Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 21 flutti til Reykjavíkur til aðhlynn- ingar. Tókst björgun þama giftu- samlega þrátt fyrir erfiðar aðstæð- ur. Sem betur fer tekst mjög oft að bjarga skipbrotsmönnum úr klóm hafsins, en vel heppnuð björgun skipbrotsmanna af Stein- dóri leiðir hugann að strandi Eld- hamars við Hópsnes nærri Grinda- vík þetta sama ár, nánar tiltekið 22. nóvember. Þar voru aðstæður hrikalegar, en þó hafði skipbrots- mönnum tekist að koma skotlínu í land og björgunasveitarmenn línu á móti. Um framhaldið segir í Árbók SVFÍ: Brotsjór gekk yfir áður en tækist að koma líflínu um borð og færðist báturinn við það austar og festist í gjótu. Annað brot gekk yfir bátinn og við við það tók þrjá skipverja fyrir borð. Einn þeirra komst lífs af. Skipveij- ar voru allir í björgunarflotgöllum og er talið að það hafi bjargað lífi mannsins sem komst lífs af. Fimm skipverjar fórust.“ 6. september 1992 var verið að lóðsa tvo færeyska handfærabáta inn um Hornafjarðarós við Hvann- ey. Gríðarlegir straumar eru í ósn- um og svo virðist sem annar bát- anna, Guliklettur, hafi dregist aft- ur úr. Þama var vonskuveður, 8 til 9 vindstig og rigning. Strand- aði báturinn á svokallaðri Hlein og brotnaði i spón. Vitnum í Ár- bók SVFÍ: Fjórir menn voru á bátnum þegar hann strandaði. Tveir þeirra, Mame Hansen, 32 ára stýrimaður, og Hanus Sjúrða- berg, 18 ára háseti, voru dregnir á land með línu, en skipstjórinn var tekinn upp í bát eftir að hafa rekið inn í ósinn. Johann Magnus Justinsen, skipstjóri á Gulakletti, horfði á bróður sinn hverfa í sæ- rokið, en björgunarvesti bjargaði Johanni. Honum sagðist svo frá í viðtali í Morgunblaðinu: „Bróðir minn sagði að hann væri að missa takið og skömmu síðar fómm við báðir í sjóinn. Hann sást ekki aft- ur. Ég saup mikinn sjó og var orðinn rænulaus af kulda. Þegar þeir komu á bátnum til að taka mig upp var mér það þvert um geð. Það var eins og mig væri að dreyma.“ Lokaorð Eins og sjá má, hefur verið stuðst að miklu leyti við Árbækur SVFI í samantekt þessari. Þeir sem gerlega þekkja sjóslysasög- una munu án vafa sakna einhverra atvika, en hér stóð aldrei til að nefna til allt það sem komið hefur upp á. Var til þessarar samantekt- ar stofnað í tilefni af björgunaraf- rekinu í Vöðlavík á dögunum. Til- gangurinn að riíja upp helstu björgunarafrek þar sem skip og bátar hafa farist eða strandað hin seinni ár. Við skoðun umræddra bóka kemur á daginn að í flestum tilvika leysast mál farsællega og er þá átt við að áhafnir eru ekki í bráðri hættu. Hitt kemur þó fyr- ir að aðstæður era erfiðar og þá standa menn þeim mun betur að vígi að þeir sem era í aðstöðu til að koma til bjargar séu vel tækjum búnir og skipulagðir svo af ber. I síðast nefnda atvikinu í Horna- fjarðarósi vora björgunarsveitar- menn komnir á staðinn aðeins tutt- ugu mínútum eftir að neyðarkallið barst. Hefðu þeir verið 21 mínútu á leiðinni hefði skipstjórinn farist. Já, hver mínúta er dýrmæt. ISUZU TROOPER DIESEL TURBO INTERCOOLER ÁRGERÐ ’94 Verð kr. 3.430.000.- stgr. á götuna "Ódýrasti 7manna díseljeppinn" (Sig. H.DV) "Bíllinn liggur vel og er rásfastur og skemmtilegur í akstri" (Jóh. T. MBL. ) Helsti búnaður: Vél 3,1Lturbo, intercooler, 125 hestöfl, 7 manna bíll, rafdrifnar rúður, samlæsing, 75% diskalæsing í afturdrifi, sjálfvirkar framdrifslokur, hágæða innrétting með"captain" framstólum, fjölstillanlegt bílstjórasæti, rafstillanlegir útispeglar, hiti í útispeglum, útvarp og segulband, rafdrifið loftnet ofl.! Aukahlutir á mynd: álfelgur, kastarar og stærri dekk. tjewrui ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA Efni í allan fatnað. tmwma Hafnarstræti 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.