Morgunblaðið - 16.01.1994, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga myndina Perfect World, Full-
kominn heimur, með stórstjörnunum Kevin Costner og Clint Eastwood í aöalhlut-
verkum. Leikstjóri þessarar léttu spennumyndar er Clint Eastwood
Ævintýri á flótta
MYNDIN Fullkomiim heunur genst haustið 1963.
Ræninginn Butch Haynes hefur frá unga aldri
kynnt sér stafsemi fangelsa Texas-fylkis af eigin
raun en þegar sagan hefst finnst honum nóg kom-
ið og er í þann veginn að strjúka við annan mann
úr fangavist sem ekki átti að Ijúka fyrr en eftir
40 ár. Fangamir taka sjö ára strák í gíslingu til
þess að komast undan handtöku en úrvalslögreglu-
lið fylkisins með Red Gamett (Clint Eastwood) í
broddi fylkingar, rekur flóttann um fylkið þvert
og endilangt. Með strákinn sem skjöld kaupir
Butch sér tíma sem hann
höfði.
Strákurinn heitir Philip
(T.J. Lowther) og
milli hans og Butch mjmd-
ast einhvers konar trúnað-
ur og vinátta við þessar
óvenjulegu aðstæður en
samband þeirra byggist
helst á því að báðir hafa
alla tíð lifað gleðisnauðu
lífi utan við það sem telst
viðtekið í samfélaginu og
bakgrunnur beggja skiptir
máli fyrir framvindu sög-
unnar. Butch hefur varla
átt sér viðreisnar von frá
því að hann var sjö ára.
Þá drap Butch mann sem
hafði misþyrmt móður
hans vegna viðskiptaá-
greinings en móðirin lagði
stund á elstu atvinnugrein
siðmenningarinnar allt til
æviloka en hún kvaddi
jarðlífíð fyrir eigin til-
verknað þegar einkason-
urinn var 12 ára gamall.
Við svo búið hóf Butch
verknám í fjölskyldufaginu
undir handleiðslu atvinnu-
glæpamannsins föður síns
og var skömmu síðar grip-
inn glóðvolgur við það að
stela bíl.
Lögreglumaðurinn sem
handtók hann þá var eng-
inn annar en Red Garrett,
ætlar að nýta eftir eigin
sá sami og nú er á hælum
hans. Red hafði með for-
tölum fengið dómarann
sem fékk mál stráksa til
meðferðar á að sýna nú
enga miskunn heldur loka
hann bara inni, þá væru
meiri líkur á að stráksi
gæti orðið að manni heldur
en ef hann væriáfram í
slagtogi með foðumefn-
unni sinni. Þar urðu Red á
mistök því að það var fyrst
í unglingafangelsinu sem
Butch breyttist í alvöm
glæpamann.
Harmsaga Philip litla er
annars eðlis. Pabbi hans
er farinn að heiman en
mamma gætir þess vel og
vandlega að drengurinn
víki hvergi af hinum
þrönga vegi sem lögmál
Votta Jehóva býður að þeir
skuli fylgja sem ætli sér
að verða meðal sálnanna
200 þúsund sem þeirra
heimildir herma að eigi ein-
ar möguleika á framhalds-
lífí að loknum dómsdegin-
um sem ku færast stöðugt
nær. Philip fær að gera
fæst af því sem önnur böm
mega og hefur lengst af
stuttri ævi verið útupdan
og önnum kafínn við það
Flóttamenn
KEVIN Costner og T.J. Lowther í hlutverkum stroku-
fangans Butch og gíslsins Philips Perry.
eitt að búa sig undir fram-
haldslífíð.
Það verður til að inn-
sigla fóstbræðralag þess-
ara ólíku utangarðsmanna
að fanginn sem strauk með
Butch reynir fljótlega eftir
gíslatökuna að áreita Philip
og misnota hann kynferðis-
lega en Butch kemur
drengnum til bjargar og
skýtur öfuggann til bana.
Eftir þetta öðlast Butch
nýtt vald yfír Philip sem
verður reiðubúinn að fylgja
þessari nýju föðurímynd
sinni á heimsenda ef því
er að skipta en það er ein-
mitt langleiðina á heims-
enda sem Butch ætlar, því
hann lætur sig dreyma um
að komast alla leið til Al-
aska. Báðir gera sitt ítrasta
til að gera ferðina sem eft-
irminnilegasta með því að
gera eitt og annað sem þá
hefur lengi langað til en
ekki getað látið eftir sér.
Þar er þó sá hængur á
að lögregluforinginn Red
Garrett (Clint Eastwood)
og hans menn em skammt
Lög og regla
CLINT Eastwood og Laura Dern hafa bæði fengið
það hlutverk að vinna að því að fangelsa strokufang-
ann og bjarga gísli hans heilum á húfi. Þau greinir
á um leiðir.
undan og bíða þess albúnir
að koma böndum á stroku-
fangann. Red þessi er úr-
ræðagott hörkutól eins og
flestar þær löggur sem
Eastwood hefur leikið á
sínum mesta ferli en þó
ölíkur að því leyti að hann
verður sífellt taugaveikl-
aðri eftir því sem líður á
flóttann enda þykist hann
vita að þrátt fyrir ískalt
og rólegt yfirborð sé Butch
í raun trúandi til alls.
Það eykur Red svo van-
líðan að eins og aðrar
Eastwood-löggur hefur
hann sinn djöful að draga
í starfinu. Sá er afbrota-
fræðingurinn Sally Gerber
sem Laura Dem leikur en
hennar minnast 70 þúsund
ísiendingar úr Júragarðin-
um frá því í sumar.
Leikstjóri Fullkomins
heims er enginn annar en
Clint Eastwood, tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafí frá
því síðastliðið vor þegar
vestrinn Unforgiven kom,
sá og sigraði. Fullkominn
heimur er sautjánda mynd-
in sem Clint leikstýrir en
38. aðalhlutverk hans á
hvíta tjaldinu.
Sagan er byggð á frum-
sömdu handriti eftir John
Lee Hancock. Annar fram-
leiðenda myndarinnar er
Mark Johnson, sá sem
þekktastur er fyrir sam-
starf sitt við Barry Levin-
son en hann hefur fram-
leitt allar myndir hans til
þessa. Hinn framleiðand-
inn heitir David Valdes og
hefur árum saman unnið
fyrir Eastwood hjá Malp-
aso fyrirtæki hans en hóf
feril sinn sem aðstoðar-
maður Francis Ford Copp-
ola. Meðal annarra að-
astandenda myndarinnar
Fullkomins heims eru
menn úr vinningsliði
Eastwoods frá síðustu ósk-
arsverðlaunahátíð, þ.á m.
klipparinn Joel Cox og
kvikmyndatökumaðurinn
Jack Green auk Henry
Bumstead sviðsmynda-
hönnuðar sem hlaut ósk-
arsverðlun fyrir vinnu sína
við hinar sígildu myndir
The Sting og To Kill a
Mockingbird.
Komast þeir fyr-
ir á einu tjaldi?
HVAÐ eiga Kevin Costner og Clint Eastwood sam-
eiginlegt fyrir utan kvikmyndina Fullkominn
heim. Báðir hafa hlotíð tvenn sömu óskarsverð-
launin fyrir kvikmynd sem þeir báru að öllu leytí
ábyrgð á, léku aðalhlutverk í og leikstýrðu. Síðast-
liðið vor veitti Clint viðtöku óskarsverðlaunum
fyrir bestu mynd ársins og einnig fyrir bestu leik-
sljórn á vestranum Unforgiven en þar var hann
í aðalhlutverki. Tveimur árum áður hafði Costner
hlotið óskarsverðlaun fyrir bestu mynd ársins og
leikstjórn á myndinni Dansar við úlfa en þar var
hann sjálfur í aðalhlutverki. Dansar við úlfa var
tilnefnd tU 12 óskarsverðlauna, Unforgiven tíl
níu. Hvorug myndanna hefði orðið til hefði þess-
ara manna ekki notíð við, þeirra eigin fyrirtæki
framleiddu þær, hjá þeim fæddust hugmyndimar
og þeim var eignuð velgengnin. Clint Eastwood
og Kevin Costner eru meira en heimsfrægir leikar-
ar. Þeir eru raunverulegir áhrifamenn í banda-
riskum kvikmyndaiðnaði. Sumir hafa sagt að þeir
séu svo miklir stórlaxar að sama kvikmyndaíjald-
ið getí varla verið nógu stórt fyrir báða í einu.
Fullkominn heimur ber vott um annað.
r
TFullkomnum heimi fer
-*■ Eastwood með hlutverk
lögreglumanns líkt og ótal
sinnum áður en Costner er
hins vegar í hlutverki
dæmds glæpamanns á
flótta. Þetta er fyrsta í
fyrsta skipti sem Costner
— einn frægasti hetjuleik-
ari síðari ára — fer með
hlutverk skúrks í kvik-
mynd. Einmitt þar var
fólgið aðdráttarafl hlut-
verksins í huga Costners;
manninn sem á undanfóm-
um árum hefur leikið Hróa
hött í Robin Hood: Prince
of Thieves, Elliot Ness í
Untouchables og Jim
Garrison í JFK og lífvörð
Whitney Houston í Bo-
dyguard var farið að langa
í tilbreytingu. Ásamt með
hlutverkinu í Dansar við
úlfa hafa fyrmefndar kvik-
myndir á fáum ámm lyft
Costner í hæstu haeðir
Hollywood.
Costner sást fyrst á
tjaldi arið 1981 í mynd sem
hét Shadows Run Black og
næstu ár lék hann hlutverk
í myndunum Night Shift
og Chasing Dreams og fór
með smárulli í myndinni
Bófinn
KEVIN Costner leikur sitt fyrsta andhetjuhlutverk
í myndinni Fulkominn heimur þótt hann sé ekki
mjög illúðlegur á þessari mynd.
um ævi leikkonunnar
Frances Farmes, árið
1983, þar sem Jessica
Lange var í aðalhlutverki.
Árið 1983 fór hann með
aðalhlutverk í Stacy’s
Knights. Allt fram yfir
gerð þeirrar myndar vann
Costner aukavinnu sem
sviðsstjóri í kvikmynda-
stúdíói til að hafa í sig og
á. Mynd Lawrence Kasdan,
Big Chill, var ákveðið bak-
slag á ferlinum árið 1983
en þar sluppu atriði með
honum ekki í gegnum
klippingu. Kasdan gaf
Costner þó síðar tækifærið
sem réði úrslitum fyrir
hann, það bauðst í vestran-
um Silverado og myndin
American Flyer fylgdi í
kjölfarið og eftir næstu
mynd þar á eftir, The
Untouchables, var farið að
tala um Kevin Costner sem
stórstjömu. Ótalin eru að-
alhlutverk hans í No Way
Out, Bull Durham og Re-
venge. Frá því að Fullkom-
inn heimur var fullgerður
hefur Costner lokið við
gerð nýrrar myndar, enn
undir stjórn Lawrence
Kasdan, en mynd þeirra
félaga er byggð á ævi hetj-
unnar úr villta vestrinu
Wyatt Earp og ber nafn
hans.
i
U
I
l
f
I
t
(
I
6