Morgunblaðið - 16.01.1994, Side 12

Morgunblaðið - 16.01.1994, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANUAR 1994 Aðstæður einstæðs foreldris BRESKIR skopmyndateiknarar sjá erfiðleika Johns Majors forsætisráðherra íhaldsflokksins með ýmsu móti. Hér er hann í gervi einstæðrar móður með vandræðabörn, ráðherra sem neyðst hafa til að segja af sér vegna hneykslismála. eftir Ágúst Ásgeirsson BRESKI íhaldsflokkurinn á veru- lega undir högg að sækja og standa spjótin á John Major for- sætisráðherra úr öllum áttum. Herferð hans fyrir hefðbundnum fjölskyldugildum og afturhvarfi til hinna gömlu gilda virðist hafa haft þveröfug áhrif. Hafa fjöl- skyldugildin beinlínis grafið und- an stjórn Majors vegna kynferðis- legra yfirsjóna þingmanna og ráð- herra og er trúverðugleiki forsæt- isráðherrans í hættu. Á þeim tíma sem liðinn er frá Iandsfundinum í Blackpool í október sl. þar sem hann boðaði bætt siðferði hefur hvert hneykslið rekið annað og skyggt á annars góðan árangur stjórnarinnar í efnahagsmálum. Á fimmtudag sakaði síðan opinber endurskoðandi bæjarráð Ihalds- flokksins í Westminster í Lundún- um um að hafa selt húseignir í borgarhlutanum til þess að kaupa sér atkvæði. Annar leiðtoga bæjarráðsins sem sagður er bera ábyrgð á sölu um 500 íbúða á eftir- sóttum svæðum til að fjölga kjós- endum flokksins situr nú á þingi. Þetta nýja hneykslismál gat ekki komið á verri tíma fyrir stjórn með buxurnar á hælunum og er til þess fallið að auka enn á erfið- ieika Majors og Ihaldsflokksins. Samkvæmt skoðanakönn- un, sem gerð var áður en það kom fram í dagsljósið og birtist í blaðinu Daily Te- legraph í fyrradag, hef- ur fylgi flokksins sjald- an verið minna. Ein- ungis 25,5% kjósenda styðja íhalds- flokkinn en 46,5% Verkamanna- flokkinn, samkvæmt könnuninni. Samkvæmt heimildum úr innsta hring íhaldsflokksins á föstudag hafa leiðtogar flokksins lagt á ráð- in síðustu daga um hvernig vörn skuli snúijí í nýja sókn. John Major hefur sagt að gagnrýni á einkalíf og fjármál ráðherra í stjórn hans væri aðeins „skammvinnt uppþot“ og sagði að stefnan um afturhvarf til hinna gömlu gilda hefði ekkert með siðferði einstaklinganna að gera. Að mati breskra íhaldsmanna eiga hefðbundin gildi, fiölskyldan og hjónabandið, undir högg að sækja. Stjórnin hóf því herferð fyr- ir afturhvarfi til hinna gömlu gilda á flokksþingi í október sl. Stjórn- málaskýrendur hafa þó haldið því fram að tilgangur boðskapsins hafi miklu fremur verið sá að sameina flokkinn eftir auðmýkjandi kúvend- Breskum ihalds- mönnum hefur reynst erf itt að fylgja efftir ffyrir- heitum flokksins um afturhvarf til gamalla gilda ingar í Evrópumálunum og deilur innan þingflokksins. Á þinginu lagði Major þunga áherslu á gildi þess að horfið yrði frá mörgum þeim kennisetningum sem viðtekn- ar hafa verið á undanförnum árum á sviði menntamála. Bæta þyrfti menntakerfið og leita nýrra leiða til að veijast þeirri bylgju glæpa- ofbeldisverka sem riðið hefði yfir Bretland á undanförnum misserum. Leggja bæri þunga áherslu á hin hefðbundnu gildi, hjónaband og fjölskyldulíf. Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að stjórnvöld geti hlaðið undir hjónabandið með ýmsum hætti og þannig styrkt þessa stofnun í samfélaginu. Bóta- og tryggingagreiðslur til einstæðra telja sumir að binda þurfi ákveðn- um skilyrðum. Til hefur staðið að skerða bætur til einstæðra foreldra og rætt hefur verið um að innleiða kerfi sem hamlar gegn því að ein- stæðir foreldrar sem eru á fram- færi hins opinbera eignist fleiri börn. Leiðarahöfundar bresku blað- anna hafa bent á það síðustu daga að engin merki um afturhvarf til gamalla gilda sjáist í aðgerðum rík- isstjórnarinnar. Ráðherrar segja af sér Herferðin hefur ekki gengið sem skyldi þar sem tveir ráðherrar hafa neyðst til að segja af aér í bytjun árs vegna hneykslismála. Jarlinn af Katanesi sagði af sér sem ráð- herra siglingamála eftir að eigin- kona hans svipti sig lífi með riffli hans og bresk dagblöð segja að hún hafi verið í uppnámi vegna sam- bands hans við fyrrverandi ritara Önnu Bretaprinsessu. Þá neyddist Tim Yeo aðstoðarumhverfisráð- herra til að segja af sér eftir að hafa viðurkennt að hafa haldið framhjá konu sinni og átt barn með einum af borgarfulltrúum íhaldsflokksins í júlí sl. Kom í ljós að hann hefði einnig eignast óskil- getið barn á námsárum sínum. Lengi neitaði hann að segja af sér, sagðist ekki hafa framið neinar misgjörðir og skuldaði eng^tm af- sökun. Leiðtogar flokksins í kjör- dæmi Yeo voru á öðru máli, sögðu hann veruleikafirrtan hrokagikk og neyddu hann til afsagnar. Hafa þeir lagt hart að honum að láta einnig af þingmennsku. Þeir þykja endurspegla afstöðu almennings sem gefi lítt fyrir slagorð en kjósi fremur að landsfeðurnir leggi sig fram um að stjórna landinu af sam- viskusemi og alúð með hag þjóðar- innar að leiðarljósi en skari ekki eld að eigin köku. Ennfremur að þeir séu menn til að játa mistök og biðjast afsökunar. Yeo hafði getið sér orð fyrir ötulan stuðning við íhaldssama fjölskyldustefnu Majors. Stuðningsmönnum hans þótti hins vegar að framferði hans hefði gengið þvert á stefnu flokks- ins um eflingu fjölskyldugilda og um afturhvarf til hinna gömlu gilda. Fyrst eftir að framhjáhald hans komst í hámæli sagði Major ekki koma til greina að setja hann af. Á endanum skipti hann um skoðun og sagði að menn í áhrifa- stöðum yrðu að taka afleiðingum afglapa í einkalífinu. Bresk æsifréttablöð hafa enn- fremur verið með fréttir um að Steve Norris aðstoðarsamgöngu- ráðherra hefði haft að minnsta kosti fimm hjákonur. Þessi frétta- flutningur hefur valdið mikilli ólgu á meðal stuðningsmanna Ihalds- flokksins í kjördæmi Norris. Er búist við að hann verði neyddur til afsagnar. Auðkýfingurinn Alan Duncan sagði einnig af sér emb- ætti ritara þingsins vegna frétta um umdeild húsakaup hans. Úr böndum strax? Sumir segja að herferðin fyrir afturhvarfi til hinna gömlu gilda hafi eiginlega farið strax úr bönd- um á flokksþinginu. Þar hafi ráð- herrar og áhrifamenn farið offari í málflutningi og afraksturinn af öllu saman sé að boðskapurinn hafi frekar fælt menn frá fylgi við íhaldsflokkinn. John Major hefur sagt að herferðin snúist ekki um siðferði einstaklinga. Hefur hann reynt að snúa umræðunni úr far- vegi hneykslismálanna. „Stefnan snýst um samfélagsgildi, um mál sem varða alla þegna landsins" sagði hann í sjónvarpsviðtali í síð- ustu viku. „Við sækjumst eftir því að treysta undirstöðumenntun, að refsing sé í samræmi við glæpinn sem drýgður er, að losna við fjár- lagahalla. í aðalatriðum þarf að ryðja úr vegi ýmsum kennnisetn- ingum sem skotið hafa rótum á síðustu árum og áratugum og við teljum stangast á við heilbrigða skynsemi," sagði hann. Major sagði að báráttan fyrir grundvallargild- um snerist um endurbætur í menntakerfmu, samkeppni og aga í skólum, baráttuna gegn glæpum, um virðingu fyrir lögum og reglu, um að efla löggæslu, góða siði í opinberri stjórnun og meðferð fjár- muna, sjálfsaga og náungakærleik, um almenna skynsemi, það að gera greinarmun á því sem er rétt og rangt, þolinmæði og skilning en ekki galdraherferð gegn einstakl- ingsbundnu siðgæði. Með þessu hefur verið litið svo á að nú sé ætlun Majors að varpa fjölskyldugildunum fyrir róða vegna þess hnekkis sem boðskapur- inn hefur beðið. Snúa eigi herferð- inni inn á nýjar brautir, um samfé- lagsgildin. Af þessum sökum hefur forsætisráðherrann legið undir ámæli fyrir ruglingslegan málflutn- ing. Þá hefur það ekki orðið honum til framdráttar að verja einn daginn flokksbrodda, sem orðið hefur hált á svellinu og ekki haft boðskapinn um fjölskyldugildin í hávegum, með því að segja að stefnan hafi ekkert með siðferði einstaklinganna að gera en segja svo nokkrum dögum síðar að áhrifamenn sem hagað hafi sér óskynsamlega verði að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.