Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 36
mrgnniKifafcib
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUA UGL YSINGAR
HJÚKRUNARHEIMILI
VIÐ GAGNVEG í REYKJAVÍK
Hjúkrunarfræðingar
sjúkraliðar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á
dag- og kvöldvaktir og sjúkraliða á allar vakt-
ir. Unnið er þriðju hverja helgi.
Um er að ræða störf frá 50% vinnuhlutfalli
upp að 100%.
Nánari upplýsingar veitir Birna Kr. Svavars-
dóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 683200.
Markaðsstjóri
Traust fyrirtæki í vexti óskar eftir að ráða
markaðsstjóra til að veita forstöðu heildsölu-
deild fyrirtækisins.
Starfssvið:
Stjórnun heildsöludeildar, skipulagning
markaðsátaks og sölustarfa sölumanna
ásamt eigin sölustarfi.
Starfsreynsla:
Reynsla í sölumennsku, stjórnun á fólki,
skipulagningu á vinnu sölumanna og for-
ganga markaðsátaks. Þekking á sölu fylgi-
hluta fyrir bifreiðar og vinnuvélar æskileg.
Kröfur:
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, skipu-
lags- og samskiptahæfileikar.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Traust fyrirtæki 349“ fyrir 22. janúar nk.
Haevangur h if
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarráðgjðf Skoðanakannanir
Verktaki
- mötuneyti
Verktaki óskast til að hafa umsjón með fyrir-
tækismötuneyti.
Fyrirtækið er staðsett í Reykjavík. Starfs-
menn eru um 170 og er boðið upp á léttar
veitingar. Aðstaða er öll fyrir hendi og sér
fyrirtækið um greiðslu á hráefniskostnaði.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum eru
beðnir að leggja inn nafn sitt, kennitölu,
heimilisfang og símanúmer, ásamt upplýs-
ingum um menntun og/eða reynslu, merktu:
„V - 3885“ til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
föstudaginn 21. janúar 1994.
Einstakt tækifæri
Lögmaður óskast sem meðeigandi að gam-
algróinni fasteignasölu í borginni. Lítið fjár-
framlag.
Vaxandi almenn lögfræðistörf og innheimta
ef áhugi er fyrir hendi. Góð starfsaðstaða.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl.
15.00 21. janúar merkt: „Trúnaðarmál - 3891 “.
Frá Háskóla Islands
Laus er til umsóknar hlutastaða dósents
(37%) í fæðinga- og kvensjúkdómafræðum
við læknadeild Háskóla íslands. Staðan er
veitt til fimm ára, frá 1. júlí 1994.
Staðan mun tengjast kennslu á sviði kven-
sjúkdóma, einkum er varðar innkirtlafræði
og frjósemisvandamál.
Umsækjendur um ofangreinda stöðu skulu
láta fylgja umsóknum sínum rækilegar skýrsl-
ur um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf. Með umsóknum skulu send eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj-
enda, prentuðum og óprentuðum.
Ennfremur er óskað eftir greinargerð um
rannsóknir sem umsækjendur hyggjast
stunda, verði þeir ráðnir, og hvaða aðstaða
er nauðsynleg fyrir fyrirhugaðar rannsóknir.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1994 og
skal umsóknum og umsóknargögnum skilað
í tvíriti, til starfsmannasviðs Háskóla ís-
lands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101
Reykjavík.
Framtíðarstarf
Innflutningsfyrirtæki í borginni óskar að
ráða sem allra fyrst kraftmikinn, ákveðinn
og duglegan starfskraft til starfa við toll-
skýrslugerð, innkaupapantanir og birgða-
stjórn.
Viðkomandi þarf að vera töluglöggur og
kunna góð skil á tölvum. Skilyrði er að við-
komandi hafi reynslu af tollskýrslugerð, sé
góður í erlendum tungumálum (einu Norður-
landamáli og ensku).
Um er að ræða krefjandi og spennandi starf
er kallar á mikið frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar
til 20. janúar nk.
Q TfíNT ÍÓNSSON
RÁÐCJQF & RÁÐN I N CARÞJÓ N II STA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
MIÐSTÖÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870 880
Opið hús í Breiðholtskirkju, tójódd, mónudaga kl. 12-15
og safnaðarheimili Dómkirkjunnar fimmtudaga kl. 12-15.
Á DAGSKRÁ
mánudaginn 17.janúarkl. 13.00:
Lærum gerbakstur og spörum
Kynning og skráning á námskeið
í gerbakstri, sem haldið verður í vikunni í
umsjá Margrétar Sigfúsdóttur,
hússtjórnarkennara.
Skráning fer einnig fram í síma 870 880.
Kaffiveitingar.
Fundarstaður: Breiðholtskirkja,
Mjódd, jarðhæð.
Vinnslustjóri
á frystitogara
Öflugt útgerðarfyrirtæki á landsbyggðinni
óskar að ráða vinnslustjóra á frystitogara.
Starfiö:
Skipulagning og stýring vinnslu/framleiðslu
um borð ásamt almennum vinnslustörfum.
Hæfniskröfur:
Leitað er að aðila með fiskvinnsluskólarétt-
indi og reynslu af verkstjórn. Aðeins kemur
til greina topp starfsmaður með árangurs-
ríkan starfsferil.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið
með sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
eða Torfi Markússon frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Vinnslustjóri", fyrir
22. janúar nk.
RÁÐGAEÐURhf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688
KOPAVOGSBÆR
Laus staða -
landslagsarkitekt
Staða landslagsarkitekts á Bæjarskipulagi
Kópavogs er laus til umsóknar. Starfið felst
einkum í skipulagi og hönnun opinna svæða
svo og umsjón með að ákvæðum laga um
náttúruvernd og gróðurvernd sé framfylgt.
Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra
fyrir 25. janúar nk.
Upplýsingar um starfið veitir Birgir H. Sig-
urðsson, skipulagsstjóri, í síma 41570, kl.
11 til 12 alla virka daga.
Starfsmannastjóri.