Morgunblaðið - 09.01.1994, Page 24

Morgunblaðið - 09.01.1994, Page 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 Sýndkl. 11.05. Sýnd kl. 3 og 5.05. Midav. kr. 350 kl. 3. Ný hörkugóð spennumynd frá Tony Scott sem leikstýrði „Top Gun“. „...skondið sambland af „The Getaway" og „Wild at Heart", mergjuð ogeldheitástarsaga...sönnásteródrepandi.“ ★ ★ ★ A.l. Mbl. Sýnd kl. 5.10, 7.10, 9 og 11.15. B.i. 16 ára. Nýjasta stórmynd leikstjórans Kenneths Branagh, sem m.a. gerði myndirnar „HENRY V“ og „PETER’S FRIENDS". Myndin hefur fengið frábæra dóma bæði erlendis og hérlendis. „Ys og þys Branaghs er fyrirtaks skemmtun, ærslafullt og hressi- legtbíósemsvikurengan." ★ ★ ★ A.l. Mbl. Sýnd kl. 3, 5, 7.05, 9.05 og 11.15. JAPANSKIR KVIKMYNDAOAGAR GEIMSKIPIÐ YAMATO KVATT Fréttapunktar af Snæfellsnesi Laugabrekku, Breiðuvík. Um jól og nýár var blíð- viðri og góð færð á vegum. Góður fiskafli barst á land á Arnarstapa á liðnu ári. Blíð- skapartíð var með einsdæm- um góð á sl. sumri. Fram- kvæmdir voru talsverðar á árinu. Ein fískeldisstöð er í sveitinni. Blíðskaparveður var um jól og nýár og snjólaust að kalla. Niðri í fámenninu var friðsælt og rótt um jól og nýár. Sóknarpresturinn sr. Rögn- valdur Finnbogason, messaði í Hellnakirkju á jóladag og skírði eitt bam. Það var hátíð- leg stund. Kirkjusókn var mjög góð 100% sóknarbarna var við messuna og að auki aðkomufólk. Þetta var kveðjumessa sr. Rögnvaldar í Hellnasókn en nú um áramót er Hellnasókn komin í nýtt prestakall, In- gjáldshólsprestakajl. Nýkjör- inn prestur, sr. Ólafur Jens Sigurðsson, er nú fluttur í prestakallið og situr hann á Hellissandi. Sr. Rögnvaldur Finnbogason verður áfram prestur á Staðarstað og hefur Söðulshólsprestakall verið lagt undir Staðarstað. Jólatrésskemmtun var haldin í félagsheimilinu á Lýsuhóli fyrir börn úr Staðar- sveit og Breiðuvík á millf^óla og nýárs. Á liðnu ári bárust á land á Amarstapa um 1000 tonn af fiski, slægðum að mestu. Fisk- urinn fór allur á Breiðafjarð- armarkað. Um 40 bátar voru í höfninni á Amarstapa þegar þeir vom flestir. Fjórir trillu- bátar réru með línu í haust og var afli mjög tregur og gæftir slæmar. Síðast í októ- ber og allan nóvember gaf aldrei á sjó. Bátar sem réra með færi í haust fengu reit- ingsafla en gátu lítið róið vegna ótíðar. Pétur Pétursson á Malareyri sem á trillubátinn Bárð SH 81 lét lengja bátinn í haust á Akranesi og byijaði hann að róa með línu 30. nóv- ember. Hann hefur róið síðan og með honum Geir Högnason frá Bjargi, Arnarstapa. Þeir félagar réru 13 róðra í desem- ber og afli var 40 tonn. Þeir halda áfram róðram og hafa nú frá áramótum fengið um 27 tonn í fimm róðram. Fólk frá Arnarstapa og Hellnum vinnur við beitningu og utan- sveitarmenn hafa einnig kom- ið til hjálpar. Sumarið var mjög gott, hey- skapartíð með afbriðgum góð og heyféngur bænda mikill og góður. Dilkar vora almennt vænir í haust. Framkvæmdir hafa verið talsverðar í sveitinni á iiðnu ári. Snæfellingafélagið keypti íbúðarhúsið Eyri á Am- arstapa sem var ríkiseign. Eft- ir að Snæfellingafélagið eign- aðist húsið var það endurbætt mikið að innan m.a. allt málað og skiptust félagsmenn viku- lega á um að vera þar í sum- ar. í haust var þak hússins endumýjað. Húsið er nú orðið mjög vistlegt. Þá vora talsverð- ar framkvæmdir við Hellna- kirkju. Tum kirkjunnar var endumýjaður og gluggar. Gangstígur um 50 m langur lagður frá bílaplani að kirkju, bílaplanið stækkað, um 40 m langur grjótgarður hlaðinn við bflaplan og rafljós sett með- fram göngustíg sem er lagður úr náttúralegu grjóti. Gunnar Kolbeinsson Syðri- Tungu í Breiðuvík er með físk- eldi og er það bleikja. Stöðin er mjög vel hönnuð og hafa þau hjónin Gunnar og Svan- fríður unnið að mestu að þessu sjálf. Hann hefur meira en nóg vatn bæði heitt og kalt og all- ur útbúnaður er í besta lagi. Hann er nú komin með um 40.000 seiði í eldi. Bleikjueldi hefur gengið mjög vel og er um rúmt ár síðan Gunnar byij- aði á fískeldinu og segir hann að markaður sé góður. Eg óska öllum landsmönn- um til sjávar og sveitar guðs- blessunar á liðnu ári. — Finnbogi. Stórskemmtileg teiknimynd fyrir börn. Ein sú vinsælasta sem sýnd hefur verið í Japan. Enskt tal, ekki íslenskur texti. Sýnd sunnud. kl. 3. Fyrsta kvikmyndin sem Japanir hafa gert i samvinnu við Rússa. Stórbrotin mynd þar sem sögusviðið er Síbería 1918. Sýnd kl. 9.15. . mm TOfiLfiKflp Háskólabíói fimmtudaginn 13. janúar, kl. 20.00 Hljómsueitarstjóri: Osmo Vánská Einleikari: Jan Erik Gustafsson ffl1ISSK.Pfi Þorkell Sigurbjörnsson: Ys og þys Igor Slravínskíj: Jeux de cartes Max Bruch: Kol Nidrei Pjoir Tsjajkofskíj: Rokoks tilbrigði Jean Sibelíus: Sinfónía nr. 7 • '=! Sími SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT fSLANDS Sími 622255 Hljómsvolt allra Itlonúinga 622255 Leki í Listasafnmu Dýrðir á þrettánd- anum í Grindavík Grindavík. ÞAÐ var mikið um dýrðir á þrettándagleði í Grindavík þegar jólin voru kvödd með álfareið, dansi og söngvum. Venja er fyrir því að börn í Grindavík klæði sig upp í allskonar gervi og gangi milli húsa og sníki gott í poka gegn því að syngja fyrir hús- ráðendur. Nú var ákveðið að bæta við og gera bæjarbúa virkari í þrettándagleðinni og brenna jólin út með þátttöku þeirra. Safnast var saman í skrúðgöngu við gamla kven- félagshúsið í Grindavík og voru álfakóngur og álfa- drottning í broddi fylkingar ríðandi á hestum og á eftir fylgdu hestamenn ásamt göngufólki með blys. Skrúð- ganga þessi hélt að íþrótta- húsinu þar sem skemmtidag- skrá var utandyra. Byijað var á því að kveikja í brennu mikilli sem hafði verið sett upp og blandaður kór söng við undirleik lúðra- sveitar úr Tónlistarskóla Grindavíkur undir stjórn Siguróla Geirssonar. Þá sýndi dansflokkur undir stjórn Vilborgar Guðjóns- dóttur vikivakadansa undir hljóðfæraslætti og söng. Fjölmenni í gleðinni Bæjarbúar í Grindavík létu ekki sitt eftir liggja því mikið fjölmenni tók þátt í gleðinni bæði gamlir og ungir og höfðu hina bestu skemmtun Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Alfakóngur og álfadrottning, Páll Valur Björnsson og Sólný Pálsdóttir. af. Þrettándagleði hefur ekki verið haldin í Grindavík síðan 1982 og var nú endurvakin af menningamefnd sem var stofnuð upp frá M-hátíð sem haldin var á Suðurnesjum á síðasta ári og stefnt er að því að gera hana að árlegum viðburði. Fjöldi einstaklinga og samtaka tók þátt í að gera gleðina að veruleika. FÓ NOKKRAR skemmdir urðu á Listasafninu á Akureyri vegna leka, en svo virðist sem stjórnkerfi loftræstikerfis- ins hafi ekki virkað. Verið var að taka niður sýningu á úrvali verka í eigu Markúsar ívarssonar þegar tjónið uppgötvaðist. Ingólfur Ármannsson, menningarfulltrúi Akur- eyrarbæjar, sagði að senni- lega hefði raki komist inn í loftræstikerfíð og gufa þéttst í því með þeim afleiðingum að vatn fór að leka. Viðvör- unarkerfið hefði ekki farið í gang og virtist vera sem stjórnkerfið hefði ekki virkað rétt við þessar aðstæður. Safnið er lokað í janúar- mánuði, en í gærmorgun átti að taka niður og ganga frá sýningu sem þar var síðast á úrvali verka sem voru í eigu Markúsar Ivarssonar og voru þar á meðal myndir eftir helstu málara þjóðarinnar. Engar skemmdir urðu á verkunum, að sögn Ingólfs. Einhveijar skemmdir urðu í safninu vegna lekans, en þær höfðu ekki verið metnar í gærdag. Styðja samnmgamenn Eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyj- um 5. janúar s.l: Fundurinn lýsir yfír fullum stuðningi við samningamenn okkar í yfirstandandi kjara- deilu. Fundurinn harmar af- stöðu Vestfirðinga i þessum málum. Fundurinn skorar á hagsmunaaðila og stjórnvöld að aflamark verði lagt niður og t.d. sóknarstýring verði tekin upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.