Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 52
Verið tímantega
með jélapóstinn
-jaggC- PÓSTUR OG SÍMI
MORGVNBLADJD, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆJJ 85
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
V estmannaeyjar
Dregið af
kauptrygg-
ingu sjó-
manns til
kvótakaupa
Frá Grími Gíslasyni fréttaritara Morgun-
blaðsins í Vestmannaeyjum.
KVÓTABRASKIÐ burt, var yfir-
skrift fundar sem stéttarfélög
sjómanna í Eyjum gengust fyrir
á föstudaginn. Á fundinum, sem
um 80 manns sátu, kom fram
mikil andstaða við kvótakerfið
og þátttöku sjómanna í kvóta-
4nkaupum.
Elías Björnsson, formaður Jöt-
uns, tók dæmi um þátttöku sjó-
manna í kvótakaupum og sagði að
jafnvel þó að hlutur næði ekki
tryggingu þá væri dreginn af sjó-
mönnum kostnaður vegna kvóta-
kaupa. „Einn sjómaður kom til mín
um daginn með uppgjör sem hljóð-
aði upp á lægri upphæð fyrir 30
dagana en kauptryggingin var því
útgerðarmaðurinn þurfti að ná upp
í kvótakaup."
í Morgunblaðinu í dag eru viðtöl
við fjóra sjómenn sem lýsa reynslu
sinni af þátttöku í kvótakaupum
útgerða og þeim afleiðingum að
neita að taka þátt í kaupunum.
Sjá bls. 10 og 11.
----♦ ♦ ♦
Eldvarnaræfing
Skemmd-
ir urðu á
íbúðarhúsi
IsafjBrður
SKEMMDIR urðu á íbúðarhúsi
af völdum hita og reyks, þegar
slökkviliðið brenndi gamalt
íbúðarhús, Fjarðarstræti 21, í
æfingaskuyni í gærmorgun.
Hægur vestan andvari var þegar
kveikt var í húsinu en síðar snerist
í norðaustan. Þegar slökkvistarfið
hófst bilaði aðaldæla liðsins og
vegna öldugangs í fjörunni rétt við
brunastaðinn þurfti að leggja lagnir
þvert yfir eyringa inn á Poll til að
^fá vatn. Reynt var að kæla ná-
- grannahúsið niður og til stóð að
setja á það hlífðarteppi, en horfið
var frá því, og tókst að koma í veg
fyrir meiri háttar skemmdir.
Úlfar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Borað verði 400 metra
STARFSMENN Jarðborana hf. hafa sl. tíu daga unnið að gerð borholu við sunnanverðan Hvalfjörð vegna fyrirhugaðra jarðganga.
Nota þeir einn bor við verkið sem fer skáhallt niður 400 metra langt. Myndin var tekin af bormönnum við vinnu sína í gærmorgun.
Borað vegna Hvalfjarðarganga
STARFSMENN Jarðborana hf. eru þessa
dagana að bora svokallaða kjarnaholu milli
Saurbæjar og Hjarðamess við sunnanverðan
Hvalfjörð vegna fyrirhugaðra Hvalfjarðar-
ganga. Stendur Spölur hf. fyrir framkvæmd-
unum en tilgangurinn er að kanna jarðlög
og taka sýni úr berginu sem á að rannsaka
með tilliti til jarðgangagerðar undir fjörðinn.
Boruð er hola á ská undir fjörðinn. Er hún
í fyrstu með þrjátíu gráðu halla en er dýpra
kemur verður hallinn minnkaður í þrepum niður
í sex gráður. Holunni er ætlað að veita upplýs-
ingar um vatnsleiðni bergsins og aðrar tæknileg-
ar upplýsingar.
Að sögn Gylfa Þórðarsonar, stjórnarformanns
Spalar hf., verður borholan væntanlega 400
metrar að lengd undir fjörðinn. Borun hófst
fyrir 10 dögum en gekk nokkuð brösulega í
fyrstu vegna veðurs, m.a. fauk vinnuskúr þeirra
niður í fjöru, en vinnan hefur gengið ágætlega
að undanfömu. Er gert ráð fyrir að verkið
muni standa fram undir jól.
Gylfi sagði að ákveðið hefði verið að bora á
þessum stað vegna þess að bergið væri lausara
í sér við sunnanverðan fjörðinn.
Ríkisstjómin samþykkti sl. sumar að ríkis-
sjóður veitti 50 millj. kr. lán til að fjármagna
jarðlagarannsóknir vegna undirbúnings við gerð
Hvalfjarðarganga. Ágúst Guðmundsson jarð-
fræðingur hefur eftirlit með boruninni.
Útboð undirbúið
Síðastliðinn fimmtudag voru staddir hér á
landi fjármálaráðgjafar frá japönskum banka,
sem er meðal þátttakenda í fjármögnun fram-
kvæmdanna. Sóttu þeir fund hér með tæknileg-
um ráðgjöfum til að leggja gmndvöll að gerð
útboða, sem eiga að fara fram fyrir lok febrúar
á næsta ári. Stefnt er að því að framkvæmdir
við gerð jarðganganna geti hafíst síðla næsta
sumar. Sagði Gylfí einnig að nú lægju fyrir
niðurstöður úr hljóðbylgjumælingum sem gerðar
voru í sumar og sagði hann að þær staðfestu
í megindráttum fyrri niðurstöður.
Rekstrarbati hjá Flugleiðum fyrstu níu mánuði ársins
Afkoman fyrir skatta
batnaði um 100 millj.
AFKOMA Flugleiða fyrstu níu mánuði ársins varð talsvert betri en
á sama tíma í fyrra samkvæmt milliuppgjöri félagsins. Nam hagnað-
ur fyrir tekju- og eignarskatta um 224 milljónum og jókst um 100
milljónir miðað við sama tímabil í fyrra. Endanlegur hagnaður Flug-
leiða fyrstu níu mánuði ársins'varð alls hins vegar 404 milljónir króna
samanborið við 39 milljóna hagnað á sama timabili i fyrra. I þessari
hækkun vegur þungt 180 milljóna lækkun á tekjuskattsskuldbindingu.
Að sögn Sigurðar Helgasonar,
forstjóra Flugleiða, var afkoman
fyrstu níu mánuðina betri en áætl-
anir höfðu gert ráð fyrir. Með auk-
inni starfsemi hafa rekstrartekjur
félagsins aukist um 6% milli ára
meðan rekstrargjöld hafa aðeins
hækkað um 4,7%.
Greiðslustaða Flugleiða var góð
eftir fyrstu níu mánuði ársins og
átti félagið 1.542 milljónir í banka-
innstæðum samanborið við 1.368
milljónir á sama tíma í fyrra.
Fleiri farþegar - verri nýting
Sætaframboð á árinu er um 8%
meira en í fyrra. Frá júní til loka
septembermánaðar voru fluttir
tæplega 18 þúsund farþegar á þess-
ari flugleið. Til viðbótar fóru 10
þúsund farþegar milli íslands pg
Hamborgar með viðkomu í Kaup-
mannahöfn. Þá hefur framboðið
verið aukið í Norður-Atlantshafs-
fluginu með flugi til Fort Lauder-
dale í Flórída. Fyrstu níu mánuði
ársins voru fluttir 5,1% fleiri far-
þegar í millilandaflugi en á sama
tíma í fyrra en farþegar í innan-
landsflugi voru 2,1% færri en í
fyrra. Sætanýting er hins vegar
heldur lakari fyrstu níu mánuðina
en á sama tímabili í fyrra. Þannig
var hún 74% í Norður-Atlantshafs-
fluginu og 62% í Evrópuflugi sem
er um 1% lakari nýting en í fyrra.
Sömuleiðis lækkaði sætanýting í
innanlandsfluginu úr um 61% í 59%
milli ára.
Búist er við að um 150 milljóna
tap verði af innanlandsfluginu á
þessu ári. Eigið fé Flugleiða var
alls um 4,5 milljarðar króna eftir
fyrstu níu mánuði ársins samanbor-
ið við 4,3 milljarða eftir sama tíma-
bil í fyrra.
Morgunblaðið/Kristinn
Verkamenn
féllu 8-10 m
með krana
TVEIR menn voru fluttir á slysa-
deild eftir að þeir féllu 8 til 10 m
með bómu byggingarkrana við
Eggertsgötu 18 í gærmorgun.
Mennirnir eru ekki lífshættulega
slasaðir.
Tvímenningarnir, starfsmenn KS
verktaka, voru að taka krananna
niður þegar hluti bómu með þeim
féll til jarðar, 8-10 m.
Læknir á slysadeild sagði að menn-
irnir væru ekki lífshættulega slasað-
ir en komið væri í ljós að annar þeirra
hefði lærbrotnað. Hinn hefði hlotið
minniháttar meiðsl.