Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 38
38 JVIORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 ATVINNU Hjúkrunarfræðingar í Skjólgarði á Höfn er laus staða hjúkrunar- fræðings nú þegar. Á heimilinu eru 32 hjúkr- unarpláss, 12-14 á ellideild auk fæðingar- deildar. 4 hjúkrunarfræðingar eru starfandi. íbúðarhúsnæði er til staðar og Skjólgarður greiðir fyrir flutning á staðinn. Allar nánari upplýsingar veita Amalía Þor- grímsdóttir hjúkrunarforstjóri og Ásmundur Gíslason forstöðumaður í símum 97-81221 og 97-81118. Skjólgarður Höfn, Hornafirði. Sölumaður Þekkt heildsölu- og framleiðslufyrirtæki með góð vörumerki óskar að ráða sölumann. Starfið felst f sölu og markaðssetningu rekstrarvara o.fl. til verslana og fyrirtækja. Leitað er að sölumanni með árangursríka sölureynslu og góða samstarfs- og þjónustu- hæfileika. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs, merktar: „Sölumaður - 112“, fyr- ir 22. janúar nk. RÁÐGARÐURhf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688 SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA, VESTFJÖRÐUM Patreksfjörður/- Tálknafjörður Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Patreks- firði óskar eftir að ráða stuðningsfjölskyldur á Patreksfirði eða Tálknafirði. Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað- an einstakling í sólarhringsvistun í þeim til- gangi að létta álagi af fjölskyldu hans. Um er að ræða 2-5 sólarhringa í mánuði, samfellt. Þess er ekki krafist að stuðningsfjölskylda láti í té sérstaka þjálfun eða hæfingu. Allar nánari upplýsingar um launakjör og vinnutíma gefur Arnheiður Jónsdóttir í síma 94-1337. Ferðaþjónusta Ert þú að leita að krefjandi framtíðarstarfi? Þekkt ferðaskrifstofa óskar að ráða starfs- mann í ráðstefnudeild strax. Starfið krefst góðrar menntunar. Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er nauðsynleg, önnur tungu- málakunnátta s.s. franska er æskileg. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, eiginleika til að vinna með öðrum og góða framkomu. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir nk. mánudag og þriðjudag milli kl. 9-12. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar fyrir 21. janúar nk. Hagvangur hf Matreiðslumann með gott hugmyndaflug vantar á veitingahús á Akureyri. Góðir tekjumöguleikar fyrir réttan mann. Áhugasamir leggi inn upplýsingar á auglýs- ingadeild Mbl., merktar: „Frískleiki - 1“. Deildarfóstra óskast á leikskólann Hæðarból. Vinnutími eftir hádegi. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í símum 657670 eða 656651. Leikskólastjóri. Hárgreiðslufólk óskast 1. Meistari eða sveinn óskast allan daginn. 2. Nemi óskast sem lokið hefur 1. og 2. önn í Iðnskóla með starfsreynslu. 3. Nemi óskast sem er á 2. önn. Upplýsingar á staðnum milli kl. 16.00 og 18.00, mánudag. Hárgreiðslustofa - Miðvangi 41 Sími 5 42 50 Teiknarar - hönnuðir Undir sama hatti Vilt þú starfa sjálfstætt í skapandi umhverfi og hafa aðgang að nauðsynlegum tækjum og aðstöðu? Auglýsingastofa leigir út aðstöðu fyrir teiknara og hönnuði. Um er að ræða bása fyrir tölvur með aðgangi að fundaherbergi, eldhúsi, myrkraherbergi, reprómaster, ljósritunarvél, faxtæki, síma, ljósaborði og öðrum búnaði ásamt símasvörun. Samstarf hugsanlegt um verkefni frá stofunni á háannatímum. Upplýsingar hjá FRAMABRAUT í síma 620022. Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: í fullt starf: Múlaborg v/Ármúla, s. 685154. Ægisborg v/Ægisfðu, s. 14810. í hálft starf e.h.: Steinahlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280. Þá vantar í stuðningsstarf vegna heyrnar- skertra barna í leikskólann: Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Einnig vantar fóstrur eða uppeldismenntað fólk á nýjan leikskóla, Engjaborg v/Reyrengi. Allar upplýsingar um þau störf veitir Sigríður Erna Sverrisdóttir leikskólastjóri í síma 671573. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Húsavíkurbær auglýsir Húsavíkurbær óskar að ráða garðyrkjumann til starfa. Um er að ræða fjölbreytt starf að gróðurmálum, hirðingu opinna svæða og lóða bæjarins. Nánari upplýsingar eru gefnar á bæjarskrif- stofum í síma 96-41222 alla virka daga frá kl. 10.00-15.30. Skriflegar umsóknir skulu hafa borist undir- rituðum fyrir þriðjudaginn 2. febrúar 1994. Húsavík, 14.janúar1994, Bæjartæknifræðingur. Mosfellsbær Félagsmiðstöð f Mosfellsbæ Auglýst er laust til umsóknar starf í félags- miðstöðinni í Mosfellsbæ frá 1. feb. nk. Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldis- menntun eða sambærilega menntun og reynslu af félagsstörfum. Umsóknarfrestur er til 21. janúar 1994. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður fé- lagsmiðstöðvar í síma 666058 alla virka daga frá kl. 9.00-13.00. Barnagæsla Óskum að ráða konu til að annast ungbarn og létt heimilisstörf á heimili í Grafarvogi. Vinnutími er 3 daga vikunnar frá kl. 13-17 og einn dag frá kl. 9-12. Reyklaust heimili. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir kl. 15-16.30 mánudaginn 18. janúar nk. Vinsamlega sendið skriflega umsókn til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. fyrir 20. janúar nk. merktar „020“. Hagvangurhf m BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Á deild B-4, sem er öldrunarlækningadeild með lyflækningar og bæklunarskurðlækning- ar sem sérgreinar, er laus ein staða hjúkrun- arfræðings nú þegar. Á deild B-5, öldrunarlækningadeild, eru lausar tvær stöður hjúkrunarfræðinga nú þegar. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. A Hvítabandi, 19 rúma öldrunardeild fyrir alzheimersjúklinga, er laus 60% staða hjúkr- unarfræðings á næturvaktir nú þegar. Á spítalanum vinnur stór hópur hjúkrunar- fræðinga, sem leggur metnað sinn í að veita sem besta hjúkrun. Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu, tækifærum til símenntunar og þróun hjúkrunar. Möguleiki er á barnaheimilispiássi. Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jens- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696358.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.