Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 33 samúð vegna þessa ótímabæra frá- falls. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir alit og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skait. (V. Briem.) Friðrik, Hulda og synir. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Þegar mér barst sú harmafregn aðfaranótt sunnudagsins 9. janúar að Siggi vinur minn hefði farist í hræðilegu slysi heima á íslandi deg- inum áður trúði ég ekki fréttinni. Hugsunin sem um hugann fór þessa nótt þar sem ég horfi yfir Árósa- borg var blandin miklum söknuði og harmi. Siggi var sá eini sem alltaf hefur kallað mig vin sinn. Þegar við hittumst kallaði hann allt- af nafnið mitt og bætti við þessu litla orði sem hefur svo mikla merk- ingu í huga hvers og eins. Alltaf var hann glaður og kátur og vildi allt fyrir alla gera. Við Siggi kynntumst fyrst þegar við unnum saman í Orku hf. en eftir það lágu leiðir okkar aftur saman við leigubifreiðaakstur. Leið- ir okkar skildu enda leigubílstjóra- starfið ekki vel til þess fallið að afla vina né rækta vinabönd, slíkur er vinnutíminn. Af dugnaði bjó Siggi fjölskyldu sjnni fallegt heimili að Norðurtúni á Álftanesi. Þar kom ég ekki oft en hlýjar voru móttök- urnar þegar ég lét sjá mig. í Spámanninum segir: „Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í íjarveru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni. Og láttu vináttuna ekki eiga sér neinn tilgang annan en að auðga anda þinn, því að sú vinátta, sem leitar einhvers annars en síns eigin leyndardóms, er ekki vinátta, heldur net sem kastað er í vatn og veiddir í tómir undirmálsfiskar." Þessi orð Spámannsins lýsa vel vináttu okkar Sigga. Við hittumst ekki oft á ári síðustu ár en oft var mér hugsað til hans á milli funda. Allt hans far, lífsgleði og hjarta- hlýja hefur oft orðið mér vega- nesti. Nú. hefur almættið hagað hlutum þannig að við Siggi getum aldrei hist aftur heldur verður minn- ingin um vin minn sem kvaddi svo skyndilega að verða áfram bara minning. Siggi minn, ég harma það að geta ekki fylgt þér síðasta spöl- inn, en hugur minn er á íslandi. Hjartans samúðarkveðjur færi ég eiginkonu, börnum og öllum að- standendum sem á þessari stund sorgarinnar kveðja góðan dreng. Jóhannes Valdemarsson, Danmörku. Elskulegur vinur okkar og sam- starfsmaður, Sigurður Jakob Ólafs- son, er látinn. Siggi var starfsmað- ur Hraunhamars hf. frá 15. desem- ber 1992 allt til dánardags. Okkur langar að minnast vinar okkar og starfsfélaga með nokkrum fátæk- legum orðum. Andlát hans hefur snert okkur djúpt og hann skilur eftir sig stórt skarð í röðum okkar. Þrátt fyrir frekar stutt kynni vann hann hug og hjarta okkar og annarra starfs- manna með dugnaði sínum og góðri framkomu. í hópi fárra starsmanna frá morgni til kvölds voru samskipt- in ótrúlega náin. Siggi var enn í blóma lífsins og allra manna hraust- astur og því er hart að sjá á eftir honum með þeim hætti sem andlát hans bar að. Hann var með afbrigð- um skemmtilegur og átti auðvelt með að umgangast fólk og féll því vel að starfinu. Það var með ólíkind- um hve miklu hann hafði áorkað á sinni stuttu ævi í hinum margvísleg- ustu störfum. Siggi var hreinskilinn og gat sagt hug sinn, þegar með þurfti, en samskipti okkar voru ávallt ljúf. Á skilnaðarstundu þökkum við góða viðkynningu og sendum eigin- konu hans og börnum, svo og öðrum vinum og vandamönnum, innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing góðs drengs. Magnús Emilsson, Helgi Jón Harðarson og Haraldur Gíslason. Það er eins og það hafi gerst í gær, Kristrún sat við eldhúsborðið hérna á Marbakka og sagði okkur frá honum Sigga sínum, þeirra áformum og hvort rétt hefði verið að flytja hingað í Bessastaðahrepp- inn, langt frá mannabyggð. Við Marbakkahjónin fullvissuðum hana um að þau hefðu valið rétt, mikil og sterk samkennd væri ríkjandi meðal hreppsbúa, við værum ein stór fjölskylda. Það leið ekki langur tími þangað til Kristrún og Siggi urðu fastir fjölskyldumeðlimir, allt- af tilbúin að rétta fram hjálparhönd hvort sem væri kvenfélag, hesta- mannafélag, bridsklúbbur eða sópa götur á hreinsunardegi. Við fundum fijótt að Siggi Óla hafði áhuga á hestum og reiðtúrum, hann gerði sér oft ferð út í hesthús og sagði okkur sögur úr Húnavatns- sýslunni. Hann var einnig mjög góður við spilaborðið, spilaði brids eins og herforingi, gaf aldrei sinn hlut, sagði stíft og fengi hann ekki sögnina, doblaði hann iðulega sögn andstæðinganna og ekki leið á löngu þar til hann var kallaður Siggi „dobl“ á meðal spilafélaganna. Nú í vetur hittust karlarnir tvisv- ar í viku í fótbolta í íþróttahúsinu okkar hér í hreppnum og skipt var þannig í lið að gömlu mennirnir léku við þá yngri. Þó aldursmunur væri einatt meiri en 20 ár kom það hvergi að sök. Siggi stóð sem klett- ur í vörninni og hélt aftur af yngri og kannski frískari mönnum með góðum staðsetningum og yfirveg- un. í lok hvers leiks brostu allir, því það eru sætustu sigurstundirnar þegar maður á þess kost að leika sér með góðum vinum og ekki síst þegar feður og synir eru í hópnum og saknar nú Nonni vinar og leikfé- laga. Hvaða réttlæti er þetta að skipta út af manninum óþreyttum og enn að bæta við sig? Siggi var þannig, að hann hlóð utan á sig vinum og fjöldaframleiddi ánægju- stundir sem eru nú það eina sem við eigum eftir. Brosið hans Sigga var engu líkt, það var fullt af prakkaraskap og hlýju, þegar við hittumst þá breiddi hann út faðminn eða tók fast í höndina og sagði: „Mikið er gaman að sjá ykkur. Hvernig hafið þið það?“ Það er skuggi yfir nýju ári og missirinn er mikill. Hreppsbúar allir drúpa höfði í hluttekningu yfir frá- falli Sigga og hugur okkar er hjá þér, Kristrún mín, og drengjunum ykkar. Guð gefi ykkur styrk til að vinna gegn ægivaldi þessa óréttlæt- is og miskunnarleysis. Oli og Marín á Marbakka. Sigurður Jakob Ólafsson flutti í Vatnsdalinn með móður sinni, Elnu Thomsen, er hún réð sig sem ráðs- konu að Nautabúi i Vatnsdal, þá barnungur. Það er alltaf eftirvænting sem fylgir því er nýtt fólk flytur í ná- grennið og var koma Elnu og barna hennar engin undantekning þar frá, en með móður minni og Elnu tókst kunningsskapur sem síðan hefur haldist óslitinn. Mér er minnisstætt er við vorum við heyskap meðfram bökkum Vatnsdalsár fyrsta sumarið sem Elna var á Nautabúi, nú voru ung- ir krakkar þar við, en slíkt hafði ég ekki séð fyrr. Sigurður var iðinn strax í æsku og fóru honum flest verk vel úr hendi. Hann var einnig ljúfmenni í allri viðkynningu, en honum veittist létt að kynnast fólki og viðhalda þeim kunningsskap. Það var Vatnsdælingum fagnað- arefni er Elna og Leifur Svein- björnsson hófu sambúð, en Leifur bjó á Hnausum í Þingi og hafa þau hjón búið þar síðan. Þarna eignuð- ust systkinin góðan stjúpföður og upplifðu þau heimilisöryggi sem hveiju barni er svo nauðsynlegt í uppvextinum. Er Sigurður Jakob komst á full- orðinsár lá leið hans til Reykjavík- ur, þar sem hann settist að og eign- aðist sinn lífsförunaut. í okkar augum, sem kynntumst honum í uppvextinum, var hann samt sami ljúfi drengurinn, glað- lyndur og hress. Mann setur hljóðan þegar jafn ömurleg tíðindi eru sögð og skyndi- legt fráfall manna á besta aldri, en örlögin fara sínu fram hvað sem okkur finnst. Ég vil með þessum fátæklegu orðum kveðja Sigurð Jakob Ólafs- son, en um leið votta aðstandendum hans samúð mína og vona að guð veiti þeim styrk til að horfa fram á veginn, glaðbeitt og ákveðin í að sigrast á vonbrigðum líðandi stund- ar, eins og Sigga var svo tamt. Páll Gíslason. Okkur langar til að minnast sam- starfsmanns okkar og félaga, sem lést af slysförum hinn 8. janúar sl. Það er svo erfitt að sætta sig við það að Siggi skuli vera dáinn og að eiga ekki eftir að heyra glað- væra röddina og hlátur frá skrif- stofunni hans. Fyrir um það bil ári hóf Siggi störf við fasteignasöluna sem við vinnum á. Á hverjum degi mætti hann til leiks, fullur af lífs- gleði og í góðu skapi. Hér sitjum við og reynum að lýsa því hvað Siggi var einstök persóna, hvað hann var opinn, innilegur og já- kvæður. „Lífið.“ Það var til að lifa því. Það var aldrei lognmolla þar sem Siggi var annars vegar. Má þar nefna innflutningshóf fast- eignasölunnar í desember sl. þar sem Siggi var hrókur alls fagnað- ar. Alltaf hafði hann frá nógu að segja, svo sem prakkarastrikum og hinum ýmsu uppátækjum þegar hann var yngri. Við minnumst þess þegar Siggi mætti í vinnu daginn eftir fóboltatíma, að oftast var þessi elska haltrandi, þá varð manni að orði: „Alltaf í boltanum, Siggi minn.“ Svarið sem maður fékk var eitt stórt bros. Sigga verður sárt saknað. Fátækleg kveðjuorð okkar ritar- anna vega lítið í hinni miklu sorg sem nú hefur kvatt dyra, en við eig- um í huga okkar minningu um góð- an dreng, sem alltaf var boðinn og búinn að gefa góð ráð. Elsku Kristr- ún, Guð styrki þig og fjölskyldu þína til að komast yfir sáran söknuð ykk- ar. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Þér kveðju mína sendi um himindjúpin há, af hjarta þakka liðin vinakynni. Til betri og fegri heima nú sál þín svífa má. Þig signi blessun Guðs í eilífðinni. (Jóhannes Jónsson frá Asparvík.) Sigríður og Anna Vala. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS HELGADÓTTIR, Tunguvegi 18, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. janúar kl. 15.00. Jakob Árnason, Sigríður Jakobsdóttir, Guðjón Jónsson, Sverrir Jakobsson, Guðrún Albertsdóttir, Ingibjörg E. Jakobsdóttir, Gunnar Óli Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar og systir, GUÐRÚN ALFONSDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum að morgni 14. janúar. Björn Jóhann Guðjohnsen, Sigurður Kristinn Guðjohnsen, Jón Alfonsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HENRIETTATHOMASIA NICLASEN ÍSAKSSON, andaðist 15. þessa mánaðar. Fyrir hönd aðstandenda, Þórunn Ingjaldsdóttir, Magnús Ingjaldsson, Brynhildur Ingjaldsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, GÍSLI SIGURBJÖP.NSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni-þriðjudaginn 18. janúar kl. 13.30. Helga Björnsdóttir, Nína Gísladóttir, Sigrún Gísladóttir, Guðrún Gísladóttir, Helga Gfsladóttir. t Föðursystir mín, SOFFÍA KJARTANSDÓTTIR, Laugavegi 98, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrfður Helgadóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA RÍSBERG SIGURÐARDÓTTIR, StigahlfðlO, er lést þriðjudaginn 11. janúar á hjúkrunarheimilinu Skjóli, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 15.00 þriðjudaginn 18. janúar. Kristfn Sigurðardóttir, Friðrik Jónsson, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu. t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR JÓSEFSSONAR, sem andaðist 8. janúar, fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudag- inn 18. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á samtök um bygg- ingu tónlistarhúss. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Jósef Magnússon, Ruth Magnússon, Guðríður Magnúsdóttir, Þórir Ragnarsson, Jakob Magnússon, Valgerður Jóhannsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, SIGURÐUR JAKOB ÓLAFSSON, Norðurtúni 29, Álftanesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. janúar kl. 13.30. Kristrún Þórisdóttir, Jón, Davíð Örn, Ólafur Þór, Kolbrún Ýr, Þórunn, Elna T omsen, Leifur Sveinbjörnsson, Ólafur Helgi Gestsson, Kristrún Malmquist, Þórir K. Karlsson og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.