Morgunblaðið - 09.01.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ M ANNLÍFSSTRAUM AR s.unnuuagur
9. JAN.ÚAR 1994
B 7
LÆKNISFRÆÐl YV/r)// mér beinid mitt
Landnámsmmn Evmpu
í HÉRAÐINU kringum Altamúra rétt ofan við „hælinn“ á ítaliu eru
margir hellar og sumir lítt kannaðir. I einum þeirra fundust fyrir
skemmstu bein úr frummanni, heil grind en frosin föst í heljarstóru
dropasteinskerti á hellisgólfinu. Hópur manna sem hafa gaman af
að snuðra í rangölum niðri í jörðinni rakst á beinin í þröngum afhelli.
Heillegar beinagrindur frá æva-
fornum tímum eru ekki á
hveiju strái og því varð uppi fótur
og fit hjá þeim sem fást við athug-
anir á mannvistarleifum af ýmsu
tagi. Vittorio Delf-
ino, prófessor við
háskólann í Bari,
varð fyrstur með
lið sitt á vettvang
enda ekki nema
um 40 kílómetra
langan veg að fara
eftir Þórarin og gerði bráða-
Guðnason birgðarannsóknir
á staðnum. Hann hugðist slá eign
sinni og háskólans á góssið en þá
lýsti ráðuneyti ítalskra menningar-
mála yfir að því og engum öðrum
væri heimilt að ráðstafa svo merki-
legum fornminjum og lét innsigla
hellismunnann. Vel má vera að
háskólamenn og ráðuneytiskempur
séu enn að togast á um réttinn til
að losa gömul bein úr viðjum kalk-
steinsins og flytja þau úr ljótum
helli heim í eitthvert Helgafell vís-
indanna.
Eftir þeim athugunum sem Delf-
ino gat við komið og fékk frið til
að gera finnst honum líklegast að
beinin séu 250 þúsund ára gömul,
en elstu heilar beinagrindur sem
áður hafa fundist í Evrópu eru tald-
ar 60 þúsund ára. Aitamúra-mann-
inum verður þá væntanlega skipað
í þróunarröð mannkyns með Homo
erectus (hinn upprétta mann) á
aðra hönd og Neanderdalsmanninn
á hina. Hann var uppi á síðasta
ísaldarskeiði og engin kuldaskræfa
en beinin hans fundust í Þýskalandi
rétt eftir miðja síðustu öld. Á þeim
50 þúsund árum sem liðið hafa frá
því sá náungi lagði upp laupana
hefur Homo sapiens (hinn vitiborni
maður) verið allsráðandi og séð um
að uppfylla jörðina.
En er þá hægt að þekkja af
beinagrind sem finnst í hellisskúta
hver af þessum þremur mannskepn-
um iiggi þar svo lágt? Eins og
myndirnar sýna er Homo sapiens
laus við beingárðinn mikla fyrir
• •
Okuskóli Islands hf.
Námskeið til undirbúnings að auknum
ökuréttindum hefjast 20. janúar.
Innritun stenduryfir.
Ökuskóli Íslands hf •,
sími 683841.
Geymið auglýsinguna.
VERSLUNAREIGENDUR ATHUGIÐ!
f VANDA
Ert þú tilbúinn fyrir tvö virðisaukaskattþrep?
MA305 SJOÐSVELIN
FRÁ TEC ER LAUSNIN!
MA305 erfullkomin lausn fyrir rekstraraðila sem gera
kröfur um ódýran og einfaldan búnaö.
Verð aöeins kr. 41.900,- stgr m/Vsk.
MA305 er til afgreiðslu nú þegar!
Tæknival
ofan augun sem hinir eru auðþekkt-
ir á, kjálki hans er viðaminni en
heilabúið stærra, að minnsta kosti
ef miðað er við Homo erectus. Þá
er aðeins fátt eitt talið af þeim ein-
kennum sem fróðir menn um þessi
efni gaumgæfa og reisa aldurs-
greiningar sínar á.
Landnámsmenn Norðurálfu
komu að sunnan, er haft fyrir satt,
úr sólheitri Afríku og fóru að hokra
beggja vegna Miðjarðarhafsins.
Hitt er óljósara á hvaða skeiði þró-
unarsögunnar þessir þjóðflutningar
hófust. En hellisbúinn í Altamúra
hefur líklega ekki verið í fyrsta
hópnum.
Ef Delfino fær að spreyta sig
segist hann ætla að losa beinin úr
steinsteypunni með sterkum leysi-
geislum. Þeim sé helst treystandi
til að skera kalksteininn án þess
að skemma gömul og stökk bein.
Eins og sakir standa er hann að
prófa leysitæknina og velja þau tól
sem lofa góðu. Segja má að hann
sé að brýna busana.
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
.... . Haf/ð samband við ráðgjafa okkar nú þegar!
J
kvöldMóli
KOPAVOGS
NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 1994
TUNGUMAL
ENSKA - DANSKA
NORSKA - SÆNSKA
FRANSKA - ÍTALSKA
SPÆNSKA - ÞÝSKA
KATALÓNSKA
9 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA -
stafsetning
5 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
9 vikna námskeið
20 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
FRÍSTUNDAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
GRAFÍK
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
25 kennslustundir
UÓSMYNDUN I
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
UÓSMYNDUN II
7 vikna námskeið
24 kennslustundir
LETURGERÐ OG
SKRAUTRITUN
7 vikna námskeið
21 kennslustund
TRÉSMÍDI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
ÚTSKURDUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
VIDEOTAKA
ó eigin vélnr I
1 viku námskeið
14 kennslustundir
VIDEOTAKA
ó eigin vélnr li
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
FRJÁLS
FATAHÖNNUN
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækjn
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
VELRITUN
5 vikna námskeið
20 kennslustundir
Tölvunúmskeið:
WINDOWS OG
WORD PERFECT
FYRIR WINDOWS
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
WORD PERFECT
FYRIR WINDOWS
3 vikna námskeið
16 kennslustundir
BRIDS
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
INNNANHÚSS-
SKIPULAGNING
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
LITUR OG LÝSING
1 viku námskeið
6 kennslustundir
FITUSNAUTT FÆDI
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
GERBAKSTUR
2 vikna námskeið
10 kennslustundir
GARÐYRKJA
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
FJOLGUN OG UPP-
ELDI TRJÁPLANTNA
1 viku námskeið
6 kennslustundir
TRJÁKLIPPINGAR
1 viku námskeið
6 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bnunn-, pnstn- og
grænmetisréttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
SKAPANDI
LISTÞJÁLFUN
fyrir börn
og unglingn
6 vikna námskeið
9 kennslustundir
LISTÞJÁLFUN
fyrir fngfólk, sem
vinnur með börn
og unglingo
6 vikna námskeið
18 kennslustundir
EIGIN
ATVINNUREKSTUR
Nómskeiöið
er haldið
í samstarfi við
Iðnþróunnrfélng
Kópavogs
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarféiaga styrkja
félagsmenn sína til náms í Kvöldskóla Kópavogs,
t.d. BSRB, BHMR, Sókn, VR og Starfsmannaf. Kópavogs.
Kennsla hefst 24 janúar
Innritun og upplýsingar um námskeiðin
10.-20. janúar kl. 17-21 í símum 641507 og 44391
og á skrifstofu skólans í Snælandsskóla.