Morgunblaðið - 16.01.1994, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANUAR 1994
Clinton í Moskvu
BILL Clinton Bandaríkjaforseti ræðir við nokkrar starfsstúlkur í bakaríi. í Moskvu síðastliðinn fimmtudag.
Arangiisrík Evrópuför
í skugga Whitewater
FYRSTA Evrópuför Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta getur
varla talist annað en árangurs-
rík. Enda virðist „árangar" hafa
verið það markmið sem skipu-
leggjendur ferðarinnar höfðu
að leiðarljósi. A leiðtogafundi
Atlantshafsbandalagsins í
Brussel á mánudag og þriðjudag
náðist samkomulag um að bjóða
fyrrum ríkjum Varsjárbanda-
lagsins upp á „Samstarf í þágu
friðar" en sú hugmynd er uppr-
unnin í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu. Hugmyndir
Bandaríkjamanna um aðgerðir
vegna Bosníudeilunnar náðu
einnig fram að ganga. Clinton
fékk Úkraínustjóm til að fallast
á að afhenda Rússum allar sínar
kjarnorkuflaugar og í Moskvu
undirritaði hann ásamt Borís
Jeltsín Rússlandsforseta yfirlýs-
ingu um að risaveldin hættu að
beina langdrægum kjarnorku-
eldflaugum sínum hvort að öðru
á friðartimum. Það eina sem
skyggði á þessa fyrstu Evrópu-
ferð Clintons sem forseta voru
vandamál, sem hann hafði skilið
eftir heima, en héldu áfram að
ofsækja hann. Bandarískir
fréttamenn, sem fylgdust með
ferðinni, höfðu flestir nieiri
áhuga á að fá svör forsetans við
nýjustu atburðunum í Whitewat-
er-málinu en að heyra skoðanir
hans á framtíð Evrópu.
Áfram Evrópa
Strax í upphafi ferðarinnar lagði
Clinton ríka áherslu á að náin og
mikil samskipti við Evrópu yrðu
eitt meginatriði bandárískrar utan-
ríkisstefnu á meðan hann væri
forseti. Sló
þetta á ótta
margra evr-
ópskra ráða-
manna um að
Bandaríkja-
menn hygðust
leggja meiri áherslu á samskiptin
við ríki Suðaustur-Asíu í stað Evr-
ópu. í ræðu sem hann hélt í Bruss-
el síðasta sunnudag hét forsetinn
því að Bandaríkjamenn myndu
áfram taka virkan þátt í vörnum
Evrópu þó svo að kalda stríðinu
væri lokið.
Clinton sagði NATO vera trygg-
ingu fyrir öryggi ríkjanna beggja
vegna Atlantshafsins og væri
bandalagið eina stofnunin sem
hefði burði til að bregðast við hin-
um nýju aðstæðum í álfunni.
Clinton hefur heimsótt sex Evr-
ópuríki í vikunni. Að loknum fund-
inum í Brussel flaug hann beint
til Prag þar sem hann hitti forseta
Tékkíu, Póllands og Ungveijalands
í því skyni að kynna þeim niður-
stöður NATO-fundarins. Þó að rík-
in þrjú hafi öll sótt um aðild að
NATO og hafi lýst yfir að þau
telji Friðarsamstarfið ekki full-
nægja öryggisþörfum þeirra féllust
þjóðhöfðingjarnir á að taka þátt í
því samstarfi,
sem Clinton
bauð þeim. Að
því búnu hélt
Bandaríkjafor-
seti til Moskvu
en millilenti í
Kiev, höfuðborg Úkraínu, og átti
þar fund með Leoníd Kravtsjúk
forseta, sem raunar einnig var á
leið til Moskvu.
í Moskvu ítrekaði Clinton ein-
dreginn stuðning við stefnu Borís
Jeltsíns forseta, en hann hefur af
mörgum Rússum verið gagnrýndur
fyrir að standa of þétt við bakið á
rússneska forsetanum. Clinton og
Jeltsín áttu þijá fundi auk þess
að snæða óformlegan kvöldverð
saman og bauð Clmton Rússum
þátttöku í Samstarfi í þágu friðar.
Það er ekki síst afdráttarlaus
stuðningur Bandaríkjastjórnar við
Jeltsín er hann braut uppreisn þing-
manna á bak aftur með vopnavaldi
í október, sem sætt hefur gagnrýni
andstæðinga Jeltsíns og að mati
sumra ýtt undir mikið fylgi þjóðern-
issinnans Vladímírs Zhírínovskíjs í
þingkosningunum í desember. Zhír-
ínovskíj fór fram á fund með Clint-
on meðan á heimsókninni stóð en
því var alfarið hafriað.
Ræddi við andstæðinga
Jeltsíns
En þó að Clinton hafi í nokkrum
ræðum sínum í vikunni óbeint
gagnrýnt Zhírínovskíj áttu sér stað
ýmsar þreifingar við andstæðinga
Jeltsíns á bak við tjöldin. í móttöku
í embættisbústað bandaríska
sendiherrans í Moskvu voru marg-
ir stjórnarandstæðingar meðal
gesta og virtist Bandaríkjaforseti
gera sér far um að ræða við for-
ystumenn jafnt gamla kommún-
istaflokksins sem flokks Zhír-
ínovskíjs. Vakti það sérstaka at-
hygli að Anthony Lake, öryggis-
ráðgjafi forsetans, ræddi í tuttugu
mínútui' við Gennadí Zjúganov,
formann Kommúnistaflokksins.
Evrópuferðin samanstóð þó ekki
af fundum og móttökum einvörð-
ungu. Öll umgjörð ferðarinnar (og
raunar nánast hvert einasta andar-
tak hennar) var þrautskipulögð af
sérfræðingum í almenningstengsl-
um þannig að hún byði upp á sem
flest myndatækifæri fyrir ijöl-
miðla. í Prag rölti Clinton milli
öldurhúsa ásamt Vaclac Havel for-
seta og gekk yfir Karlsbrúna með
Pragkastala í baksýn. í Moskvu
heimsótti hann bakarí og slátrara,
klæddur rússneskri pelshúfu, tók
í hendurnar a fólki og skiptist á
skoðunum. „Ég vil hjálpa almenn-
ingi,“ sagði hann meðal annars við
éldri konu, sem var meðal þeirra
er flykktust að honum og á fundi
með Jeltsín lofaði hann efnahags-
legum stuðningi upp á marga millj-
arða dollara. Hann talaði beint til
rússriesku þjóðarinnar í sjón-
varpsávarpi og í kirkju við Rauða
torgið kveikti hann kerti í minn-
ingu móður sinnar, sem var jarð-
sett sama dag og hann hélt til
Evrópu.
Hápunktur ferðarinnar var svo
er forsetar Rússlands og Banda-
ríkjanna undirrituðu á föstudag
samkomulag um að hætta að beina
kjarnorkueldflaugum að öðrum
ríkjum. Nýrri eldflaugar eru það
fullkomnar að þær þurfa ekkert
stöðugt skotmark en eldri tegund-
um, sem þurfa slíkt, verður beint
á haf út.
Á leiðinni frá Rússlandi kom
Clinton við í Hvíta-Rússlandi og
Genf, en þar hitti hann m.a. Assad
Sýrlandsforseta að máli.
Hefur vaxið í áliti
Flestir eru sammála um að
Clinton hafi vaxið mjög í áliti í
Evrópu eftir þessa ferð. Hann er
talinn hafa sýnt mikla forystu á
NATO-fundinum og slegið á rétta
strengi í samskiptum sínum við
Austur-Evrópuríkin. Afköst ferð-
arinnar eru óhemju mikil, ef tekið
er tillit til þess hve stutt hún var,
og jafnvel reyndustu embættis-
menn voru orðnir uppgefnir um
miðbik hennar. Clinton sjálfur virt-
ist hins vegar ef eitthvað er eflast
eftir því sem leið á vikuna.
Á meðan Clinton ferðaðist um
Evrópu héldu hins vegar áfram
vangaveltur um tengsl hans og
eiginkonu hans Hillary við gjald-
þrota sparisjóð í Arkansas-fylki og
lóðaviðskipti hans. Hefur meðal
annars verið gefið í skyn að spari-
sjóðurinn hafi greitt hluta af kosn-
ingaskuldum Clintons eftir ríkis-
stjórakosningar og að hann hafi
hugsanlega með ítökum sínum
dregið það að sparisjóðurinn varð
að hætta starfsemi, þrátt fyrir að
ljóst væri að hann stefndi í gjald-
þrot. Mörgum spurningum er enn
ósvarað um tengsl Clinton-hjón-
anna við þetta mál (þó ekkert bendi
til að þau hafi aðhafst neitt ólög-
legt) og beinast böndin ekki hvað
síst að Hillary. Ákvað Janet Reno
dómsmálaráðherra í vikunni að
láta fara fram óháða rannsókn á
málinu. Það beið því ýmislegt
Clintons er hann kom heim úr
Evrópuförinni.
BAKSVID
eftir Steingrím Sigurgeirsson
Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík 30. og 31. jan.
rjfiCTTTTFTTT] grundvöllinri
að heira man niífi (bondmii
Kjósum
í Kaupmannahöfn
FÆST
i BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁOHÚSTORGI