Morgunblaðið - 05.12.1993, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
ATVIN N \3AUGL YSINGA R
I
3
Laus staða
Staða aðstoðarmanns framkvæmdastjóra
flugvalladeildar hjá Flugmálastjórn er laus til
umsóknar.
Starfið felst í umsjón og eftirliti með rekstri
flugvalla, viðhaldi tækja og mannvirkja, gerð
rekstraráætlana, söfnun tölfræðilegra upp-
lýsinga o.fl. Nánari upplýsingar um starfið
veitir starfsmannastjóri Flugmálastjórnar í
síma 694100.
Óskað er eftir að umsækjendur hafi háskóla-
próf á sviði rekstrartækni eða sambærilega
menntun, reynslu af stjórnunarstörfum, gott
vald á íslensku, ensku og einu norðurlanda-
máli. Laun samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 31. desember 1993.
Reykjavík, 2. desember 1993.
Samgönguráðuneytið.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Skurðhjúkrunar-
fræðingur
Staða skurðhjúkrunarfræðings er laus til
umsóknar á skurð- og slysadeild FSÍ.
Um er að ræða almenna skurð- og slysahjúkr-
un, auk móttöku á göngudeild og gæsluvakta.
FSÍ er nýtt og mjög vel búið almennt sjúkrahús með starfsemi í
örum vexti. Starfsaðstaða er til fyrirmyndar. Byggingarframkvæmdir
standa enn yfir og er ráðgert að Ijúka innréttingu 25 rúma legudeild-
ar á næsta ári.
Á skurðdeild hafa kviðarholsspeglanir fengið aukið vægi með sk.
„hnappagataaögerðum" um kviðsjá. Þá hafa aðrar speglanir einnig
verið videóvæddar. Góður starfsandi er á FSl og góð fagleg sam-
vinna einkennir starfsemina. Tekið skal fram, að reykingar eru ekki
leyfðar inanhúss á FSÍ.
Isafjörður er höfuðstaður Vestfjarða og miðstöð menningar, mennta
og samgangna. Þar er rekiö öflugt tómstunda- og félagslíf við flestra
hæfi. Skíðalandið og aðstaða fyrir skíðafólk er ein hin besta á land-
inu, þar er góður 9 holu golfvöllur og stutt í ósnortna náttúruna,
m.a. Hornstrandir.
Skurðhjúkrunarfræðingar eru hvattir til að láta
í sér heyra og afla sér nánari upplýsinga hjá
hjúkrunarforstjóra, Herði Högnasyni, eða
deildarstjóra skurðdeildar, Helgu Sigurgeirs-
dóttur, í síma 94-4500 á dagvinnutíma eða
heimasímum 94-4228, eða 94-3249 álkvöldin.
FORLAGIÐ
Aðalritstjóri
Bókaútgáfan FORLAGIÐ óskar eftir að ráða
aðalritstjóra til starfa.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla-
menntun í íslensku og víðtæka þekkingu á
bókmenntum.
Starfið er aðallega fólgið í því að búa útgáfu-
efni til prentunar í nánu samstarfi við höf-
unda, þýðendur, útlitshönnuði og prent-
smiðjur, búa bækur til útgáfu í erlent sam-
prent og semja kynningarefni.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun, reynslu og fyrri störf, sendist til
Jóhanns Páls Valdimarssonar, Forlaginu,
pósthólf 786, 121 Reykjavík, fyrir
10. desember nk.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf
í janúar 1994.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIP
A AKUREYRI
70% staða
sérfræðings
í háls-, nef- og eyrnalækningum við
HNE-deild FSA
er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 1994.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra
sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Sveinsson,
yfirlæknir, í síma 96-30100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Fóstra
Fóstra óskast til starfa í leikskólann á Siglu-
firði. Leikskólinn er þriggja deilda og er í
nýju glæsilegu húsnæði sem tekið var í notk-
un sl. haust. í leikskólanum starfa nú fjórar
fóstrur og einn þroskaþjálfi auk annars
starfsfólks.
Á Siglufirði er góð tómstunda- og íþróttaað-
staða. Þar eru m.a. nýlegt íþróttahús, eitt
besta skíðasvæði landsins, öflugur tónlistar-
skóli auk mjög fjölbreytts mannlífs.
Siglufjarðarkaupstaður greiðir flutnings-
kostnað og útvegar húsnæði.
Allar upplýsingar um starfið veitir leikskóla-
stjóri í síma 96-71359 á daginn og 96-71996
á kvöldin.
Leikskálar Siglufirði.
Áhugavert starf
hjá Gulu línunni
Sífellt fleiri leita upplýsinga hjá Gulu línunni.
Því óskum við eftir að ráða starfskraft í svörun.
Starfið felst í að svara fyrirspurnum um vör-
ur, þjónustu og umboð.
Viðkomandi þarf að vera á aldrinum 20-35
ára, hafa stúdentspróf og góða íslensku- og
vélritunarkunnáttu.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafa góða
yfirsýn, áhuga og þekkingu á vörum og við-
skiptum. Mikil áhersla er lögð á vandaða
framkomu, þolinmæði og þjónustulund.
Vinsamlegast leggið inn umsóknir á auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins merktar:
„BE - 3875“ fyrir föstudaginn 10. desember.
62*62*62
Einar J. Skúlason hf.
Hugbúnaðarsvið EJS óskar eftir að ráða
starfsmenn til hugbúnaðarstarfa.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í tölv-
unarfræði eða sambærilega menntun.
Krafist er a.m.k. tveggja ára reynslu við
smíði Oracle gagnagrunnskerfa.
Umsækjendur skulu hafa góða kunnáttu í
einu norðurlandamáli og ensku eða frönsku.
Þeir verða að geta unnið sjálfstætt jafnt sem
með hóp. Þeir mega búast við að þurfa að
vinna erlendis um lengri eða skemmri tíma.
Upplýsingar um starfið veitir Olgeir Kristjóns-
son, framkvæmdastjóri.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „EJS - 13055“ eða til EJS hf.,
Grensásvegi 10 fyrir 10. desember nk.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
TOLVUDEILD
Tölvunarfræðingur/kerfisfræðingur
Tölvunarfræðingur eða starfsmaður með
sambærilega menntun óskast til starfa við
tölvudeild Ríkisspítala frá 1. janúar 1994.
Upplýsingar gefur Gunnar Ingimundarson,
yfirverkfræðingur, í síma 602380.
HANDLÆKNINGADEILDIR
Hjúkrunarfræðingar
Lausar verða tvær stöður hjúkrunarfræðinga
frá áramótum og tvær frá 1. mars 1994 á
handlækningadeild 3, 11-G.
Handlækningadeild 3 er brjóstholsaðgerða-
deild, sem er í örri þróun m.a. vegna fjölgun-
ar hjartaaðgerða hér á landi. Byrjað var með
einstaklingshæfða hjúkrun um miðjan sept-
ember sl.
Haldin verða námskeið fyrir fyrir nýtt starfs-
fólk í hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga í
mars, sem felur m.a. í sér markvissa aðlögun
með leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Jafnframt eru fyrirlestrar einn eftirmiðdag í
viku, í 6 vikur.
Nánari upplýsingar veita Steinunn Ingvars-
dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601340
og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601300.
Læknaritari
Starf læknaritara við handlækningadeild
Landspítalans er laust til umsóknar.
Um er að ræða afleysingastöðu í 3 mánuði
frá 1. desember nk. 100% staða, vinnutími
frá kl. 8-16.
Frekari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 601332.
BARNASPÍTALI HRINGSINS
Hjúkrunarfræðingar
Afleysingar vegna námsleyfa. Frá áramótum
vantar nokkra hjúkrunarfræðinga á barna-
deildir. Stöðurnar eru afleysingastöður í eitt
ár vegna námsleyfa. Ennfremur eru lausar
fastar stöður á barnadeild 3, 13-E, sem er
13 rúma handlækningadeild fyrir börn á aldr-
inum 2-16 ára og á vökudeild gjörgæslu
nýbura. Allar deildir bjóða góða og markvissa
aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Semja má um ráðningartíma og starfshlutfall.
Upplýsingar veita Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601000/
601033, Ragnheiður Sigurðardóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri vökudeiidar, sími 601040 og
Anna Ólafía Sigurðardóttir, hjúkrunardeildar-
stjóri 13-E, í síma 601030.
SKURÐDEILD LANDSPITALANS
Hjúkrunarfræðingar
Vegna aukinnar starfsemi skurðdeildar Land-
spítalans getum við boðið hjúkrunarfræðing-
um þjálfun í skurðhjúkrun frá og með 1. jan-
úar nk. Ennfremur er laus staða skurðhjúkr-
unarfræðings. Starfsemi deildarinnar er í
örum vexti og ákaflega fjölbreytt.
Upplýsingar veita Svala Jónsdóttir, hjúkrun-
arstjóri, í síma 601319 og Anna Stefánsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601366.
RÍKISSPÍT ALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.