Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
3
RÁÐUM VÉR SJÁLFIR...“
Það ríkti stórhugur og bjartsýni meðal þeirra fjölmörgu íslendinga
sem sóttu stofnfund Hf. Eimskipafjelags íslands, laugardaginn
17. janúar 1914. Þjóðin hafði sameinast um að stofna eigið skipa-
félag og taka þannig skipaferðir til útlanda í eigin hendur. Mikið var
í húfi, eins og lesa má í upphaflega hlutaútboðsbréfinu: „Þá ráðum
vér sjálfir, hvert skip vor sigla. Þá látum vér þau sigla til þeirra landa,
sem bjóða oss bezt kjör á hverri vörutegund og gefa oss beztfyrir
afurðir vorar... En þó að hátt væri stefnt er óvíst að nokkurn
fundarmanna hafi órað fyrir þeim stórstígu framförum sem framund-
an voru í íslensku þjóðlífi á næstu áratugum og hið nýstofnaða skipa-
félag átti eftir að taka þátt í að móta. Eimskip hefur enn, áttatíu
árum síðar, mikilvægu hlutverki að gegna í vaxandi samskiptum
þjóðarinnar við umheiminn - sem nútíma flutningafyrirtæki að
störfum fyrir íslenskt atvinnulíf. Verkefni okkar allra er enn sem
fyrr að nýta af stórhug og bjartsýni þau margvíslegu tækifæri
sem framtíðin býr yfir.
1914 - 1994
EIMSKIP
Fyrir íslenska þjóð
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA