Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
37
ATVIN NUAUG[ YSINGAR
Lögfræðingur
Lögfræðistofa í miðbæ Reykjavíkur óskar
eftir að ráða lögfræðing til starfa. Starfið er
aðallega við innheimtur og felst í stefnugerð,
gerð kröfulýsinga og fleira.
Starfsreynsla æskileg en ekki skilyrði.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 25. janúar merktar: „L - 10877“.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Óskað er eftir forstöðumannni í mötuneyti
skólans. Æskilegt er að umsækjendur hafi
menntun matreiðslumanns eða sambærilega
menntun, góða starfsreynslu og reynslu af
rekstri.
Umsóknir með nafni, heimilisfangi, síma-
númeri og upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist skólanum fyrir 22.
janúar nk.
Upplýsingar verða ekki gefnar í síma. Öllum
umsóknum verður svarað.
FLUGLEIDIR/V
I
Flugfreyjur/
flugþjónar
Flugleiðir óska eftir að ráða flugfreyjur og
flugþjóna til tímabundinna starfa í sumar.
Félagið leitar eftir fólki sem hefur starfs-
reynslu í þjónustustörfum og góða þjónustu-
lund.
Æskilegt er að umsækjendur séu ekki yngri
en 23 ára.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun er
nauðsynleg og góð tungumálakunnátta í
ensku, Norðurlandamáli og þýsku.
Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að
sækja kvöldnámskeið í 6 vikur í mars og
apríl og taka próf að því loknu.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannaþjón-
ustu Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli og á sölu-
skrifstofum félagsins. Tekið verður á móti
umsóknum í starfsmannaþjónustu Flugleiða,
Reykjavíkurflugvelli, til og með 24. janúar.
Öllum umsóknum verður svarað fyrir 1. mars nk.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra,
Reykjanesi.
Viltu ná árangri?
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykja-
nesi óskar eftir að ráða tímabundið til starfa
forstöðumann við meðferðarsambýli fyrir
fatlaða í Kópavogi. Jafnframt er óskað eftir
deildarþroskaþjálfum til starfa á hinum ýmsu
viðfangsefnum Svæðisskrifstofu.
Um er að ræða afleysingar í 6-8 mánuði og
þarf viðkomandi að geta hafið störf sem
fyrst.
Óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðrum fag-
menntuðum starfsmanni með uppeldisfræði-
lega menntun og reynslu af stjórnunarstörfum.
Forstöðumenn og deildarþroskaþjálfar taka
þátt í framsæknu starfi í málefnum fatlaðra
á vegum Svæðisskrifstofu með öflugum, fag-
legum stuðningi í formi handleiðslu, nám-
skeiða og víðtæku faglegu samstarfi með
öðrum stjórnendum hjá Svæðisskrifstofu.
Umsóknarfrestur er til 28. janúar nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 641822
og umsóknareyðublöð liggja frammi á Svæð-
isskrifstofu Reykjaness, Digranesvegi 5,
Kópavogi.
St. Fransiskusspítali
Stykkishólmi
óskar eftir að ráða meinatækni frá og með
1. apríl '1994.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri eða
framkvæmdastjóri í síma 93-81128.
Framkvæmdastjóri
óskar að ráða framkvæmdastjóra til starfa,
sem fyrst. Leitað er að kröftugum og skipu-
lögðum einstaklingi, sem hefur menntun eða
starfsreynslu til að takast á við þetta starf.
Áhugi á því málefni sem þessi samtök standa
fyrir er nauðsynlegur. Starfinu fylgja ferða-
lög. Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Allar nánari upplýsingar fást eingöngu á
skrifstofu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu
14, og skal umsóknum er tilgreina aldur,
menntun og starfsreynslu skilað á sama
stað.
Umsóknarfrestur er til 24. janúar nk.
íþróttir fyrir alla eru landssamtök með aðild að ÍSl' og hafa að
markmiði sínu að efla heilsu- og likamsrækt meðal almennings,
félaga og starfsmanna fyrirtækja.
Gl 7ÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARHÓNU5TA
TfARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
HJARTADEILD
Staða sérfræðings á hjartadeild Landspítal-
ans er laus til umsóknar.
Á hjartadeildinni og rannsóknastofum tengd-
um henni eru stundaðir sjúklingar með alls
kyns hjarta- og lyflæknisfræðilega sjúkdóma,
framkvæmd margs konar hjartaritun og
ómskoðanir, hjartaþræðingar, gangráðs-
ígræðslur, kransæðavíkkanir og aðgerðir þar
að lútandi auk vísindarannsókna og kennslu.
Umsækjandi verður að vera viðurkenndur
sérfræðingur í hjartasjúkdómum. Hann verð-
ur að hafa verulega reynslu í rannsóknum
og aðgerðum sem tilheyra greininni, sérstak-
lega kransæðavíkkun og skyldum aðgerðum.
Stöðunni fylgir kennsluskylda við læknadeild
Háskóla íslands og ætlast er til að sérfræð-
ingurinn sé virkur í rannsóknastarfsemi.
Umsókn skal senda til stjórnarnefndar Ríkis-
spítala, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík, fyrir
10. febrúar 1994. Henni skal fylgja ítarleg
greinargerð um starfs- og kennsluferil og
Ijósrit af vísindagreinum.
Nánari upplýsingar gefa Þórður Harðarson,
prófessor, í síma 601266, og Árni Kristins-
son, yfirlæknir, í síma 601276.
BLOÐBAINIKINN
Staða hjúkrunarframkvæmdastjóra í blóð-
tökudeild Blóðbankans er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
Umsækjandi þarf að vera hjúkrunarfræðingur
og geta hafið störf þann 1. mars nk. Starfið
felur í sér yfirumsjón með skipulagningu
blóðsöfnunar í Blóðbankanum og í blóðsöfn-
unarferðum ásamt eftirliti með blóðgjöfum.
Hann hefur jafnframt nána samvinnu við
Barnapössun
Óskum eftir barngóðri konu til að gæta
tveggja barna á aldrinum 3ja mán. og 8 ára
í Garðabæ. Vinnutími 1 /2 eða allur dagurinn.
Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „E - 12156" fyrir 21. janúar.
Skipatæknifræðingur
Óskum eftir skipatæknifræðing/skipaverk-
fræðing í tímabundin verkefni.
Áhugasamir sendi inn upplýsingar um fyrri
störf á auglýsingadeild Mbl., merktar: „X -
4767“.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar stöður við skattfram-
kvæmd. Um er að ræða stöður hjá embætti
ríkisskattstjóra, skattstofu Reykjavíkur,
skattstofu Vesturlands, skattstofu Vest-
fjarða, skattstofu Norðurlands-vestra, skatt-
stofu Norðurlands-eystra, skattstofu Austur-
lands, skattstofu Suðurlands og skattstofu
Reykjaness.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
á sviði lögfræði, viðskiptafræði, eða hafi afl-
að sér menntunar eða sérþekkingar um
skattalöggjöf og framkvæmd hennar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1994.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu-
neytinu.
Fjármálaráðuneytið,
1 l.janúar 1994.
deildarstjóra rannsóknadeildar og blóðgjafa-
skrár í daglegum rekstri. Hann starfar undir
stjórn og í samvinnu við forstöðulækni Blóð-
bankans, sem gefur nánari upplýsingar um
starfið í síma 602030.
GEÐDEILD LANDSPITALANS
Nú þegar er laus til umsóknar staða hjúkrun-
ardeildarstjóra við unglingadeild geðdeildar
Landspítalans við Dalbraut 12.
Deildin annast sérhæfða greiningu og með-
ferð unglinga með geðræn og félagsleg
vandamál. Um er að ræða 100% starf -
dagvinna. Deildarstjóra gefst tækifæri til að
sækja um barnaheimilispláss og húsnæði.
Frekari upplýsingar veitir Anna Ásmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602500.
HJARTA-OG
LUNGNASKURÐLÆKNINGADEILD
Laus er til umsóknar staða tæknilegs sér-
fræðings við rekstur hjarta- og lungnavélar
á hjarta- og lungnaskurðlækningadeild Land-
spítalans (skor 053). Um er að ræða spenn-
andi og nýstárlegt framtíðarstarf - full staða.
Starfsþjálfun fer fram undir handleiðslu sér-
fræðinga deildarinnar en einnig mun kennsla
og þjálfun fara fram erlendis að hluta til.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu við
störf á heilbrigðis- eða tæknisviði.
Umsóknum skulu fylgja greinagóðar upplýs-
ingar um menntun og fyrri störf. Umsóknar-
frestur til 20. febrúar 1994. Umsóknir sendist
yfirlækni deildarinnar. Allar nánari upplýs-
ingar gefa Grétar Ólafsson, yfirlæknir, í síma
601000/601338, eða Viktor Magnússon,
deildarstjóri, í síma 601000/601571.
RÍKISSPÍT AL AR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferö sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem viö störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Rikisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæöi þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.