við á Sólfaxa og Katalínuflug- bátur frá flughernum kemdum þetta svæði allan liðlangan daginn. Við flugum upp og niður fjöll og skriðjökla, inn og út um firði, hringi í kringum eyjar en urðum einskis vísari. Flugvélin virtist hreinlega hafa gufað upp. Sólin var komin lágt á vesturhimni þegar við flugum enn einu sinni yfir jökulsporð sem skríður niður í vík í Breiðafirði, næsta firði fyrir norðan Eirkíksijörð þar sem flugvöllurinn er. Þetta var líklega í þriðja eða íjórða skipti þennan dag, sem við flugum, í mis- munandi hæðum, yfír þennan skrið- jökul. Á jaðri hans, eins og svo víða við slíka jökulsporða, var mikið af stórgrýti, sem stóð upp úr hvítri breiðunni, og höfðum við ekki séð neitt athugavert þar í fyrri yfirferð- um. En í þetta sinn, um leið og jökulsporðurinn hvarf undir væng flugvélarinnar, fékk ég bakþanka. Eitthvað hafði vakið athygli mína. Gat verið að einn af þessum svörtu klettum hefði verið eitthvað ank- annalegur í laginu? Það var bezt að athuga þetta nánar, svo að ég skellti flugvélinni upp á rönd til þess að geta skoðað jökulinn einu sinni enn áður en hann hyrfí aftur fyrir okkur. Allt þetta gerðist á miklu skemmri tíma en það tekur að segja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.