Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
Sjúkraliðafélag íslands
Stéttarfélag - sumarhús
Sjúkraliðafélag íslands óskar eftir að taka á
leigu sumarhús fyrir félagsmenn sína frá 17.
júní nk. til ágústloka.
Húsið þarf að vera með rafmagni og vatni.
í bústaðnum þurfa að vera áhöld og öll að-
staða fyrir a.m.k. 6-8 manns.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins merkt: „SLFÍ 1994.“
Tilboð
Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka
mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af
bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn-
um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land.
Upplýsingar í símsvara 91-671285
■ Draghálsi 14-16, 110 Reykjavík, sími 671120, lele fax 6 72620
Eftirfarandi útboð eru til sölu á skrifstofu
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, Reykjavík:
1. Fyrirspurn 2799/94 prentun hand-
bókar. Um er að ræða u.þ.b. 600 eintök.
Opnun 18.01. 1994 kl. 11.00 f.h.
2. Útboð 4047/94 staðarnet fyrir sýslu-
mannsembætti.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 21.01. 1994 kl. 11.00 f.h.
3. Útboð 4044/93 stá/ræs/'fyrir vegagerð.
Opnun 25.01. 1994 kl. 11.00 f.h
4. Fyrirspurn 2800 mengunarvarnar-
mælir. Opnun 26.01. 1994 kl. 11.00.
5. Útboð 4040/93 Þjóðarbókhlaða, inn-
réttingar og búnaður fyrir eldhús.
Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk.
Opnun 01.02. 1994 kl. 11.00.
6. Útboð 4043/93. Þjóðarbókhlaða,
forval húsbúnaður.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 02.02. 1994 kl. 11.30.
7. Útboð 4052/4 bílasímar.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 07.02. 1994 kl. 11.00.
8. Útboð 4048/4 röntgentæki.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk.
Opnun 08.02. 1994 kl. 11.00.
Wríkiskaup
Ú t b o & s k i I a árangril
BORGARTÚNI 7, 1 05 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844,
■ BRÉFASÍMI 91-626739
Góðan daginn Evrópa!
Vantar þig upplýsingar um ný útboð
á EES svæðinu?
Daglega eru auglýst um 150 ný útboð í út-
boðsbanka EB og EFTA (TED, Tender Electr-
onic Daily).
Dæmi um útboð: Mannvirkjagerð, vegagerð,
verkfræðiþjónusta, hugbúnaðargerð, kaup á
matvælum svo sem fiski, osti og fleiru.
Meðal annars er hægt að leita eftir löndum,
landsvæðum og efnisflokkum.
í bankanum er einnig að finna upplýsingar
um GATT útboð.
Öll íslensk fyrirtæki og einstaklingar geta
tengst útboðsbankanum í gegnum Skýrr.
Allt sem þarf til að tengjast er einmennings-
tölva, símtæki, mótald og samskiptaforrit.
Nánari upplýsingar veitir ráðgjafar- og mark-
aðsdeild Skýrr í síma 695100 eða bréfasíma
695251.
ÞJOÐBRAUT UPPLÝSINGA
WTJÓNASKOÐUNARSTÖÐ
Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur
Sími 683400 (símsvari utan opnunartíma) - Telefax 670477
Volvo 740 GLI, árgerð 91
Tilboð
óskast í bifreiðar sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum. Bifreiðgrnar verða til
sýnis á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn
17. janúar 1994, kl. 8-17.
Tilboðum sé skilað samdægurs.
Vátryggingaféiag íslands hf.
- Tjónaskoðunarstöð -
[fÚJBOÐj
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík
er óskað eftir tilboðum í gatnagerð í
Borgarholti.
Verkið nefnist: Strandvegur- Borgarvegur.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt u.þ.b. 7.000 m3.
Fylling u.þ.b. 21.000 m3.
Regnvatnslagnir u.þ.b. 300 m.
Púkk undir malbil u.þ.b. 7.500 m2.
Klæðning vegaxlau.þ.b. 4.600 m2.
Frágangurvegfláa
u.þ.b. 7.000 m2.
Verkinu skal lokið fyrir 1. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og
með þriðjudeginum 18. janúar 1994,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 27. janúar 1994 kl. 11.00.
gat 05/4
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræð-
ings er óskað eftir tilboðum í endurmál-
un á dagvistunarhúsnæði Reykjavíkur-
borgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 1. febrúar 1994 kl. 14.00.
bdg 06/4
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræð-
ings er óskað eftir tilboðum í viðhald loft-
ræstikerfa í ýmsum fasteignum Reykja-
víkurborgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað
fimmtudaginn 3. febrúar 1994 kl. 11.00.
bgd 07/4
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00
Veitingastaður
Til sölu eða leigu er veitingastaður í góðum
rekstri miðsvæðis á Vesturlandi. Staðurinn
er í leiguhúsnæði sem hægt er að fá keypt
ef áhugi er fyrir hendi.
Nöfn og símanúmer sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir 21. janúar nk., merkt:
„Veitingastaður - 12870“.
Samkeppni um útilistaverk
Hreppsnefnd Djúpavogshrepps auglýsir eftir
myndlistarmönnum sem hafa áhuga á að
taka þátt í lokaðri samkeppni um gerð
útilistaverks á Djúpavogi.
Þeir sem hafa áhuga sendi umsókn sína
ásamt upplýsingum um listferil (sýningar-
skrár, bækur) til trúnaðarmanns dómnefndar
fyrir 26. janúar nk. Utanáskrift: Samkeppni
um útilistaverk á Djúpavogi c/o Ólafur Jóns-
sog, trúnaðarmaður dómnefndar, pósthólf
1115, 121 Reykjavík. Heimilt er að láta Ijós-
myndir og skyggnur fylgja umsókn.
Dómnefnd skipuð af hreppsnefnd og SÍM
mun velja 3 listamenn úr hópi umsækjenda
til að gera tillögur að umræddu verkefni í
lokaðri samkeppni.
Samkeppnin er lokuð hugmyndasamkeppni.
Samkeppni þar sem einvörðungu er gert ráð
fyrir að þátttakendur skili inn frumdrögum
ásamt stuttri lýsingu á hugmynd. Samkeppn-
in verður haldin samkvæmt samkeppnisregl-
um Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram tillög-
ur sem til þess eru fallnar að útfæra í fullri
stærð. Ákvörðun verður tekin að lokinni sam-
keppni um hvaða verk verður valið til út-
færslu ef um framkvæmd verksins semst.
Gert er ráð fyrir að val á þátttakendum og
samkeppnislýsing liggi fyrir 5. febrúar 1994.
Stefnt er að því að gerð listaverksins og
uppsetningu verði lokið 1. október 1994.
Nánari upplýsingar gefur trúnaðarmaður í
síma 37452/681770 kl. 17-19.
Frá menntamálaráðuneytinu
Styrkir til háskólanáms í
Hollandi og á Spáni
1. Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk
handa íslendingi til háskólanáms í Hollandi
námsárið 1994-95. Styrkurinn mun einkum
ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð
áleiðis í háskólanámi eða kandídat til fram-
haldsnáms. Nám við listaháskóla eða tónlist-
arháskóla er styrkhæft til jafns við almennt
háskólanám. Styrkfjárhæð 1.250 gyllini á
mánuði í tíu mánuði. 2. Spænsk stjórnvöld
bjóða fram eftirtalda styrki handa íslending-
um til náms á Spáni á námsárinu 1994-95:
a) Einn styrk til háskólanáms skólaárið
1994-95. Ætlast er til að styrkþegi sé
kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi og
hafi mjög gott vald á spænskri tungu.
b) Tvo styrki til að sækja spænskunámskeið
í Madrid sumarið 1994.
Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. 3 ára
námi í spænskri tungu í íslenskum fram-
haldsskóla.
Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum
afritum prófskfrteina og meðmælum, skulu
sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur um styrk til náms í Hol-
landi er til 15. febrúar nk. en til náms á
Spáni til 1. mars nk.
Menntamálaráðuneytið, 14. janúar 1994.