Morgunblaðið - 05.12.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
Skaddaður
SKADDAÐ andlit McLeods verður tilefni alls kyns
gróusagna um fortíð hans.
lega blind á þörf hans fyrir
athygli verður skyndilega
heiftúðug og ásakandi í garð
McLeods og krefst þess að
hann komi ekki nærri syni
hennar. Chuck verður
felmtri sleginn við þessi við-
brögð og McLeod verður
ævareiður. Mikil móðursýki
grípur um sig meðal
þorpsbúa og áður en Chuck
fær áttað sig á því hefur
þetta sumar vináttu og upp-
fræðslu skyndilega verið
málað mun dekkri litum af
illgjörnum tungum. Hann
verður því að segja skilið við
læriföður sinn fyrir fullt og
allt, en þó ekki fyrr en hon-
um hefur tekist að undirbúa
sig fyrir inntökuprófið og þar
með taka fyrstu skrefin í átt
til fullorðinsáranna. Og
McLeod, andlitslausi maður-
inn, hefur lært að lifa í sátt
við fortíð sína og líta með
skilningi á ótta fólks við það
sem það ekki skilur, en jafn-
framt kann hann vel að
meta þann styrk sem raun-
veruleg vinátta hefur á ný
fært inn í líf hans.
KVIKMYNDIR/REGNBQGINN og Borgarbíó á Akureyri frumsýnir á næstunni kvikmynd-
ina Andlitslausi maðurinn, „The Man Without a Facetc, með Mel Gibson í aðalhlutverki.
Þetta er jafnframt fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir og hefur hann hvarvetna hlotið
mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína beggja vegna myndavélarinnar.
Fastur í sessi
HINN ástralski Mel Gibson er kominn í þá öfundsverðu
aðstöðu að vera einn fárra kvikmyndaleikara í Hoily-
wood sem eru algjörlega sjálfráðir um hvaða hlutverk
þeir taka að sér. Hvorki valdamiklir framleiðendur né
forsU'órar kvikmyndavera geta sagt honum fyrir verk-
um. Þeir eru þvert á móti himinlifandi samþykki hann
að taka að sér hlutverk í myndum þeirra, jafnvel þótt
greiða þurfi honum að lágmarki tíu milljónir dollara
fyrir viðvikið, því þær myndir sem hann leikur í eru
nánast alltaf öruggar með að skila tugmilljóna dollara
gróða til framleiðendanna. Gibson hefur hins vegar ekki
látið peningagræðgi hlaupa með sig í gönur, heldur
hefur hann sett takmarkið hátt og sífellt leitast við að
sanna sig sem iistamaður í hæsta gæðaflokki.
Eftir að hafa öðlast miklar
vinsældir um allan heim fyrir
kvikmyndaleik kom að því
að Gibson vildi spreyta sig
sem framleiðandi og leik-
stjóri. í þessum tilgangi
stofnaði hann sitt eigið fyr-
irtæki, Icon, ásamt umboðs-
manni sínum, og þegar hand-
ritið að Andlitslausa mannin-
um, sem gert er eftir skáld-
sögu Isabelle Holland, rak á
fjörur þeirra félaga ákvað
hann að slá til. Hann ætlaði
sér þó alls ekki að leika sjálf-
ur í kvikmyndinni og því
sendi hann handritið til
þriggja leikara sem hann
taldi ákjósanlega í hlutverk
andlitslausa mannsins, en
sögusagnir herma að William
Hurt hafi verið einn þeirra.
Þeir voru hins vegar ekki til-
búnir í slaginn, annaðhvort
vegna þess að þeir voru upp-
teknir við önnur verkefni eða
þá að þeir tóku ekki áhætt-
una á að vera með í frum-
raun Gibsons sem leikstjóra.
Að eigin sögn horfðist hann
því sem framleiðandi í augu
við sjálfan sig í spegli og
samdi um að hann tæki að
sér hlutverkið gegn lægri
greiðslu en hann er vanur
að taka.
Frammistaða Gibsons í
kvikmyndinni, bæði fyrir
framan og aftan myndavél-
ina, hefur hvarvetna hlotið
mikið lof gagnrýnenda og
þar sem myndin hefur verið
tekin til sýninga hefur að-
sókn að henni verið geysi-
góð. Þykir hann á vissan
hátt hafa skipað sér á bekk
með þeim Robert Redford og
Clint Eastwood og tryggt
framtíð sína í kvikmyndum
jafnvel þótt stjama hans sem
kvikmyndaleikara kunni að
falla einhvem tíma í framtíð-
inni. Þá spillir það ekki fyrir
velgengni myndarinnar að
Nick Stahl sýnir sannkallað-
an stjömuleik í hlutverki
unga drengsins, en þetta er
frumraun hans í kvikmynda-
leik og þykir ljóst að þarna
er á ferðinni efni í afbragðs-
leikara.
Glæstur ferill
Eftir að hafa lokið prófi
frá menntaskóla í Ástralíu
innritaðist Gibson í ríkisleik-
listarskólann í Sydney, og
skömmu eftir að hann lauk
prófi þaðan fékk hann hlut-
verk í kvikmyndinni „Mad
Max“ sem á svipstundu gerði
hann að stórstjömu. Þrátt
fyrir þessa velgengni innrit-
aðist hann á nýjan leik í ríkis-
leiklistarskólann til frekara
náms og einnig til að afla
sér reynslu sem sviðsleikari.
Hann lék um skeið með ríkis-
leikhúsi S-Ástralíu og hlaut
mikið Iof fyrir frammistöðu
sína á leiksviðinu. En Gibson
sneri sér fljótlega að kvik-
myndaleik að nýju og fyrir
hlutverk sitt í „Tim“ hlaut
hann verðlaun áströlsku
kvikmyndastofnunarinnar
sem besti leikari í aðalhlut-
verki. Næst lék hann í stríðs-
myndunum „Attack Force
Z“ og „Gallipoli", en fyrir
hlutverk sitt í henni hlaut
hann aftur verðlaun ástr-
ölsku kvikmyndastofnunar-
innar. Persónan sem hann
lék í „Mad Max“ öðlaðist svo
líf á nýjan Ieik í myndinni
„The Road Warrior“ (1982)
og aftur í „Mad Max Beyond
the Thunderdome" (1986). í
Leiðbeinandinn
MEL Gibson leiðbeinir hinum efnilega Nick Stahl við tökur á Andlitslausa manninum.
millitíðinni lék hann í „The
Year of Living Dangerously"
á móti Sigoumey Weaver og
í „The Bounty" þar sem hann
fór með hlutverk Fletchers
Christians. Fyrsta kvik-
myndin sem Gibson lék í í
Bandaríkjunum var „The Ri-
ver“, en árið 1987 lék hann
svo í fyrstu „Leathal Weap-
on“-myndinni af þremur sem
áttu eftir að festa hann end-
anlega í sessi sem eina helstu
stórstjömu hvíta tjaldsins. Á
milli þess sem hann lék í
þeim myndum lék hann í
„Tequila Sunrise", „Bird On
a Wire“ og „Air America“, <MíAmandÍllIl
en síðast sást hann á hvíta ölJUI UdllUllUl
tjaldinu í myndinni „Forever GIBSON kíkir í myndavélina við tökur á fyrstu mynd-
Young". inni sem hann leikstýrir.
Vináttusamband
veldur tortryggni
REGNBOGINN og Borgarbló á Akureyri tekur á næst-
unni til sýninga fyrstu kvikmyndina sem stórstjaman
Mel Gibson leikstýrir, en hún fjallar um vináttusamband
sem tekst á milli tólf ára drengs og manns sem beijast
þarf við skugga fortíðar sinnar. Þetta er dramatísk mynd
sem fléttar saman sögu um það hvemig yfírvinna má
einmanaleika og stíga fyrstu skref fullorðinsáranna, en
um er að ræða minningar drengsins um einstakt sumar
þegar gagnkvæmur skilningur, vinátta og hvatning verð-
ur til þess að straumhvörf verða í lífi þeirra beggja.
í augum íbúa Cranesport
í Mainefylki í Bandaríkjunum
hefur Justin McLeod (Mel
Gibson) verið utanveltumað-
ur alla tíð síðan hann fluttist
í þetta friðsæla sjávarþorp.
í sjö ár hefur hið skaddaða
andlit hans og dulúðin sem
fortíð hans er sveipuð orðið
tilefni kjaftagangs og hæðni
þorpsbúa, en í gangi eru sög-
ur um hryllilegt umferðarslys '
sem hann lenti í, nemanda
hans sem þá lét lífíð og
glæsilegan kennaraferil sem
tók skyndilega endi. McLeod
hefur hins vegar tilneyddur
lært að lifa með líkamslýti
sitt í einsemd á heimili sínu
innan um bækur og málverk.
Hinn tólf ára gamli Chuek
Norstadt (Nick Stahl) er
einnig utanveltu, en þó fyrst
og fremst innan ijolskyldu
sinnar. Hann býr hjá yfir-
borðslegri og daðurgjami
móður sinni sem er í þann
veg að krækja í fímmta eig-
inmann sinn, og tveimur
hálfsystrum sínum. Chuck á
aðeins óljósar minningar um
látinn föður sinn sem hvarf
honum þegar hann var enn
smábam. Óvissan varðandi
hvarf föður síns og sú tilfínn-
ing að hann sé óvelkominn í
eigin fjölskyldu hafa gert
Chuck fjarrænan og í eilífri
vamarstöðu á ytra borðinu
en innra með honum býr
mikil óhamingja. Hann er
staðráðinn í því að skapa sér
hlutverk í lífínu þar sem hann
þarf ekki að standa í sam-
keppni við systur sínar, og
hyggst hann eyða sumrinu í
Cranesport til að undirbúa
sig undir inntökupróf í
heimavistarskóla sem faðir
hans hafði verið nemandi í.
Hann hefur þegar fallið á
prófinu einu sinni og þess
vegna snýr hann sér til
McLeods í leit að aðstoð við
námið.
Eftir því sem líður á sum-
arið læra bæði Chuck og
McLeod meira en þeir höfðu
vænst í upphafí. Vinátta
þeirra sem reyndar var ekki
hnökralaus í upphafi þróast
í einlæg og falslaus skoðana-
Námfús
CHUCK leggur sig fram við námið eftir nokkra
árekstra við kennara sinn.
skipti sem báðum reynast
gagnleg og varpa nýju og
mikilvægu ljósi á líf þeirra.
Chuck uppgötvar námshæfni
sína og greind, traust og
umburðarlyndi, en McLeod
uppgötvar á nýjan leik hæfi-
leikann til að tengjast ann-
arri manneskju og jafnframt
ánægjuna og spennuna sem
fýlgir því að vera í kennara-
hlutverki.
En þorpsbúar sem vanir
eru að sjóða saman og leggja
trúnað á alls kyns sögusagn-
ir um McLeod fýllast tor-
tryggni í garð mannsins sem
þeir bæði óttast og skilja með
engu móti þegar það verður
öllum ljóst að hann hefur
tekið að sér að kenna Chuck.
Einangraður
MCLEOD býr í einsemd á
heimili sinu innan um
bækur og málverk.
Móðir drengsins sem árum
saman hefur verið gjörsam-